Vísir - 04.12.1974, Síða 9
Vlsir. Miðvikudagur 4. desember 1974.
Vlsir. Miðvikudagur 4. desember 1974.
B
Hœttur að
y stökkva!
Maðurinn, sem á heimsmetið i skíða-
stökki-réttara er vist að segja skiöaflugi
— Austur-Þjóðverjinn Manfred Wolf —
hefur ákveðið að hætta að keppa I sklða-
stökki og ieggja heldur meiri áherzlu á
námið, sem hann segist hafa trassað á
undanförnum árum.
Hann er ekki nema 25 ára gamall og
þykir mögum það fljótt hjá Iþróttamanni,
sem tilkynnir að hann sé hættur keppni i
austantjaldslöndunum, ekki eldri. Sagt er
að það sé ekki námiö, sem hafi þvælzt
fyrir Wolf, heldur annar sklðastökkvari,
Hans Georg Aschenbach, og ungir stökkv-
arar, sem séu að koma upp á yfirboröið.
Telji Wolf sig ekki hafa nokkurn mögu-
leika á að ná i skottið á Aschenbaeh og
hinum.
Heimsmet Wolf I skiðafiugi er 165 metr-
ar.
Schön betri
en Herberger?
Er Helmut Schön betri en Sepp Herberger?
— Eða hafði Schön dr betri mannskap að
veija en gamli þjálfari og einvaldur
vestur-þýzka landsliðsins I knattspyrnu.
Sepp Herberger var þjálfari vestur-þýzka
iiðsins á tlmabilinu 1950 til 1964. Helmut
Schön tók við af honum og er enn þjálfari.
Tölulega er útkoman hjá þessum tveim
meistaraþjálfurum þannig:
Undir stjórn Herberger léku Vestur-Þjóð-
verjar 97 landsleiki : 52 sigrar, 14 jafntefíi og
31 tap (meðal sigurleikjanna er 5:0 á móti
tslandi)
Undir stjórn Schön hafa Vestur-Þjóð-
verjarnir leikið 102 landsleiki: 68 sigrar, 18
jafntefli og 16 töp!
Aston Villa í
undanúrslitin
Einn leikur I átta-liða úrslitum enska
deildabikarsins var háður I gær. Colchester
tapaði á heimavelli fyrir Aston ViIIa 1-2 og er
Birmingham-liðið þar með komiö I undanúr-
slit. Þrlr leikir verða I kvöld I deilda-
bikarnum —Newcastle-Chester, Middlesbro-
Manch. Utd. og Norwich-Ipswich.
Þá var einn leikur háður I 3. deild I gær.
Bournemouth lék I Huddersfield og varð
jafntefli 2-2. t 2. deild varö að fresta leik
Oldham og Bolton vegna bleytu á leikvellin-
um I Oldham.
Middlesbro á I nokkrum erfiðleikum með
uppstillingu liðs sins I kvöld gegn efsta liðinu
12. deild, Manch.Utd. Þeir Mills, Murdock og
Cragg geta ekki leikið vegna meiðsla.
Manch. Utd. er með alla sina beztu menn —
Greenhoff hefur náð sér eftir meiðsli, sem
hann hlaut gegn Sunderland á laugardag.
Litla liðið Chester, sem sló Leeds út, fær
erfiðan leik I Newcastle — og sama er að
segja um Ipswich gegn hinu stóra liðinu frá
Austur-Angliu, Norwich. Ipswich hefur
tapað siðustu sex leikjum sinum á útivelli.
—hsim.
Swansea fer yfir...
— Nema að Arsenal kaupi
bezta leikmann félagsins
Arsenal hefur tekið hinn 17 ára gamla
miðherja frá Swansea, Robbie James, I
mánaðar reynslutlma. Forráðamenn Swan-
sea vona, að Arsenal kaupi hann áður en
þessi mánuður er liðinn, þvi annars er það
bókstaflega farið á haustinn.
Swansea er nú neðarlega I 4. deild —áhorf-
endur koma ekki lengur á leiki þess og kass
inn er orðinn svo til tómur. James er eini
leikmaðurinn, sem félagið á eftir, sem ein
hverjir peningar eru I, og ef Arsenal kaupir
hann á þá upphæð, sem Swansea hefur sett
upp, cr þvi borgið um sinn.
Hann er talinn mjög efnilegur leikmaður
lék sinn fyrsta deildarleik með Swansea
nokkrum dögum eftir að hann varð 16 ára —
skoraði þá 3 mörk — og hefur nú leikið um 40
leiki fyrir félagið og skorað I þeim flestum.
