Vísir - 06.01.1975, Side 3
Vísir. Mánudagur 6. janúar 197S.
3
fœst ekki...'
,Ekkert til ef ýson
— en nú fáum við nýjan fisk í soðið í dag og á morgun
„Það er eins og venju-
lega# það er ekkert til ef
ýsan fæst ekki. Jafnvel
þó að búðin sé full af
öðru. En ýsan er víst
þjóðarrétturinn okkar".
Þetta varð fisksala ein-
um f borginni að orði/
þegar við höfðum sam-
band við þá nokkra í
morgun til þess að for-
vitnast um úrvalið# sem
hægterað bjóða fólki upp
á.
Veörið hefur verið leiðinlegt
eftir áramótin, eins og ekki hef-
ur fariö fram hjá mönnum, og
þvi litið um glænýjan fisk, en
von er á slikum I dag eða á
morgun.
En fisksalar bjóða samt upp á
saltfisk, gellur, siginn fisk og
fleira, eins og okkur var tjáö i
fiskbúðinni i Gnoðarvogi.
bar var okkur lika sagt, að
fólk væri gráðugt i nýjan fisk
eftir kjötátiö um jólin og ára-
mótin, og kannski engin furöa.
En nú mega menn búast við
nýjum fiski i fiskbúðir i dag eða
á morgun. 1 Fiskbúð Hafliða á
Hverfisgötunni var okkur tjáð
að von væri á nýjum fiski i dag.
Menn verða ef að likum lætur
ánægðir með það, en fisksalar
eru ekki jafn ánægðir með að
ekki skuli vera búið aö ákveða
fiskverðið, og biða spenntir eftir
þvi. „Það er svo mikill seina-
gangur á þessu”, varð einum að
orði.
—EA
Gerð hefur
verið
fjögurra
ára áœtlun
um
hafnamál
— Verður lögð
fram sem
greinargerð með
þingsályktun
þar um
Skipuð hefur veriö samstarfs-
nefnd um málefni hafna við land-
„Allir skulu fá
eitt tœkifœri",
segir dagskrárstjóri sjónvarpsins.
Dýrara að endurtaka jólaefnið
fyrir alla landsmenn
ið. 1 henni eiga sæti Ólafur S.
Valdimarsson, skrifstofustjóri,
Guömundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur og Gunnar B. Guö-
mundsson, hafnarstjóri, og var
hann tilnefndur af Hafnasam-
bandi sveitarfélaga. Hinir voru
tilnefndir af s.amgönguráðherra.
Nefndinni er ætlað að fjalla um
öll meiri háttar reksturs- og fjár-
festingamál Hafnamálastofnun-
arinnar og fylgjast með rekstri
hennar og verkum. Hins vegar á
hún að vera ráðgefandi um
fjögurra ára áætlanir um hafnar-
gerðir.
Slik áætlun hefur verið gerð, og
mun fylgja sem greinargerð viö
þingsályktunartillögu um þessi
mál, sem lögð verður fram á
næstunni. Gert er ráð fyrir, að frá
1975 til 1978 verði þremur og hálf-
um milljarði varið til hafna-
framkvæmda, og eru þá lands-
hafnir og Reykjavikurhöfn ekki
taldar með.
Reglugerð um hafnamál var
undirrituð i samgönguráðu-
neytinu 30. desember 1974, þar
sem kveöið er á um deilda-
skiptingu Hafnamálastofnunar
rikisins og starfsemi hennar skil-
greind. Jafnframt voru sett
ákvæði, sem eiga að tryggja bet-
ur en áður hvernig kostnaðar-
skiptin við hafnaframkvæmdir
skuli vera milli rlkissjóðs og
hafnasjóða. -SH.
„Hugmyndin var, að allir
fengju tækifæri til að sjá „Jóla-
stundina okkar,” sagði Jón
Þórarinsson, dagskrárstjóri um
fyrstu tilraun til landshluta-
sjónvarps, sem sjónvarpið gerði
i gær.
