Vísir - 17.02.1975, Blaðsíða 1
VÍSIR
65. árg. — Mánudagur 17. febrúar 1975 — 40. tbl.
LANGAÐI ÞÁ í VODKA OG KAVÍAR?
Leigubílstjóra, sem leið átti um Garðastræti að- um og siðan reynt að komast úr honum niður i kjall-
faranótt sunnudagsins, þótti það heldur kyndugt, að ara hússins. Á kjallaranum er nokkuð rammgerð
sjá bilskúr sovézka sendiráðsins standa opinn. hurð og urðu þvi þjófarnir að gefast upp i viðureign-
Hann tilkynnti þvi lögreglunni um þetta og kom innj við hana. Ekki varð þvi fengur þjófanna stór,
hún á staðinn til nánari athugunar. Kom þá i ljós, að en sennilegt er að þeir hafi sigtað á vodka- og
brotizt hsfði vgfíö inn 1 sovézks SGndiráðið. ksvisrbirgðir SGndiráðsins
Innbrotsþjófarnir höfðu spcnnt upp harð á bilskúrn- _ jg
Einvígið
verður hóð
í Manilo
Filippseyingar bjóða næsta
heimsmeistara i skák 5,4
milljónir dollara i sigur-
verðlaun. Sá sigraði fær 1,6
milljónir.
Max Euwe forseti alþjóða
skáksa m ha ndsins hefur nú
lýst þvi yfir, að heims-
meistaraeinvigið verði haldið
næst i Manila.
Sjá bls. 5
STALU SAMSKOTA-
FÉ ÚR KIRKJU
Óráðvandir menn brutust inn
i Háteigskirkju aðfaranótt
sunnudagsins og höföu á brott
með sér peninga úr samskota-
bauk kirkjunnar.
Innbrotsmennirnir komust inn
um kórdyr kirkjunnar. Frammi
i anddyri er baukur með fram-
lagi kirkjugesta til kirkjunnar
og höfðu þjófarnir innihald hans
á brott með sér, hversu mikið
sem það nú var. Ekki hreyfðu
þér við kirkjumunum eða
altarisgripum að séð verði.
-JB.
Olíufurst-
arnir
kaupa hlut
í Pan Am
— sjá bls. 5
Jörgensen
heim í dag
Danski forsætisráðherr-
ann Anker Jörgensen hefur
hér skamma dvöl, þvl að
hann fer heiin strax i dag
vegna þungra vandamála
heima fyrir. Hann þarf að
stappa stálinu i stuðnings-
mcnn sina og finna haldreipi
fyrir m in n ih I uta st jórn
jafnaðarmanna sem stendur
tæpt. _ hh
JARNGíRÐUR FANNST
SOKKIN í MORGUN
Liggur skammt vestan Jökulsár á Breiðamerkursandi
Járngerður GK 477 fannst i
morgun sokkin um 5-400 metra
undan landi, sem næst tvær milur
vestan ósa Jökulsár á Breiða-
merkursandi. Það var björgunar-
skipið Goðinn, sem fann Járn-
gerði.
Skipið var eitt af „tappa-
togurunum” svonefndu, sem
smiðaðir voru 12 talsins i
Stralsund i Austur-Þýzkalandi
árið 1958 230 brúttólestir að stærð
samkvæmt Skipaskrá Siglinga-
málastofnunarinnar.
Talið er, að Járngerður hafi
fengið á sig brotsjó i vonzkuveðri
á sjötta timanum i gærkvöldi, en
var þá á leið austur með landinu
og var nokkru vestan við
Jökulsárósa. Skipið hafði tilkynnt
180 tonna loðnuafla.
Járngerður lagðist snögglega á
hliðina, og ekki var um annað að
ræða en að yfirgefa hana þegar i
stað. Skipverjar, 13 talsins,
komust i gúmbát og yfir i Þor-
stein RE, sem var þar nærstadd-
ur. Þrátt fyrir mikla veðurhæð
gekk það áfallalaust. Þorsteinn
RE kom til Seyðisfjarðar um
fimmleytið i nótt og var ætlunin,
að skipbrotsmenn kæmust suður i
dag.
Útgerðarfélagið, Hópsnes hf. og
Sam vinnutryggingar báðu
Björgunarsveit Slysavarnafélags
íslands á Höfn i Hornafirði að
huga að skipinu við Jökulsárósa,
með það fyrir augum að reyna að
bjarga þvi, ef það ræki upp
Björgunarsveitarmenn héldu á
staðinn i gærkvöldi en sáu ekkert
fyrir nætursorta og stórbrimi.