Þannig er „keyrt’’ I heimsbikarnum I alpagreinum. Frakkinn frægi, Jean-Noel Augert, I brautinni
22 íslandsmet hjá
þeim sterkustu!
— íslandsmetin féllu eitt af öðru í kraftlyftingum
Hvorki meira né minna en 22
tslandsmet voru sett I anddyri
Laugardalshallarinnar á föstu-
dagskvöldið, en þá komu þar
saman flestir af sterkustu mönn-
um landsins til þátttöku i Reykja-
vlkurmótinu I kraftlyftingum.
1 léttasta flokknum, sem keppt
var I — fjaöurvigt — setti Kári
Elisson Armanni 10 íslandsmet,
þ.e.a.s. setti met, sló þaö I næstu
tilraun og hélt þannig áfram meö
allar þær lyftur, sem hann mátti
taka. Þá setti Skúli Óskarsson
UIA 3 tslandsmet I millivigt,
Friörik Jósepsson ÍBV heil 7 met i
milliþungavigt og Cskar
Sigurpálsson 2 met I þungavigt.
Kári Elisson var Reykjavíkur-
meistari I fjaöurvigt og var hans
bezti árangur þessi: Hnébeygja
117,5 kg-bekkpressa 87,5 kg-rétt-
stööulyfta 170 kg-samtals 375 kg.
I léttvigt varð Brynjar
Gunnarsson Armanni meistari,
meö 15 kg meira i samanlögöu en
fimleikamaöurinn góökunni,
Grétar Franklinsson, sem er aö
leika sér I lyftingunum.
Brynjar var meö 150 kg I hné-
beygju, 100 kg i bekkpressu og 185
kg i réttstöðul., samtals var hann
þar meö 435 kg. Grétar var meö
130-90-200 eða samtals 420 kg.
1 millivigt sigraöi Skúli Óskars-
son, en hann keppti sem gestur á
mótinu og var I góðu formi. 1 hné-
beygju tók hann 240 kg, I bekk-
pressu 130 kg og i réttstöðulyftu
270 kg eöa samtals 640 kg.
Meistari i þessum flokki varö
Þorvaldur Stefánsson Ármanni
meö 152,5-90-175 eöa samtals 417,5
kg. sem er liölega 220 kg minna en
Skúli náöi i samanlögðu.
1 léttþungavigt varð Ólafur
Emilsson Armanni Reykjavikur-
meistari með 210 kg i hnébeygju,
150 kg I bekkpressu og 240 kg i
réttstööulyftu, sem gerir
nákvæmlega 600 kg i samanlögöu.
Friörik Jósepsson keppti i
milliþungavigt sem gestur og
setti sjö Islandsmet, enda i miklu
keppnisstuöi. 1 hnébeygju tók
hann 245 kg, bekkpressu 165 kg og
réttstööulyftu 272,5 kg. Saman-
lagt gerir þetta 682,5 kg, sem er
mjög gott met I þessum flokki.
Óskar Sigurpálsson varö
meistari I þungavigt, var meö
samtals 750 kiló, þar af glæsilegt
met I réttstööulyftu, 310 kg, og fór
létt meö þaö. 1 hnébeygju var
hann meö 290 kg, sem einnig er
íslandsmet, og i bekkpressu 150
kg.
Eins og árangur gefur til kynna
var þetta mót mjög vel heppnað,
og má fullvlst telja, að okkar
sterkustu menn verði i miklum
ham i vetur I báðum
geröum lyftinganna-kraftlyfting-
um og tviþraut.
—klp
Sigrar Anna-María
5tg qrið í röð?
— Keppnin um heimsbikarinn í alpagreinum hefst í dag í
Val d'lsere í Frakklandi og cllir hinir beztu með
— Svíar búast við miklu af Ingemar Stenmark
Bezta skiöafólk heims hefur I
dag keppni um heimsbikarinn I
alpagreinum — keppni, sem
stendur langt fram á næsta ár.
Með afrekum sklðafólksins er
fylgzt um allan heim og Anna
Marla Pröll verður meira I sviðs-
Ijósinu en oftast áður. Tekst henni
að sigra fimmta árið I röð?, er
stóra spurningin. Engin kona
stenzt henni snúning I bruni, þar
sem hún hefur aðeins tapað einni
keppni tvö slðustu keppnistima-
bilin — en I svigi og stórsvigi er
hún ekki eins örugg, þó oftast
hijóti hún stig I slðari greininni.
