Tíminn - 26.05.1966, Side 2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 26. maí 1966
Áttræður í dag:
Andrés Eyjólfsson
fyrrv. alþingismaður, Síðumúla
„Auðævi þjóðanna eru menn,
en hvorki varningur né gull“.
Þessi orð koma mér í hug nú,
er ég sendi vini mínum Andrési
Syjólfssyni í Síðumúla afmælis-
kveðju á áttræðisafmæli hans. Lán
mitt í lífinu er m.a. það að hafa
yfirleitt kynnzt góðu fólki og
eiga góðar minningar um samstarf
við það, en einn af þeim ágæt-
ustu mönnum, sem ég hef kynnzt
er Andrés í Síðumúla. Drengskap
ur hans við mig, ráð hans og um-
hyggja, allt hefur þetta verið á
einn veg, gefið af hyggindum,
góðvild og fullum trúnaði.
Andrés er fæddur að Kirkjubóli
í Hvftársíðu. Foreldrar hans voru
Eyjólfur Andrésson Magnússpnar
alþm. Andréssonar og kona hans,
Guðrún Brynjólfsdóttir. Ættir
hans eru landskunnar.
Andrés lauk prófi sem búfræð
ingur frá Hvanneyri og hóf að þvi
loknu búskap á stórbýlinu Síðu-
múla í Hvítársíðu, fyrst sem leigu
liði, en síðan eignaðist hann jörð
ina alla og bjó þar stórbúskap.
Andrés fór ekki troðnar götur í
tlnum búskap, heldur hélt hann
á þær leiðir, sem honum
árennilegastar til árangurs,
hirti þá hvorki um álit annarra
á þeim, eða þó fjárhagur hans
væri ekki undir það búinn að þola
áföll.
Allt þetta tókst. Jörð sína hús-
aði hann betur en þá þekktist yf-
irleitt, ræktaði túnið og stækkaði
búið. Álit samferðarmanna óx
jafnt og þétt eftir því, sem kynni
þeirra af manninum og störfum
hans urðu meiri.
Fjölmörg trúnaðarstörf hafa
honum verið falin og svo vel hef-
ur hann rækt þau, að við þau hef-
ur hann sjálfur orðið að losa sig
fyrir aldurs sakir og hefur þess
jafnan verið saknað af þeim, er
honum hafa falið þau.
Það trúnaðarstarfið, sem Andrés
hefur gegnt lengst er oddvitastarf
ið í hreppsnefnd Hvítársíðu. Af
því mun hann láta í næsta már.uði
að eigin ósk, þá áttræður. Sem
dæmi upp á reglusemi hans og
skyldurækni skal þess getið, að
núverandi yfirendurskoðandi
hreppareikninga í Mýrasýslu hef
ur sagt mér, að alltaf skili Andrés
í Síðumúla fyrstur hreppsreikn-
ingi f sínar hendur og alltaf á
þeim tíma, er lög mæla fyrir um,
og allt sé það í röð og reglu, svo
endurskoðun sé óþörf.
Andrés í Síðumúla var einn aí
mestu áhrifamönnum að stofnun
Reykholtsskóla og formaður skóla
nefndar frá stofnun og þar dl fvr
ir þrem árum, að hann sagði því
starfi af sér fyrir aldurs sakir.
Það, sem hefur einkennt störf
Andrésar alla ævina er hyggindi
dugnaður og sérstök reglusemi o,g
trúmennska, fyrir öllum þeim mal
um var vel séð, sem hann hafði
forustu fyrir. Það sannar sveitar-
félag hans og hérað. Þess vegna
varð hann sjálfur að losa sig við
trúnaðarstörfin, eins og áður seg-
. ir.
Andrés í Síðumúla hefur tekið
mikinn þátt í stjórnmálum og ver
ið ötull forystumaður í Framsókn-
arflokknum. Störf hans á Alþingi
sem þingskrifara og síðan skjala-
varðar gerðu hann mjög kunnug-
an þingmálum og stjómmálum al-
mennt. Andrés í Síðumúla varð í
störfum' sínum á Alþingi sem
heima í héraði, mjög vinsæll af
alþingismönnum og samstarfs-
mönnum sinum þar. Hann er auk
þess að vera boðinn og búinn til
þess að leysa hvers mans vanda,
manna skemmtilegastur, góður
hagyrðingur og með gamansemi á
vör svo engan undraði er til þekk
ir, hve vinsæll hann er. .Það hefur
komið af sjálfu sér.
