Vísir - 28.12.1974, Blaðsíða 9
Vlsir. Laugardagur 28. desember 1974.
9
óramót
ÞEIR GERÐU
GARÐINN
FRÆGAN
Að venju skulum við
rifja upp árangur liðins
árs i þessum siðasta þætti
ársins.
1 opnu mótunum var sveit
bóris Siguróssonar i sérflokki,
þvi hún tryggöi sér bæði
Reykjavikur- og íslandsmeist-
aratitilinn. Sveitina skipa
ásamt bóri, Hallur Simonarson,
Höröur Blöndal, Páll Bergsson,
Simon Simonarson og Stefán
Guðjohnsen.
Islandsmeistaratitilinn i
tvimenning hlutu Asmundur
Pálsson og Hjalti Eliasson, en
Reykjavikurmeistarar i tvi-
menning uröu Simon Simonar-
son og Stefán Guðjohnsen.
Islandsmót i einkennings-
keppni var nú haldið öðru sinni i
sambandi við firmakeppni
Bridgesambands tslands og
sigraði Stefán Guðjohnsen.
Allir þessir spilarar spila
fyrir Bridgefélag Reykjavikur.
Af erlendum vettvangi er það
að segja, að Island tók i fyrsta
sinn þátt i Evrópumóti
unglinga, sem haldið var i
Kaupmannahöfn. Liðið var
skipað ungum og efnilegum
bridgespilurum og náði það
tólfta sæti af tuttugu þjóðum. Er
það mjög góður árangur, þegar
tekið er tillit til þess að þetta er i
fyrsta sinn sem sent er. Annað
athyglisvert var, að sveitin fékk
rúmlega 60 prósent út úr fimm
efstu þjóðunum. Sveitina skip-
uðu Einar Guðjohnsen, Isak
Ólafsson, Helgi Jóhannsson,
Helgi Sigurðsson, Jón Baldurs-
son og Sigurður Sverrisson.
Fyrirliði var Jakob R. Möller.
Einnig var i fyrsta sinn tekið
þátt i Olympiumóti i tvimenn-
ing, sem haldið var á Kanari-
eyjum. Frammistaðan var
frámunalega léleg, þvi ekkert
par komast i úrslitakeppnina.
Sextiu pör af 192 komust i úrslit
og voru Hjalti Eliasson og Karl
Sigurhjartarson næst þvi en þeir
náðu 68. sæti. Aðrir þátttak-
endur voru Einar borfinnsson
og Jakob Armannsson nr. 108,
bórir Leifsson og Lárus Karls-'
son nr. 111, ólafur Lárusson og
Sigurjón Tryggvason nr. 128,
HÖrður Arnþórsson og bórarinn
Sigþórsson nr. 179 og Björn
Eysteinsson og Ólafur Valgeirs-
son nr. 187.
Eitt kvennapar Halla Berg-
þórsdóttir og Vigdis Guðjóns-
dóttir, tók þátt i Olympiumót-
inu, en náöi ekki umtalsverðum
árangri.
bá er komið að Evrópumót-
inu, sem haldið var i Israel i
nóvember. Islenzka sveitin
hafnaði i 14. sæti af 19 þjóðum,
sem er nokkru verri árangur en
oft áður. Sé tekið tillit til þess,
að helmingur sveitarinnar voru
nýliðar I landsliði, þá er þessi
árangur sjálfsagt þolanlegur.
Sveitin fékk þó fleiri minusstig
en góðu hófi gegndi, hverju sem
um var að kenna. Sveitin var
þannig skipuð: Ásmundur Páls-
son, Hjalti Elíasson, Guðlaugur
R. Jóhannsson, örn Arnþórs-
son, Karl Sigurhjartarson og
Guðmundur Pétursson.
Fyrirliði var Alfreð G. Alfreðs-
son. bað er athyglisvert og má
gjarnan koma fram, að Bridge-
samband Israel styrkti Bridge-
samband Islands til fararinnar,
sem nam fargjaldi sveitarinnar
frá London til Tel Aviv. Er gott
að eiga góða að, þegar opinberir
styrkir eru i algjöru lágmarki.