I karlakeppninni veröa ítalirn-
ir Gustavo Thoeni og Piero Gros
stóru nöfnin ásamt Austurrikis-
mönnunum Zwilling, Hinterseer
og Klammer — og Svlar búast viö
miklu af Ingemar Stenmark frá
Neustift, sem stóö sig svo vel i
siöari hluta siöasta keppnistima-
bils.
En hvaö er heimsbikarinn, sem
hefst i dag? Svar.
• Niu mót I bruni.
• Sjö mót'I stórsvigi
• Sjö mót i svigi
A þessum 23 mótum eru gefin
stig.
• Sigurvegarinn fær 25 stig.
• Annað sætiö gefur 20 stig
• Þriðja sætiö gefur 15 stig
Fjórða sæti gefur 11 stig — og
fimmta sæti 8 stig. Sjötta sæti sex
stig — og sjöunda fjögur stig
Áttunda sæti þrjú stig, niunda tvö
stig og tiunda sæti eitt stig.
En það er erfitt aö hljóta stig I
keppni, þar sem 50 hinna beztu
keppa. Ekkert má út af bregöa —
sigur, sem viröist I höfn, getur
allt I einu þeytzt á brott.
Heimsbikarnum er skipt I tvö
timabil.
• Fyrra timabiliö tekur yfir 11
mót allt frá Val d’Isere i
dag til stórsvigskeppni I
Adelboden, sem veröur 11.
janúar. Keppendur fá
aðeins reiknuö stig fyrir sex
þessara móta.
• Siðara timabiliö nær frá
Kitzbuhel 18. janúar fram
til úrslitakeppninnar i Val
Gardena 21.-24. marz.
Keppt er á fimm stööum
fyrra timabiliö — sjö hiö
siöara.
Bruniö þykir tilkomumest I
keppninni um heimsbikarinn —
„hættulegast” og þess vegna
greináhorfenda. Alls niu mót, þar
sem brautir eru milli 2 og 3 km —
oft hrikalegar, og fallhæö 800-900
metrar. Brautin er „keyrö” einu
sinni — og þar má ekki sleppa
hliði, sem eru þó mun færri en i
sviginu.
1 sviginu eru 75 hliö — beygjur
krappar — og stundum 75 senti-
metrar milli hliða. Þá er eins gott
að hafa sveifluna I lagi! Tvær
ferðir e:’u I sviginu.
I stórsviginu er lámarksvega-
lengd milli hliða fimm metrar.
Brautir 1500 til 2000 metrar, þar
sem 80hliðum er skellt niöur. Þar
reikna Sviar einkum meö Sten-
mark — en Hka Guömundi
„okkar” Södelin og hinum 17 ára
Torsten Jacobsson.
Þátttakendum er skipt i
„grúbbur” og fer það eftir
árangri þeirra hve góöri grúbbu
þeir lenda i. Auðvitað er bezt aö
keppa I þeirri fyrstu — þaö veit
allt skiöafólk og 15 keppendur eru
þar. Þaö er ekki hlaupiö aö
komast i hana — og keppendur
veröa aö „verja” sæti sitt þar,
hafi þeir einu sinni náð þvi.
Æfingamót var I Val d’Isere I
gær og þar náöi Cindy Nelson,
USA, beztum tima I bruni kvenna
1:26.73 en Anna-Maria Pröll var
skammt á eftir, 1:26.88 min. 1
þriðja sæti kom Micola Spiess,
Austurriki, á 1:27.09 min.
En það er sem sagt I dag, sem
alvaran hefst.
Komin I brautina?
Þá byrjum við. — hslm.
VESTUR-ÞYZKALAND VILL FA
AÐ HALDA HM í FRJÁLSUM!
Vestur-Þýzkaland hefur sótt
um að fá að halda fyrstu heims-
meistarakeppnina i frjálsum
iþróttum, sem ákveðið er að fari
fram sumarið 1979, sagði tals-
maður vestur-þýzka frjáls-
iþróttasambandsins á sunnu-
daginn.
Hann sagði að sambandið gerði
sér góðar vonir um að fá að halda
þessa keppni — það væri það
fyrsta sem bæði um þaö, og hefði
mjög góða aðstöðu og reynslu til
að sjá um svona mót.
