Vísir - 12.02.1975, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 12. febrúar 1975
nisnsm:
Hvernig lizt þér á að-
gerðir rikisstjórn-
arinnar i efnahags-
málunum?
Sigtryggur Jónsson, skrif-
stofustjóri: Mér sýnist sem
svo, að þetta muni leiða fljótt
tilsvipaðs ástands eftir svona
5-6 mánuði. Þetta er eins og
pissað sé i skóinn. Manni
verður orðið kalt fljótt aftur.
Þetta eru ekki varanlegar að-
gerðir.
Agúst Hróbjartsson, fast-
eignasaii: Gr þetta ekki bara
venjuleg aðgerð rikisstjórnar,
hvort sem hún er til hægri eða
vinstri? Ég held, að gengis-
felling sé bara gálgafrestur á
vandamálinu.
Rögnvaldina Agústsdóttir,
starfar hjá símanum: Við
verðum að treysta stjórninni
og vona, að hún geri rétt. Ein-
hver verður að ráða fram úr
hlutunum, og þegar við kjós-
um mennina verðum við að
treysta þeim. Okkur ber
skylda til þess.
Stefán Jökulsson, kennari:
Mér lizt ekki vel á þær. Ég er
hræddur um, að gengisfelling
geti dregið dilk á eftir sé, þó
sumir eflaust fagni þessu,
einkum iðnrekendur.
Haraldur Helgason, bllstjóri:
Ég hef ekki vit á þvi. Það vissu
þó allir, að eitthvað þurfti að
gera. Hins vegar finnst mér
gengisfelling leiðinleg, og þeir
voru jú búnir að segja, að.hún
þjónaði engum tilgangi núna.
Guðiaug Lúðvlksdóttir,
húsmóðir: Mér lizt ekki á
þetta. Það er alltaf það sama
og sama. Sifelldar gengis-
breytingar og maður veit ekki,
hvar þetta endar.
MIÐAÐ VIÐ 20% GENGISFELLINGU:
Fiat 12 7
hœkkar
um 86 þús-
und krónur
— frystikista um ca. 11 þús. krónur
Epli jafnt sem bllar, frysti-
kistur og annað innflutt hækkar
óhjákvæmilega I verði eftir
gengisfellingu. Ef miðað er við
20 prósent gengisfellingu hækk-
ar verð á eplakílóinu úr 169
krónum I 180, samkvæmt út-
reikningum Júllusar Ólafsson-
ar, framkvæmdastjóra Félags
stórkaupmanna.
„Þá má einnig taka dæmi um
verð á frystikistu, sem I dag
kostar 58 þúsund. Hún kemur til
með að kosta um 69 þúsund, ef
miöaö er við 20 prósent gengis-
fellingu,” sagði Július ennfrem-
ur.
Og hann benti á, að það væri
ekki öll hækkunin: „Fragtirnar
hækka alitaf lika í framhaldi af
gengisfellingu,” sagði hann.
„Svo veit maður aldrei, hvað
skeður fleira til hækkunar eða
lækkunar vöruverðs. Á ég þá við
það, hvað varðar álagningu og
söluskatt,” bætti hann við.
Næst sneri Visir sér til Helga
Eyjólfssonar, sölustjóra hjá
Davið Sigurðssyni. Upplýsti
hann, að miðað við 20 prósent
gengisfellingu kæmi Fiat 127 til
með að hækka úr 515 þúsundum
i 601 þúsund tilbúinn á götuna.
—ÞJM
Léleg veiði á loðnumiðunum:
Aðeins tvö skip
fengu afla í nótt
— loðnan á vesturleið
Aðeins tveir bátar höfðu
klukkan tíu í morgun til-
kynnt loðnuafla til loðnu-
nefndar frá miðnætti síð-
astliðnu. Það voru Náttfari
með 190 tonn og Ásberg
með 290 tonn.
Til viðbótar þeim 8 bátum, sem
I gærmorgun höföu tilkynnt sam-
tals 2400 tonn þann sólarhring,
komu þessi skip I gær: Gísli Arni,
390 tonn. Reykjaborg, 350 tonn.
