Vísir - 12.02.1975, Page 3
Vísir Miðvikudagur 12. febrúar 1975
3
VELDUR RÆKJAN PÓLITÍSKUM ÞATTA-
SKILUM A NORÐUR-
LANDI VESTRA?
Þingmönnum
Norðurlandskjördæmis
vestra hlýtur að hafa
runnið kalt vatn milli
skinns og hörunds i
gær, ef þeir hafa flett
Morgunblaðinu. Þar er
kveðja til þeirra frá
Valdimar Guðmunds-
syni frá Bakkakoti,
með alvarlegri hótun.
Valdimar telur, að þingmenn
kjördæmisins hafi reynzt
endemis slyðrur varðandi
rækjubardagann á Húnaflóa og
hafi látið viðgangast, að
Blönduósingar hafi verið stór-
lega hlunnfarnir, meðan Skag-
strendingar til dæmis hafa 140
þúsund i mánaðarlaun.
En dæmið er auðreiknað, seg-
ir greinarhöfundur, þvi kjós-
endur eru fleiri samanlagt á
Hvammstanga og Skagaströnd
heldur en á Blönduósi.
Grein Valdimars lýkur með
þessum orðum: „Það skulu
þessir góðu menn (þ.e. þing-
menn Norðurlands vestra) vita,
að við, sem höfum unnið fyrir
framboði flokkanna, hver fyrir
sinn flokk, munum skilja þessa
afstöðu þingmanna þannig, að
þfeir séu að þakka okkur veittan
stuðning og lýsa þvi yfir I verki,
að vinsældir þeirra séu orðnar
svo miklar, að við okkur þurfi
þeir ekki frekar að tala. Enda
munu þeir ekki þurfa að hafa
fyrir þvi að heimsækja okkur,
sjái þeir sig ekki um hönd og
taki upp vörn fyrir Blönduós-
inga I máli þessu. En geri þeir
það ekki, munum við segja
skilið við þá flokka, sem við
höfum stutt, hvað svo sem þeir
hafa heitið.”
Nú eru sem sé góð ráð dýr
fyrir þingmennina. Ef þeir snúa
sér ekki að þvi að bjarga rækju-
vinnslunni á Blönduósi, fá þeir
ekki lengur kaffi, er þeir berja
upp hjá hæstvirtum kjósendum
(og smölum) sinum nyrðra. Þar
við bætist, að nú veit enginn
lengur, hvar hann á fylgismann,
þvi allt fer i rugling. Kommi
segir skilið við komma og
verður stækur ihaldsmaður,
framsóknarmaður verður
frjálslyndur vinstra megin og sá
frjálslyndi sjálfsagt hægri
framsóknarmaður — eða guð
má vita, hvernig þetta kroppast
upp.
Nema náttúrlega upp komi
nýr flokkur, rækjuflokkurinn,
þingmenn gömlu flokkanna fái
hvergi kaffisopa hvað þá mór-
alskan stuðning né pólitiskan.
—SH
Ákvörðun
saksóknaro
nólgast
„Skýrsla setudómarans er i
rannsókn hjá okkur”, sagði
Þórður Björnsson, saksókn-
ari, um gang mála i rækju-
málinu við Húnaflóa. „Á-
kvöröun um framhald verður
tekin mjög fljótlega”.
Eins og áður hefur verið frá
sagt, koma fjórar leiðir til
mála I framhaldi málsins:
Niðurfelling, frekari rann-
sókn, ákæra — eða dómsátt.
Slðasti möguleikinn, dómsátt,
sagði Þórður að væri raunar
aöeins fræðilegur, þar sem
sakborningar neita algerlega
að hafa brotið lög, og þar aí
leiðandi getur ekki orðið um
sátt að ræða. —SH
Unniö viö rækjuvinnsluvélina á Hvammstanga. Slikar vélar og allt
I kringum rækjuna viröist ætla aö veröa hápólitiskt.
Bóið að
meta
en
hósið
er opið
Skóverksmiöjan Agila á Egils-
stöðum var lýst gjaldþrota fyrir
nokkru, eins og sagt var frá í Vfsi.
Bréf þar aö lútandi var nokkurn
tima á leiöinni til sýslumanns,
sem situr á Eskifirði, en strax og
rættist úr ófærðinni, komst þaö i
réttar hendur.
Sýslumaðurinn lét dómkvadda
menn meta lagerinn og eigur
verksmiðjunnar, og hefur það
mat siðan verið endurskoðað.
En það, sem vekur furðu
manna, er, aö húsið hefur ekki
verið innsiglað, né heldur teknir
að þvi lyklarnir eða skipt um
skrá.Nokkuðmargirlyklar munu
vera I gangi, og yfir daginn
standa einar dyrnar þar opnar,
svo hver sem er getur valsað þar
út og inn.
—BA/SH
KANNA HVAÐ SAMEIGINLEGT
ER MEÐ ÞEIM, SEM SMITAZT
HAFA AF BERKLUM
— fœrri hafa smitazt en
haldið var í fyrstu
„Smituppsprettan hefur ekki
fundizt ennþá, og grunur leikur á,
aö hún sé ekki I menntaskólan-
um”, sagöi Ólafur H. Oddsson,
skólaiæknir Menntaskólans á
Akureyri.
