Vísir - 17.02.1975, Side 11
Vlsir. Mánudagur 17. febrúar 1975
Vlsir. Mánudagur 17. febrúar 1975
11
Heimsmet í
frjálsíþróttum
Dwight Stones, USA setti nýtt heimsmet I há-
stökki innanhúss — stökk 2.27 m á múti I
Oklohoma i gær. Hcinismet hans utanhúss er
2.29 m en eldra metið innanhúss var 2.26 m sett
fyrir nokkrum vikum. A móti I Prag á laugardag
setti Helena Fibingerova, Tékkóslóvakiu, nýtt
heimsmet innanhúss i kúluvarpi kvenna —
varpaði 21.13 m. Hún átti eldra metið 20.75 m.
Francie Larrieu. USA, setti þrjú heimsmet um
helgina. Fyrst hljóp hún 1500 á 4:10.4 min. I
Toronto á föstudag, en I gær hljóp hún mílu á
4:29.0 min I San Diego, Kalifornlu, og millitlmi
hennar i 1500 m var þá 4:09.9 m. Paola Pigni á
heimsmetið utanhúss I mituhlaupi 4:29.5 mín. og
hljóp italska stúlkan á þeim tima 1973. Filbert
Bayi, Tanzanlu, hljóp mflu á sama móti á 3:56.4
mln. 3ji bezti hcimstíminn og sigraði Rich
Wohlhuter, sem hljóp á 3:58.4 min. Þaö er fyrsta
tap Rich I 18 mótum. Johnny Walker, Nýja-Sjá-
tandi, varö annar i hlaupinu á 3:56.9 mln.
Heimsmetiö innanhúss á Tony Waldrope, USA,
3:55,0 min. -hsim.
Þó kom tap hjó
Standard Liege
Standard Liege, liöið, setn Asgeir Sigurvins-
son leikur með I Bclgiu, tapaöi i gær fyrir
Lokeren 1-0 á útivelli. Molcnbeek vann 3-1 á úti-
velli, Beershot. Anderlecht vann Bcringen 4-0. 1
Hollandi unnu efstu liðin. Eindhoven Excelsior
7-0, Twente-Ajax 1-3, Fcjenoord-IIaarlem 4-0. 1
Vestur-Þýzkalandi urðu helztu úrslit á laugar-
dag. Bayern-Stuttgart 1-1, Tennis Borussia,
Berlin-Borussia Mönchengladbach 1-3, Kickers
Offenbach-Herta, Berlin, 3-1,
Hamborg-Frankfurt 3-1, og Dusseldorf-Köln 3-0.
A italiu vannJuventus Varese 3-0 og Lazio vann
Sampdoria 2-0 á útiveili. Inter, Milanó tapaöi
heiina fyrir Ascoli 0-1, og Fiorentina og AC
Mialnó gerðu jafntefli 1-1. hslm
Borðtennisinn
er Ungverja!
Istvan Jonyer, Ungverjalandi, varð heims-
meistari i borðtennis á HM i Kalkútta I gær.
Sigraði Júgóslavann Anton Stipancic I úrslitum
17-21, 12-21, 21-14, 21-15 og 21-19. 1 tviliöaieik
karla varð hann heimsmeistari með Gabor
Gregely. Þeir sigruðu Júgóslavana Dragutin
Surbek og Stipancic 21-14, 19-21, 21-16, og 21-16 i
úrslitum. t einliöaleik kvenna varð Sun Kim,
N-Kóreu, heimsmeistari. Vann Chang li, Klna, I
úrslitum 24-26, 21-12, 21-14, og 21-15. I tviliöaleik
kvenna sigruðu Maria Alexandru, Rúmeniu, og
Shoko Takahaski, Japan, Chu Hsing Yun og Lin
Mci Chin, Kina, I úrslitum 21-18, 9-21, 21-9 og
21-14. t tvfliöaleik léku tvösovézk pör til úr-
slita. -hslm.
Fimleikamót
Hið árlega fimleikamót Armanns verður
haldið I íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar i kvöld
og hefst það kl. 19.00.
Keppt verður ikarlagreinum. Meðal keppenda
eru allir beztu fimleikamenn landsins og má
búast við skemmtilegri og harðri keppni á milli
þeirra.
