Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 06.01.1975, Blaðsíða 4
4 Vlsir. Mánudagur 6. janúar 1975. apUntEbR RGUN útlöndí morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd Phuoc Binh að falli komin sókn kommúnista Sprengjuvörpur kommúnista linntu naumast skothriðinni i gær yfir stöðvar stjórnarhermanna inni i bænum Phuoc Binch i Suður-Vietnam. Skriðdrekar voru komnir inn i bæinn i morgun og var þá barizt á götunum. i þessari síðustu þriggja daga sennu hafa kommúnistar náð umhverfi þessarar höfuðborgar Phuoc Long-héraðsins á sitt vald og hrakið stjórnarhermenn inn I bæinn. En með 300 manna liðsauka, sem Saigonherstjórnin sendi i þyrlum til Phuoc Binch á laugardag, hefur tekizt aö verja bæinn. — En það getur naumast haldizt svo lengi, eins og sóknar þungi kommúnista er mikill. Ellefu þorp hafa fallið i hend- ur kommúnista siðan friðar- samningarnir voru gerðir i Paris, og sex þeirra á siðustu vikum. Ekkert þeirra er þó jafn þýðingarmikið og Phuoc Binhn, sem er miðstöð I Phuoc Long. Desember og janúar eru þeir mánuðir, sem jörð er nægilega þurr i Vietnam til þess að unnt sé að athafna sig með skriðdrekum og þyngri hernaðartækjum, og sýnast kommúnistar staðráðnir i að nota þann tima vel að þessu sinni. Jafnvel höfuðborg Suður- Víetnam, Saigon, hefur ekki fariö varhluta af striðsað- geröunum. Við útjaðar hennar létu kommúnista 15 eldflaugum rigna yfir aðalútvarpsstöð Saigonstjórnarinnar i gær. 4 borgaralegir starfsmenn hennar féllu og 6 særðust. t bardögunum við Phuoc Binh hefur orðið töluvert mannfall i liði beggja. Yfirmaður varnar- liðsins féll i gær, þegar skriðdrekar skutu fallstykkjum að byrgi herráðsins. Óttazt er um tvær ný- sjálenzkar nunnur, sem ráku trúboðsstöð, hjúkrunarstöö og skóla fyrir munaðarlausameðal Ibúa i Montagnard-fjöllunum um 120 km frá Phuoc Binh, en þaö svæöi er nú á valdi kommúnista. Hefur ekkert til þeirra spurzt i viku. Þær höföu neitað að yfirgefa svæðið. Sögðust þær ekki fara, meðan fólkið, sem þarna býr, hefði ekkert að flýja sjálft. Saigon hefur ekki farið varhluta af strfðsaðgerðunum að undan- förnu. Stjórnarhermenn hafa átt i vök að verjast með að halda veg- unum opnum fyrir umferö til og frá borginni, og sjást þeir hér á þessari mynd leita aö jarösprengjum nokkrum kílómetrum utan borgarinnar. Vinur Liz Taylor sekt- aður vegna bílabrasks Henry Wynberg/ sem hefur verið stöðugur fylgi- nautur leikkonunna r, Elizabeth Taylor, síðan hún skildi við Richard Burton, hefur verið sektaður fyrir að hafa breytt kílómetrateljurum í notuðum bílum, sem keyptir voru af honum, þegar hann var bílasali. Sektin nam 250 dollurum. Wynberg (41 árs), sem er hol- ienzkrar ættar, átti að mæta fyrir rétti i dag, en málinu var flýtt og hann kom fyrir dómarann á föstudag. — Dómarinn breytti ákærunni um fjóra meiriháttar þjófnaði i ákæru um misferli. Wynberg hafði verið sakaður um að breyta kilómetrateljurum i fjórum bilum, sem hann seldi i júli 1972 og mai 1973. Meö þvi móti tókst honum að spenna söluverð þeirra hærra upp. Það var leikarinn, Peter Law- ford, sem kynnti þau Liz Taylor og Wynberg 1973. Skömmu eftir það hætti Wynberg bilasölunni. — Hann og Liz ætluðu til Sviss um helgina, þegar dómarinn lét Wyn- berg vera frjálsan allra feröa. Liz Taylor hefur átt viö bak- veikindi að striða og að undan- Liz Tayior hefur átt viö bak- veikindi að