Flfill, 350 tonn. Bjarni Asmunds-
son, 100 tonn. ólafur Sigurðsson,
120 tonn. Vlðir AK, 200 tonn.
Bjarnarey, 90 tonn.
Loðnan viröist vera dreifö á
svæðinu eystra og erfitt að veiöa
hana. Þar að auki var bræla á
miðunum i nótt, en batnaði með
morgninum.
Reykjaborg var á leið til Vest-
mannaeyja I gær og fékk þá loðnu
út af Stokksnesi. Rannsóknar-
skipið Arni Friðriksson hélt á
staðinn, og sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson, fiskifræðingur, I
morgun, að mikiö væri af loðnu,
en hún væri dreifö og erfitt að ná
henni.
Hjálmar taldi, að varla gæti
verið nema timaspursmál, hve-
nær veiöar gætu hafizt af fullum
krafti á Stokksnessvæðinu. Hins
vegar virtist svo sem þessi loðnu-
ganga ætlaði að ganga djúpt
undan landi og koma ekki upp að
fyrr en undan Ingólfshöfða eða
jafnvel á Meðallandsbugt, I stað
þess að koma upp á Lónsbugtina.
Raunar væri það ekki einsdæmi,
og sagðist hann láta sér detta i
hug, að þetta stæði i sambandi við
kuldaskil I sjónum á þessum slóð-
um, sem færast töluvert til.
Skipin eru nú einkum á tveimur
svæðum, sagði Hjálmar, um 50
mfiur suð-austur af Seley og um
15—20 mllur út af Stokksnesi.
Einhver fleiri en þau tvö, sem
nefnd eru að framan, höfðu fengið
einhvern reyting, en voru enn að
snöpum og höföu ekki tilkynnt
sig. —SH
ÍSLENZKA MYNTIN
EKKI FORGENGILEG
bíllinn brann, seðlarnir stóðu af sér eld og vatn
Tveir bllar brunnu slðdegis I
gær, er verið var að gera við þá
sinn I hvorum bilskúrnum I bæn-
um. Fyrri bruninn varð rétt
fyrir klukkan 6 I bilskúr við
Sogaveg.
Þar hafði maður verið að
vinna við bil sinn. Hann var með
logsuðutæki að sjóða bretti á
bílnum, er neisti komst i benzín-
poll á gólfi bilsins, er maðurinn
hafði talið að væri einungis
vatn. Bíllinn varð skjótt alelda
en þó tókst að koma honum út
áður en eldurinn læsti sig i bil-
skúrinn. Slökkviliðið kom á
vettvang og slökkti eldinn fljót-
lega en billinn er talinn ónýtur
eftir.
Varla hafði slökkviliðið slökkt
þennan eld, er annar bilbruni
var tilkynntur og nú við Miðtún.
Þegar slökkviliðið kom á stað-
inn var þar mikill eldur i bil og
bílskúr. Einnig á þeim stað
hafði kviknað i út frá logsuðu-
tækjum, sem eigandinn var að
vinna með.
Skúrinn brann mikið að innan
og óttaðist eigandinn, að 100
þúsund krónur, sem hann hafði
geymt I úlpu sinni inni í skúrn-
um væru nú orðnar að ösku
einni. Er eldurinn hafði verið
slökktur var farið inn og sást þá
að úlpan var brunnin. En viti
menn, veskið, sem seðlarnir
voru I var svo til heilt og þar
með var seðlabúntinu einnig
borgið. Ja, það var gott til þess
að vita, að á þessum siðustu
timum væru verðlitlu seðlarnir
þó I það minnsta eldtraustir.
—JB
,Hengjum eins marga
poka og við getum'
„Við ætlum að hengja eins
marga poka og við getum I
dag”, sögðu þeir okkur strák-
arnir, og þeir máttu ekki vera
að því að segja okkur mikið
meira en það, þvi þeir voru
fljótir að koma auga á nýja
bráð.
