Tíminn - 08.06.1966, Síða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Ifiingið i síma 12323.
24 síður
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
127. tbl. — Miðvikudagur 8. júní 1966 — 50. árg.
5-600 MANNS
Á BÆNDAFUNDI
MIKLAR UMRÆÐUR UM VERÐLAGSRÁÐ
LANDBÚNAÐARINS Á FUNDI Á SELFOSSI
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
Mikið fjölmenni var samankomið
í Selfossbíói í kvöld, á almennum
bændafundi, sem boðaður hafði
verið til að ræða verðlagsmál iand-
búnaðarins. Gestur fundarins var
Gunnar Guðbjartsson, formaður
Stéttarsambands bænda, en fram-
sögumenn voru Stefán Jasonarson,
Vorsabæ, Pétur Sigurðsson í Aust-
urkoti og Guðmundur Eyjólfs-
son á Húsatóftum. Eftir
að ræðum framsögumannanna
lauk urðu fjörugar umræður, og
þegar blaðið fór í prentun voru
horfur á því að fundurinn, sem
hófst kl. 21,30, stæði til kl. 3—i i
nótt.
>að voru fjórir sunnlenzkir
bændur ,sem boðuðu til þessa
fundar á Selfossi, þeir Lárus
Ágúst Gíslason, hreppstjóri í Mið
húsum í Hvolshreppi, og stjórnaði
hann fundinum, Pétur Sigurðsson
í Austurkoti í Hraungerðishreppí í
Flóa, Stefán Jasonarson í Vorsa-
bæ á Skeiðum og Guðmundur Ey-
jólfsson á Húsatóftum á Skeiðum.
Eins og fyrr segir mun Tíminn
skýra nánar frá umræðum á fund
inum síðar.
SILUNGSVEIÐI TREG
ÞAÐ SEM AF ER
HLOÐU-
HRAFNAR
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
Myndin hér að ofan er tekin
af tveimur hrafnsungum, er
liggja í hreiðri sinu í fjárhús-
hlöðunni að Bakkakoti í Rang
árvallasýslu. í aprílmánuði var
skýrt frá þeim merkilega at-
burði í Tímanum, að hrafnar
gerðu sér hreiður í byggingu,
en það muna menn ekki eftir,
að gerzt hafi fyrr.
Systir bóndans að Bakkakoti
Sigríður Arsælsdóttir og mað
ur hennar, Marteinn Davíðs-
son, Kambsvegi 1, Reykjavík,
gerðu sér ferð að Bakkakoti
um helgina til að líta á hrafns
hjónin og ungana. í viðtali við
Tímann sagði Sigríður, að ung
arnir væru orðnir alfiðraðir,
Framhald a ols 11
J
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
í vor hefur silungsveiði í vötn
um hér á nágrenninu verið með
tregasta móti, að því er Albert
Erlingsson í Vciðimanninum tjáði
Tímanum í dag. Silungsveiðimenn
fara á stjá strax í apríl, og ef vel
vorar, má búast við allgóðri veiði
í maímánuði, t. d. er þá ágætur
tími til að veiða væna fiska í Þing
vallavatni. f ár virðist mun ininna
! um fisk en oft áður, og greinir
! menn á hvað valdi.
í Ölfusá hafa rnenn sett í sjó
birting við og við, en í Hliðar-
jvatni hefur fiskurinn tekið illa.
Framhald a U siðu
NEYÐIST KEA TIL AÐ LECGJA
NIÐUR IÐNFYRIRTÆKI VEGNA
STEFNU RlKISSTJÓRNARINNAR?
EJ-Reykjavik, þriðjudag.
í skýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra KEA fyrir árið
1965, segir, að stjóm KEA muni
athuga á yfirstandandi ári, hvaða
framleiðslufyrirtæki þess hafi
möguleika á áframhaldnadi
rekstri, og draga úr framleiðslu
hinna, eða leggja þau niður, ef
hún telur enga von um breytta
stjórnarstefnu í málefnum ís-
lenzks iðnaðar.
í skýrslunni segir m.a.:
„Þær verksmiðjur, félagsins og
fyrirtæki, sem hafa getað aukið
sína sölu í samræmi við dýrtíð-
ina, sýna sæmilega útkomu, en
hin, sem standa í stað með sölu
eða lækka frá fyrra ári, eru með
taprekstur, meiri eða minni. Inn
flutningur á ýmiss konar iðnvarn
ingi hefur aukizt verulega á árinu,
og veldur því, að innlendar iðn
aðarvörur dragast aftur úr í sölu.
Úr framleiðslukostnaði verður aft
ur á móti ekki dregið, án veru
legs undirbúnings og er þá rekstr
arihalli óhjákvæmilegur. Ekki er
útlit fyrir annað en dýrtíðin fáilýmsum þeim innlenda iðnrekstri
áfram að leika lausum hala og því sem á undanförnum árum hefur
fyrirsjáanlegt, að hætta verðurlverið byggður upp og talinn nauð
synlegur í íslenzku efnahagslífi.
Mun stjórn KEA athuga á yfir-
Framhald a bls. 11
AÐALFUNDUR
SÍS 10.-11.
Aðalfundur SÍS verður hald
inn að Bifröst dagana 10. og 11.
júní. Fulltrúum skal bent á að
bílferð verður frá Sambands
húsinu kl. 16.00 á fimmtudag 9.
júní og ef til vill önWyr kl.
18.00 ef nauðsynlegt reynist.
Fulltrúar, sem þurfa á ferð
inni að halda eru beðnir að
láta skrá nöfn sín á skrifstofu
forstjóra fyrir hádegi á fimmtu
dag 9. júní, til að tryggja sér
far.
Brynjólfur Sveinsson setur aðalfund KEA. Jakob Frímannsson,
er Gísli KonráSsson, sem var fondarstjórL
kaupfél agsstjórl situr honum til vinstri handar, en næstur ræSumannl til hægri
(Tímamynd HS)