Vísir - 12.12.1974, Qupperneq 3
Vtsir. Fimmtudagur 12. desember 1974.
3
Tvö ár þar til Norðurlínan
leysir raforkuvandann
— „verðum að bjargast við varavélar þangað
rafveitustjórinn ó Akureyri
til,
segir
„Ástandið er ekki
langt frá þvi, sem bú-
ast má við frá Laxá,
eftir að komið er frost
og snjór,” sagði Ingólf-
ur Árnason, rafveitu-
stjóri á Akureyri, i við-
tali við Visi i gær.
„Það jaðrar við skömmtun og
'ekki fyrirsjáanlegt, að bregði til
hins betra á næstunni. Þegar
snjór og Is hlaðast i Laxá, renn-
ur hluti af vatninu einfaldlega
fram hjá og kemur ekki að haldi
fyrir virkjunina.
Hjá okkur er ekki að búast við
auknu álagi vegna komandi
vertiðar. Það er allt i gangi nú
sem verður i gangi. Hins vegar
er jöfn og þétt aukning á raf-
orkunotkun á okkar svæði.
Samkvæmt upplýsingum ráð-
herra kemur byggðalinan hing-
að norður eftir rétt tvö ár, I árs-
lok 1976. Þangað til verðum við
að bjargast við varavélar á
Jóhann Þorsteinsson prófar svifsleðann á túninu hjá Alfabrekku við Suðurlandsbraut. Ljósm. Vfsis Jim
Svifsleðinn heldur
innreið sína hingað
tekur hann við af vélsleðunum?
Vegfarendur um Suöurlands-
brautum þrjúleytið á föstudaginn
ráku margir hverjir upp stór
augu, er þeir sáu óvenjuiegt
farartæki þeysast um túnið hjá
Alfabrekku. Þar reyndist á ferð-
inni eins konar svifsleði hið mesta
furðutæki til ferðalaga.
Margir kannast við svifnökkva,
sem viða tiðkast erlendis og
einueinnivar reyndur hér milli
lands og Eyja og Reykjavikur og
Akraness. Svifsleðinn er eins kon-
ar vasaútgáfa af nökkvanum
stóra, tekur einn til tvo I sæti.
55 hestafla tvigengisvél knýr
þetta farartæki, sem getur fariö
jafnt á láði sem legi. Einkum er
þetta talið heppilegt tæki á sönd-
um, Is og vatni. Það flýtur likt og
bátur, og mætti jafnvel stunda
stangaveiöi frá þvi, þar sem
straumur er ekki til trafala.
Sami hreyfill knýr sleðann
áfram og myndar undir honum
loftpúðann, sem hann svifur. á.
Aftan til á sleðanum, til hliðar við
sætin, eru stýrin, og lætur sleðinn
vel að stjórn. Má láta sér detta I
hug, að þetta tæki verði ekki síður
vinsælt en vélsleðarnir, sem rutt
hafa sér mjög til rúms hér á
landi, þar sem svifsleðinn kemst
ekki aðeins áfram á snjó, heldur
alls staðar þar sem landslag er
ekki mjög hnúskótt, og kemur að
gagni allan ársins hring.
Ágúst Jónsson flutti svifsleðann
inn, en eigandi hans er Gunnlaug-
ur Helgason á Egilsstöðum, og fer
sleöinn þangað austur næstu
daga. — SH
„Til að vega ó móti
fylliríisdansleikjum'
— stofnaður ferða- og skemmtiklúbbur fyrir ungt fólk
— þekktir popparar í stjórn
„Til þess að bæta aðeins úr fá-
breytilegu skemmtanalifi, sem
einkennist mest af fyllirlis-
dansleikjum”, segja nýkjörnir
stjórnarmeðlimir vera höfuðtil-
gang Klúbbs 32, sem var
stofnaöur I fyrradag.
Margir kannast eflaust við
þetta klúbbnafn. Þaö var notað
á ferðaklúbb fyrir nokkrum ár-
um, en nú hefur rykið verið
dustað af því og nafnið sett á
félagsskap, sem skal fyrst og
fremst verða fyrir ungt fólk.
Eins og nafnið bendir til, er
aldurshámark 32 ára en lág-
markið er 18 ára.
Nýkjörna stjórn skipa þekktir
popparar og poppáhugamenn,
þeir Jónas R. Jónsson, Sigurjón
Sighvatsson, Magnús Kjartans-
son og örn Petersen.
„Við ætlum að efna til
skemmtana einu sinni til tvisv-
ar i mánuði, þar sem boðið
verður upp á danshljómsveit og
stutt skemmtiatriði. Það á
enginn gróði að veröa af
skemmtununum, en ef hann
verður, þá notum við hann til að
greiða niður næstu skemmtun,”
sagði örn Petersen, einn
stjórnarmeðlima i viðtali við
Visi.
„Það verða vinveitingar á
þessum skemmtunum. Og þótt
við séum ekki neinir „fanatlk-
ar” hvaðvinsnertir, þá ætlumst
við til þess að fólk kunni að um-
gangast það á þann hátt að það
verði ekki öðrum til leiðinda”,
sagði örn.
Starfsemi klúbbsins beinist
ekki aðeins að skemmtunum
með dansleikjahaldi, heldur
einnig ferðalögum.
„Það er búið að semja við
Sunnu um skipulag ferða fyrir
klúbbmeðlimi næsta sumar.
Þær ferðir verða fyrst og fremst
miðaðar við þennan aldurshóp,
þ.e. 18 til 32 ára, og einnig reyn-
um við að pressa niður kostn-
að”, upplýsti örn ennfremur.
