Vísir - 10.02.1975, Side 3
Vlsir Mánudagur 10. febrúar 1975.
3
VERSTA FÖSTU,-
DAGSKVÖLD I
LANGAN TIMA
— almennt fyllirí í
,,Ég man ekki eftir ööru eins
föstudagskvöldi og laugar-
dagsnótt i langan tlma,” sagði
varðstjórinn i aðalstöð
Reykjavikurlögreglunnar i
gær. ,,Það var mikil og al-
menn ölvun og fangageýmsl-
urnar fullar. Lögreglumenn á
vakt höfðu ekki undan að
sinna verkefnunum.”
Kollegar hans á hinum
stöðvunum tóku I sama
streng, en ástæðan fyrir erlin-
um er engan veginn augljós.
höfuöborginni
Þó bentu menn á, að þetta er
fyrsta'helgi mánaðarins eftir
útborgun, og nú eru þorrablót
og árshátiðir i algleymingi
með tilheyrandi gleðskap,
sem fer misjafnlega vel i
menn.
Þá vareinmuna veðurbliða i
borginni, og það kann að hafa
sitt að segja til þess, að menn
leita út úr húsum og kunna sér
kannski ekki hóf i viðáttunni.
—SH
Hvers átti glerið að gjalda?
Rúður brotnar á þrem stöðum án tilgangs
Um helgina voru brotnar 7
rúður i sumarbústað við
Lambhaga. Virðist það hafa
verið skemmdarverk ein-
göngu, þvi ekki var að sjá, að
neinu hefði verið stolið eða bú-
staðurinn hagnýttur á nokk-
urn hátt.
Þá var á laugardagskvöldið
brotin rúða i Sunnukjöri við
Skaftahlið og i Kjötmiðstöð-
inni við Laugalæk. Engu var
heldur stolið á þessum stöðum
né heldur náðust rúðubrjót-
arnir, en tveir pjakkar sáust
hlaupa frá Sunnukjöri, er rúð-
an hafði verið brotin.
— SH
Með skrúfjárn og
vasaljós í Karnabœ,
aðrir börðu dyravörðinn í Tónabíói
Þeir voru með skrúfjárn og
vasaljós, náungarnir, sem
gripnir voru i Karnabæ á
föstudagskvöldið. Þar höfðu
þeir brotizt inn og náð sér i
töluvert af peningum, en ekki
komust þeir svo langt að geta
gert sér mat úr fengnum.
Þeir voru vistaðir á upp-
tökuheimilinu i Kópavogi.
Sama kvöldið réðust tveir
unglingar á dyravörðinn i
Tónabiói og veittu honum
meðal annars áverka á and-
liti. Þar voru á ferðinni 15 ára
piltur og annar 21 árs. — SH
Var að flýta sér á ball
— en ók utan í annan bíl
A föstudaginn var maður
einn aö flýta sér einhver ósköp
á bilnum sinum niður i miðbæ
og ók utan í bil I Garðastræti.
Við það lá honum enn meira á
og hvarf af árekstursstað, án
þess, að I hann næðist.
Bíllinn fannst þó skömmu
siðar, þar sem hann stóö kirfi-
lega læstur i stæöi bak við hús
Silla og Valda við Aðalstræti,
en eigandi og ökuþór fannst
þar seni hann var aö skemmta
sér i Tjarnarbúð, mikið fullur.
— SH
Vasaþjófar
Peningaveski var stoliö af
manni, þar scm hann stóð I
biðröð fyrir utan Röðul á
laugardagskvöldið. t veskinu
var mikið af peningum og á-
visanahefti.
Siðar sama kvöld fundust
við Roðul
vasaþjófarnir, þar sem þeir
voru að kemmta sér I Silfur-
tunglinu, og voru þeir með
þýfið á sér. Þeir voru þrir
saman og allir komnir yfir 16
ára aldur. — SH
Þýfið fannst
í stolnum bíl
Tveir unglingar, 14 ára og 17
ára, stálu bil á laugardags-
nóttina, þar sem hann stóð
fyrir utan verkstæði við
Grensásveg. A honum komust
þeir upp fyrir Grafarholt, en
lentu þar út af og festu bilinn,
en skemmdu hann þó ekki til
muna. Aftur á móti hafði bill-
inn staðið við verkstæðið
vegna þess, að honum var i
ýmsu ábótavant til aksturs.
