Vísir - 16.01.1975, Síða 1
65. árg. — Fimmtudagur 16. janúar 1975 —13. tbi.
Leikurinn við dauðann - sjó nú bis. 4
Þar urðu Egill og Hrói af góðu gamni - sjá bls. 7
Víkingar áfram í toppbaráttunni - íþróttir í opnu
Loðnan stendur ekki
lengur undir öðrum
Stórt gat á „olmjóðnum
Loðnan hættir vafalaust
að styrkja aðrar greinar
sjávarútvegsins eins og
hún hefur gert með því að
greiða í „olíusjóð"/ sem
fer til að jafna mismun a
verði á olíu til bátanna. Af
loðnu hef ur verið tekið hátt
útflutningsgjald# 8% af
mjöli og lýsi og 6% af
frystri loðnu. „Loðnu-
gjaldið" svokallaða, sem
fer í oliusjóðinn, er svo 5%
útf lutningsgjald.
Nú hefur tafliö snúizt, og óvæn-
lega horfir um sölu á loðnuafurð-
um erlendis. „Oliusjóðurinn” er
langt frá þvi að geta fullnægt
þeim kvöðum, sem hann ber. 1
hann vantar mikið fé, og þessu
hefur verið „bjargað” með lán-
um. Af loðnugjaldi höfðu komið i
sjóðinn tæpar 85 milljónir um
áramótin, að sögn Siguröar Jó-
hannessonar I Seðlabankanum.
Sigurður sagði, að fimm
prósenta útflutningsgjaldið væri
greitt við gjaldeyrisskil. Þegar
skjöl fara i toll, er eitt prósent
borgað i peningum, en hin fjögur
prósentin með ávisun, sem er
send i banka og geymd, þar til
gjaldeyrisskil fara fram. Þau eru
þvi lánuð um tima. Eftir gengis-
fellinguna i september var afráð-
ið, að gengishagnaður af útflutn-
ingi i sjávarafurðum almennt
skyldi renna til að fylla gatið i
oliusjóðnum. Lagt var á útflutn-
ing sjávarafurða 17 prósent gjald,
sem greiða skal við gjaldeyris-
skil. Þetta er lagt á svonefndan
verðhækkanareikning, og hann á
að standa undir oliusjóðnum að
hluta.
Þetta nægir ekki, og var leitað
leiða til að skapa oliusjóönum
tekjur, sem duga. Verður greitt
af útflutningi sjávarafurða, öðr-
um en loðnu, f jögur prósent gjald,
að sögn sjávarútvegsráðuneytis-
ins. Ráðuneytið gerði ráð fyrir, að
loðnugjaldið svonefnda yrði nú
lagt niður.
—HH
Vannst þú
í happ-
drœttinu?
— Vinningaskrá
Háskólahappdrœtt-
isins er í blaðinu
í dag á bls. 3
n
r r
Höfum vitaðj
í áratugi að
skýlið mundi
fuðra upp"
— sjá bls. 3
Einmitt það sem
sárvantaði:
Enn einn
nýr komma-
flokkur
— baksiða
URÐU
UNDIR
SNJÓ
BÍLUM
OG
BEYGL
UÐUST
A Egilsstöðum er nú bezta
veöur, en allt á kafi i snjó, skafl-
arnir 5—6 metra háir og einu
farartækin, sem hreyfa sig, eru
snjóbilarnir þrfr. Lfklega verð-
ur ekki reynt að moka göturnar,
heldur verða þær troðnar.
Tveir bilar hafa verið mokað-
ir upp úr fönninni. Þeir voru
báðir skemmdir á toppnum af
snjóþyngslum og af þvi að snjó-
bílarnir hafa ekið yfir þá, en
jeir munu ekki hafa verið nógu
rækilega merktir. Annars
standa hvarvetna um kauptúnið
veifur og prik, sem gefa til
kynna, að bila sé þar að finna I
fönninni.
—llA/Sll
LOÐNUSKIPIN I AUSTURVEG
Tvo stóra vörubíla
þurfti til að flytja nótina
niður á bryggju í Eyjum,
enda er hún um 14 tonn,
að sögn bílstjóranna.
Strákarnir á Sigurði RE4
voru hinir hressustu, þeg-
ar þeir voru að koma nót-
inni um borð. Sigurður
hélt austur á loðnumiðin í
fyrrinótt. Ljósm. Guðm.
Sigfússon.
„Þetta hefur
verið lítil
skvetta"
— segir verksmiðju-
stjórinn i Hafsild
— baksiða
Lá 6 tíma
úti í
nístandi
kuldanum
í um sex tima lá miðaldra
maður meðvitundarlaus við
hús eitt I Höfnum án þess aö
lians yrði vart. Atburðurinn
átti sér staö á þriðjudaginn og
hafðl maðurinn, sem er bú-
settur i Kefiavik, haldið I
Hafnirnar til að heimsækja
ættingja sina.
Maðurinn dvaldi þar i húsi
fram eftir deginum, en um
fjögur leytið hugsaði hann sér
til hreifings. Ræddi hann þá
um aö fara i heimsókn i annað
hús þar nálægt.
íbúarnir i siðara húsinu
vissu aftur á móti ekki um
ferðir mannsins og grunaði
þvi ekkert þó maöurinn væri
ekki kominn um tiu leytið um
kvöldið.
Um klukkan hálfellefu um
kvöldið fór ibúi i húsinu, sem
maðurinn ætlaði aö koma við
i, út til a'ö athuga oliukynding-
una, sem eitthvað hafði gengið
úr skorðum. Kemur hann þá
að gestinum liggjandi meðvit-
undarlausum við húsið.
Maðurinn var með snúinn
ökla og svo virðist sem hann
hafi misst fótanna i rokinu og
hálkunni, skollið með höföið i
jörðina og rotazt.
Maðurinn var illa haldinn
eftir 6 tima legu úti i nistandi
kuldanum. Var hann kalinn á
fingrum og var fluttur á
sjúkrahús i Keflavik. —JB—
1