Ef af þvi verður, að
Vestur-Þjóðverjar fái keppnina,
mun hún fara fram á
Rheinsstadion, sem er einn full-
komnasti frjálslþróttaleikvangur
i heiminum — með tartan-
brautum og öllu þvi bezta, sem
hægt er að hugsa sér fyrir frjáls-
iþróttafólk.
Rheinsleikvangurinn var i
sumar vettvangur fyrir fimm
leiki I heimsmeistarakeppninni I
knattspyrnu. —klp—
Hvítir og svartir í sömu laug
Svartir og hvitir sundmenn
munu I fyrsta sinn keppa
saman á meistaramóti Suður
Afriku, sem haldið vérður I
Jóhannesarborg I lok
febrúar.
Formaður „hvita sund-
samband”. Suður-Afrlku.
Roy Clegg, tilkynnti þetta
fyrirnokkrum dögum. Hefur
þetta vakið mikla athygli,
þvi til þessa hafa svartir og
hvitir sundmenn ekki fengið
að keppa saman I Suður-
Afriku frekar en Iþróttafólk I
öðrum greinum.
Yfirvöld I landinu hafa
ekki sagt neitt, og er talið, að
þau ætli ekki að skipta sér af
þessu, enda er nú svo komið
að Suður-Afrika hefur veriö
rekin úr nær öllum alþjóða-
samböndum iþróttafólks, og
hefur það vakið mikla
óánægju meðal iþróttafólks
og iþróttaunnenda I landinu.
Clegg tilkynnti einnig, að
bæði sundsamband svartra
og hvitra I suður-Afriku yrðu
lögð niður, og stofnað eitt
samband fyrir alla.
—klp
Guömundur Arason, forseti Rotaryklúbb Kópavogs, afhendir Karli West Fredriksen hinn fagra verð-
launagrip, sem er farandgripur. Styttuna inn I rammanum fær „Iþróttamaöur Kópavogs” hins vegar
til eignar hverju sinni. Valur Fannar gullsmiður, hannaði verölaunastyttuna. Ljósmynd Bjarnleifur.
Sá bezti í Kópavogi
— íslandsmeistarinn í hástökki, Karl West, hlaut
viðurkenningu frá Rotaryklúbb Kópavogs
Hinn fjölhæfi Iþróttamaður
Karl West Fredriksen var I gær
kjörinn bezti Iþróttamaður Kópa-
vogs áriö 1974. Rotaryklúbbur
Kópavogs gekkst fyrir þessari ÚÞ
nefningu og afhenti Guðmundur
Arason, forseti klúbbsins, Karli
fagra verðlaunastyttu I hófi I gær.
Guömundur gat þess þá, að á
umdæmisþingi Rotary-klúbbanna
á Akureyri sl. sumar, heföi veriö
samþykkt, að klúbbarnir á ís-
landi reyndu — hver með sínum
hætti — aö örva æsku landsins til
heilbrigörar tómstundaiöju. Rot-
aryklúbbur Kópavogs heföi i
tilefni þessarar samþykktar
staöiö fyrir, að valinn var Iþrótta-
maöur ársins I Kópavogi. Veröur
slikt gert árlega i framtiöinni.
Skilyrði til aö geta hlotið hinn
fagra verðlaunagrip, sem Valur
Fannar, gullsmiður, hannaöi, er,
aö viökomandi sé félagi i þrótta-
félagi I Kópavogi og hafi keppt
fyrir það félag, þegar hann vann
þau afrek, sem miðað er viö i vali
hans. Sérstök dómnefnd skipuð
Guttormi Ólafssyni, Iþrótta-
fulltrúa Kópavogs, Guömundi
ÞórÖarsyni, knattspyrnukappan-
um kunna, og Páli Bjarnasyni,
stjórnarmanni i KSI, valdi Karl
West sem iþróttamann Kópa-
vogs 1974.
Þaö val hefur ekki verið erfitt,
þvl árangur Karls var góöur á
frjálsiþróttamótum i sumar.
Hann varð Islandsmeistari i
hástökki —stökk bezt 2.01 metra,
sem var bezta afrek Islendings i
hástökki á árinu, Kópavogs- og
UMFÍ-met. Þá var Karl i þriöja
Belgíski stórhlauparinn Emile
Puttemans, heimsmethafinn I
5000 metra hlaupi, sigraði heims-
methafann I 10000 metrum, Dave
Bedford, I viða vangshlaupi I Van-
ves I Frakklandi á sunnudag. Það
var 3ja árið I röð, sem Puttemans
sigrar i þessu hiaupi.