Annaö kvöld — á sama tima — verður svo
keppt i kvennaflokki og fer sú keppni einnig
fram I Iþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar.
Sigraði í fjórum
greinum af fimm!
Ungur piltur frá Selfossi — Þráinn Hafsteins-
son —■ sigraði I fjórum greinum af fimrn I
dregnjaflokki á Stúlkna- og drengjameistara-
móti islands I frjálsum Iþróttum innanhúss,
sem haldið var um hclgina.
Bezta afrekinu náði hann I kúluvarpi, en þar
kastaöi hann 14,80 metra, sem er mjög gott. t
þrlstökki stökk liann 8.78 mctra, og I hástökki
1.75 metra. Þá sigraöi hann I hástökki án at-
rennu — meö 1.40 inetrum.
Eina greinin, sem hann sigraði ekki I, var i
langstökki án atrennu. Þar sigraði Helgi Jóns-
son FH, stökk 2.94 metra.
Stúlkurnar kepptu I tveim greinum. Þórdls
Gisladóttir ÍR sigraði I hástökki með atrcnnu,
stökk 1.50 metra og Margrét Grétarsdóttir I
langstökki án átrennu en hún stökk þar 2.42
metra. _ klp—
Umsjón: Hallur Símonarson
Llnu- og hornamaðurinn örvhenti hjá Vlking, Jón Sigurðsson, skoraði tvö afar þýðingarmikil
mörk fyrir lið sitt I leiknum við Fram i gærkvöldi. A myndinni að ofan hefur hann sloppið framhjá
Kjartani, Hannesi og Stefáni og eftirleikurinn var auðveldur.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Efstir - en betur
mó ef duga skal!
— Víkingur vann Fram 17:15 ó sterkri vörn og góðri j
markvörzlu og er í efsta sœti í 1. deild
Vlkingur sigraði Fram i 1.
deildinni i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi og hefur tapað fæstum
stigum allra liðanna — einu
minna en FH og þremur minna en
Valur. Liðiö stendur þvl vel aö
vlgi I keppninni um tslands-
meistaratitilinn, en það veröur þó
að leika betur I þeim leikjum,
sem eftir eru, en raunin var I gær-
kvöldi, ef það ætlar sér sigur i
mótinu.
Leikur Fram og Vikings var
slakur — en Vikingur vann á góðri
vörn og ágætri markvörzlu Sigur-
geirs Sigurðssonar. Hins vegar
var óvenjulitill broddur I sókn
Vikings — nokkrir þrumufleygar
Einars Magnússonar I fyrri hálf-
leik — og svo afar þýðingarmikil
mörk bræðranna Jóns og Viggós
Sigurðssona undir lok leiksins,
þegar þeir skoruðu báðir tvivegis
og tryggðu sigurinn 17-15.
Sigurbergur Sigsteinsson lék nú
að nýju með Fram og gerði margt
gott, en liöiö er ekki hið sama og
áður án Björgvins. Mest kom á ó-
vart leikur Kjartans Gislasonar
hjá Fram að þessu sinni — leik-
maður, sem ekki hefur fengið
mikil tækifæri I Framliöinu. Hann
var markhæstur leikmanna liðs-
ins að þessu sinni — stórskytturn-
ar Hannes Leifsson og Pálmi
Pálmason voru heldur daufir.
Það var oft mikil harka i þess-
um leik og dómararnir Magnús
Pétursson og Óli Olsen hefu mátt
taka fastari tökum á brotunum.
Tveimur Vlkingum var vlsað af
leikvelli — einum úr Fram,
markverðinum Jóni Sigurössyni.
Tvivegis dæmdi Magnús vltaköst
á Fram þegar Vikingur hafði
skorað — og bæði vitin mistókust.
Fram skoraði tvö fyrstu mörk
leiksins — og Vikingur loks á 8.
min. Einar með þrumuskoti.
