Tíminn - 27.05.1966, Page 1
Gerizt áskrífendur aS
Tfanaamm,
HringHS í síma 12323.
Aöglýsing í Tímanum
kenrar daglega fyrir aagu
80—100 þúsund lesenda.
119. tbl. — Föstudagur 27. maí 1966 — 50. árg.
BANDARÍSKT
BÚKASAFN í
HUE BRENNT
NTB-Hue, fimmtudag.
Stúdentar eyðilögðu bóka-
safn bandarisku upplýsingaþión
ustunnar í bænum Hue i Suð-
ur-Víetnam í morgun. Stúdent
arnir, um 200 talsins flevgðu
bókunum og húsgögnunum út
á götu og kveiktu i öllu sam
án. Jafnframt kveiktu þeir í
húsinu sjálfu, Hue, sem er
helzta menntamiðstöð Suður-
Víetnam, hefur verið sá staður,
þar sem mótmælaaðgerðir
gegn herforingjastjórninni i
Saigon hefur verið öflugust.
Sagt er, að lögreglustjorinn
í Hue hafi, ásamt 20 lögreglu
mönnum, verið viðstadd>ir at-
burðinn, en ekkert aðhafst.
Bandarískar heimildir fullyrða,
að lögreglan hafi vitað með
nokkrum fyrirvara að student
arnir ætluðu að ráðast á bóka
safnið- Leiðtogar mótoælagöng
unnar, sem i voru um 1000 stúd
' entar, reyndu að stöðva árásina
á bandaríska bókasafnið, en það
tókst ekki.
Leiðtogar búddatrúarmanna
tilkynntu í dag, að hinni áætl
uðu afmælishátíð til að fagna
2510 ára afmælis Búddha, hafi
verið aflýst. Er þetta gert til
þess að láta í ljósi andúð sína
á herforingjastjórn Kys i Sai
gon.
Lögregla og herlið herforingjastjórnarinnar í Saigon hefur að
undanförnu barið harðlega niður allar mótmælaaðgerðir borgara
landsins í Da Nang og Saigon. Mynd þessi var tekin á dögunum,
þegar lögreglan réðist með táragassprengjum að um 400 munk-
um og nunnum í Saigon, og sýnir grímuklæddan hermann leiða
unga stúlku á brott-
Spítalalæknar hafa samið
SÖMDU UM LAUS-
RÁDNINGAR LÆKNA
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Blaðinu barst í kvöld fréttatií-
kinning frá Stjórnarnefnd ríkisspít
alanna. þar sem segir frá þvi að
samningur hafi verið undirritaður |
við Læknafélag Reykjavíkur um'
iaun lausráðinna lækna. „Með
samningum þessum er lagður
grundvöllur að því, að læknar |
verði ráðnir í þjónustu ríkisspítal
anna með nýjum hætti, þ.e. laus-
ráðnir til starfa frá 3 klst á viku
og allt upp í fullt starf. Auk þess
eru ákvæði í samningnum um
vinnu við vaktir“, segir í tilkynn
ingunni. Segir einnig, að talið sé,
að unnt verði að tryggja með
þessu ,,að þjónusta á sjúkrahúsum
ríkisins verði jafngóð og áður
f fréttatilkynningunni segir m.
var”.
„Eins og áður hefur komið
fram í fréttum báðust 28 læknai
við Landspítala og Kleppsso tala
lausnar frá störfum sínum á síð-
asta vetri, þar af 19 fast.ráðmr
læknar. Hefur að undanfðrnu ver
i haldið uppi læknisþjónustu á
sjúkrahúsunum með bráðabirgða
fyrirkomulagi, sem ekki varð un-
að við til lengdar. Þegar ljóst var
orðið. að læknar myndu ófaanleg
ir til að afturkalla iausnarbeiðnir
sínar, hafði Jóhann Hafstein, heil
brigðismálaráðherra frumkvæði
að því, að teknar voru upp viðræð
ur um nýtt fyrirkomulag á ráðn
ingu lækna. Samningur sá, sem
undirritaður hefur verið, fjallar
einungis um lausráðningu. og
kemur ekki til slíkra ráðninga
nema í þeim mæli, sem læknar
fást ekki í fastar stöður við sjúkra
húsin. Læknar. sem lausráðnir
verða. munu ekki njóta þeirra
sérstöku réttinda, sem rikisstarfs
mönnum eru tryggð með lögum.
Engu að síður telur Stjórnarnefnd
ríkisspítalanna. að á grundvelli
hins nýja samnings muni unnt að
tryggja, að þjónusta á siúkrahús-
um ríkisins verði jafngóð og áð-
ur var.