Þegar hinn vinsæli þingmaður
Mýramanna Bjarni Ásgeirsson lét
af þingmennsku vorið 1951, er
hann gerðist sendiherra í Osló
varð Andrés í Síðumúla við ein-
dregnum óskum samherja sinna
í Mýrasýslu um að fara í fram
boð til Alþingis. Hann var þá orð
inn 65 ára gamall og hafði lítinn
tíma til undirbúnings við þær al-j
þingiskosningar. Eg fullyrði, að i
engum hefði þá verið fært að
halda kjördæminu fyrir Fram-
sóknarflokkinn, enma Andrési.
Vinsældir hans, drengskapur og
það traust, sem hann nput í hér-
aðinu, nægðu til þess, að hannj
náði kosningu. — Andrés j
brást heldur ekki trausti sem ?1-1
þingismaður frekar en í öðrum
störfum.
Hann gekk til verks á Alþingi
sem heimavanur væri, sem hann
og líka var, fylgdi fast eftir mál
um kjördæmisins, enda fleygði
þá áfram umbótum í vegamálum
rafmagnsmálum og skólamálum,
svo að aldrei hefur verið bebur
gert en þá.
Hann hafði sig ekki frammi í
þingsölum, nema þau mál væru
á dagskrá, er hann hafði sérlegan
áhuga á, en eftir ræðum hans
var tekið og trausta og hyggna
manninum, sem bak við þær stóð,
og þær jafnan virtar og vel metn
ar.
Andrés í Síðumúla tók þá á-
kvörðun að hætta þingmeansku
sjötugur. Það féll í minn nlut að
taka við af honum sem framtjóð-
andi Framsóknarflokksins í Mýra
sýslu. Það hefur engum verið ljós
ara en mér, að með öllu hefði
mér verið ókleift að vinna bær
kosningar, hefði ég ekki notiö
heilinda hans og fulls stuðnings,
og honum tókst meira að segja
með hyggindum sínum að láta mig
njóta að nokkru þess trausts, sem
hann hafði áunnið sér á langri og
giftudrjúgri starfsævi. Eg haf oft
um það hugsað, og frá þeirri hugs
un minni skýrt, að enginn hefur
í slíkum skiptum hlotið betra hlut
skipti en ég, að njóta handleiðslu
og trúnaðs Andrésar í Síðumúia
á fyrstu göngu minni á landsmála-
brautinni.
Andrés í Síðumúla hefur verið
gæfumaður í lífinu. Hann nýtur
óskoraðs trausts hjá samferða-
mönnunum, svo sem ég hef áður
skýrt frá, og það að verðleikum.
Hann kvæntist 1919 íngibjörgu
Guðmundsdóttur frá Mjóadal í A-
Húnavatnssýslu afburða vel gerðri
konu í sjón og raun. Þau hafa síð-
an búið saman f farsælu heimilis-
lífi, eignazt 5 myndarbörn, er erft
hafa kosti foreldra sinna. Heímili
þeirra hefur jafnan legið um þjóð
braut þvera, rausn og gestrisni
setið í fyrirúmi og samstarf og um
hyggja fyrir heimilisfólkinu verið
slík, að jafnan hefur verið mikill
vinskapur á milli þeirra húsoænd
anna og vinnufólksins. Þeim hefur
auðnazt að greiða götu margra í
lífinu, og átt sinn hlut að því, að
ýmsir listamenn okkar hafa fyrir
alúð og fórnfýsi hjónanna í Síðu
múla getað fært þjóð sinni lista-
verk, sem voru unnin í þeirra
skjóli. Þá er það mikil gæfa svo
hugsjónaríkum og framfarasinn-
uðum manni, sem Andrési í Síðu-
múla, að lifa með þjóð sinni, er
hún hefur sótt svö fram frá fá-
tækt til bjargálna, sem hún befur
gert á þessari öld, og þar á meðal
tekið í sínar hendur eigin mál.
Ekki sízt er það Andrési i Síðu-
múla gleði, er haft er í huga,
Framhald á bls. 15
Norræna bridgemótiö
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
f gærkvöldi var spiluð 5. um-
ferð í opna flokknum og 3. um-
ferð í kvennaflokknum. Eftir þess
ar fimm umferðir standa Norð-
menn bezt að vígi í opna flokkn-
um með 50 stig. Næstir eru Svíar
með 27 stig, íslandingar hafa feng-
ið 26 stig, Danir 24 stig og Finn-
ar reka lestina með 23 stig.
