Vísir - 17.02.1975, Síða 13
Vlsir. Mánudagur 17. febrúar 1975
13
Gestirnir sjó um þorstann
L síðaim j — gestgjafarnir um hungrið
Umsjón: Erna
V. Ingólfsdóttir
Við ætium að hafa opið
hús á næstunni. Allir vin-
irnir koma og þeir geta
orðið anzi margir. Það
gerir ekkert til þó að við
vitum ekki um fjöldann,
því að hver ætlar að koma
með flösku með sér. Það
eina sem við sjáum um að
þessu sinni er að eitthvað
sé til i húsinu til að narta
í.
Aður fyrr þótti ekki fært að
halda veizlu, nema gestgjafinn
legði til bæði vin og matföng. Nú
er það sem betur fer að verða æ
algengara að gestirnir sjái um
guðaveigarnar, enda þær orðn-
ar, svo að ekki sé meira sagt
óhóflega dýrar. Þetta þýðir auð-
vitað að vinir geta blandað geði
oftar, yfir svo sem einu glasi, án
þess að gestgjafinn þurfi að
byrja strax að vinna fyrir næstu
veizlu.
Mest er um vert að allir
skemmti sér, og til þess höfum
við sett glös, kartöfluflögur og
idýfur hér og þar um ibúðina,
svona til að leggja áherzlu á að
allir setjist ekki t.d. í kringum
eina sófaborðið á heimilinu. Það
verður einnig að sjá um að þeir
sem þekkjast fyrir komi sér
ekki saman i klikur. Meiningin
með þessu boði er reyndar að
kynnast nýju fólki. Ekki þar
fyrir að maður eigi að starida i
þvi allt kvöldið að skilja fólk að,
það gæti eyðilagt stemmning-
una. En ef það er gert á réttan
máta má eiga von á að þessi,
sem virkaði svona einstreng-
ingslegurfyrr um kvöldið, reyn-
ist vera hinn allra skemmtileg-
asti náungi.
Maturinn i þessa veizlu getur
verið afar einfaldur, t.d. sildar-
réttur, Peking-pottur og apri-
kósuábætir. Uppskriftirnar
koma hér á eftir. Þetta er aðeins
uppástunga og hæglega mætti
aðeins hafa réttina tvo, t.d. einn
heitan rétt og ostabakka á eftir,
eða bara sildarfat og pylsur.
Allan mat og drykk er ágætt
að setja á svona heimagerðan
bar eins og við sjáum á mynd-
inni. Við látum hvort tveggja
bara vera þar allt kvöldið. Þá
geta allir fengið sér þegar þá
langar i.
Borðið eða barinn er búið til
úr spónaplötum, sem laghentur
húsbóndi gæti gert i fljótheitum,
en auðvitaö má lika nota eldhús-
eða borðstofuborðið. . Ef vant-
ar litil borð til þess að borða við
eru eldhúskollarnir upplagðir. A
þá má setja litla dúka eða
munnþurrkur til að gera þá
dálitið skemmtilegri.
Hér koma svo matarupp-
skriftir:
Síldarfat
10-15 marineruð sildarflök
ásamt 4-5 niðurskornum lauk-
um, 1/2 dós saxaðar rauðbeður,
4 harðsoðin egg, 1 peli þeyttur
rjómi, Lhrá eggjarauða.
Sildin skorin i bita og raðað á
stórt kringlótt fat i miðið, laukn-
umraðaðutan með,þá söxuðum
rauðbeðum. Harðsoðnum
eggjarauðunum og þeyttum
rjómanum blandað saman og
sprautað þar utan með og siðast
söxuðum eggjahvltunum. Hráa
eggjarauðan sett i miðjuna.
Peking-pottur
2 kg. svinakjöt, nautakjöt eða
lambakjöt, 2-3 tsk. karri, 4 msk,
hveiti, u.þ.b. 1 litri kjötkraftur
eða vatn, 3/4 selleri (eða selleri-
salt) 1/2 blómkálshöfuð (má
sleppa), 4 laukar, 2 epli, 2 stk,
grænn pipar, 1/2 dl. kinversk
soja, salt og pipar, 1/2—3/4 dl.
matarolia, 100-125 gr. möndlur,
laussoðin hrisgrjón.
Skerið kjötið i 1 sm þykkar
sneiðar og siðan I litla bita.
Brúnið i þykkbotnuðum potti
ásamt karriinu. Snúið kjötinu og
gætið þess að það brenni ekki
við, stráið hveitinu yfir og hellið
soðinu eða vatninu yfir smám
saman. Látið lok yfir og sjóðið i
10 min.
Skerið niður selleriiö i grófa
bita og skiptið blómkálinu, sax-
ið eplin, skerið laukinn i litla
báta, hreinsið piparinn og sker-
ið niður.
Hitið oliuna á stórri pönnu.
Steikið grænmetiö og eplin sam-
an á pönnunni — ekki endilega
allt saman I senn. Látið saman
við kjötið I pottinum og bætið
salti, pipar og soju út i. Látið
réttinn sjóða i aðrar 10 mín.
Hreinsið möndlurnar og skerið i
ekki mjög litla bita eftir endi- ,
löngu með beittum hnif. Steikið
þær nokkur augnablik á pönnu
án þess að hafa feiti og setjið i
pottinn. Berið fram strax.
Það er hægt að laga réttinn
fyrir fram og hita hann upp, en
möndlurnar má ekki setja i fyrr
en hann er borinn fram til þess
að hann fái rétta bragðið. Einn-
ig ætti suöutfmi að vera lengri á
kjötinu ef t.d. er notað kinda-
kjöt.
Agætt er að drekka þurrt hvit-
vln með þessum rétti.
Apríkósuábætir
400 gr. þurrkaðar aprlkósur,
u.þ.b. 1/2 1 rjómi, sykur eftir
smekk og vanilla. Rifið súkku-
laði.
Leggið aprikósurnar i bleyti
kvöldið áður en þær eiga að not-
ast, þannig að vatnið fljóti yfir.
Sjóðið þær i 15 min. og setjið
vanilludropa út i. Takið 12-14
aprikósur frá og komið hinum i
gegnum gróft sigti. Setjið sykur
út I. Látið kólna. Þetta er auð-
vitað allt hægt að gera daginn
fyrir veizluna.
Þeytið rjómann og blandið
saman við aprlkósustöppuna.
Setjið I skál. Skreytið með
aprikósunum, sem teknar voru
frá i upphafi, og rifið súkkulaði
yfir. Einnig má setja ábætinn i
litlar skálar.
FLORIDA
AUGLVSINGASTOFA KRISTINAH 36.2
svefnsófasett.
Meó sófasettinu FLORIDA kynnum vió merka
nýjung. Sófinn er jafnframt fullkomió hjónarum
af beztu geró, þótt engan - gruni vió fyrstu sýn,
aó um svefnsófa sé aó ræóa.
KJORGARÐI SIMI 16975