Næstu þrjú mörk voru Vikinga —
og þá misnotaði Stefán Halldórs-
son viti fyrir Viking. 4-2 fyrir
Viking og eftir það hafði liðið allt-
af forustu i leiknum — mest 7-3
um tima i fyrri hálfleik. Staðan i
hálfleik var 7-5 og i siðari hálfleik
tókst Fram tvisvar að minnka
muninn niður i eitt mark, 13-12
eftir 18 min. En á skoraði Jón Sig-
urðsson tvö mörk fyrir Víking og
Vikingur komst i 16-13 og svo 16-15
á lokaminútunni. Viggó tryggði
svo sigur Vikings 20 sekúndum
fyrir leikslok. Mörk Vlkings I
leiknum skoruðu Einar 7 (4 viti),
Viggó 4, Jón 2, Stefán, Erlendur,
Skarphéðinn og Magnús Guð-
mundsson eitt hver. Fyrir Fram
skoruðu Kjartan 4, Hannes 3 (2
viti), Stefán 2, Pálmi 2 (bæði
vlti), Guðmundur Þorbjörnsson 2,
Sigurbergur og Arnar eitt hvor.
— hsim.
Valur var skotinn
niður ó fluginu!
— Ármann vann Val óvœnt en verðskuldað í gœrkvöldi
19:16 og það var fyrsti tapleikur Vals í níu leikjum
Það kom berlega I ljós I gær-
kvöldi hve Valsliðið er háð lands-
Iiðsfyrirliðanum ólafi H. Jóns-
syni. t leiknum við Armann var
Ólafur aðeins skuggi af sjálfum
sér og leikur Vals hrundi. Liðið
átti aldrei möguleika gegn létt-
leikandi Armannsliði. Já, Ar-
mannsliðið með aðeins einn
skiptimann, hafði leikinn I hendi
sér allan tlmann — var aldrei I
hættu — og vann verðskuldað 19-
16 og þessi sigur Armanns setur
strik I reikning efstu liðanna. Þar
hefur Armann þó ekki möguleika
á tslandsmeistaratitlinum —
nema bókstaflega allt snúizt í
lokaumferðunum.
Það voru hetjur i Ármanns-
liðinu i gærkvöldi. Ragnar
Gunnarsson meiddist á knatt-
spyrnuæfingu deginum áður —
var nær máttlaus i vinstri hand-
leggnum — það svo, að klæða
varð hann úr og i fyrir leikinn. En
ekki var hægt að merkja það i
leiknum — Ragnar varði snilldar-
lega allan leikinn. Jens Jensson
var stórhættulegur i vinstra
horninu — lék vörn Vals oft grátt
og skoraði sjö mörk. Þar er
hornamaðurá ferðinni, sem Birg-
ir Björnsson, landsliðseinvaldur,
ætti að reyna i landslið sitt. Óút-
reiknanlegur. Og Hörður
Harðarson, leikmaðurinn, sem
eitt sinn var i Val — en þar voru
ekki not fyrir hann. Hörður var
mjög ógnandi og Valsmenn settu
um tima mann til höfuðs honum
— en það gekk ekki. Armannsliðiö
lék vel — einn sinn bezta leik i
mótinu — og það bar árangur.
Vörnin sterk með Hörð Kristins-
son og Stefán Hafstein sem beztu
menn — og það var ekki hægt að
merkja, að Armann léki án
nokkurra sterkra leikmanna,
t.d. Björns Jóhannessonar.
Þegar Ólafur brást I Valsliöinu
var engin til að hefja upp merkið
— leikurinn beinlinis koðnaði
niöur og þar var Gisli Blöndal
afar gjarn á að draga hraðann og
flétturnar niður. Helzt að fyrir-
liðinn Gunnsteinn Skúlason léti að
sér kveða — en féll þó á þvi hvað
hann lét Ragnar verja frá sér.
Njarðvíkingar misstu af
titlinum og 140 þúsundum!
— Töpuðu fyrir IR 64:69 - Snœfell tapaði bœði fyrir Val og
Ármanni og ÍS vann HSK í 1. deildinni í körfu
Njarðvikingar misstu af lest-
inni I baráttunni um tslands-
meistara titilinn I körfuknattleik á
laugardaginn, er þeir töpuðu
fyrir tR I eina stórleiknum, sem
fram fór um helgina. Þeir misstu
Hka af 130 til 140 þúsund krónum,
sem búið var að heita á þá, ef þeir
sigruðu I leiknum — þeir peningar
verða áfram i vösum heima-
manna.