í kvennaflokknum fóru leikar
þannig í 3. umferð, að ísland vann
Danmörku 6—0 og Noregur vann
Finnland 6—0. Efsta sveitin í
kvennaflokki er sú norska með
13 stig, Svíar hafa fengið 11 stig,
íslendingar 9 stig, Finnar 3 stig
og Danir hafa ekkert stig fengið.
í kvöld verður 6. umferð spiluð
í opna flokknum og fyrstu tveir
hálfleikir í 4. umferð hjá kvenna-
flokknum. Á fimmtudagskvöldið
verður lokið 4. umferð hjá kvenna
flokknum og spiluð 7. umferð í
opna flokknum. í þeirri umferð
spilar ísland I við Finnland I og
ísland II við Finnland II.
LangjökulsmáliS
komið fyrir dóm
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
Eitt stærsta smyglmál á íslandi,
Langjökulsmálið svonefnda, kom
fyrir dómstól í morgun. Var mál-
flutningur munnlegur, og hóf
Bragi Steinarsson, fulltrúi saksókn
ara ríkisins sóknarræðu sína í morg
un kl. 10. Hann lauk henni um
hádegisbilið og tóku þá verjend-
urnir, sem eru 6 að tölu, til við
varnarræðurnar.
Verjendur í málinu eru: Árni
Guðjónsson hrl., Guðmundur íngvi
Sigurðsson hrl., Jónas Aðalsteins-
son hdl., Björn Sveinbjömsson
hrl., Gunnar Jónsson hdl. og Ragn
ar Jónsson hrl. Dómari réttarins
,er Þórður Björnsson yfirsakadóm-
ari. Hinir ákærðu eru 10 skipverj-
ar, sem voru á m.s. Langjökli, er
það kom úr ferð sinni hinn 6.
ágúst í fyrra og heita: Óli Kristján
Jóhanness, Guðmundur Þórir Ein
arsson, Kristján Samúel Júlíusson,
Valsteinn Víðir Guðjónsson, Gísli
Þórðarson, Gísli Erlendur Marínós
son, Haraldur Zophónías Bjarna-
son, Ólafur Kristján Guðjónsson,
Björn Eggert Haraldsson og Bogi
Ólafsson.
Eins og menn rekur minni til,
fundust við leit í Langjökli fyrri
hluta ágústmánaðar í fyrra, um
4000 flöskur af áfengi og um 130
þús. vindlingar eftir umfangsmikla
leit í marga daga, þar sem smygl-
varningurinn fannst víða um skip-
ið.
Málflutningi var ekki lokið í dag
og verður honum haldið áfram á
morgun.
MOT NORRÆNNA BAR
ÞJÚNA HALDID HÉR
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Þá er komið að því að hér á
landi verði haldið mót norræna
barþjóna, og mun það standa yfir
dagana 29. maí—2. júní, og verð-
ur jafnframt 10 ára afmælisfund-
ar samtakanna. Barþjónaklúbbur
fslands er þriggja ára um þessar
mundir og formaður hans er Sím-
on Sigurjónsson, sem mörgum
manninum hefur skenkt drykk í
Naustinu.
Erlendu gestirnir á fundinum
verða 18 talsins frá Noregi, Sví-
þjóð, Finnlandi og Danmörku, en
fullgildir meðlimir Barþjónaklúbbs
íslands eru 24 talsins. Verður dag
skrá fundarins mjög fjölbreytt, far
ið með gesti í ferðalög, og fastur
liður er sundlaugarferð í Loftleiða
laugina á hverjum morgni. Hinir
ýmsu vínumboðsmenn verða gest-
ir annarra aðila. Á fundinum verð-
ur cocktailkeppni sem 17 íslenzk-
ir barþjónar taka þátt í.
Aðalhvatamaður að samtökum
íslenzkra barþjóna var Daninn
Kurt Sörensen, en hann var for-
seti Alþjóðasamtaka barþjóna, sem
stofnuð voru árið 1951. Einn aðal-
þátturinn í starfsemi alþjóðasam-
takanna hefur verið árleg cock-
tailkeppni, en nú verður þessi
keppni aðeins annað hvert ár, og
munu íslenzkir barþjónar bera
fram tillögu á norræna fundinum
þess efnis að efnt verði til nor-
rænnar keppni um bezta cocktail-
inn, auk þess sem þeir munu
Framhald á bls. 14.
Stjórn Barþjónaklúbbs Islands. Frá vinstri eru Róbert, Jón Þór, Símon, Viðar og Daníel. (Tímamynd K. J.)
V // A