Vísir - 19.02.1975, Blaðsíða 3
Vísir. Miðvikudagur 19. febrúar 1975.
3
Hefur bjargað um 7000
mannslífum frá upphafi
— Slysavarnafélag íslands hleypir nú af stað þriðja landshappdrœtti sínu
Ennþá vantar fjarskipta-
búnaö i 40 af 94 björgunar-
skýlum S ly sa va rna f éla gs
islands. Siðást, þegar gengið
var frá talstöðvarbúnaði f skip-
brotsmannaskýli, kostaði það
um 80 þúsund krónur. Meðal
annars til að hrinda þessum
málum fram er Slysavarna-
félag islands nú að byrja með
þriðja landshappdrætti sitt.
t happdrættinu eru 50 þúsund
miðar, en vinningar eru tuttugu.
Verðmætastur þeirra er Citroen
Ami 8, en forvitnilegastur
liklega slöngubátur, Zodiac
Mark III, 15 feta, með 20 ha.
utanborðsvél. Af öðrum
vinningum má nefna vélsleða,
reiknitölvur og borvélar.
Slysavarnadeildirnar um land
allt sjá um sölu miðanna og fá i
sölulaun fjórðung af „óskiptum
afla”, en heildarsamtökin
greiða allan kostnað við happ-
drættið af sinum hluta
teknanna.
Sem dæmi um sölulaun af
happdrættinu og hvernig þeim
er varið, má nefna, að
björgunarsveitin Ingólfur fékk i
sinn hlut af siðasta happdrætti
um 300 þúsund krónur, sem
dugði til að kaupa vélsleða, ný
dekk á sjúkrabil sveitarinnar og
búninga á sveitarfélaga. Þannig
er öllum ágóða af happdrættinu
variö til að efla slysavarna-
starfið um allt land, en ekkert af
honum rennur til daglegs
reksturs félagsins.
Heildarhagnaður af happ-
drættinu siðast var tæpar f jórar
milljónir króna, og þar af fengu
hinar ýmsu slysavarnadeildir
um eina og hálfa milljón. Fjár-
öflun af þess tagi gerir mögu-
legt að búa sveitirnar svo sem
þarf og efla búnað til slysa-
varna og björgunarstarfs, hverj
nafni sem nefnist.
1 Slysavarnafélagi Islads eru
nú um 30 þúsund félagar, þar af
um 12 þúsund konur, en þær
halda einmitt sina fjáröflun nú
um helgina, laugardag og
sunnudag.
Slysavarnadeildir viðs vegar
um landið eru nú 208 talsins, en
björgunarsveitir eru 78. A 47 ára
ferli sinum hefur Slysavarna-
félag íslands bjargað 7000
mannslifum, þar af 2000 með
linutækjum. Sem dæmi um
björgunarstarfið af sjó má
nefna.að á árunum 1966 til 1969
bjargaði Slysavarnafélagið 55
islenskum sjómönnum en 45
erlendum úr ströndum, 1970-72
31 islenskum, 1973 26 islenskum
en 10 erlendum, og 1974 8
islenskum en 13 erlendum.
—SH
Snögg umskipti
„Á Gísli Halldórsson
tvifara?" Þannig spyrja
margir sjálfa sig jáegar
þeir sjá leikritið ,,Fló á
skinni", og verða vitni að
því, að leikarinn gengur
út um dyr til vinstri á
sviðinu, og þá í hlutverki
forstjóra, en eftir fáeinar
sekúndur kemur hann
askvaðandi inn um dyr til
hægri og þá í hlutverki
þjónræfils. Þannig hefur
Gisli hamskipti hvað eftir
annað og vekur alltaf
jafn mikla furðu áhorf-
enda, sem trúa vart sin-
um eigin augum.
Á myndinni hér að ofan sjáum
viö hvar Gisli er að dubba sig
upp i hlutverk Pose. Hann fer i
Allir
fengu
skíði í
Skála-
túni
Vistmenn Skálatúns ættu nú
að geta iökað skiðaiþróttina af
kappi, en þeir fengu hátt á
annað hundrað pör af skiðum,
mikið af fatnaði og skiðaskóm.