Krakkarnir kunna reyndar
vel að meta daginn I dag, það er
öskudagur og ofan á það bætist
svo, að fri er gefið I skólunum.
Þeir, sem ekki nota sér það til
þess aðsofa fram eftir, tygja sig
snemma á fætur, taka öskupok-
ana og síðan er farið að hengja.
Liklega koma margir skraut-
iegri heim i dag en þegar haldið
var út I morgun.
—EA/Ljósm. Bg
Tveir leynivínsolar teknir
Tveir bflstjórar af einni af
leigubílstöðvum bæjarins voru
teknir fyrir meinta leynivinsöiu
aðfaranótt mánudagsins. Lög-
reglan hafði fylgzt með blistjór-
unum um skeið fyrir handtökuna,
enda er annar bllstjóranna þekkt-
ur fyrir svipaða iðju hjá lögregl-
unni.
Sá bllstjóranna var gripinn við
sölu, en við yfirheyrslur hefur
hann þó ekki viðurkennt á sig
neina sekt. Hinn bflstjórinn var
með eina og hálfa flösku i fórum
sinum, er talið var að væru ætlað-
ar til sölu.
—JB
Hreinsunarstopp
í Norglobal
Norglobal tók ekki á móti
loðnu Igær og var ekki farinn að
taka á móti i morgun, þegar sið-
ast til fréttist. Að sögn Vil-
hjálms Ingvarssonar, fram-
kvæmdastjóra Hafslldar/ls-
bjarnarins, verður skipið að
stöðva vinnslu óg móttöku einu
sinni I viku tii að hreinsa verk-
smiðjuna.
Þróarrými i vinnsluskipinu er
3600 tonn, og þegar kemur að
hreinsun hættir skipið að taka á
móti, vinnur úr þvl, sem það
hefur þegar tekið og tekur ekki
við á ný, fyrr en að hreinsun lok-
inni.
Eins og fram kom I VIsi I gær,
fór Suðurland með 1200 tonn af
ósekkjuðu loðnumjöli upp I sölu
til hafna I Vestur-Evrópu, þar
sem fengizt hefur gott verð fyrir
mjölið. Vilhjálmur var spurð-
ur, hvort auðveldara væri að
selja mjölið ósekkjað en sekkj-
að:
„Það er upp og ofan”, svaraði
Vilhjálmur Ingvarsson. „En
þaö virðist vera, að ýmsir stærri
kaupendur I Vestur-Evrópu
kaupi það ekki öðruvisi en
ósekkjað. Má þar til nefna fyrir-
tæki i Þýzkalandi og Bretlandi.
Hins vegar er óhugsandi fyrir
ýmsa minni kaupendur að
kaupa það nema sekkjað, og það
sem selt er til Austur-Evrþópu,
veröur allt að vera sekkjað.
En sjálfsagt er það framtlðin
að selja mjölið að einhverju
leyti ósekkjað”.
íslenzkar verksmiðjur eiga
engan kost á að geyma mjölið
ósekkjað, og Vilhjálmur var
spurður, hvort ekki yrði farið út
I aö koma upp aðstöðu til þess að
varðveita hér ósekkjað mjöl.
„Það er gífurlega dýrt”, sagði
hann. „Það þarf þá að byggja
geymsluturna állka og eru hér
inni við Sundahöfn. Sjálfsagt
kemur þetta þó, en eins og ég
sagði — stundum er auðveldara
að selja sekkjað og stundum
ósekkjað”.
. Ekki er auðvelt að spá um,
hve mikið loðnumjöl verður hér
til eftir vertiðina, en fyrir utan
þá samninga, sem Hafslld/Is-
björninn hefur gert um sölu á
ósekkjuðu mjöli, munu ekki
vera aðrir samningar en Rússa-
samningarnir, þar sem þeir
ætla að kaupa um 30 þúsund
tonn af loðnu-þorsk- og
spærlingsmjöli, en viðræður um
sölu til Póllands munu vera
fyrirhugaðar. —SH