Tíminn - 26.05.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 26.05.1966, Blaðsíða 16
118. tbl. — Fimmtudagur 26. maí 1966 — 50. árg. SKAFTAFELL VERÐUR GERT AÐ ÞJÓÐGARÐI SAMNINGUM UM KAUP JARÐARINNAR ER AÐ UÚKA Utvarpsstjori ræðir við Kempff. KEMPFF LEIKUR MEÐ SINFÚNÍUNNI GÞE-Reykjavík, miðvikudag. Hinn heimsfrægi píanósnill ingur Wilhelm Kemff kom hingað til lands í gær til tón- leikáhalds. Hann mun leika á tvennum tónleikum með Sin- fóníuhljómsveit fslands, fiimmtu daginn 6. maí og föstudaginn 27. maí kl. 21 og þá heldur hann píanótónleika 28. maí kl. 5. e. h. Á fimmtudaginn leikur hann með hljómsveitinni píano konsert í a-moll eftir Schumann og á föstudaginn píanókonert nr. 4 eftir Beethoven. Á efnis skrá píanótónleikanna á ;augar daginn verða eftirtalin verk: Sónata í B-dúr K 281 eftir Moz art. Sónata í As-dúr op. 110 eft ir Beethoven, Die Davidsbúnd) ertánze op. 6. 18 þættir eftir Schumann og fjögur píanólög op. 119 eftir Brahms. Wilhelm Kempff er meðal þekktustu píanósnillinga verald ar, og er koma hans hingað einn mesti viðburður í tónlistar lífi borgarinar á þessu ári. Hann er rúmlega sjötugur að aldri, og hefur gert mjög víð- reist á sinni löngu ævi, en allt frá 1920 hefur hann ferð ast víða um heim og leikið með frægusitu hljómsveitum austan hafs og vestan. Hann hefur Framhald á bls lö FB—Reykjavík, miðvikudag. Ekki mun líða á löngu þar til jörðin Skaftafell í Öræfum hefur verið gerð að þjóðgarði. Samning ar hafa þegar verið gerðir við eigendur % hluta Skaftafells um sölu á jörðinni, og samkomulag hefur einnig verið gert milli Nátt úruverndarráðs og eiganda Mt hlutans, og verða samningar um kaup á honum væntanlega gerðir innan skamms. Landareign jarð- arinnar Skaftafells er geysi víð- áttumikil, talin vera allt að 1000 ferkílómetrar, eða sem næst 1% af flatarmáli fslands. f fréttatilkynningu frá Náttúru verndarráði segir, að ráðið hafi samþykkt einróma í febrúar 1961 að stefnt skyldi að því, að jörðin Skaftafell í Öræfum í Austur- Skaftafellssýslu yrði friðlýst sem þjóðgarður. Var samþykktin gerð að tillögu dr. Sigurður Þórarins- sonar, jarðfræðings. Dr. Sigurður gerði grein fyrir tillögu sinni, og sagði m.a. í henni: „Vart leikur það á tveim tung- um. að náttúrufegurð í Skaftafelli í Öræfum er stórfenglegri en á nokkru öðru byggðu bóli á ís- landi. Þarna er að finna flest það er prýðir íslenzka náttúru mest. Stórleikur landskaparins er óvíða ef nokkurs staðar meiri og útsýn óviðjafnanleg ti) hæsta fjalls landsins, yfir stærsta skriðjökul þess og víðáttumesta sand. Á land areigninni eru fagursköpuð fjöll og fjölbreytileg um uppbyggingu og bergtegundir. Þar er einn af merkilegustu skriðjöklum landsins Morsárjökull. í landareigninni eru fagrir fossar og gil rómuð fyr ir fegurð. Gróðurinn er grósku- meiri og fjölbreyttari en víðast annars staðar, enda mun engin jörð á íslandi, nema grannjörðin Svínafell njóta jafnmikillar veð- ursældar. Landareign Skaftafells að Skeiðarársandi fráteknum er svo girt af náttúrunnar hendi, jöklum og jökulfljótum, að auð- velt er að verja landið ágengni án mikils kostnaðar við girðingar. í1 stuttu máli sagt veit ég ekki ann að landsvæði á íslandi heppilegra til friðunar sem þjóðvang en Skaftafellsland”. Menntamálaráðuneytið féllst fyr ir sitt leyti á tillöguna um að stefna að því að friðlýsa Sikafta- fell. Síðan hefur verið unnið að því að afla fjár til kaupanna og Framhatd a bls. 15 Meðfylgjartdi mynd er af hinni nýju fjallabifreið björg unardeildarinnar Ingólfs, en bifreiðin verður tekin í notk- un á næstunni. Verið er að koma fyrir í henni talstöðv- artækjum, en jómfrúrferðin verður um hvítasunnuna. Reykvíkingar munu fjðlmenna á Snæfellsnesiö um hvítasunnuna GÞEReýkjavík, niiðvikudag. Svo er að sjá, sem margt verði um manninn á: Snæfellsnesi um