striða, og gengur hún til læknis i Los Angeies. Hún er senn á förum til Sovétrikjanna, þar sem hún leikur i nýrri kvikmynd. m-----------► Bíiasalinn, Wynberg, hefur ver- iö stööugur fylginautur Liz Taylor. Hann hætti bilasölunni skömmu eftir aö kynnin tókust meö honum og Liz. — En gaml- ar syndir hafa elt hann fram á þennan dag. förnu hefur hún gengið til læknis i Los Angeles. Verður hún þar viku til viðbótar af þeim sökum, áður en hún fer til Sovétrikjanna, þar sem hún á að leika i nýrri mynd, sem heitir „The Blue Bird”. Rockefeller skol rann- saka CIA Menn búast við þvi, að Nelson Rockefeller, varaforseti, hefjist strax handa við að rannsaka, hvort CIA hafi stundað ólöglegar njósnir heima fyrir. — Ford forseti fól vara- forseta sinum að annast þessa rannsókn, eftir háværa gagnrýni undanfarnar vikur á CIA og ásakanir um að leyniþjónustan hafi ver- ið látin njósna um and- stæðinga Nixonstjórnar- innar. Átta manna nefnd hefur verið sett á laggirnar til þess að rann- saka málið, og á meðal annarra sætií henni Ronald Reagan, fyrr- um rlkisstjóri Kaliforniu. Eitthvert fyrsta vitnið, sem þessi nefnd mun að likindum yfir- heyra, verður trúlega Richard Helms, sendiherra i tran, sem staddur er i Washington i frii. Helms var áður yfirmaður CIA. Samkvæmt bandariskum lög- um er leyniþjónustunni óheimilt að stunda njósnir innan Banda- rlkjanna. En ýmsir þingmenn hafa haldið þvi fram, að þau lög hafi verið brotin. — Krafði þá Ford forseti William Colby, yfir- mann CIA, um skýrslu um störf CIA. Að loknum lestri hennar taldi hann ástæðu til að láta fara fram rannsókn á starfsháttum leyniþjónustunnar. Það hefur mælzt misjafnlega fyrir meöal leiðtoga þingflokk- anna, að Ford skyldi setja Rocke- feller yfir rannsóknina. William Proxmire þingmaður, sem haldið hefur uppi hvað harð- astri gagnrýni á CIA, benti strax á, að Rockefeller hefði i 5 ár átt sæti I ráðgjafaráði forsetans i utanrikismálum, en það ráð á að hafa umsjón með störfum CIA. Taldi hann, að sú umsjón hefði greinilega ekki veriö nógu gaum- gæfileg. Aðrir þingmenn hafa látið I ljós þá skoðun margir hverjir, að þingið ætti sjálft að skipa nefnd til að rannsaka störf CIA. Spiro Agnew fyrrum varaforseti. Fyrri sambönd hans koma féiaga hans I kaupsýslunni aö góðum notum I milligöngu viö fjárfestingar er- lendra aðila I Bandaríkjunum. MIKIL UMSVIF HJÁ SPIRO AGNEW Hefur keypt kolanámu með nýjum félaga sínum Spiro Agnew, sem slapp við refsingu laganna með því að segja af sér embætti varaforseta Bandaríkj- anna, stendur í umsvifa- mikilli kaupsýslu með nýj- um félaga sínum. Hafa þeir nú keypt kolanámu eina í Oklahoma. William Dilbeck heitir félagi Agnews og er hann jarðaspekú- lant. Þeir hafa nær fest kaup á annarri námu i Kentucky. Dilbeck sagði fréttamanni Washington Post, að þaö væru er- lendir fjárfestingaraðilar — nán- ar tiltekið frá Austurlöndum — sem stæðu á bak við námakaupin. — Hafa þeir Dilbeck og Agnew fengið augastað á 14 námum til viðbótar, sem þeim hefur veriö falið að kaupa lika. Lögfræðingur, sem á einn þriðja námunnar i Kentucky, seg- ir, að Dilbeck og Agnew hafi látiö á sér skilja, að Japanir vildu kaupa námuna fyrir nokkrar milljónir dollara. Dilbeck réöi Agnew til sin fyrir 100 þúsund dollara árslaun til að hafa milligöngu um útvegun er- lends fjármagns.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.