Vísir - 13.02.1975, Síða 1
65. árg. —Fimmtudagur 13. febrúar 1975 — 37. tbl.
KJÖR SJÓMANNA
BÆTT — baksíða
Fiskverð hœkkar um allt að 27
% — sóknin breytist
STÓRFISKAR VERÐA NÓ
HUNDELTIR UM HAFIÐ
50 þúsund
hofo séð
Gildruna
— bls. 3
Bréf á
villigötum
- bls. 3
GEIR
STJÓRNAR
FH TIL
SIGURS
íþróttir í opnu
LÁTA SIG EFNAHAGS-
MÁLIN LITLU SKIPTA
Það voru ekki allir jafn þungbúnir á svip i gær. Efnahagsmál
þjóðarinnar lágu þessum krökkum i léttu rúmi. Það var öskudagur
og það gaf fullt tilefni til að vera kátur. Þessir borgarar urðu á vegi
Bjarnleifs Ijósmyndara Visis i Búlandi i gærdag. Þeir voru I hópi
jafnaldra sinna, sem sungu hátt og snjailt — og iaumuðu öskupoka
aftan I einstaka vegfaranda, ef þvi varð við komið. — ÞJM
Menn voru rétt farnir að imynda sér það, að vorið hefði þegar hafið
innreið sina. Það var svo dæmalaust dásamlegt veður. En svo byrj-
aði allt i einu að snjóa í gærdag. Það var óumflýjanlega vetur ennþá
og ekki timabært að afklæðast hettuúipunum. Þessa mynd tók
Ijósm. Visis, Bragi, á Lækjartorgi I gær, þegar veðurguðirnir
minntu á það, hvaða árstið stæði yfir.
— en smófiskar lótnir eiga sig
Fiskverð hækkar
mikið á sumum tegund-
um, svo sem stórum
þorski og ufsa. Búast má
við verulegri breytingu
á sókn, þannig að stór-
fiskar verði hundeltir
um hafið, en aðrir látnir
i friði.
Yfirnefnd verðlagsráðs sam-
þykkti I gær miklar breytingar á
stærðarflokkun, sem verðbreyt-
ingar voru byggðar á. Ekki er
unntað tala um meðaltalshækkun
á fiskverði vegna hinna mörgu
flokka. Stór ufsi, sem er flakaður
i salt og seldur aðallega til
Vestur-Evrópu, hækkar um 27%,
úr 19,70 krónum kilóið i 25 krónur.
Þetta er ufsi, sem er meira en 85
sentimetra langur. Hins vegar
ækkar smærri ufsi, sem fer i
frystingu og einkum er seldur til
Rússlands, nánast ekki neitt
vegna aðstæðna á markaðinum.
Stærsti flokkur þorsksins, sem
er yfir 75 sentimetrar, hækkar i
verði um 25,6% úr 30,25 krónum
kilóiö i 38 krónur. Hins vegar
lækkar verðá smáþorski um 7,5%
en veruleg hækkun verður á milli-
stærðum, 54—74 sentimetrar. Þar
er hækkunin 11%. Hækkun á verði
stóra þorsksins kemur einkum til
góða vertiðarflotanum, sem
veiðir á miðum frá Hornafirði til
Snæfellsness.
Litil hækkun verður á karfa.
tæp 9%, enda stendur hann illa á
markaðinum. Þetta mun vafa-
laust þýða, að togararnir snúa sér
frá karfa og að þorskveiðum i
miklum mæli.
Steinbitur hækkar aðeins um
10,2%. Ýsan verður upp úr sjó á
sama verði og þorskurinn, sem
þýðir, að hlutur hennar rýrnar.
Þessu veldur, að viðskiptavinum
okkar erlendis geðjast ekki jafn-
vel að ýsu og þorski, svo sem i
Ameriku. Ofurlitil hækkun verður
þó á ýsu yfir 54 sentimetrar.
Klofningur varð i yfirnefnd, og
var verðið samþykkt með at-
kvæðum oddamanns, annars
fulltrúa kaupenda og annars
fulltrúa seljenda gegn atkvæðum
eins fulltrúa kaupenda og eins
fulltrúa seljenda. „Okkur þótti
það ábyrgðarhluti að draga
þetta lengur, svo að við lögðumst
á höggstokkinn”, sagði Ingólfur
Ingólfsson, fulltrúi sjómanna, i
viðtali við Visi i morgun.
Verði á loðnu til
bræðslu sagt upp
Verð á loðnu til bræðslu var
bundið gengi, og var þvi sagt upp
af seljendum i fyrrakvöld. Yfir-
nefnd fæst i dag við þann vanda
að semja um nýtt verð. A meðan
mun þaðfrestast að ganga endan-
lega frá almenna fiskverðinu.
Framangreindar upplýsingar eru
þvi birtar með þeim fyrirvara, að
ekki er búið að ganga til fullnustu
frá verðlagsmálunum.
—HH
Bensínið hœkkar Fargjaldið til útlanda
— baksíða hœkkar — baksíða