Vísir - 08.02.1975, Page 1
65. árg. — Laugardagur 8. febrúar 1975 — 33. tbl.
IIMIM
SÍÐAN
Bls. 4
I
Grétar Þór Egilsson
Banaslys
r
0
miðunum
Tuttugu og sex ára gamall
maöur lézt um borö 1 Priöriki
Sigurössyni AR-12 I fyrrinótt.
Þá var báturinn staddur á
miöunum undan Alviöru og aö
hffa inn.
Slysið varð rétt fyrir klukk-
an f jögur eins og greint var frá
I Visi I gær. Maðurinn sem lézt
mun hafa flækzt i neti, sem
verið var að hifa, og fengið
þungt höfuðhögg, er hann slóst
utan I við átökin.
Maðurinn sem lézt hét Grét-
ar Þór Egilsson til heimilis i
Reykjavfk, fæddur 19.
september 1948. Strax eftir
slysið var haft samband við
loftskeytastöðina i Eyjum og
henni tilkynnt um slysið.
Þegar var lóðsbátur sendur á
móts við Friðrik Sigurðsson og
var læknir um borð, en hann
fékk ekki að gert.
Var komið með likið til
hafnar i Eyjum um hádegi i
gær. Friðrik Sigurðsson sigldi
áfram til Þorlákshafnar sið-
degis i gær. Sjópróf i málinu
fara fram á Selfossi i dag. —
Farand-
salar með
ófengi
í Sigöldu
í gærkvöld komu tveir pilt-
ar af Stór-Reykjavíkursvæð-
inu austur I Sigöldu og vildu
selja þar áfengi meö nokkr-
um flutningskostnaöi. Alls
voru þeir meö 29 fiöskur af
sterku vfni og tvo kassa af
bjór, og mun hann ekki hafa
farið um hendur tollgæzlunn-
ar.
2500 krónur vildu þeir fá
fyrir flöskuna af ákaviti og
brennivini, en 3000 krónur
fyrir vodkaflöskuna. Bjórinn
átti að vera ódýr, enda var
þetta lélegur bjór, sögðu
þeir.
Starfsmenn Sigöldu vildu
heldur kaupa beint frá rikinu
og létu lögregluna um að
ræða við piltana. Þeir játuðu
fljótlega að hafa ætlað á-
fengið til sölu og hurfu af
staðnum, þegar sk'ýrsla
hafði verið tekin af þeim.
*-SH
Stór og góð loðna fyrir vestan:
„Fer nú að rjúka úr hverjum
brœðslustrompi ó kmdinu?
,,Ég sé ekki ástæðu til annars
en að rjúki úr hverjum bræöslu-
strompi á landinu,” sagöi Auðun
Auðunsson skipstjóri á Framncsi.
„Hér er mikið af Ioönu, stórri og
góðri.” Þetta er ekki fyrir austan
iand, heldur á Halamiöum fyrir
vestan.
, ,Ég hef að visu aldrei verið á
loðnu, en mér sýnist þessi vera
eins og ég hef séð þá landa,”
sagði Auðun. ,,Ég lét Jakob
Magnússon fiskifræðing vita af
þessu, og hann hlutaðist til um, að
Bjarni Sæmundsson kæmi hingað
að rannsaka loðnuna, eftir að
hann heyrði um stærð og þyngd.”
Bjarni Sæmundsson er væntan-
legur vestur um hádegi á morg-
un.
„Það eru stórar og góðar loðnu-
torfur á svæðinu frá ísafjarðar-
djúpi vestur undir Vikurál, á að
gizka 70 milna svæði á lengd og
um það bil 15—20 milur á breidd.
Við drögum togið 6—10 milur, og
aflinn er mjög blandaður loðnu.
Hér er ekkert loðnuskip.
Við höfum fengið talsvert af
loðnu flest undanfarin ár i júli og
ágúst. Ég held, aö þessi loðna
haldi sig út af Vestfjörðum I skil-
um heita og kalda sjávarins en
leiti suður eftir, þegar hrognin
fara að vaxa. Ef farið yrði að nýta
loðnuna til manneldis, held ég, að
unnt yrði að veiða hana meiri-
hluta ársins,” sagði Auðun.
„Annað fiskiri hefur gengið
tregt. Fiskurinn er á þönum á eft-
ir loðnunni út um allan sjó, og erf-
itt er að fanga hann. Við höfum
verið að I viku, og aflinn er léleg-
ur,” sagði skipstjórinn. SH/HH
Sýningin
sem
verður
ekki ó
Kjarvals-
stöðum
Sú sýning af hálfu félags-
manns I Félagi Islenzkra mynd-
listarmanna I húsnæöi Kjar-
valsstaöa, sem komin var lengst
á veg, var án efa sýning Leifs
Breiöfjörö. Hún hefur nú veriö
afturkölluö vegna deilna um
forsjá hússins.
Mest af myndum þeim, sem
Leifur ætlaði að sýna, eru gler-
myndir, sem njóta sín bezt i
dagsbirtu og þar sem dagsljósið
nær að skina i gegnum þær. Með
tilliti til þess hafði hann skipu-
lagt sýningu sina á Kjarvals-
stöðum og unnið sumar mynd-
anna sérstaklega fyrir sýning-
una.
Til skipulagningarinnar fékk
Leifur léð módel af Kjarvals-
stöðum, sem Einar Hákonarson
hafði gert, og setti sýninguna
upp I réttum hlutföllum i módel-
inu. Módelið stendur nú I vinnu-
stofu listamannsins og biður
þess, er verða vill.
Mest eru þetta glermyndir,
sem fyrr segir, en einnig
kartonmyndir af glermyndum.
Sumt af þessu hefur Leifur gert
fyrir opinberar stofnanir og
aöra aðila. Þá voru fyrirhugað-
ar sýningar á litskyggnum
(slides) með kynningu á þessari
listgrein, en eitt hornið átti að
sýna teikningar Leifs, pastel-
túss- og blýantsteikningar. En
áherzlan er lögð á glermyndirn-
ar.
Aðstaða er betri á Kjarvals-
stöðum en nokkurs staðar ann-
ars staðar til sýningar á lista-
verkum af þessu tagi, þvi
glermyndir njóta sin ekki eins
vel I raflýsingu og dagsljósi.
„En ég held þessa sýningu”,
sagði Leifur „Ég finn einhvern
staö”. -SH
— Sjá nánar á baksiðu
Leifur Breiöfjörö viö likaniö af Kjarvaisstööum þar sem hann hefur sett upp skipulag af fyrirhugaöri
sýningu sinni I réttum hiutföllum. A gluggunum yzt til vinstri eru glermyndir, sem njóta sln bezt er
dagsbirtan skin I gegnum þær. A veggjunum eru kartonmyndir af glermyndum, og I dökku básunum
tveim framariega á myndinni eru glerlistaverk i hiiöunum, en framan á átti aö sýna litskyggnur. I
básnum i hægra horni salarins áttu aö vera teikningar Leifs. — Ljósm. Visis Bragi.