IR-ingarnir með þá Agnar
Friðriksson og Kristin Jörunds-
son sem máttarstólpa liðsins,
voru þeim erfiðir viðfangs I þetta
sinn. Höfðu Njarðvikingarnir að-
eins einu sinni betri stöðu en þeir i
leiknum, um miöjan fyrri
hálfleik, er staðan var 25:24.
En IR tók aftur forustu — hafði
5 stig yfir I hálfleik 33:28 — og
náðu sunnanmenn aldrei meir en
að jafna við þá. Þegar liðlega 2
minútur voru eftir af leiknum var
staðan 60:60 og allt á suðupunkti,
i húsinu, sem var þéttsetið. Þá
voru Njarðvikingarnir komnir i
villuvandræði — búnir að missa
tvo af sinum beztu mönnum út af
— og þeir réðu ekki viö IR-ingana
á lokasprettinum. 1R skoraði 9
siðustu stigin á móti 4 stigum
Njarðvikinga, og úrslitin urðu
69:64 fyrir Reykjavikurliðið.
Þrlr aörir leikir fóru fram I 1.
deild um helgina — enginn samt
eins þýðingarmikill og leikur 1R
og UMFN. Valur sigraði Snæfell
95:71, og Armann sigraði Snæfell i
gærkvöldi 90:80. Snæfellingarnir
voru lengst af yfir i þeim leik —
41:38, var staðan fyrir þá í hálf-
leik, en I siðari hálfleiknum tóku
Arm enningar af skarið og sigruðu
með 10 stiga mun.
Þá lék 1S við HSK og sigraði
með 7 stiga mun — 78:71 — eftir
að hafa alltaf verið með leikinn i
slnum höndum.
Fjórir leikir verða i 1. deildinni
um næstu helgi, UMFN—HSK,
Snæfell—KR, Ármann—IS og
Snæfell—IR. Um þar næstu helgi
veröa aftur á móti tveir hörku-
leikir — IR leikur við Ármann og
KR við Val.
— klp —
Það vantaði neistann hjá Val —
nokkuð, sem hefur veriö að gera
vart við sig i siðustu leikjum
liðsins I mótinu. Þá hefur mark-
varzlan oft verið betri — bæði hjá
Óla Ben. og Jóni Breiðfjörð.
Ármann skoraði tvö fyrstu
mörkin i leiknum og það liðu
rúmar niu min. þar til Valur
komst á blað. Stefán Gunnarsson
og rétt á eftir jafnaði Gisli úr vlti.
En Armann skoraði þrjú næstu
mörk og greinilegt, að það stefndi
i það óvænta. Þennan mun tókst
Val litið sem ekkert að minnka —
og Ármann hafði þrjú mörk yfir i
lékhléi, 11-8.
Afram héldu Armenningar að
skora i siðari hálfleiknum — voru
fimm mörkum yfir, þegar 11 min.
voru eftir. I tiu min. skoraði
Valur ekki — Ármann komst úr
15-13 i 18-13 og sigurinn var
öruggur. Valur minnkaði muninn
i 18-16, en Jens skoraði svo siðasta
mark leiksins, þegar 40 sekúndur
voru eftir.
Dómgæzla þeirra Jóns
Friðsteinssonar og Kristjáns
Arnar var ekki góð — og ekki
græddu Armenningar á þeim.
Þremur Ármenningum var visað
af leikvelli — engum Valsmanni.
Ármann fékk eitt viti — Valur
fjögur.
Mörk Armanns skoruðu Jens 7,
Hörður H. 4 (1 víti), Pétur
Ingólfsson 3, Jón Astvaldsson og
Hörður Kr. 2 hvor, og Kristinn
Ingólfsson 1. Fyrir Val skoruðu
Gunnsteinn 3, Gisli 3 (1 viti), Jón
Jónsson 3 (2 viti), Stefán, Guðjón
Magnússon og Ólafur 2 hvor,
Ágúst ögmundsson eitt. -hsím.
