Vísir - 12.02.1975, Page 5
5
Vlsir Miðvikudagur 12. febriiar 1975
RGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón: G.P.
„Látið ekki ör-
vœntinguna
grípa ykkur,"
— er orðsendingin, sem Kissinger flytur frá Allon utan-
ríkisráðherra Israels til Sadats Egyptalandsforseta
Yigal Allon, utanrik-
isráðherra ísraels,
sagði i gærkvöldi, undir
lok heimsóknar Henry
Kissingers hjá ráða-
mönnum þar, að
ísraelsriki væri reiðu-
búið til að taka nokkra
áhættu i viðleitni sinni
til að ná friði við ná-
grannalöndin. — Hann
kvað lausnina á deilum
Araba og ísraela ekki
vera fólgna i hernaðar-
legum aðgerðum.
t kvöldverðarboði, sem haldið
var til heiðurs bandaríska utan-
rlkisráöherranum, lagði Allon
áherzlu á, að tsrael væri
reiðubúið til friöarsamninga
ekki aðeins viö Egypta, heldur
öll Arabarlkin.
Dr. Kissinger, sem hefur sið-
ustu tvo dagana kannað afstöðu
israelskra ráðamanna til friðar-
viðræðna, sagði I þessu kvöld-
verðarboði, að tsrael yrði að
sýna mótaðilunum traust með
einhverjum eftirgjöfum til að ná
friöi.
Kissinger átti að fljúga i
morgun til Kairó til viðræðna
við Sadat Egyptalandsforseta.
Mun Sadat gera honum grein
fyrir viðbrögðum Egypta við
siðustu tilboðum tsraelsmanna.
Friðarerindrekinn gerir sér
vonir um að fá þvi komið fram i
þessari ferð, að Israelsmenn
skili einhverju af Sinaieyði-
mörkinni aftur til Egyptalands
gegn pólitískum viðurkenning-
um Egypta i staðinn.
Margaret boðar ný
Svelta
sig enn
Tuttugu manns eru nú
i hungurverkfalli i
fangelsum írska lýð-
veldisins og krefjast all-
ir, að með þá sé farið
sem pólitiska fanga. —
Stjórnin í Dublin hefur til þessa
þverneitað að verða við kröfum
fanganna, en á þar á hættu að
snúa almenningsálitinu á sveif
með hinum útlægu samtökum
IRA (irska lýðveldishernum).
Margir kvfða þvi, að sú tog-
streita, sem myndazt hefur vegna
hungurverkfallsins, verði til þess,
að IRA bindi enda á nýsett vopna-
hlé sitt á Norður-lrlandi.
Alls sitja um 140 manns i
fangelsum I Eire, grunaðir um
aðild að hinum ólöglegu samtök-
um IRA.
Fœr þrjá
unga úr
hverju eggi
Sovézkur visinda-
maður hefur fundið að-
ferð til að búa til þrjá
unga úr einu eggi, að
þvi er Tass-fréttastof-
an skýrði frá i gær-
kvöldi.
Þar segir, að Gherman Svya-
togor við Leningradháskóla hafi
skýrt ráðstefnu frjóvgunar-
fræðinga frá aðferð sinni. Ligg-
ur hún i þvi að setja egg I sótt-
hreinsunarkassa, borað á það
litið gat og ná út úr þvi rauð-
unni.
Meö skurðhnif skiptir hann
siöan lifandi frumunum I ör-
smáar stærðir og ósýnilegar
nema i smásjá. Þannig setur
hann þær síðan aftur inn i eggið
og lokar þvi.
Tjáði hann sérfræðingunum,
að með þessum hætti hefði hann
fengið þrjá unga úr einu hænu-
eggi, úr andareggjum o.fl.
Fyrsta dag sinn sem
leiðtogi ihaldsf lokksins
hóf Margaret Thatcher á
því að undirbúa fund með
helztu ráðunautum sínum
innan flokksins, þar sem
fjallað verður um, hvern-
ig flokknum verður bezt
gefinn hinn „nýi svipur
og ný stef na", eins og hún
hafði lofað.
Kjör hennar i formannsemb-
ættið 1 gær, þar sem hún fékk sjö
atkvæðum meir en hún þurfti til
þess að hljóta hreinan meiri-
hluta (146 af 276 atkvæðum)
þykir mikill sigur kvenréttinda-
hreyfingarinnar á Englandi. —
Sem leiðtogi íhaldsflokksins er
hugsanlegt, að hún gæti orðið
fyrsta konan, sem yrði forsætis-
ráðherra, ef flokkurinn kæmist I
stjórnaraöstöðu.
Þegar úrslitin lágu fyrir i gær,
sagði Thatcher, að það mundu
verða breytingar á stefnu
flokksins, en kvaðst ekki mundu
hlaupa aö neinu i þvi sambandi.
Hún viðurkenndi, að hún hefði
litla reynslu á sviði utanrfkis-
mála, en kvaðst vera fljót að
læra.
Margaret Thatcher kvaðst
gera sér vonir um að fá ,,ung
andlitog nýja hæfileika” fram i
fylkingarbrjóst flokksins. —
Hún hafði áöur sagt, að hún
mundi biðja Edward Heath aö
sitja I „skuggaráöuneyti”
stjórnarandstöðunnar, en Heath
þykir ekki lfklegur til að þiggja
þaö boð.
Hinir f jórir frambjóðendurnir
til formannsembættisins voru
ekki hálfdrættingar hennar i at-
kvæðagreiðslunni 1 gær. Fékk
William Whitelaw 79 atkvæði,
en sir Geoffrey Howe 19 og
James Prior 19. John Peyton
fékk 11 atkvæði.
Edward Heath, sem verið
hefur leiðtogi flokksins siðan i
júli 1965, sagöi af sér, þegar
hann tapaði fyrir Margaret
Thatcher i fyrstu atkvæða-
greiðslunni, en hún fór fram i
siðustu viku. — Kom það nokkuð
á óvart, hve íhaldsmenn höfðu
veriö óánægðir með forystu
Heaths, miðað við hve mikils á-
lits hann naut erlendis. En eftir
ósigra I þrem kosningum af
fjórum (tveim á siðasta ári), er
ljóst, að flokksmenn hafa ekki
treyst honum til að leiða flokk-
inn til sigurs i þeim fimmtu.
Vék Margaret Thatcher ó-
beint að þessu, þegar hún sagöi
eftir kosninguna i gær, að hún
andlit
mundi beita sér fyrir þvi að fá
ný andlit i flokksforystuna og
innleiða nýjan anda meðal
flokksmanna.
Thatcher, sem þykir mjög
hægrisinnuð, mun fylgja jafnvel
enn harðari stefnu i efnahags-
málum en Heath gerði. Varð
þaö þó stjórn ihaldsmanna að
falli, þegar hann lenti i útistöð-
um við námamenn með þvi að
neita að sveigja af stefnu
flokksins I launafrystingarmál-
um á sinum tima. — Thatcher
mun kappsmál að vinna á verð-
bólgunni, hvað sem þaö kostar
— jafnvel aukið atvinnuleysi.
Framsýnir menn spá þvi, að
flokknum muni vaxa fylgi með-
al kvenna eftir þessi tiðindi i
gær, en á hinn bóginn tapa at-
kvæðum meðal launþega af
lægri launaflokkum.
Margaret Thatcher á sigurstundu, þegar úrslitin i atkvæðagreiðslunni I
gær lágu fyrir. Sigurvimunnar njóta með henni, maður hennar, Mark
Thatcher, og Denis sonur þeirra.