Tíminn - 14.06.1966, Síða 9
MUÐJUDAGUR 14. jn»M96«
TfMINN
9
Rúna Guðmundsdóttir (í miöju) ásamt afgreiSslustúlkum í Harísartízkunni, þeim Margréti Sigurjónsdóttur (til vinstri) og Aldísi Þóraðardóttur.
Ljósmynd Tíminn — Bjarnleifur.
r
Islenzkar konur tileinka
sér fljótt nýjustu tízku
Meðal vinsælli bvenfataverzl-
ana borgarinnar er Parísartízkan
í Hafnarstræti. Eigendur eru þær
Rúna Guðmundsdóttir og Gyða
Árnadóttir. Þær höfðu báðar góða
reynslu, þegar þær réðust f að
stofnsetja Parísartízkuna, þvi að
þær höfðu unnið saman hjá Ragn-
ari Þórðarsyni í Markaðinum í all-
mörg ár.
Ég leit inn í verzlunina og rabb-
aði við frú Rúnu um tízkuna í
kjólafatnaði og helztu breytingar
á tízkulitum.
Tveir nýir litir komnir fram.
— Eru einhverjar stórbreyting-
ar í tízkunni um þessar mundir?
— Við sáum nýlega framleið-
endasýningu í London. Hjá flest-
um framleiðendum, sem þar sýndu
voru áberandi tveir nýir litir, sem
ekki hafa verið. Þeir eru ljósfjólu-
biár og ólívugrænn. Þessir litir
koma til okkar næsta haust, því
að við kaupum alltaf inn sex mán
uði fyrirfram.
— Hvernig er sumarfatnaður-
inn?
— Sumarkjólar úr siffoni eru
afar vmsælir. Þeir eru gjarnan
í bleikum og blágrænum litum.
Miklfjr pliseringar setja mikinn
svip 4 þessa kjóla. Svona siffon-
kjólsr eru nú helzt ætlaðir ungum
stúlkum, og sömu sögu má segja
tom tízkuna almennt, mér finnst
ítundum hugsað of lítið um hent-
uga og fallega kjóla fyrir eldri
aldurshópa.
er núna, er svokölluð kasmír-
blúnda og er hún af ýmsum gerð-
um. Hvað innkaupum viðvíkur,
reynum við að kaupa aðeins einn
af hverri tegund og sömuleiðis
saumum við aldrei tvo kjóla eins.
Hérlendis er markaðurinn það
þröngur, að mér finnst fráleitt
að bjóða upp á fjöldaframleiðslu
á sama kjólnum. Ég get svo vel
skilið, að konum gremjist, er þær
hafa keypt sér fallegan kjól og
sjá svo annan alveg eins. En þegar
um ódýra unglingakjóla er að
ræða, höfum við stundum fleiri
en einn af sömu gerð, en reynum
þá að hafa litina mismunandi.
— Hvað er verðið á kjólunum
hjá ykkur?
— Það er að sjálfsögðu afar
mismunandi og fer eftir þvi um
hvernig kjól er að ræða. Við höf-
um kjóla frá 1495 krónum og upp
í 4—5 þúsund.
Þær selja töskur, undirföt, skart-
gripi o.fl.
— Þið hafið fleira á boðstólum
en kjóla.
— Við erum með Kaiser undir-
eyrnalokkum, sem aftur eru að
koma í tízku. Nælur af ýmsum
tegundum eru líka vinsælar. Við
höfum ekki lagt okkur eftir því
að vera með allra ódýrustu gerð-
ir af skartgripum. Það er leiðin-
legt, þegar skín út úr hvað það er
ódýrt og ómerkilegt, og þess vegna
höfum við reynt að vanda valið
á þeim, enda hefur það komið
í Ijós, að konur vilja fallega skart-
gripi, þótt þeir séu heldur dýrari.
Svo er annað, að ég hef ánægju
af þvi að selja fallega hluti og
góða og sem ég veit að detta
ekki strax í sundur.
Nóg að gera á saumastofunni.
— Og hvað er einkum saumað
hjá ykkur?
— Við saumum aðallega virki-
lega fína kjóla úr góðum efnum.