Lögreglan i Arbæ kom á
staðinn og tók pjakkana i sina
vörzlu. Þeir voru alls ekki við-
ræðuhæfir vegna ölvunar og
æsings, og var sá yngri fluttur
á Kópavogsheimilið, en hinn
settur inn.
i bilnum fannst talsvert af
sigarettum, og er talið liklegt,/
að þær séu úr innbroti, sem
framið var sömu nótt i verzl-
unina Sunnukjör i Skaftahlið,
þótt ekki væri það upplýst til
fulls i gær. — SH
ttn WV' mrv> mritn mr«n (wun raruo rwuÞ mfio oruo rtjr
ERUM
I FUJTT!
í AÐ LAUGAVEGI 15 !
LITIÐ INN OG SKOÐIÐ OKKAR MIKLA
OG VANDAÐA VÖRUÚRVAL.
VÖRUR FYRIR ALLA~ VERÐ FYRIR ALLA
TEKK'-
KRISTIU
M V Laugaveg 15 sími 13111 ^
BESSII BALLETT
Það er mikið um að
vera á sviði Þjóðleik-
hússins þessa dagana,
en þar æfa nú 50 dansar-
Sökudólgurinn
var snöggur
að rétta
ar Coppeliu, sem er afar
merkur ballett i þremur
þáttum.
Æfingar eru á hverjum degi,
enda verður verkið frumsýnt
núna 28. febrúar. Ballettinn er
sagður hinn skemmtilegasti, og
meðfylgjandi mynd lofar góðu.
Það eru þeir Þórarinn Bald-
vinsson, sem kom frá Englandi til
þess að dansa i verkinu, og Bessi
Bjarnason, sem sýna þarna listir
sinar, en þeir fara með tvö af
stærstu hlutverkunum.
Við sjáum lika úrvalið úr is-
lenzka dansflokknum á sviðinu,
þegar ballettinn verður sýndur,
20 manns úr Þjóðdansafélagi
Reykjavikur og 25 úr Listdans-
skólanum ásamt fleirum. Það er
Alan Carter, sem æfir ballettinn.
—-EA/ljósm: Bj.Bj.
jr-v , HEIMSÞEKKTUR
TÉKKNESKUR
BTÆ HEIMSKRISTALL
Handskorinn,
motadur,
litaður og
■M með gyllingu
dœldaðan bílinn
Maður nokkur, sem ók á kyrr-
stæðan bil i Logalandi, var heldur
betur snöggur að rétta úr
skemmdunum á sinum bil.
Areksturinn var snemma I gær-
morgun, en eigandi kyrrstæða
bilsins tilkynnti ekki um árekst-
urinn fyrr en klukkan þrjú um
daginn.
Lögreglan hélt á staðinn og
fann lakkskellur utan i kyrrstæða
bilnum, sem gáfu visbendingar
um, hvernig bil sökudólgurinn
hefði ekið á.
Eftir skamma eftirgrennslan
fann lögreglan bil i næstu götu,
sem var með sama lit og lakk-
skellurnar, og þegar nánar var að
gáð, virtist lakkið á einu brett-
anna skemmt. A hinn bóginn
hafði veriö rétt úr dældunum.
Eigandi bilsins viðurkenndi
strax að hafa ekið á hinn kyrr-
stæöa og sagðist einmitt hafa ver-
ið á leiöinni til að tilkynna það, er
hann hitti lögregluna. Hins vegar
fékkst engin skýring á þvi, hvers
vegna hann hefði verið svona
snöggur til að rétta úr dældaða
brettinu á sinum eigin bil. —JB
Útvarpið
fœr tvo
nýja stjóra
Ráöið hefur verið i stöður tón-
listar- og leiklistarstjóra við
Rikisútvarpið til næstu fjögurra
ára. Tónlistarstjóri verður
Þorsteinn Hannesson, sem um
áraraðir hefur unnið hjá útvarp-’
inu, en leiklistarstjóri verður
Klemens Jónsson, sem lengi
hefur starfað viö Þjóöleikhúsiö
sem leikari, leikstjóri og blaða-
fulltrúi. — SII