hvítasunnuhelgina. Að minnsta kosti ætla fimm stórir hópar að leggja þangað leið sína, þá verð ur Slysavarnafélagið með allstóra björgunaræfingu á þessum slóðum og einnig má gera ráð fyrir bví að fjöldinn allur af einstaktingum hyggi á ferð þangað vestur og mikill hörgull virðist vera á gisti rými fyrir þá, sem ekki gista í tjöldum. Litli Ferðaklúbburinn leggur af stað vestur á laugardag kl. 2. Fyrstu nóttina verður gist að Breiðabliki, en á sunnudag verður ekið um Ólafsvíkurenni til Stykk ishólms, þar sem gist verður næstu nótt. Á mánudag verður farin bátsferð út í Elliðaey og víðar, ef veður leyfir. Að minnsta kosti 60 manns munu taka þátt í þessari ferð. Ferðafélag íslands fer með allt að 60 manns vestur á nesið á laug ardag. Gist verður í tjöldum ná- lægt Stapafelli. Þá heldur 60 manna hópur vestur á Snæfellsnes á vegum ferðaskrifstofunnar Lönd og Leiðir á laugardag og verður dvalið þar til mánudags. Fimmtabekkjarferð Menntaskól ans í Reykjavík verður einnig far in vestur á Snæfellsnes. Þátttak endur í henni verða hátt í tvö hundruð. Gist verður í tvær næt 100 þátttakendum. Slysavarnar-1 inlegu æfingar upp til að láta félagið hefur tekið þessar sameig I deildirnar kynnast innbyrðist. Tilkynning frá Kosningahapp- drætti Fram- sóknarflokksins f gær var dregið í happ drættinu hjá borgarfógeta. Vinningsnúmerin verða birt í blaðinu n. k. sunnudag. Þeir, sem hafa fengið heimsenda miða og eiga eft ir að gera skil. eru beðnir um að gera það strax þar sem skil verða að hafa bor izt fyrir laugardag í skrif- stofu happdrætisins að Hringbrauf 30. Vegirnir eru mánuði á eftir Samkvæmt upplýsingum Vega- málaskrifstofunnar í dag, nefur ástand vega á Suðurlandi tarið batnandi að undanförnu. Annars * T' T , , ... staðar eru vegir í mjög slæmu ur að Logalandi. LandsprófsdeHd ásigtanulagi vBegna aurbleytu og snjóalaga. Munu vegirnir vera mánuði seinna en venjulega að lagast eftir veturinn. Fært mun nú vera um þjóðvegi á Suðvesturlandi og um allt Snæ fellsnes. Þá er og fært í Þorska fjörð en ekki lengra vestur. Þorska fjarðarheiði og Þingmannaheiði eru báðar lokaðar, en fært er á milli fjarða á Vestfjörðum, nema um Breiðdalsheiði. Fært er um Holtavörðuheiði til Vogaskóla lýkur prófum á föstu dag og heldur vestur á Snæfells nes á laugardaginn í þriggja daga ferð. Þátttakendur verða líklega um 8Ó. Deildir Slysavarnafélagsins úr Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi og af Snœfellsnesi auk einnar deild ar frá Keflavíkurflugvelli munu ralda sameiginlega björgunaræf- ingu norðan Hólahóla og á Sand- imrnn. Gert er ráð fyrir allt að Hólmavíkur og jeppafært i)l Djúpuvíkur. Vegir eru sæmilegir um alla Húnavatnssýslu, en ófært fyrir Skaga. í Skagafirði er fært norður í Fljót og í Eyjafirði er fært til Dalvíkur. Vaðlaheiði er að verða fær öllum bílum, en leið in milli Akureyrar og Húsavíkur refur verið lokuð bílum með meira en sjö tonna öxulþunga. Fljótsheiði hefur lokazt aftur og öxulþungi um Köldukinn hefur verið takmarkaður við sjö tonn. Fært er í Mývatnssveit og jeppa- fært að Grímsstöðum á Fjöllum. Öræfin suður af Grímsstöðum eru lokuð öllum bifreiðum Á Héraði eru vegir færir jepp um upp að Gilsá og Oddsskað 'er nýrutt og fært jeppum. Opið er í Borgarfjörð eystra. Nú er verið að ryðja Fjarðarheiði og hefur ver ið unnið að því báðum megin frá. Er nú aðeins eftir um tíu kíió metra langur kafli á háheiðinni, en snjóbíll er þar í förum. IJnnið er að því að opna Breiðdalsheiði, en óvíst er, hvenær hún verður fær bifreiðum. Verið er að laig- færa Suðurfjarðaveg og er da- góð færð til Stöðvarfjarðar og jeppafært á Djúpavog. Þaðan er góður vegur til Hornafjarðar. Á Suðurlandi eru allir aðalvegir opnir, en vegurinn um Grímsnesið er hálflokaður um þessar mundir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.