Slíkir kjólar yrðu of dýrir í inn-
flutningi. Það er mikið að gera
á saumastofunni og eru það ekki
síður eldri dömur, sem kjósa að
Iáta sauma á sig en kaupa til-
búna flík. Við fáum 'líka margar
pantanir á drögtum og síðum kjól-
áfram, að mér finnst þessi nýja
geometriska tízka hræðileg. Við
sáum stúlkur úti í London, búnar
eftir þeim línum, og það lá við
okkur fyndist við komnar á ein-
hverja plánetu úti í geimnum.
— En hvað viðkemur síddinni.
Halda kjólarnir áfram að styttast?
— Þótt kjólar séu sýndir mjög
stuttir á tízkusýningum þá eru
þeir hafðir um hné, þegar út í
framleiðsluna kemur. En víst hafa
kjólarnir stytzt talsvert. Við feng-
um t.d. sendingu af ódýrum ung-
lingakjólum núna fyrir jólin og
þurftum að síkka flesta. í febrúar
fengum við aðra sendingu og þá
brá svo við, að stúlkunum þótti
síddin alveg hæfileg.
íslenzkar konur tileinka sér fljót-
lega ný tízkufyrirbrigði.
— Taka íslenzkar konur fljótt
við ýmsum fyrirbrigðum í tízk-
unni?
— Já, það virðist mér. Þær eru
ekki hræddar við að taka upp
ýmsar nýjungar, sem fram koma.
Ég man, þegar pokakjólarnir svo-
kölluðu voru fluttir hingað fyrst.
um.
Spjallað við Rúnu Guðmundsdóttur
verzlunarstjóra Parísartízkunnar
Kaupa kjóla frá Englandi, en
efni og blúndur frá Frakklandi.
— Hvaðan kaupið þið tilbúna
kjóla?
— Við kaupum þá langmest frá
Englandi. Þótt við vildum kaupa
meira frá Frakklandi er verðlagið
of hátt og tollar miklir, svo að
þeir vrðu alltof dýrir. Aftur á móti
kaupum við franskar blúndur og
alsilkiefni og úr því er saumað
ajá okkur á saumastofunni, en
um hana sér Gyða Árnadótlir
ísami fjóruro aðstoðarstúlkum.
Það blúnduefni, sem eftirsóttast
föt og þau hafa verið mjög vinsæl.
Sömuleiðis höfum við franskar og
ítalskar leðurtöskur, hálsklúta, ilm
vötn og varaliti. Þessi varalitur
er frá frönsku fyrirtæki, Rouge
Baiser, sem selur þriðja hvern
varalit, sem seldur er í Frakklandi.
Þeir eru ódýrir og sala í þeim
gengur mjög vel hérna og við
höfum gert dálítið af því að selja
þá út á land.
— Bera konur mikið skartgripi?
-— Já, það fer í vöxt. Við erum
með ýmsar gerðir af hálsfestum,
— Síðir kjólar eru að komast
aftur í tízku.
— Já, það var nokkurt hlé á
því, en nú hefur það hraðvaxið
aftur. Og svo er um flest sem að
tízkunni lýtur. Það hverfur í nokk-
ur ár eða jafnvel áratugi, en kem-
ur svo aftur með smábreytingum.
Meðal annars hvað viðvíkur sídd
á kjólum. Ef við skoðum myndir
frá 1920—30 eru kjólarnir jafn-
vel enn styttri en núna.
— En ég get ekki stillt mig
um að segja, heldur frú Rúna
Þá vann ég í Markaðinum og ég
held að megi segja, að þeir hafi
runnið út.
— Hvaða breytingar hafa helzt-
ar orðið á vali kvenna á fatnaði
síðan þið opnuðuð Parisartízkuna?
— Mér þykir eftirtektarvert,
hvað ungaar stúlkur kaupa miklu
meira af drögtum. Fjölbreytnin
var heldur ekki mikil áður, það
voru þessar svörtu og gráu dragt-
ir og ungar stúlkur voru yfirleitt
ekki spenntar fyrir þeim. Nú leggj
um við kapp á að hafa sem mest
íýrval af drögtum og stólkur, bæði
yngri og eldri kunna að meta
það og nota dragtir mikið, enda
er það heppilegur klæðnaður við
mörg tækifæri.