Stjórn Læknafélags Reykja-
víkur undirritaði samninginn fyr-
ir hönd félagsins, en í henni eiga
sæti læknarnir Árni Björnsson.
Magnús Ólafsson og Guðjón Lár-
usson. Að samningsgerðinni vann
einnig launanefnd félagsins. lækn
arnir Víkingur Arnórsson. Jakob
Framhald á 14. síðu.
FIMM NY LONDUNARTÆKI A SEYÐISFIRÐI:
Landa 500tonnum á klst.
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
Miklar breytlngar hafa erð
ið hjá Síldarverksmiðju rikis-
ins á Seyðisfirði að undan-
förnu, öll gömlu málin og
blöndunartækin hafa verið
rifin og í staðinn verið sett
upp fimm nýir löndunarkran
ar, sem hver um sig getur
landað um 100 tonnum á klst.
eða samanlagt um 500 tonn-
um á klukkustund úr fimm
skipum. Síldin er vegin með
sjálfvirkum útbúnaði, og eru
tvær vogir við hvern löndun-
arkrana. Á meðan hleypt er
úr annarri voginni er hin
fyllt, þannig að löndunin
gengur viðstöðulaust.
Þessar upplýsingar komu fram
2 viðtali, sem Tíminn átti við Ein
ar Magnússon, verksmiðjustjóra
| og sagði hann, að sjómenn væru
imjög ánægðir yfir þessum breyt
lingum. Hann bjóst við, að sams
konar tæki yrðu tekin í notkun
hjá síldarverksmiðju Hafsíldar,
en verið er að stækka þá verk-
smiðju eins og síldarverksmiðju
ríkisins.
Síldarverksmiðja ríkisins hefur
þróarrými fyrir 42 þús. mál og
er það senn að fyllast. Verksmiðj
an mun sennilega hefja bræðslu
eftir helgi. Síldin er ennþá mög-
ur. fitumagn hennar er að meðal
tali um 8%.
Ekki þurfti Einar að kvarta yf
ir vinnuaflsskorti — hann er þeg
ar búinn að ráða allt starfslið
verksmiðjunnau um 70 manns
Mikil breyting hefur prðið s
högum íbúa Seyðisfjarðar að und
anförnu og eru miklar bygginga
framkvæmdir i gangi vegna batn
andi fjárhags.
Verður Hess
látinn laus?
NTB-London, fimmtúdag.
Brezkur embættismaður
sagði í London í dag, að
Bretjand værj reiðubúið til
að ræða það, hvort láta
skuli nánasta samstarfs-
mann Adolf Hitlers, Rudolf
Hess, lausan. Hess situr nu
í Spandau-fangelsinu í Vest-
ur-Berlín, en hann var
dæmdur í ævilangt fangelsi.
Embættismaðurinn lagði
þó áherzlu á, að þetta
þýddi ekki, að brezka stjóm
in myndi taka frumkvæðið'v
um að fá hann lausan. Hess
er _nú 72 ára gamall.
Ákvörðun um að láta
Hess lausan verður að tak-
ast af fjórveldunum —
Bandarikjunum, Sovétríkjun
um, Bretlandi og Frakk-
landi — sameiginlega.
4 síldarflutningaskip
verða í notkun í sumar
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
í sumar verða í það minnsta
fjögur sfldarflutningaskip í ferð
um við strendur landsins, oig eru
það skipin Dagstjarnan, Síldin, Síri
on og Haförninn.
Síldarflutningaskipið Sfldin er
þegar byrjuð að flytja sfld af mið
unum fyrir austan, og hingað til
Reykjavikur. Kom skipið hingað í
morgun, og er unnið að losun þess,
en í fyrra sumar tók losunin venju
lega um tvo sólarhringa. í Reykja
víkurhöfn liggur líka annað síldar
flutningaskip, Dagstjarnan frá Bol
ungarvfk. Er verið að gera nokkr
ar breytingar á dæluútbúnaði skips
ins, en það mun væntanlega halda
innan skamms á miðin. og flytja
síld til Bolungarvíkur. Þriðja ts-
lenzka skipið sem verður í síldar
flutningum í sumar er Haförninn.
sem Sfldarverksmiðjur ríkisins
hafa fest kaup á, en áætlað er að
það geti hafið flutninga um mán
aðamótin júni — iúli. Heimahöfn
þess verður Siglufjörður og skip
stjóri Sigurður Þorsteinsson. 1
fyrra var siidarflutningaskipið
Polana i förum fyrir Krossanes
verksmiðjuna, og svo mun einnig
verða í sumar. Skipt hefur verið
um nafn á skipinu og heitir það
nú Sirion Nauðsynlegar breyting
ar voru gerðar á þvi í fyrrasum
Framhald á bls. 14.