Vísir - 13.01.1975, Qupperneq 3
Visir. Mánudagur 13. janúar 1975.
3
- og tenórklukka
féll til jarðar
af festingu sinni
Samhringing klukkna í Englandi fyrir ísland:
Hringjarinn
fór í fýlu
Klukknahringingar eru vin-
sælt sport i Englandi og hefur
ekkcrt dregið úr áhuganum á
þessari fornu listgrein. Klukk-
arar standa i klukknaturnum
kirknanna svo timum skiptir og
hringja eftir settum reglum,
sem geta verið ærið mismun-
andi.
Svokölluð „full hringing” hef-
ur yfir 5000 tilbrigði, og hvert
tilbrigði er sérstakur sam-
hliómur margra klukkna. Fjöldi
tilbrigöa takmarkast aðeins af
fjölda þeirra klukkna, sem eru i
viðkomandi turni.
Þeir, sem stjórna þessum
klukknahljómi, iðka gjarnan
þann sið að helga „fulla hring-
ingu” sérstökum atburðum, og
er það þá skráð i sérstakt tima-
rit til staðfestingar.
t bréfi, sem sent var til rit-
stjórnar Atlantica & Iceland
Review, segir Mike Smith i
Hants i Englandi frá þvi, að
hinn 28. júli 1974, sama dag og
Þjóðhátiö tslendinga stóð á
Þingvöllum, hafi slik „full
hringing” verið helguð 11 alda
landnámsafmæli Ingólfs Arn-
arssonar á tslandi.
Einn vina Smiths er sérstakur
áhugámaður um klukknahring-
ingar — camponology. Það var
fyriráhrif frá þessum vini, sem
Smith fékk þá hugmynd að efna
til sérstakrar hringingar 28. júli
og helga hana ellefu alda afmæli
Islandsbyggðar. Það varð úr, að
hringjarinn vinur hans setti
saman slika hringingu.
Smith skrifaði sendiráði Is-
lands i London og tilkynnti þetta
áform. Sendiráðið svaraði þvi
til, að slikri hringingu yrði fagn-
að sem vináttuvotti. Siðan var
um það samið, að þetta yrði gert
i Truro dómkirkju.
Að kvöldi hátiöardagsins var
Smith staddur á Þingvöllum og
gaukaði þvi að islenzkum vini
sinum, að á hverri stundu yrði
hringt fyrir Islandi i Truro. En
þá gerðust atburðir, sem hann
frétti ekki um fyrr en seinna:
„Sama kvöldið”, segir i bréfi
Smiths, „gerðist það, að tenór-
klukkan, 1,5 tonn að þyngd,
hlunkaðist ofan — trúlega meö
miklu brauki — þegar burðaröx-
ull hennar brotnaði, svo hætta
varð við hringinguna.
En mr. Try (sá sem ætlaði að
sjá um hringinguna) er ekki sá
maður, að hann láti aftra sér,
heldur hélt fyrirhugaða hring-
ingu i Swanmore, Hampshire,
og sendi um hana tilkynningu til
vikuritsins um klukknahring-
ingar, sem hringingu helgaða
afmæli Islandsbyggðar.
Þá kom babb i bátinn. Svo
virðist sem Mr. Try hafi látið
það undir höfuð leggjast að aug-
lýsa, að þessi hringing yrði
hringd tslandi. Einn hringjarinn
mótmælti á þeirri forsendu, að
hann hefði ekki vitað um þetta
áður en hann hóf að hringja.
Vegna þessarar deilu var ekki
hægtað staðfesta i klukknablað-
inu, að hringingin hefði verið
fyrir tsland, fyrr en deilan hefði
verið sett niður. Henni var þvi
skotið til skráningarnefndar
klukknahringinga, sem kvað
upp þann úrskurð á fundi sinum
i nóvember, að hringingin
skyldi standa sem helguð Is-
landi”. —SH
Myndabók
um þjóðgarð
Með vorinu er væntanleg glæsi-
leg bók um þjóðgarðinn um-
hverfis Jökulsá á Fjöllum. Þetta
verður stór myndabók, með 40
litmyndum og 50-60 svart-hvitum
myndum frá þessum sérkenni-
lega og fagra stað, sem margir
telja að ekki eigi sinn lika á land-
inu.
Einnig hefur bókin að geyma
glögga leiðarlýsingu, frá Detti-
fossi niöur með ánni að austan,
allt niður að brúnni i Axarfirði, en
siðan upp Asbyrgi upp með
Jökulsá að vestanverðu, um
Hljóðkletta, Svinadal og Hólma
tungur að Dettifossi. Leiðsögu-
maöur er enginn annar en Theó-
dór Gunnlaugsson, frá Bjarma-
landi, bóndi, fræðimaður og rit-
höfundur, sem einmitt býr á
þessu svæði og þekkir þar hverja
þúfu og hvern stein.
Það er Bókaforlag Odds Björns-
sonar, sem gefur bókina út. Upp-
runalega átti hún að koma á sið-
asta ári, en útgáfa hennar
frestaðist af óviðráðanlegum
orsökum.
önnur Bókaforlagsbók, sem
dagaöi uppi en kemur i ár, er Bréf
Jóns Mýrdal, þess er skrifaði
meðal annars Mannamun og
Niðursetninga. Bréf þessi eru
skrifuð ýmsum aðilum, en
einkum dótturdóttur hans, og
kemur sérstæð sjálfslýsing fram i
þessum bréfum. Finnur
Sigmundsson safnaði bréfunum
og bjó bókina til prentunar.
—SH
170 manns flytja Handel um páskanu
Hundrað og fjörutiu manns
hófu á ný æfingar á Messiasi eftir
Hðndel um helgina. Það er Pólý-
fónkórinn, sem æfir verkið, og
stendur til að flytja það I Há-
skóiabiói um páskana.
Þegar verkið verður flutt tekur
auk þess um 30 manna kammer-
hljómsveit þátt i flutningnum og
fjórir einsöngvarar. Hverjir ein-
söngvararnir verða er ekki að
fullu ráðið, en rætt er um Neil
Jenkis, tenórsöngvara, Brian
Rainerlook og sópransöngkonuna
Janet Price.
Pólýfónkórinn hefur á undan-
förnum árum flutt. mörg helztu
tónverk tónbókmenntanna, og má
þar nefna verk Bachs s.s. Jóla-
oratoriuna, Jóhannesarpassiuna,
H-mollmessuna og Mattheusar-
passiu. Nú verður hins vegar ráð-
izt til atlögu við hið mikla verk
Messias eftir Handel. Stjórnandi
kórsins er Ingólfur Guðbrandsson
og formaöur Friðrik Eiriksson.
—JB
RAK ÓLÖGLEGT GISTIHÚS
„Eiganda hússins að Lauga-
vegi 32 var bent á það, að hann
hefði ekki leyfi til að reka gisti-
heimili þar. Hann hefur nú lagt
inn umsókn þar að lútandi, og er
hún, að þvi er ég bezt veit, til
umsagnar hjá heilbrigðiseftir-
litinu og borgarstjóra”.
Þetta sagði William Th. Möll-
er, fulltrúi lögreglustjórans I
Reykjavik, er blaöið forvitnað-
ist um gang málsins, þegar lög-
reglan handtók i tvigang alla,
sem staddir voru i umræddu
húsi.
William sagöi, að ef viðkom-
andi aðilar veittu leyfi sitt til
gistihússreksturs þarna, virtist
sér ekkert þvi til fyrirstöðu.
Skýrsla lögreglunnar i málinu
hefur verið send til sakadóms
Reykjavikur.
—ÓH