Tíminn - 27.05.1966, Qupperneq 11

Tíminn - 27.05.1966, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 27. maí 1966 TÍMINN VERÐIR LAGANNA TOM TULLETT 171 í þopinu Tenke í Katanga-fylki í Kongó bjuggu þrjár systur. Mbaya, sú elzta, var gift kona, miðsystirin Olipa var hjákona manns að nafni Sampala, en höfðinginn í þorpinu ákvað, að taka sér þá yngstu, Nosa, fyrir konu. Af þessu hlauzt morð árið 1950. Sampala bjó einn í þorpi úti í skógi, því hann hafði slopp ið við manntal og greiddi enga skatta. Þá skipaði höfðing- inn svo fyrir, að þau hjónaleysin Sampala og Olipa skyldu búa í kofa með Nosa, konuefni sínu. Svo fór, að Sampala og Olipa urðu ósátt og hún hljópst á brott, en yfirgefni elsk huginn leitaði huggunar í örmum systur hennar. Slókt var tvöföld yfirsjón, því bæði var hún festarmey höfðingjans og þar að auki var það frá fornu fari talið höfuðsök að eiga mök við systur. Þegar höfðinginn frétti, hvað gerzt hafði, ákvað hann að Sampala skyldi týna lífi. Hann sendi eftir Kisheta Nowa, eig ínmanni elztu systurinnar, og bauð honum þúsund franka fyrir að drepa Sampala. Hann lofaði einnig að láta honum í té töframeðal, sem verndaði hann fyrir að drápið hefði nokkur eftirköst. Einnig benti hann á, að þar sem Sampala væn ekki á manntali, tækju yfirvöldin ekkert eftir því, þott hann hyrfi. Kisheta lét sannfærast af fortólum höfðingjans og þeir bundu kaupin fastmælum. Næstu fimm mánuði beið Kiseta færis og fylgdist með háttum Sampala. Hann tók eftir, að fórnarlambið tilvonandi sat stundum á árbakka og dorgaði. Dag nokkurn læddist hann aftan að Sampala þar sem hann húkti á bakkanum, kom honum í bönd og fleygði honum í fljótið til krókódílanna. Að þessu verki unnu, smurði Kisheta sig með töfraáburð inum, sem höfðinginn hafði fengið honum. Síðan fór hann á fund glæpafélaga síns og krafðist umsaminna launa. Höfð- inginn greiddi honum þegar í stað 250 franka, en það var ófrávíkjanleg venja þessa fólks að hafa vitni við öll skulda skil, Kallaði höfðinginn því á frænda sinn að nafni Kito- móbé, sagði honum frá kaupum þeirra og lét hann vera vitni að greiðslunni. Hvarf Sampala vakti ekki mikla athygli, bæði var hann illa liðinn og þar að auki hafði hann gerzt bæði sekur við höfðingjann og siðareglur fólksins. Málið var að mestu gleymt, þegar Kisheta veiktist snögglega árið 1952. Honum kom til hugar, að sjúkdómnum ylli andi myrta mannsins, og töframeðalið frá höfðingjanum væri gagnslaust. Eftir langa Iegu sendi hann eftir töframanni þorpsins, skýrði honum frá málavöxtum og bað hann hjálpar. Töframaðurinn Nyinga kallaði alla þorpsbúa saman og kvaðst verða að framkvæma hreinsunrathöfn og skýrði þeim frá tilefninu. Síðan hreins aði hann Kisheta og þorpsbúa alla með tilheyrandi töfra brögðum. Nú vissi hvert mannsbarn af morðinu, cn samt hefði það líklega aldrei komið fyrir dómstóla, heftft Kisheta getað greitt Nyinga þá 2000 franka, sem hsnn setti upp fyrir hreinsunina. Þegar greiðsla dróst, lentu þeir í hnakkrifrildi, og réttarþjónn sem heyrði til þeirra af tilviljun, skýrði yfir boðurum sínum frá, hvers hann hefði orðið áskynja. Máls- rannsókn var hafin og Kisheta tekinn fastur. Höfðingi þorpsins þverneitaði allri sök, þegar lögreglan kom að yfirheyra hann, sagði að Kisheta væri atvinnumorð- ingi og taldi upp mörg morð, sem hann hefði framið, en þær sakir voru þá allar fyrndar. Hins vegar viðurkenndi hann, að hafa látið Kisheta í té töfraáburð. Við leit í kofa höfðingjans fannst byssa Sampala, sem Kisheta hafði fært honum eftir morðið. Höfðinginn gat enga eðlilega skýringu gefið á, að hún skyldi vera í sínum fórum og tók þann kost að játa. Undirréttur dæmdi þá báða til ævilangrar þrællcunarvinnu en yfirréttur mildaði dóminn sökum málsbóta. Taldi dómur inn höfðingjanum nokkra vorkunn, þar sem Sampala hafði spjallað