Heimsmethafarnir hlupu
samhliða þrjá-fjóröu hluta vega-
lengdarinnar, sem var átta kiló-
sæti á afrekaskrá Islands I stang-
arstökki meö 4.20 m, þriöji i
langstökki meö 6.80 m og þriöji I
tugþraut með 6739 stig. Fjölhæfur
Iþróttamaður, sem stóð sig vel i
islenzka landsliöinu.
Karl West Fredriksen er 22ja
ára, fæddur 2. marz 1952 — loft-
skeytamaöur aö atvinnu. Hann
hefur verið félagi i frjálsíþrótta-
deild Breiðabliks frá 1969 og
jafnframt tekiö mikinn þátt i
félagsstarfi hennar — er nú gjald-
keri. —hsim.
metrar — en þá sagði Puttemans
takk fyrir samfylgdina og Bed-
ford átti ekkert svar — varö 24
sekúndum á eftir I mark.
Úrslit urðu þessi:
1. Puttemans, Belgiu, 23:56.0
2. Bedford, England, 24:20.0
3. P. Standing, Engl. 24:35.0
4. Lavaillant, Frakkl. 24:36.0
5. Hertoghe, Belgiu, 24:39.0
—hsiin.
Puttemans sigraði Bedford
Best kann enn sitt fag!
Skoraði tvö mörk á móti Manchester City og lagði önnur
tvö upp á sinn gamla góða máta
KEMST VALUR AF BOTNINUM?
— Tveir leikir í 1. deild karla í kvöld og úrslitaleikurinn í
Reykjavíkurmóti kvenna
Tekst Val að næla sér i stig I
leiknum gegn nýliðunum af Sel-
tjarnarnesi 11. deild tslandsmóts-
ins I handknattleik karla I kvöld,
og komast þar með af botninum I
deildinni? Þetta er ein af þrem
stórum spurningum, sem hand-
knattleiksunnendur munu velta
fyrir sér, áður en þeir halda inn I
höllina i kvöld.
Hinar tvær eru: — Tekst
Armannspiltunum að vinna FH
og Ármannsstúlkunum að brjóta
aftur einveldi Vals og Fram i
handknattleik kvenna með þvi að
vinna Val i úrslitaleik Reykjavik-
urmótsins i meistaraflokki
kvenna. Ef þeim tekst það, er það
I fyrsta skipti i mörg ár, sem
annað félag en Valur eða Fram
sigrar i handknattleikskeppni
kvenna hér á landi.
Þessi leikur fer fram á undan
leik Vals og Gróttu i karlaflokki,
en hann á að hefjast kl. 20,15.
Báöir þessir leikir ættu að geta
oröið hressilegir en þó varla eins
og leikur Armanns og FH, sem er
þriöja stóra spurningamerkið i
handboltanum i kvöld.
Bæði þessi lið náðu sér i stig um
siöustu helgi eftir harða baráttu.
FH er öllu liklegra til að sigra i
leiknum i kvöld, en þó getur það
oröiö erfitt ef Ragnar Gunnarsson
veröur i eins miklum ham I
leiknum gegn Viking á sunnudag-
inn. Myndin hér til hliðar er frá
þeim leik og er þarna verið að
skora annað markið hjá honum i
leiknum, en þá var fýrri hálf-
leiknum alveg að ljúka.
George Best kann enn þá að
sparka i boltann og leika með
hann betur en margir aðrir. Það
fengu þúsundir Manchesterbúa
að sjá i siðustu viku, er saman-
sett stjörnulið sigraði
Manchester City í „ágóðaleik”
fyrir Tony Book fyrirverandi
fyrirliða Manchester City og
núverandi framkvæmdastjóra
Best, sem hefur litið komið
nálægt fótboltanum i nær ár,
skoraði tvö mörk I leiknum og
lagði tvö önnur svo vel upp, að
vörn Manchester City stóð öll og
klappaði fyrir honum ásamt
öllum áhorfendaskaranum. Lék
hann varnarmennina oft svo
grátt, að þeir sátu eða lágu eftir
á jörðinni, og kom hann þá
gjarnan til baka — aðeins til að
geta platað þá aftur.
Leiknum lauk með 6:4 sigri
„stjörnuliðsins”, en auk George
Bestskoruðu þeir Kevin Keegan
og Frank Worthington fyrir
„stjörnurnar” —klp—