Vísir - 08.02.1975, Blaðsíða 8
8
Vlsir. Laugardagur 8. febrúar 1975.
Joi a toppnum
STÖÐUGAR
HRÆRINGAR
Eins og áður hefur
komið fram á þessari
siðu, hafa nýverið verið
miklar hræringar i
popplifinu hériendis.
Þekktar hljómsveitir sem
Hljómar, Roof Tops og Sólskin
hafa leystst upp.
Nó, ein hljómsveit leystist
upp, áöur en hún fór að láta á
sér bera, en það var hljómsveit-
in Stólar.
Þekktustu hljómsveitir lands-
ins, Change og Pelican, eru á
erlendri grund.
Þetta þýðir að ýmsar góðar
hljómsveitir hafa skotið upp
kollinum að undanförnu, hljóm-
sveitir, sem flestallar hafa verið
lengi á lifi, en litið haft sig i
frammi.
Yfirleitt eru þetta hljómsveit-
ir sem bjóða upp á stórgóða
frumsamda tónlist, þ.á m. má
nefna DöGG, BIRTU, EIK,
NAMFÚSU FJÓLUNA og MEL-
CHIOR.
Svo má vitanlega ekki gleyma
einni af okkar beztu hljómsveit-
um, JODAS, en þeir eru þrumu-
góðir um þessar mundir.
Svo er eitthvað á seyði á bak
við tjöldin?
Ég læddist nefnilega hérna
um daginn inn á æfingarstað
einn hér i borg, og þar sá ég
nokkra kauða vera að æfa upp
prógramm.
Þessir náungar eru flestallir
þekktir innan poppheimsins
hérlendis
Enski gltarleikarinn, sem spii-
aði með Roof Tops og Sólskini,
er einnig með I hinni nýju
hljómsveit, sem og kapparnir
Ómar Óskarsson viröist vera
hálfþreyttur eftir langar og
strangar æfingar með hinni
nýju hljómsveit.
Jóhann G. Jóhannsson —listamaður án listamannalauna. Enn
tveir hér til hliðar.
einu sinni er hann I fyrsta sæti vinsældalistans.
TÍU Á TOPPNUM
Tiu á toppnum 8/2 ’75.
1. ( 4). I need a woman.Jóhann G. Jóhannsson.
2. ( 1). Please Mr. Postman.Carpenters.
3. ( 2). A kránni.Mánar.
4. ( - ). Rock’n Roll.Terry Jacks.
5. ( - ). Love Hurts.Nazareth.
6. ( - ) I can Help.Billy Swan.
7. (10). 9 Dream. John Lennon.
8. ( - ). Doctors Order.Carol Douglas.
9. ( 3). I can be with you.Change.
10. ( - ). I get a kick out of you.Gary Shearston.
Ný lög:
11. The Funny thinking man. Melchior.
12. Morning side of the mountain.Donny & Marie Osmond.
13. Gee Baby.Peter Shelley.
14. Somekind of wonderful. Grand Funk.
Féllu af lista:
Lucy in the sky with diamonds. Elton John.
Dance the Kung Fu. Carl Douglas.
Only You. Ringo Starr.
Tcll Him. Hello.
With you. Roof Tops.
”4”. 172.
”2”. 131.
”6”. 94.
”1”. 88.
”1”. 80.
”1”. 67.
”2”. 52.
”1”. 41.
”5”. 41.
”1”. 40.
Getraun:
Brynja Guðmundsdóttir, Esjubraut 13, Akranesi.
Billy Swan
Help”.
Hver er þessi Billy Swan, scm
nýlega skauzt I fvrsta sæti
bandarlska vinsældalistans
með lag sitt ,,I can help”?
Hann hefur sosum ekki látið
mikið á sér bera hingað til, en
hann hefur skrifaö mörg lög
fyrir ýmsa listamenn þ.á m.
Kris Kristofferson. Einnig hefur
hann komið fram á plötum
Kristoffersons og annazt þar
m.a. bakrödd.
Meðal þekktari laga Swans er
lagið „Lover please” og „Queen
of my Heart .
A plötuumslaginu má lesa eft-
irfarandi: „margir kunnugir
hafa sagt, að Billy Swan væri
mitt á milli „country” Ringo
Starr og Elvis Presley”, og get
ég ekki verið meira sammála.
Tónlíst Swans jaðrar við það
að vera „country”, en vegna
léttleika slns fellur hún á milli
„country” og rock, (annars
finnst mér hálfkjánalegt að
vera að hólfa svona tónlist niður
I bása sem í raun og veru eru
ekki til).
En hvað um það, þessi plata
hefuv vart yfirgefið fóninn minn
slðan ég fékk hana.
Hún er létt og skemmtileg, án
þess að vera of einföld, og lögin
eru fjölbreytileg þannig að seint
verður maður leiður á henni.
Ekki vil ég fjölyrða frekar um
þessa plötu, hún er góð, ég mæli
með henni.
GEORGE HARRISON: „DARK
HORSE”.
Ég bjóst satt að segja við miklu
úr bessu albúmi, en það hefur
valdiö mér miklum vonbrigðum
Rödd Harrisons hljómar f jarlæg
og hás, og það eina sem hún
virðist duga nægjanlega til, er
aö raula „krishna-krishna”, og
o.s.frv.
Þegar BEATLES leystust
upp, var yfirleitt búizt við miklu
af George, en I raun og veru
hefur hann ekki samið neitt
eftirtektarvert frá dögum bítl-
anna, nema þá kannski einstök
verk á hinu þrefalda albúmi
„All things must pass” og „My
sweet Lord”.
Þá standa eftir meistaraverk
hans úr Beatles, „Here comes
the sun”, „Something”, og
„While my guitar gently
weeps”.
En það er liðin tlö, nú er
Harrison snar-stanzaður.
A „Dark Horse” bregður þó
fyrir nokkrum skemmtilegum
köflum, og vart að furða þegar
maður litur yfir lista aðstoðar-
manna. Þar má finna.nöfn eins
og Ringo Starr, Jim Gordon,
Andy Newmark (trommur),
Billy Preston, Tom Scott, Willie
Weeks, Jim Keltner, Nicky
Hopkins, Eric Clapton, Klaus
Voormann, Rod Wood, og Alvin
Lee, og þarf vart að spyrja um
frammistöðu þeirra.
En tónlist Harrisons (og söng-
ur) á „Dark Horse” er að min-
um dómi allt of einhæf.
Pálmi Gunnarsson, einn liðs-
manna hljómsveitarinnar, sem
sagt er frá I lok greinarinnar að
sé að æfa á laun.... — Ljósm.
—örp.
Ég vona bara að eitthvað
veröi úr þessu hjá þeim, því
með sifelldu flakki á milli
hljómsveita, verða þeir bara
leiðir á þessu, og það væri synd
og skömm.
örp.
Ari Jónsson aftur setztur við
trommurnar. Vonandi situr
hann þar sem lengst viö tommu-
leik og söng með nýju hljóm-
sveitinni.