1 gærdag var jóladagskrá
fyrir börn endurtekin I sjón-
varpinu, en eingöngu þannig, að
Norðlendingar og Austfirðingar
höföu not af.
Við viljum gera öílum jafnt
undir höfði. Þeir, sem ekki
áttu kost á að sjá dagskrána
um jólin vegna bilana, fengu nú
tækifærið. Hinir höfðu áður
fengið sitt,” sagöi Jón Þórarins-
son.
„Þaö hefði ekki komið i sama
stað niður að endursýna þáttinn
fyrir alla landsmenn. Slikt
reiknast sem endursýning en
ekki frumsýning og hefur I för
með sér aukagreiðslur til
flytjenda,” sagði Jón, aö væri
skýringin á þvi, að öllum
sjónvarpsnotendum var ekki
gefinn kostur á að sjá þáttinn I
gær.
Jón sagði, að ekki væru nein
tæknileg vandamál að senda til
einstakra landshluta, eins og
gert var i gær. Full ástæða hefði
lika verið til að reyna sllkar
sendingar, þar sem
Norðlendingar og Austfirðingar
misstu oft af sjónvarpsefni
vegna bilana.
Aðspurður sagði Jón
Þórarinsson, að ekki stæði til að
endursýna áramótaskaupið I ár.
-JB.
Nú er aðeins einn
símstjóri í borginni
— Embœtti ritsímastjóra verður lagt niður en embœtti
umdœmisstjóra stofnað í staðinn
Stjórn simans I Reykjavik og
ritsimans verður framvegis
undir stjórn eins manns, sim-
stjórans i Reykjavik. Jafnframt
verður heitið Bæjarsiminn I
R.eykjavik lagt niður.
Halldór E. Sigurðsson, sam-
gönguráðherra, boðaði til
olaöamannafundar, þar sem
hann kynnti þessa breytingu,
sem ákveðin var með reglugerð
hinn 20. desember siðast liðinn.
Jafnframt skal landinu skipt i
póst- og simaumdæmi.
Umdæmi I nær frá Skeiðarár-
sandi að Gilsfiarðarbotni.
Á þessum f undi var einnig
gerð grein fyrir hækkuninni,
sem varð á þessum þjónustuliö-
um um áramótin. Við athugun á
slðasta ári kom I ljós, að óger-
legt var að halda pósti og sima
gangandi með óbreyttum eigin
tekjustofnum, en stofnunin hef-
ur ekki notið neinna íramlaga
rlkissjóðs i hálfan annan áratug.
Var þvi hækkunin ákveðin.
Fram kom, að Jón Skúlason,
póst- og simamálastjóri telur að
við búum við lægri slmagjöld en
flest grannlönd okkar. Hann
taldi útilokað, að næstu
byggðarlög Reykjavikur,
Kópavogs, Hafnarfjarðar og
Seltjarnarness fengju að búa við
sömu slmagjöld og þessar%
byggðir. Þeirra samtöl færu öll
um langlinustöðvar sem væru
dýrari en bæjarsimstöðvarnar. -
SH.
ÞÝÐIR LÍTIÐ AÐ
SETJA FROSTIÐ
FYRIR SIG
Menn létu lítið á sig fá frost og kulda I Bláfjöllum og Hveradölum I
gær, enda voru veðurguðir frekar bliðir á manninn við skiðamenn-
ina þar.
En það er vist svo með skiðaiþróttina, að ef fólk kýs að leggja
hana fyrir sig af kappi, þá þýöir ekkert að vera að setja fyrir sig
hörkufrost, það fylgir bara þessari stöðugt vinsælli iþróttagrein.
Ljósmyndarinn hann Bragi var einn af þeim sem brá undir sig
betri fætinum og skeilti sér tii skiðafólksins I gær og tók þá þessar
myndir.
Þar reyndist talsvert um manninn og allmargar fjölskyldur
eyddu sunnudeginum brunandi um fjöll og firnindi. —EA