Vísir - 16.01.1975, Blaðsíða 4
4
Vísir. Fimmtudagur 16. janúar 1975
„Þvi nær, sem þú kemst
dauðanum, þeim mun skemmti-
legra er að lifa,” segja
kappakstursmcnn og aðrir ofur-
hugar gjarnan til að skýra hina
hættulegu iðju sina.
Hraðinn og aðrar hættur
heilla og stöðugt reyna ofur- j
hugarnir að komast nær !
dauðanum án þess þó að verða j
honum aðbráð. Tiltektir þeirra
laða að sér mikinn fjölda
áhorfenda, sem undir niðri biða
flestir eftir þvi að eitthvað komi
fyrir sem hægt sé að segja frá,
þegar heim er komið.
Ljósmyndararnir eru einnig
nærri og við birtum hér myndir
af tveim ógnvekjandi atburð-
um, sem áttu sér nýlega stað á
akstursbrautum f Frakklandi og
Bretlandi. Fyrir kraftaverk
höfðu ofurhugarnir i báðum
tilvikunum þó vinninginn i
leiknum við dauðann og áfram
halda þeir i von um að gæfan
yfirgefi þá ekki.
Leikurinn við dauðann:
Bóðir lifðu af
Roger Lonjou er
Frakki, sem stundar þá
iðju að aka um á tveim
hjólum. Það er afrek út
af fyrir sig en honum
þótti áhættan ekki nóg,
hann bætti stórum
Peugot bil við hliðina á
sér sem líka ekur um á
tveim hjólum. Með
bakinu snertir Roger
undirvagninn á stærri
bilnum, svo ekkert má
út af bera, ef stórslys á
ekki að hljótast af.
Roger hafði leikið þennan leik
vikum saman, þegar óhappið
varð. Bilarnir höfðu ekið 30
metra og voru á þó nokkrum
hraða. Það voru þó ekki
bilstjórarnir, sem fipuðust,
beldur jörðin. Já, jarðskjálfti
varð einmitt á þvi augnabliki,
þegar sýningin stóð yfir og stóri
oillinn fór úr jafnvægi með þeim
afleiðingum að hann hvolfdist
y f i r R o g e r .
Engum datt annað i hug en að
Þetta atriði vekur eftirtekt um allan heim, en það er ekki langt
milli leiks og alvöru.
Roger væri nú endanlega allur,
an viti menn, þegar bilnum var
lyft ofan af honum, var hann
með meðvitund og á sjúkra-
húsinu kom i ljós, að aðeins
annar fóturinn hafði brotnað.
Nú er Roger að ná sér á ný og
vill ólmur halda dauðadansin-
um áfram. En verður heppnin
með honum næst?
örlög brezka
kappakstursmannsins
David Matthews
virtust ráðin á
sekúndunum fimm,
þegar óhappið gerðist.
David var að koma fyrir
beygju á Silverstone
kappakstursbrautinni i Eng-
landi i Ford Capri bilnum sin-
um. Hraðinn var 225 kilómetrar
á klukkustund og á svipstundu
missti David stjórn á bilnum.
Fimm sekúndum seinna var
billinn, sem kostað hafði
geysifjárhæð að útbfia til
kappaksturs, orðinn að hrör-
legri brotajárnshrúgu.
Eins og sjá má á stóru
myndinni dinglaði David hálfur
út úr bilnum meðan billinn tók
hverja veltuna á fætur annarri.
En ótrúlegt en satt, óhappið
kostaði hann aðeins brotinn ökla
og öxl.
Dekkin, vélarhúsið, allt lauslegt hrynur af, þegar billinn tekur
enn ein loftköstin.
.... og það glymur virkilega i þegar járnahrúgan skellur á 225
kílómetra hraða á jörðina.