heitkonu hans. Talið var, að Kisheta hefði verið nauðugur einn kostur að framkvæmda skipun höfðingjans, óhlýðni við hann hefði getað reynzt lítshættuleg. Varð það úr, að höfðinginn var dæmdur í tuttugu ára þrælkunarvinnu en Kisheta fimmtán. Fyrir fimmtán árum komst hollenzka lögreglan í kast við torsóttan afbrotamann. Málið er sígUt dæmi um velgengni eins manns, sem starfar hjálparlaust, og í skjölum Alþjóða- DANSAÐ Á DRAUMUM HERMINA BLACK 32 hún skemmti sér — og hún hefur gaman af að fá gesti. — Hm! Lafði Amanda þagði andartak, síðan sagði hún: — Ég held, að henni liggi eitt hvað á hjarta. Auðvitað, bætti hún við hvasslega, getur það verið ímyndun ein — þó að ég sé ekki gefin fyrir að nota hana mikið. Hún hló lágt. Kannski hún sé ást fangin. Hvað haldið þér? — Ég — get ekki sagt um það. Jill fann, að hjarta hennar barð- ist. En hvers vegna skyldi spurn ing gömlu lafðinnar koma henni uppnám — hafði hún ekki búizt við því sama sjálf? Munurinn var sá, að hún var viss um, að Lafði Amanda átti ekki við Glyn Errol. og næsva athugasemd gömlu lafð- innar gerði hana enn vissarí í sinni sök. — Hún myndi ekki vera fyrsta unga konan, sem fellur fyrir mynd arlegum lækni, eða hvað? Þér hljótið oft að verða vör við þann ig atburði. Augu Lafði Amöndu, skær sem ungrar stúlku, mættu augum Jill. Jill var þakklát fyrir að finna. að hún gat horft óhikað í þau og brosað á móti. — Já, heyrði hún sjálfa sig segja, rólega. En það endist venju lega ekki lengi. En ég held, að þér þurfið ekkert að vera áhyggjufull, Lafði Amanda. — Ég er ekkert áihyggju- full, blessaður verið þér, stað- hæfði lafðin. Og síðan, með óþægi lega hvössu augnaráði: — Þér lít ið sjálfar ekkert of vel út. Ég get ímyndað mér, að þér þarfnizt hvíldar eftir sex vikur af þessari elskulegu, en kröfuhörðu ungu konu. — Ó, það er allt í lagi með mig, þakka yður fyrir, mótmælti Jill. Lafði Amanda hnyklaði brýrnar hugsandi. — Fáið þér nokkurn tíma frí? — Já. ég fæ tveggja vikna frí í næsta mánuði. Lafði Amanda kinkaði kolli við urkennandi. — Og þér eigið það vissulega skilið. Þó það sé auðvit að ekki næstum því nógu langt. Jæja, haldið áfram að líta eftir barninu — ég mun ekki sjá hana aftur í bráð. Ég er að fara aftur til London á morgun, og síðan fer ég að heimsækja yngsta bróður son minn í Sussex. Kona hans er nýbúin að ala honum tvíbura — dugleg stúlka — það er slæmt, að þau skuli ekki vera barnabörn mín, en ég verð líklega að láta mér nægja að vera afasystir. Hún er mesta elska, hugsaði Jill þegar hún sneri aftur til sjúklings síns eftir að hafa hringt á lyftuna og séð teinréttan líkama Lafði Mandy hverfa inn í hana. Mesta elska! En hún lét ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur, hvað sem hún sagði. Eða — gerði hún það ekki? Á föstudagsmorgun tilkynnti Falconby læknir Söndru, að hr. Carrington hefði hringt í sig, og þar sem hún væri alveg búin að ná sér eftir fallið, ætti hún að standa á fætur — með hjálp, bætti hann við með hálf ströngu )g há!f kímnu augnatilliti — því að fyrst varð hún að læra að hreyía sig með stuðningi annarra. Eftir fyrri reynslu sína hafði hún ekki einu sinni sjálfstraust ungbarns, sem hefur ekki hug- mynd um fallið, sem bíður þess, þegar það tekur fyrstu sproin. — Gólfið virðist ve'ra allt of ná lægt. sagði hún við Jill, — og allt og hart. En hún komst fljótt yfir taugu óstyrkinn og á mánudeginum þurfti Systirin ekki lengur að styðja hana hinum megin, og hún gat gengið hægt yfir gólfið með handlegg Jill einan sér til stuðn ings. f þetta skipti leiddi Jill hana að [glugganum, þar sem hún settist niður í hægindastólinn og horfði hugsi út í garðinn. — Mér þætti gaman að vita, hve nær ég kemst þama niður, muldr- aði hún. — En hvað þú ert óþolinmóð! kallaði Jill upp yfir sig! — Ef nokkurn langaði til að hlaupa áð ur en hann lærði