„Næst liggur fyrir að kanna,
hvað er sameiginlegt með þess-
um hópi, sem hefur tekið berkl-
ana — hvaða staði hann hefur sótt
og hvaða fólk hann hefur um-
gengizt. Sömuleiðis verða þeir
kannaðir sem voru i skólanum
fyrir áramót, en eru þar ekki
lengur.”
ólafur taldi ekki, að farið yrði
út i það að sinni að gera heildar-
könnun á Akureyringum. Þessir
berklar eru mjög hægfara, og
hefur aðeins einn verið sendur á
Kristneshæli. í hinum er þetta
ekki meira en svo, að það kemur
fram við húðprófun, og enginn
smitberi er i þessum hópi. Þeir,
sem reynast jákvæðir við berkla-
prófunina núna, voru neikvæöir
er prófun var gerð i október.
„Það var liklega of hátt áætlað
hjá mér að segja, að 30 hefðu
reynzt með berkla,” sagði Ólafur.
„Við aðra prófun kom I ljós, að
talan er ekki nema eitthvað um-
20. Annars er oft erfitt að skera úr
um þetta,og segja má, að nokkrir
sem prófaðir voru, séu vafa-
samir, og þeir verða prófaðir
aftur eftir mánuð.”
Ólafur sagði ennfremur, að
ekki væri ástæða til að kenna
útlendingum um að hafa borið til
okkar berklana að nýju, né utan-
ferðum tslendinga. Berklaveiki
gæti tekið sig upp aftur I þeim,
sem eitt sinn hefðu haft hana.
Ennfremur staðfesti hann, að það
væri viss hætta að hafa flesta
neikvæða, eins og nú er orðið með
yngri kynslóðir, en þar á móti
kæmi, að þá er auðveldara að
rekja slóð smits, þegar upp kem-
ur.
—SH
w w
TVEIR BILSTJORAR SLÖSUÐUST Tveir fólksbilar rákust mjög keyrslu og mun bill hans hafa harkalega saman á Laugarás- fariðinn ihinn vegarhelminginn veginum á niunda timanum I með þeim afleiöingum, að hann gærkvöldi. ökumenn, sem voru rakst mjög harkalega framan á einir í bilunum, slösuöust báöir. bil er kom úr gagnstæðri átt. Annar bilstjóranna skarst nokk- Slysið varð á móts við Sunnu- uö i andliti, en hinn hlaut bein- veg. ökumaður annars bilsins brot við áreksturinn. var aö svipast um eftir inn- _jg Litla stólkan enn í lífshœttu Líðansjöára stúlkunnar, sem ók um Vesturberg I Breiöholti. slasaðist hættulega á mánu- Stúlkan mun hafa hlaupiö I veg dagskvöldiö, var óbreytt i fyrir bilinn. Stúlkan var flutt á morgun. Hún var enn I lifs- Borgarsjúkrahúsið til aðgeröar hættu. Stúlkan hlaut alvarleg 0g liggur nú á gjörgæzludeild innvortismeiösli og lærbrot, sjúkrahússins. —JB þegar hún varð fyrir bifreiö, er
Opinn fundur með fulltrúum Islands á Allsherjarþinginu:
Tœkifœri til að kynnast starfsháttum
og samkomulagi í íslenzku nefndinni
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna
ræöa þaö, sem fram kom á siö-
asta allsherjarþingi Sameinuöu
þjóöanna, veröa fyrir svörum og
taka þátt I umræðum um þau efni,
á fundi félags Sameinuöu þjóö-
anna á islandi annaö kvöld.
Þetta verður almennur og
opinn fundur, haldinn i Lögbergi,
húsi lagadeildar háskólans annað
kvöld klukkan 20.30.
Fulltrúar flokkanna verða
Björgvin Guðmundsson frá
Alþýðuflokknum, Garðar
Sigurðsson frá Alþýðubandalag-
inu, Jón Skaftason frá Framsókn-
arflokknum, Lárus Jónsson frá
Sjálfstæðisflokknum og Magnús
Torfi ólafsson frá Samtökum
frjálslyndra og vinstri manna.
Eiður Guðnason, fréttamaður,
verður umræðustjóri.
Þessir fulltrúar flokkanna voru
allir i sendinefnd íslands á 29.
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Fundurinn hefst með inn-
gangsorðum þeirra, en siðan
gefst fundargestum tækifæri til
að taka þátt i umræðunum eða
leggja spurningar fyrir fulltrú-
ana. Þar með gefst tækifæri til
þess að fræðast um verkefni og
niöurstöður allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna, afstöðu íslands
til hinna ýmsu mála og um starfs-
háttu og samkomulag i nefndinni
frá Islandi. Af athyglisverðum
málaflokkum þingsins má nefna
kvenréttindi og aögerðir i tilefni
kvennaársins, deilur Araba og
Israelsmanna, sem voru i mjög i
brennidepli meö heimsókn Ara-
fats, efnahagsmál, orkumál og
margt fleira.
—SH