Vísir - 08.02.1975, Page 5
Vlsir. Laugardagur 8. febrúar 1975.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson
Sameiginlegar
rannsóknir
Sovézku geimfararnir
tveir eru enn uppi i
geimnum um borð i
Saljutgeimstöðinni.
Einn tilgangur ferðar
þeirra þangað i Soyuz 17
var að reyna til fullnustu
þá tækni, sem beitt
verður þegar Soyuz-
geimfar skal tengjast
Apollogeimfari Banda-
rikjamanna úti i geimn-
um.
Sá útbúnaöur er sérdeilis flók-
inn og voru Bandarikjamenn
nokkuö á undan aö ná valdi yfir
þeirri tækni en Sovétmenn, sem
ekki höfðu gert neitt aö þvi aö láta
geimfara sina tengja geimförin
eða eiga stefnumót úti i geimn-
um.
Geimvisindamenn þessara
tveggja stórvelda hafa skipzt á
heimsóknum og upplýsingum.
Myndin hér viö hliöina er tekin i
geimvisindastöö Rússa, þar sem
Vladimir Syromyatnikov úr rúss-
nesku visindaakademiunni er aö
ræöa viö Ray Larson frá Banda -
rikjunum u_m tengibúnaö Apollo
geimfars.
ÓÁNÆGÐIR MEÐ THIEU
í Saigon hefur gætt aö undanförnu töluverörar óánægju meö
stjórn Van Thieus forseta. Hefur hann látiö loka ritstjórnarskrif-
stofum nokkurra blaöa, sem gagnrýnt höföu stjórn hans.
Til minniháttar óeirða hefur komiö á götum, og er myndin hér viö
hliðina af einu sliku atviki á dögunum. Búddamunkar höföu efnt til
mótmælagöngu, en óeinkennisklæddir lögreglumenn voru sendir til
aö dreifa göngunni, þvi aö útifundir og kröfugöngur eru bannaöar.
Krabbameinsvél
Visindamenn viö Stanfordháskóla hafa kunngert, aö þeir hafi
smiöaönýtt tæki til meöferöar á krabbameinssjúklingum. Enn sem
komið er beita þeir þvi aöeins á tilraunadýr háskólans.
A ensku kalla þeir þetta tæki „Medical Pion Generator” en viö
berum ekki viö aö Islenzka þaö heiti. En eins og myndin hér fyrir
neðan sýnir, er þetta eins konar hverfill, scm fremleiöir orku. Hún
drepur krabbameinsfrumur meö nokkurs konar kjarnasprenging-
um.
A myndinni sjást þeir dr. Douglas Boyd og Alan Schwettman pró-
fessor, sem eru aöalhugvitsmenn þessarar maskinu.
Skjallar ekki
fjölskyldu
drottningar
Willie Hamilton, einn af þing-
mönnum Verkamannaflokksins
brezka, hefur um langan tima
verið einna fremstur I flokki
þeirrá, sem gagnrýna brezku
konungsf jölskylduna.
Hann hefur gefiö út bók, sem
hann nefnir „Drottningin mln
og ég". — Nýlega kynnti hann
bókina fyrir blaðamönnum, en
hún er samantekt á ýmsu þvi,
sem upp hefur komiö á dagana
varöandi spurninguna um,
hvort Bretland eigi að vera
áfram konungsveldi eöur ei.
Auðvitað er þar að finna lika
þátt Hamiltons þingmanns I
þeim umræðum.
Snowdon lávarður, maöur
Margrétar prinsessu, systur
Elisabetar drottningar. reyndi
meö aöstoö dómstólanna aö
hindra útgáfu bókarinnar, þar
sem ekki er alls staöar fariö
fallegum oröum um konungs-
fjölskylduna. Ekki tókst honum
þaö, og kom bókin út i gær.