Jens Jensson átti stórleik I liði
Ármanns — skoraði sjö mörk úr
vinstra horninu, og kom Vals-
vörninni oft úr jafnvægi. Þarna er
leikmaður á ferðinni, sem lands
liöseinvaldurinn ætti að gefa gæt-
ur. Ljósmynd Bjarnleifur.
Þróttur með þrjú
stig frá Akureyri
— Sigraði Þór og gerði jafntefli við KA - KR í vandrœðum
með Breiðablik og Stjarnan í fallhœttu eftir tap fyrir Fylki
Þróttur kemur frá Akureyri
með þrjú stig I pokahorninu eftir
leikina við Akureyrarliöin KA og
Þór I 2. deild nú um helgina.
Þróttararnir sigruðu Þór með 22
mörkum gegn 17 og náðu jafntefli
viö KA I hörkuspennandi leik
21:21.
KA hafði alla möguleika á að
sigra I þeim leik. Þegar 3 mínútur
voru til leiksloka var staðan 21:19
fyrir KA. Þróttur minnkaði i
20:21, en siðan jafnaði Bjarni
Jónsson úr vitakasti á siðustu
minútu.
Þessi leikur var mjög skemmti-
legur og oft vel leikinn af báðum.
Aftur á móti var leikur Þróttar og
Þórs ekki eins góður — mikil
harka og slagsmál á köflum. Hon-
um lauk með sigri Þróttar 22:17.
Staða Stjörnunnar i 2. deild
versnaði að mun um helgina, en
þá léku Garðhreppingarnir við
Fylki úr Árbæjarhverfi. Þeim
leik lauk með sigri Arbæinga
23:17 og eru þeir þar með alveg á
grænni grein i deildinni, en
Stjarnan i yfirvofandi fallhættu.
KR lenti I miklum vandræðum
með Breiðablik suður i Garða-
hreppi I gær og mátti þakka fyrir
3ja marka sigur 23:20. Voru
Breiöablikspiltarnir yfir langt
fram I sfðari hálfleik, en þá
skoraöi KR sjö mörk gegn
tveim á skömmum tlma, og nægði
það I þetta sinn.
Leikurinn var á köflum mjög
skemmtilegur, en þó settu ungir
handknattleiksmenn úr Kópa-
vogi, sem voru meðal áhorfenda,
ljótan svip á hann með óheyri-
legum dónaskap i garð
dómaranna og leikmanna KR.
Voru þeir langt frá þvf að vera
slnu ágæta félagi til sóma. -klp-
Dönsku liðin
óttast Búbba!
- Skoraði 3 mörk með Holbœk í leik við sœnska
1. deildarliðið Halmstad ó laugardaginn
Jóhannes Eövaldsson átti frá-
bæran leik með Holbæk gegn
sænska 1. deildarliðinu Halmstad
á laugardaginn.
Leiknum lauk með sigri Holbæk
4:1 og skoraði Jóhannes þrjú af
mörkum liösins — hvert á gætur
ööru. Koma hans til Holbæk hefur
vakið mikla athygli i Danmörku
— svo mikla, að forráðamenn
nokkurra félaga I 1. deild fóru
fram á, að hann fengi ekki að
leika með Holbæk fyrr en hann
væri búinn að vera a.m.k. sex
mánuði i Danmörku.
Danska knattspyrnusambandið
hélt fund um málið í gær og eftir
því, sem við fréttum frá
Kaupmannahöfn í morgun, taldi
það ekkert þvi til fyrirstöðu, aö
hann léki meö Holbæk i sumar,
þar sem hann væri íslendingur
(?) En málið var ekki endanlega
útkljáö, og á eftir að ræðast á
fleiri stööum innan dönsku
Iþróttahreyfingarinnar. -klp-
Sálfræðingurinn hvetur
leikmennina.
Polli fremstur siðan Lolli, Pétur...
______________________r
Polli leikur á mótherja, gefur
á Lolla.
r
Víkingur
á toppinn
Tveir leikir voru háðir I 1. deild karla I
islandsmótinu I handbolta i Laugardalshöll.
