Tíminn - 29.06.1966, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.06.1966, Blaðsíða 7
FRAMSÚKNARFELAGANNA Á bryggjunni í Sandgerði. Valtýr Guðjónsson ávarpar ferðafólkið- Við hlið hans' er Hannes Pálss. Benedikt Thorarensen segir frá Þorlákshöfn. Gísli Guðmundsson Iýsir staðhátt- um í Krísuvík. Óskar Jónsson ávarpar ferðaíóikið í Þorlákshöfn. Á sunnudagsmorguninn lögðu 7 hópferðabílar af stað frá Tjarnargötu 26, og var þar með hafin hin árlega skemiwH- ferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík. Að þessu sinni var var farið um Reykjanes, Selvog og Þorlákshöfn. Rústir skoðaðar við Krísuvíkurklrkju. Fyrsti áfangastaðurinn 1 ferð- inni var Keflavík þar sem Valtýr Guðjónsson bankastjóri og fleiri góðir menn tóku á móti hópnum, og slógust þeir síðan með í ferð ina að nobkrum hluta. Var ekið út að Garðskagavita, og síðan ihald ið til Sandgerðis, þar sem Gísli Guðmundsson leiðsögumaður hóf upp raust sína og lýsti staðhátt um fyrir ferðafólkinu. Síðan var haldið aftur í gegn um Keflavík, sem leið liggur suður í Hafnir og þaðan suður að Reykjanesvita í gegn um hraunið eftir krókóttt i nwi>Mi*i\'m.»'■ ■'WH ** s* m m um veginum. Við Reykjanesvíta var áð, og þar fengu ferðalangarn ir sér bita, en Valtýr Guðjónsson bankastjóri í Keflavík ávarpaði hópinn og síðan fóru sumir upp í vitann en aðrir lögðu leið sina niður að sjónum. Frá vitanum var svo haldið eftir hinum tiltölulega nýja vegi tl Grindavíkur og þaðan áfram til Krísuvíkur og í Selvoginn þar sem gengið var í Strandakirkju. f hópi ferðalanganna var Guðbjörg Þórðardóttir, er bjó að Bjargi í Selvogi og var organleikari í Strandakirkju í 40 ár. Settist hún nú aftur við hljóðfærið og sung ið var með undirleik hennar. í Þorláksihöfn tóku á móti bópn um þeir Benedikt Thorarensen, framkvæmdastjóri Meitilsins h. f. og lýsti staðnum og sögu hans, en Óskar Jónsson á Selfossi ávarp- aði ferðafólkið nokkrum vel völd um orðum og var síðan forsöngv ari í fjöldasöng. Til Reykjavíkur var svo haldið um Þrenglsaveginn og komið í borgina skömmu fyrir klukkan tíu. Var þá ánægjulegri fterð lokið, sem heppnazt hafði hið Framhaid a bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.