Allir fengu þvi skiði.
Visir birti frétt, þar sem
óskað var eftir skiðum, sem
fólk mætti missa, fyrir stuttu,
og þetta er árangurinn. Þar að
auki bárust svo félaginu 11
þúsund krónur i peningum.
Sá útbúnaður, sem ekki
verður notaður i Skálatúni,
verður gefinn öðrum sanis-
konar heimilum. Stjórn
félagsins vill koma á framfæri
alúðarþökkum til allra þeirra,
sem eitthvað lögðu af mörk-
um.
-EA.
á Gísla
þjónsbúninginn utanyfir jakka-
fötin og virðist ekki fara sér að
neinu óðslega. Sér til aðstoðar
hefur hann tvær stúlkur, sem
biða eftir honum með búninginn
og flýta fyrir honum viö um-
skiptin.
Þess má að lokum geta, að
„Flóin” verður á sviði Iðnó á
föstudagskvöld og er sú sýning
númer 241 i röðinni. Fer sýning-
um nú óðum að fækka.
—ÞJM/ljósm: Bj.Bj.
-M- ' i “*•
Til höfuðs
Eurovision:
íslenzkir
tónlistar-
menn á mót-
mœlahátíð
Til höfuðs Eurovision söngva-
keppninni, sem haldin verður i
Stokkhólmi I marz, verður á
sama tima haldin önnur tónlistar-
hátið, sem ber nafnið Alternative
Music Festival.
A þessari hátið koma fram alls
lags tóníistarmenn viða að úr
Evrópu, en þó verða þeir flestir
frá Norðurlöndunum. Islendingar
eiga einnig fulltrúa á þessari
hátið og eru það jasshljómsveit
Gunnars Þórðarsonar, trúba
dúrinn örn Bjarnason, Þrjú á
palli og Þokkabót.
Hátiðin fer fram i þrem stórum
hljómleikasölum i Stokkhólmi
dagana 17. til 22. marz og er til-
gangur hennar meðal annars sá
að sýna, að tónlistarlif i Evrópu
hafi upp á margt annað að bjóða
en það.sem fram kemur á Euro-
vision hátiðinni. Norræni menn-
ingamálasjóðurinn styrkir þessa
hátið og munu sjónvarpsstöðvar á
Norðurlöndunum taka upp efni á
henni.
Islenzkt kvöld verður fimmtu-
daginn 20. marz og koma þá is-
lenzku hljómlistarmennirnir
fram.
—JB
Sjá fram á
hreint tap:
Búnir að
selja, —
eiga
eftir að
borga
hráefnin
„Það er alveg ljóst að allir iðn-
rekendur þurfa að fá hækkanir,
sérstaklega vegna þess að þeir
kaupa almennt hráefni með
gjaldfresti, og samkvæmt venju
þá mun verða leyft að hækka
birgðir sem nemur gengisbreyt-
ingunni”.
Þetta sagði Haukur Björnsson
framkvæmdastjóri Félags is-
lenzkra iðnrekenda, þegar Visir
hafði samband við hann.
„Fyrirtæki eru jú sum i þeirri
slæmu aðstöðu”, sagði Haukur
ennfremur, „að þau eru þegar
búin að selja vörur úr hráefnum,
sem eftir á að greiða, og það er
náttúrlega beint tap. En þá riður
á að fá hækkanir fyrir hráefna-
hækkununum til þess að þurfa
ekki lengur að selja þetta undir
kostnaðarverði”.
25% hækkun varð á hráefni t.d.
i málmiönaði, járnvöruiðnaði og
sælgætisiðnaði, þvi sem keypt er
erlendis frá. Haukur á sæti i verð-
lagsnefnd, og sagði hann, að hún
hefði komið saman i fyrsta sinn
eftir gengisbreytinguna á mánu-
dag, en þangað þarf aö sækja um
allar hækkanir. Hann sagði, að
aftur yrði fundur nú á fimmtudag
eða föstudag.
„Þannig að þetta fer nú smátt
og smátt að koma i ljós, en enn
sem komið er, er þetta allt á
huldu”.
—EA