Landsliösmál eru nú
ofarlega á baugi hjá
stjórn Bridgesambands
islands og þótt illa hafi
tekist til á síðasta ári, þá
er engin ástæöa til þess aö
örvænta.
Islenzkir bridgespilarar hafa
oft átt góða leiki á erlendri
grund og er ekki úr vegi að rifja
það upp á þessari stundu.
Sextán sinnum hefur BSl sent
lið á Evrópumót i bridge og sex
sinnum hafa þessi lið orðið fyrir
fyrir ofan miðju i keppni við
beztu spilara Evrópu. Bezti
árangurinn var árið 1950 i
Brighton en þá náði liðið 3. sæti.
bá voru i liðinu gamalkunnar
kempur: Einar borfinnsson,
Gunnar Guðmundsson, Hörður
bórðarson, Kristinn Bergþórs-
son, Lárus Karlsson, Stefán
Stefánsson. Ellefu sveitir tóku
þátt i mótinu.
Næst bezti árangurinn var i
Dublin árið 1967 en þá náði liðið
7. sæti af 20 þjóðum. bað ár voru
Islandsmeistararnir látnir
skipa landsliðið en þeir voru:
Eggert Benónýsson, Hallur
Simonarson, Simon Simonar-
son, Stefán Guðjohnsen, borgeir
Sigurðsson og bórir Sigurðsson.
bá kemur Estoril árið 1970.
bá hafnaði liðið i 8. sæti af 22.
Liðið var þannig skipað: As-
mundur Pálsson, Hjalti Elias-
son, Simon Simonarson, borgeir
Sigurðsson, Karl Sigurhjartar-
son og Jón Asbjörnsson.
bá förum við aftur til ársins
1956 . bað ár var Evrópumótið
haldið i Stokkhólmi og var það
siðasta árið sem gamla „Harð-
arsveitin” spilaði erlendis.
Liðið lenti i 6. sæti af 16 þjóðum.
Arið 1951 var Evrópumótið
haldið i Feneyjum. bá lenti
okkar lið i 6. sæti eftir heldur
vont start, en 14 þjóðir tóku þátt
i mótinu. Liðið var þannig
skipað: Arni M. Jónsson, Einar
borfinnsson, Gunnar
Guðmundsson, Gunnar Pálsson,
Kristinn Bergþórsson og Lárus
Karlsson.
Siðasta ofanmiðju-liðiö er
sveitin sem spilaði i Torquay
1961. Liðið hafnaði i 7. sæti af 16
þjóðum og var þannig skipaö:
Eggert Benónýsson, Guðlaugur
Guðmundsson, Jóhann Jónsson,
Lárus Karlsson, Stefán Guð-
johnsen og Sveinn Ingvarsson.
beir spilarar sem oftast hafa
keppt á Evrópumóti eru Lárus
Karlsson 9 sinnum, Einar bor-
finnsson 8 sinnum og Stefán
Guðjohnsen 7 sinnum.
Gleðilegt ár og þökk fyrir það
liðna.
Lárus Karlsson — oftar i lands
liði en nokkur annar
AGÓÐINN RENNUR
TIL STARFSEMI
HJÁLPARSVEITARINNAR
ÚTSÖLUSTAÐIR:
★ SKATABUÐIN, SN0RRABRAUT
★ V0LV0SALURINN, SUDURLANDSBRAUT
★ SÝNINGARSALURINN VIÐ HLEMM
★ SEGLAGERÐIN ÆGIR, GRANDAGARÐI
★ HAGAMEL 67
★ B0RGARTUN 29
★ DUGGUV0GI 23
★ VIÐ BREIDH0LTSKJÖR
★ VERSLUNIN IÐUFELL, BREIÐH0LTI
★ ★ ★ ☆ ☆ ☆
0PIÐ TIL KL.
22.00 ÖLL KVÖLD
GAMLÁRSDAG TIL KL. 16. j
★ ★ ★ ☆ ☆ ★
* FJÖLSKYLDUPOKAR, 10% AFSLÁTTUR
* NÆG BÍLASTÆDI VIÐ FLESTAR BÚÐIRNAR'
% GÓÐAR VÖRUR, EN ÓDÝRAR
ALDREI MEIRA
ÚRVAL!