Úrslit uröu þessi:
Armann—Valur
Fram—Vfkingur
Staðan er nú þannig:
Vikingur io 7
Valur ii 7
FH 9 6
Fram n 5
Ármann n 6
Haukar io 5
Grótta 10 1
iR 10 1
Markahæstu leikmenn eru nú:
Hörður Sigmarsson Haukum,
Björn Pétursson, Gróttu,
Einar Magnússon, Viking,
Ólafur J. Jónsson, Val,
Pálmi Pálmason, Fram,
Stefán Halldórsson, Vlking,
Halldór Kristjánss. Gróttu,
Agúst Svavarsson, IR,
Hannes Leifsson, Fram,
Björn Jóhannesson, Ármanni,
Brynjólfur Markússon, 1R,
Hörður Harðarson, Armanni,
Jens Jensson, Armanni,
Jón Ástvaldsson, Ármanni,
Viðar Slmonarson, FH,
GeirHallsteinsson, FH,
Þórarinn Ragnarsson, FH,
Jón Karlsson, Val,
19-16
15-17
197-176 15
218-188 14
192-179 12
206-205 12
187- 195 12
188- 182 10
205-233 4
8 181-216 3
89/28
69/24
53/15
52
48/17
43/15
38/3
37/4
33/7
32/4
32
32/11
32
32/2
32/7
31/2
31/10
30/8
Næstu leikir veröa I Iþróttahúsinu I Hafnar-
firöi miðvikudaginn 19. febrúar. Þá lcika
Grótta—ÍR, kl. 20.15 og slöan Haukar—FH. A
undan veröur ieikur I meistaraflokki kvenna
inilli FH og Breiðabliks.
— hsim.
Stúdentarnir iögðu
Víkingana að velli
Stúdentarnir ruddu hættuleguin keppinaut úr
vcgi I islandsmótinu i blaki I gær. Þá léku þeir
við Vfking i iþróttahúsi Kennaraskólans og
liöfðu 3:1 sigur eflir mikla og haröa baráttu.
í fyrstu hrinunni — lcikið er upp á þrjár unnar
hrinur — sigraði tS 15:9, en i þcirri næstu voru
Vlkingarnir i banastuði og unnu 15:6. Aftur á
móti fór lítiö fyrir þeim i þeirri þriðju, sein
stúdentarnir unnu 15:4.
Siöasta hrinan var hörkuskeinmtileg og góð,
Víkingarnir voru lengst af yfir og vantaði aðeins
einn punkt til að sigra er þeir komust í 14:13. En
þá náðu súdentarnir boltanum og skoruðu þrjú
stig I röö — 16:14 — og þaö nægði til sigurs i
ieiknum.
Mótinu veröur haldið áfrain annað kvöld. en
þá leika á Laugarvatni UMFL og UMFB. Síöan
verða þrir leikir um næstu hclgi, Þrótt-
ur—UMFB, iS—UMFL og ÍMA —Vikingur.
— klp —
Mikið skorað í
bikarkeppninni
Víkingur og Valur háöu ægilega skotkeppni I
fyrstu umferö bikarkeppninnar i handknattleik
á föstudagskvöldið, en þá fóru tveir leikir fram i
Laugardalshöllinni.
Valsmenn sigruöu i leiknum — skoruðu 29
mörk, en vikingarnir sendu boltann 25 sinnuin í
netiö hjá þem**. I hálfleik var staöan 12:11 fyrir
Val. Gisli Blöndal var markhæstur Vaismanna
með 6 mörk. en Guðjón Magnússon, sem nú lék I
fyrsta sinn á inóti slönuin gömlu félögum skor-
aði 5 inörk. Hjá Vikingi var Páll Björgvinsson
markhæstur mcð 7 mörk.
Ilörður Sigmarsson var að vanda markhæstur
llauka er þeir slógu Armann út úr keppninni
mcð 17 mörkum gegn 15. Skoraði hann 6 mörk I
leiknum, sem var heldur daufur. Þá sigraði FH
Gróttu i gærkvöldi með 10 marka mun 29:19. t
hálfleik varstaðan 19:13 fyrir FH —eða 32 mörk
á 30 ininútum. Siöasti leikurinn i 1. umferöinni
verður um næstu helgi þá leika á Akureyri KA
og Þróttur.
— klp —