Þeir héldu þá til Fagurhólsmýrar
en ætluðu að fara aftur að ósunum
með morgninum. Sambandslaust
var við Fagurhólsmýri i morgun,
Járngerður GK 477 Ljósm. G.S
en loftskeytastöðin á Höfn fékk
svo á tiunda timanum þær fréttir
frá Goðanum, að Járngerður væri
fundin.
Skipstjóri á Járngerði var
Birgir Guðjónsson. -SH
Þeir voru byrjaðir að telja vinbirgðirnar og breyta verðinu i áfengisútsölunum snemma f morgun. Og
þeir verða að fram á nótt. Þessi Ijósmynd var tekin f Laugarásútsöiunni skömmu fyrir hádegi. —
Ljósm.: Bragi.
Dýrt að
vera ekki
reglusamur:
VISKIFLASKAN
2600 KRÓNUR
I
— og sígarettupakkinn í 146 krónur
„Starfsmenn okkar i
áfengisútsölunum vinna við það
i allan dag og fram á nótt að
gcra bæði vörutalningu og
verðbreytingar, en nú liggur nýi
verölistinn fyrir,” sagði Jón
Kjartansson, forstjóri ATVR i
viötali við Vísi f morgun. Og
hann nefndi nokkur dæmi um
hækkanirnar, sem verða á
áfengi og tóbaki sökum gengis-
feilingarinnar.
„Viski, sem kostaði áður kr.
2150 kostar á morgun kr. 2600,”
byrjaði Jón. „Pólskt vodka, sem
kostaði áður kr. 1960 hækkar i
kr. 2350 og rússneskt i kr. 2460.
Okkar islenzka Tindavodka
hækkar i sama prósentvis og
kemur til með að kosta 2100. Þá
má geta þess, að islenzkt brenni
vin kostar eftir hækkunina kr.
1670 og ákavitið okkar fer i kr.
1730.”
Hækkunin á ofangreindum
vintegundum e- 20 prósent.
Koniak, kampavin og likjör
hækka hins vegar meira, eða
um 25 prósent, að sögn Jóns.
Léttu vinin hækka minnst, eða
um 17 prósent, sem að visu er
dágóð hækkun lika.
„Þið ættuð að láta þess getið,
svona mönnum til örlitillar
hugarhægðar,” sagði Jón eftir
þessa upptalningu, „að þeir eru
i dag að hækka verð á vini i
Finnlandi. Þar hækka létt vin
um 30 prósent”.
Verð á tóbaki hækkar um 15
prósent. „Eftir hækkunina 2.
desember siðastliðinn kostaði
Viceroy, Camel og Winston kr.
127,” sagði Jón. „Nú hafa þess-
ar tegundir hækkað um 15
prósent, og kosta kr. 146
pakkinn. Og pakki af Raleigh,
serrrkostar i dag kr 120, kostar
út úr búð á morgun kr. 138.”
-ÞJM.
Þing Norðurlandaróðs
Tve/r dagar
til lítils
Það var mál fréttamanna,
sem fylgdust með fundum á
þingi Norðurlandaráðs um
helgina, að tveir fyrstu dag-
arnir hefðu farið til litils.
Þá stóðu almennar
umræður á þinginu, eins og
venja er i byrjun þinga ráðs-
ins. Hver ræöumaöur á fætur
öðrum lýsti ágæti norrænnar
samvinnu, en með örfáum
undantekningum kom ekkert
fram, sem kalla mætti
markvert.
Fréttamenn frá öðrum
Norðurlöndum tindu þó
dyggilega saman það, sem
sagt var, og sendu með fjar-
ritum I Þjóöleikhúsinu til
sinna heimahaga. Sjá bls. 3.
Norski iðnaðaráð-
herrann staðfestir:
Ál og ferró-
silísium
vinnsla ef
íslendingar
vilja
„Norsk fyrirtæki hafa mik-
inn áhuga á uppbyggingu
orkufreks iðnaðar á Islandi,
einkum áli og ferrosilisíum,”
sagði norski iðnaðarráðherr-
ann Johan Ingvald Ulveseth, i
viðtali við Visi.
„Eftir er að koma i ljós, að
hve miklu leyti islenzk stjórn-
völd sjá hag i þessari sam-
vinnu. Þetta er á umræðu-
stigi.”
Ráðherrann sagði, að
norska stjórnin hefði enn ekki
haft málið i höndum. en hún
fylgdist vel með þróuninni.
Þetta væri fyrst og frenrsi má'
efni fyrirtækjanna norsku.
Hann ininnti á, að norræn
samvinna um iðnaöarmál
væri enn ekki jafnvel á vegi
stödd og á sumum öðrum svið-