Karlmenn hafa ákveðnar skoðanir
á kjólunum.
— Koma eiginmenn með kon-
um sínum, þegar þær velja sér
kjóla?
— Já, oft gera þeir það. Og
þeir hafa mjög ákveðinn smekk.
Annað hvort líkar þeim kjóll eða
ekki. Það er ágætt að mennirnir
komi með, því að það er leiðin-
legt ef kona hefur keypt sér kjól
án þess maðurinn sjái hann, fyrr
en hún fer með kjólinn heim og
þá er eiginmaðurinn kannski alls
ekkert hrifinn. Oft koma heilu
fjölskyldurnar til að horfa á
mömmu máta nýjan kjól og mér
finnst það reglulega skemmti-
legt og ákjósanlegt.
— Er ekki þreytandi að standa
við afgreiðslustörf allan daginn?
— Ég er oft spurð að þessu.
En ég verð að segja, að mér finnst
starfið mjög skemmtilegt og til-
breytingarríkt. Það er gaman að
hjálpa konum að velja sér fatnað,
sem þeim fer vel og sjá hvað það
hefur góð og upplífgandi áhrif á
konu að fá nýjan, fallegan kjól.
Auk þess höfum við verið sérlega
heppnar með starfsfólk og þá ekki
síður viðskiptavini, þeir eru in-
dælir og gott að vinna með þeim.
Við kynnumst mörgu fólki, því
að eins og ég sagði er markaður-
inn þröngur og því kemur hér
sama fólkið hvað eftir annað til
að verzla og við erum farnar að
þekkja það og munum oft, hvaða
kjóla það keypti síðast.
Fatnaður hefur tiltölulega lítið
hækkað í verði síðustu árin.
— Hvaða liti velja eldri konur?
— Margar eldri dömur kjósa
dökkblátt, brúnt eða svart. Sterkir
litir gera þó meira fyrir andlitið,
gefa því frísklegt yfirbragð, held-
ur en dökku eða litlausu efnin.
— Hafa kjólar hækkað mikið í
verði?
— Fatnaður hefur ekki hækkað
eins mikið og margar aðrar vörur.
Þegar ég vann í Markaðinum sem
verzlunarstjóri fyrir 6—8 árum
seldum við þar kjóla, sem kostuðu
upp í 3—4 þúsund. Þá hafði ég
í laun 4.500 krónur. Síðan hefur
kaup verzlunarfólks hækkað um
helming, ef ekki meira, en það
þætti líklega nokkuð dýrt ef kjól-
ar væru almennt á um tólf þús-
und krónur.
Fara reglulega utan til fatakaupa
fyrir verzlunina.
— Farið þið reglulega út til að
verzla?
— Yfirleitt þrisvar á ári. Haust
og vor til að kaupa inn og gera
pantanir. í ágúst förum við til
Parísar á stóru tízkusýningarnar
þar. Ég hef verið svo heppin að
fá aðgang að þeim, og það er
hreinasta ævintýri. Og þó að við
getum ekki notað neitt af því,
sem þar kemur fram, sér maður
þó litina og fáum ýmsar hugmyndr
ir. Og eins og ég sagði þá eni
sýningarnar sjálfar eins og ævin-
týri. X fyrra fórum við á sýningu
hjá Cardin. Þá var 40 stiga hiti
í París og svitinn bogaði af manni.
Svo komu sýningastúlkurnar, glæsi
legar og smart og frísklegar eins
og þær fyndu ekkert fyrir hitan-
um. En fyrir sýninguna voru þær
látnar halda til í Ioftkældum her-
bergi, þvi að auðvitað mátti ekki
sjást á þeim nein merki þess,
að þær þyldu ekki við. Eftir sýn-
inguna drógumst við inn á næstu
veitingastofu til að fá okkur kók
og von bráðar fóru tízkusýningar-
stúlkurnar að tínast þangað lika
og voru þá alveg aðframkomnar.
Stúlkur leggja aukna áherzlu á
að eiga fallegan undirfatnað.
Framhald á bls. 15
\