að ganga, þá ert það þú! Komstu ekki að raun um það, að Róm var ekki byggð á einum degi, þegar þú lærðir að dansa? — Ég hataði allan seinagagn- inn, sagði Sandra hreinskiln islega. — Ég er viss um það, góða mín, að ef frúin hefði ekki verið slíkur hraðstjóri, — hún var rússn esk og djöfullegur stjórnandi Hún hafði sjálf lært í „The Imper ial Ballet School“ sem á tímum hennar var í Pétursborg, þeg ar hún var miklu yngri en börn in, sem hún kenndi, og hún gat svo sannarlega verið heiftarleg' Hún var vön að höggva í mig — og segja mér, að enginn sem væri eins latur og ég, mundi nokkurn tíma komast í öftustu röðina í corps de ballet, ennþá síður að verða ballerína. „Ballerinur eru fæddar en ekki tilbúnar — og þær vinna og vinna og VINTNA!" var hún vön að æpa á mig — og dag nokkurn missti ég stjórn á skapi mínu og æpti á móti, að ég myndi verða ballerína — að ég væri fædd ballerína og húo væri gamall lygalaupur' Hún sló mig utan undir, Sandra hló, en eftir það vorum við vinir. Og löngu síð ar frétti ég, að hún hefði sagt við n móður mína, að ég hefði lista- mannsskap! — Og engan mundi dreyma um að skamma þig fyrir dans þinn, sagði Jill. — Þú skalt ekki haida það! sagði Sandra fyrtin. — Þegar ég sýndi fyrst undir stjórn Errois gagnrýndi hann mig miskur.nar- laust. Og hann viðurkennu ekki ennþá, að ég geti ekki gert betur. Hann nýtur þess að vera leiðin- legur við mig. — En allir aðrir segja, að þú sért mesta dansmær aldarinn- ar, sagði Jill. — Líttu bara á bókina, sem þessi rússneksi hefur skrifað -um Þig- — Errol segir, að það sé allt, — eða mest af því — bölvuð vit- leysa. Að það sé persónuleiki minn, en ekki dansinn, sem hrífi þá. Hann sver og sárt við leggur, að ég sé ekki þess verð að vinda skóþveng Fonteyn! Og stundum held ég. að hann hafi rétt fvrir ÚTVARPIÐ Föstudagur 7. mai 7.00 Morgunútvarp 12.00 Há degisútvarp 1315 Lesin dag- skrá næstu viku 13 30 Við únn una 15.00 Miðdegisút- varp 16.30 Síðdegisútvarp 17 00 FrétHr 17. 05 f veldi hljómanna Jón Örn Marinósson kynnir sígilda t.ón- list fyrir ungt fólk 18 00 fs- lenzk tónskáld Lög eftir Magnús Blöndal Jóhannsson >g Bjarna Þorsteinsson 18 45 Til kynningar 19.20 Veðurfregnir 19.30 Fréttir 20 00 Kvöldvaka: a. Lestur fornrita Þáttur af Sigurði slembidiákn b .Hugg un harmi gegn“ Magnús F. Jónsson frá TorfaRtöðum segiv frá Eyjólfi Kotbeins Dresti á Melstað Baldur Pálmason flytur þáttinn c Tökum 'agið. d. Að vrkja iarðveg tsienzks máls. Sigurður lónsson frá Brún flytur hugleiðingu um Ijóðagerð o. fl. e Kurl Kvæði og stökur eftir Kolbein Höana son frá Kollafirði 1.30 Útvaros sagan- „Hvað sagði tröllið,“ eftir Þórleif Bjarnason 22.00 Fréttir og veðurfregnir Ti 15 fslenzkt mál Jón Aðalsteinn Jónsson cand mag flytur pátt tan. 22.35 Næturhljómleikar: 23.05 Dagskrárlok. Há Laugardagur 28. maí 7.00 Morgunútvarp. 12.00 degisútvarp. 13.00 Óskal. sjúklinga Kristín Anna Þórarinsdóttir kynnir lögin. 14.30 í vikulok- Á morgun ta, þáttur undir stjórn Jón- ásar Jónassonar. 16.00 Á nót um æskunnar. Jón Þór Hann esson og Pétur Steingrímsson kynna létt lög. 16.30 Veður fregnir. Þetta vil ég heyra Stefán Jónsson bóndi á Grænu- mýri í Skagafirði veiur sér hljómplötur. 17.35 Söngvar f léttum tón. 18.45 Tilkynning- ar. 19.20 Veðurfregnir. 19 30 Fréttir. 20.00 „Upp á æru mína og trú,“ smásaga eftir H. E. Bates. Torfey Stems- dóttir Islenzkaði. Árni Tryggvason leikari les. 20.20 Kórsöngur: Karlakór Reykja- víkur syngur. Söngstjóri: Páll Pampichler Pálsson. 20.40 Leikrit: „Hrafnar herra Wals ers“ eftir Wolfgang Hildesheim er. Þýðandi: Bjarnl Benedikts son frá Hofteigi. Leikstjóri: Ævar R Kvaran 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Á ýms am strengjum Guðmundur Tónsson lætur fóninn ganga í fimm stundarfjórðunga. 23.30 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.