Vísir - 06.01.1975, Page 13
Visir. Mánudagur 6. janúar 1975.
13
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Má bjóða þér inn?
— Hér býr Brigitte Bardot
Nei, þvi miður. Við getum vist
ekki tekið lesendur með i heim-
sókn til BB i orðsins fyiistu
merkingu. Það tæki lika svolitið
langan tima að komast til
Parisar og biða svo eftir þvi að
veröa þeirrar náðar aðnjótandi
að fá að komast inn fyrir dyrn-
ar.
Við förum þvi styttri leiðina.
Hér á siðunni getum við virt
fyrir okkur nýjustu húsakynni
leikkonunnar frægu, en þessi
húsakynni kostuðu hana
sannarlega skildinginn, enda
virðist þarna óneitanlega vel til
vandað.
Hún lét reisa sér tveggja hæða
hús með öllum tilheyrandi
þægindum i Paris, og sá sem
teiknaði er einn frægasti og
frumlegasti arkitekt i Frakk-
landi.
Margir vinir hennar hafa
beðið spenntir eftir þvi að fá að
komast inn í dýrðina, enda
hafa margar sögur fariö af
húsinu. Þeir sem bezt til Bardot
þekkja, kalla húsið „nýja leik-
fangið” hennar. Hún er sögð
yfir sig ánægð með öll þægindin,
og sá kvittur um að hún hygði á
sjálfsmorð var fljútt kveöinn
niður, eftir að hún flutti þar inn.
1 ýmsum timaritum haföi
mátt lesa fréttir sem bentu til
þess að Brigitte væri orðin leiö á
lifinu. Þýzkt timarit sagði
meðal annars að nýjasti vinur
Hér er svo dagstofan. Brigitte segir að við þetta herbergi kunni
fyrrverandi eiginmaður hennar, sá frægi Roger Vadim, bezt við.
Hér er bókasafniö — f gráun lit
meö stórum þykkum púðum á
gólfi.
hennar hefði gefið hana upp á
bátinn, og gaf upp ýmsar
ástæður fyrir þvi.
Nokkrar voru þær, að lifið I
kringum Brigitte væri of
þreytandi, maður fengi aldrei
nokkurn tima fyrir sjálfan sig,
vinirnir væru of rikir og of
margir, og partýin of mörg.
En þetta reyndist ekki alveg
satt og BB hélt vininum. En hún
hefur sannarlega átt þá marga
áöur. Enda hefur hún látiö hafa
eftir sér: „Þegar ég fæ ekki
lengur þann mann sem ég vil,
þá er ég oröin gömul”.
—EA
„Það er ekkert eins afslappandi og þægilegt eins og að setjast
niður við pianóið”, segir Brigitte og sýnir músik-herberglð sitt,
sem búið er öllum græjum.
Hér sjáum við Brigitte I snyrtiherbergi sinu, og það er ekki
annað hægt að segja en að það sé glæsilegt. Fyrir ofan sérkenni-
legt baðkarið er hringlaga spegiil, þar sem sá sem baðar sig
getur séðsjálfan sig. Veggir og teppi eru I aprikósu-lit.
GREIDENDUR
vinsamlega veitið eftirfarandi
erindi athygli:
Frestur til að skila launamiðum
rennur út þann 19. janúar.
Það eru tilmæli embættisins til
yðar, að þér ritið allar upplýsingar
rétt og greinilega á miðana og
vandið frágang þeirra. Með því
stuðlið þér að hagkvæmni í opin-
berum rekstri og firrið yður
óþarfa tímaeyðslu.
RÍKISSKATTSTJÓRI