Þeir eru ekki að tvinóna neitt
við hlutina piltarnir, þvi strax i
kvöld verður fyrsta skemmtun-
in á vegum Klúbbs 32. Hún er i
Sigtúni, þar sem hljómsveitin
Júdas leikur og Change flytur
lög af nýrri plötu sinni.
— ÓH.
Norður- og Norðausturlandi. Nú
er verið að koma upp varavél
eða toppstöð á Akureyri, sem á
að framleiða 7 megavött.”
Samkvæmt upplýsingum Val-
garðs Thoroddsen, rafveitu-
stjóra rikisins, hefur verið horf-
iö að því ráði að leggja byggða-
linu — sem nú er kölluð Norður-
lina — frá virkjunum Lands-
virkjunar við Búrfell og Sigöldu.
Hún mun fylgja byggð norður
um land, en áætlunum um
„hund” yfir hálendið hefur ver-
ið hent. Norðurlinan leysir fljót-
ar þann vanda, sem við er að
etja um rafmögnun á Norður-
landi, og eins hefur komið I ljós,
að of mikil hætta er á isingu á
hálendinu til þess að ráðlegt sé
að leggja linu þar yfir.
v
„Virkjanir á Norðurlandi eru
takmarkaðar,” sagði Valgarð.
„Laxá getur ekki náð veruleg-
um afköstum, af þvi að ekki má
hækka vatnsborðiö. Fljótvirk-
asta leiðin til þess aö koma auk-
inni vatnsraforku til Norður-
lands er að leggja Norðurlinu
með byggð.”
Valgarð kvaðst ekki hafa
kostnaðaráætlun undir höndum,
þar sem hún hefði verið gerð á
vegum sérstakrar byggingar-
nefndar byggðallnu, en áætlað-
ur kostnaður samkvæmt út-
reikningum nefndarinnar mun
vera um 100 milljónir króna. -
SH
T vœr
hœðir
í stað
fjögurra
her-
bergja
Nýjasta stóra ferðaskrif-
stofan, Alþýðuforlof, mun að
öllum Hkindum flytja úr fjór-
um litlum herbergjum við
Laugaveginn á tvær hæðir við
Skólavörðustig innan tiðar.
Ekki hefur þó verið gengið
endaniega frá samningum
ennþá.
Alþýðuorlof er nú aö Lauga-
vegi 54, en húsnæðið viö Skóla-
vörðustig, sem þvi stendur til
boða er að Skólavörðustig 16,
þar sem Tékk-kristall er nú og
skrifstofur verkalýðs-
félaganna.
Tékk-kristall mun I fram-
haldi af þessu flytja rekstur
sinn að Laugavegi 17, þar sem
Vegamótaútbú Landsbanka
Islands var áður til húsa.
-JB.
Flaug með bygging-
arefni til Teheran
Flutningaflugvél Iscargo fór i
fyrradag til Teheran I Iran með
efnivið i nýja flugstöð á flug-
vellinum þar. Eins og kunnugt
er af fréttum þá hrundi flug-
stöðvarbyggingin I Teheran
fyrir skömmu og létust I þvi
slysi rúmlega 20 manns.
Iscargo var beðið um að flytja
burðarbita og annað efni I
bygginguna frá London. Ferðin
suður gekk vel og var vörunum
landað I gær.
1 nótt var vélin hlaðin á ný
með varningi frá tranher, sem
flytja á til Rotterdam i Hollandi.
Vélin lagði af stað til Evrópu i
nótt. Flugstjóri I ferðinni er
Hallgrimur Jónsson.
önnur vél Iscargo flaug til
Ostende I gær með fisk af
Reykjanessvæðinu. I Ostende
fór fiskurinn beint á veitingahús
og hótel. Ostendevélin biður nú
eftir vörum I Belgiu, en heldur
siðan til Reykjavikur um Ala-
borg i Danmörku.
-JB.
Mikið framboð á
hvolpum í staðinn
fyrir Zentu
„Það eru margir búnir aö
hringja og bjóða okkur hvolpa
og Jökull Jakobsson var með
þeim fyrstu,” sagði Sigriður
Björnsdóttir við Visi I morgun,
en blaðið hafði fregnað, að frétt-
in um andlát tikarinnar Zentu
hefði valdið mörgum upp-
hringingum hjá eigendum henn-
ar.
„Ég reikna með að um 12-13
manns hafi hringt og boðið okk-
ur hvolpa. Það var bæði bæjar-
fólk og fólk utan af landi. Til
dæmis var bæði hringt frá Akur-
eyri og Hornafirði,” sagði Sig-
riður.
Zenta var tik, sem Jóhannes
Eðvaldsson knattspyrnumaður
átti. Er Jóhannes hélt utan fyrir
nokkru, var það meira en gamla
Zenta þoldi, og hún veslaöist
upp og dó.
Jökull Jakobsson haföi á sln-
um tlma gefiö Jóhannesi Zentu
sem litinn hvolp.
„Nei, Jökull vissi ekki, að
hvolpurinn hefði veriö niður-
kominn hjá okkur”, sagði Sig-
rlöur. „En hann sagðist muna
vel eftir pilti, sem kom heim til
hans til að fá hvolp og hann bauð
okkur annan i staðinn núna,”
sagði Sigríður.
„Ég býst við, að við fáum
okkur annan hund. En núna i
augnablikinu finnst manni bara
að ekkert geti fyllt skarðiö, sem
Zenta skildi eftir sig,” sagði
Sigrlður að lokum. —JB