Vísir - 19.02.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Miðvikudagur 19. febrúar 1975.
7
fara í vöxt
umfangsmikla lögreglurannsókn
hefur ekki sézt tangur eða tetur af
listaverkunum, og dr. Siviero er
orðinn sannfærður um, að það sé
búið að smygla málverkunum úr
landi.
Þessa gripi, sem hér um ræðir,
er nær ógerningur að verðleggja.
En þrátt fyrir þau verðmæti,
sem þarna hafa horfið, þykir hitt
þó ekki siður iskyggilegt, að nær
daglega eru framdir minniháttar
listaverkaþjófnaðir, þar sem um
er að ræða gifurleg verðmæti
lika, þegar allt er tint til.
Þessir þjófnaðir eru orðnir svo
hversdagslegir, að menn gefa
þeim naumast gaum lengur.
Þessa ellefu daga, sem liðu
milli þjófnaðar i Urbino og
Milanó, urðu tiu þjófnaðir á
minna þekktum listaverkum,
eftir þvi sem dr. Siviero hefur
upplýst fréttamenn. Þvi til við-
bótar er svo tilraun þjófa til að
stela verki eftir Titian i Feneyj-
um, en hún fór út um þúfur.
Það er kunn staðreynd, að af-
brotum hefur fjölgað geipilega á
Italiu siðustu árin, og standa yfir-
völd nær ráðþrota gagnvart þess-
um vanda. Einkum hefur borið á
fréttum af hrottalegri glæpum,
eins og morðum og mannránum.
A hinu hefur ekki borið eins
mikið, að ítalia, þar sem ein-
hverjir mestu listafjársjóðir
heims eru samankomnir, er orðin
einskonar gósenland listaverka-
þjófa. Á meðan liður að þvi, að
landið haldi hátiðlega, að fimm
aldir eru liðnar frá fæðingu
Michelangelo og blasir þá við sú
sorglega staðreynd, að sá arfur,
sem hann lét eftir sig, fer ört
þverrandi.
Stjórnvöld og menningarvitar
eru fyrstir til að viðurkenna, að
þama er um að ræða vandamál,
sem þolir enga bið. Giovanni Spa-
dolini, menntamálaráðherra,
fékk fréttirnar áf þjófnaðinum i
Urbino i sömu mund og hann var
að leggja fyrir þingið tillögu um
að efla öryggisgæzlu við listasöfn
þjóðarinnar.
Mörg lög hafa verið sett og
hundruð ræður fluttar um þetta
mál. En þar við situr. ,,A Italiu
geta stjórnvöld engum vörnum
við komið gegn þjófum”, heldur
dr. Siviero fram i viðtali við
fréttamann Reuters á dögunum.
Eins og mörgum öðrum list-
fræðingum stendur honum mest-
ur stuggur af hinum ótal þjófnuð-
um á smærri listaverkum, mál-
verkum, myndastyttum og öðrum
listgripum. „Slikir munir eru
hlutar úr sögu byggðarlaga og
ibúanna þar. Ómetanleg arfleifð,
sem enginn vottur er lengur til
af”, segir dr. Siviero.
Hann hefur mátt sjá á eftir
listaverkum, sem hann bjargaði
frá Þýzkalandi, eftir að útsendar-
ar Hitlers höfðu látið greipar sópa
um listasöfn Italiu. Dr. Siviero
var til þess settur af stjórnvöld-
um að bjarga heim aftur lista-
verkum, sem með þeim eða ein-
hverjum öðrum hætti höfðu horfið
Itölum. Hefur doktorinn unnið
þjóð sinni frábært björgunarstarf
á þessu sviði. Einna stoltastur
var hann sjálfur, þegar honum
tókst að endurheimta „Málleys-
ingjann ” eftir Raphael. Það er
að vonum, að manninum sárni að
sjá á eftir henni i ræningjahend-
ur, en hún var meðal þeirra
þriggja málverka, sem stolið var
úr safninu i Urbino.
Þjófaviðvörunarkerfi er ekki
nema i sáralitlum hluta þeirra 400
listasafna eða svo, sem eru á
vegum rikisins á ítaliu. Ducal-
safnið i Urbino var þó einmitt það
safniö,sem taliðvarbezt verndað
gegn þjófum. Þar átti einmitt að
fara að setja upp þjófabjöllukerfi,
en þvi miður hafði það dregizt of
lengi. t Milanósafninu létu þjófa-
bjöllurnar ekkert i sér heyra.
En i augum dr. Siviero og fleiri
sérfræðinga á þetta vandamál sér
MADONNAN FRA SENI-
GALLIA — annað málverk, sem
stolið var úr Ducal-höllinni eftir
sama listamann og HÚÐ-
STRÝKINGIN.
dýpri rætur heldur en bara skort-
ur á þjófavörnum. Þeir segja að
listaverkaþjófnaðir séu aðeíns
litill hluti af almennu hirðuleysi
um þessa dýrmætu arfleifð fyrri
kynslóða.
í fyrra vörðu itölsk stjórnvöld
einungis 1,37% af þvi fé, sem
rennur til menntamála, til við-
halds þeim 30 þúsund kirkjum, 20
þúsund köstulum og 2 þúsund
stöðum, þar sem fornleifafræð-
ingar hafa grafið upp þjóðminjar.
Til listasafnanna er varið ámóta
upphæð og kostar að leggja
tveggja og hálfs kilómetra vegar-
kafla. Rétt svipað og islenzka rik-
ið kostaði til vegagerðartilraunar
Sverris Runólfssonar uppi á Kjal-
arnesi i fyrra.
Fyrir einum átta árum skilaði
þingnefnd skýrslu þar sem kom-
izt var að þeirri niðurstöðu, að
rikið þyrfti að verja tólf sinnum
hærri upphæð árlega — bara til
þess að standa straum af allra
nauösyniegasta viðhaldi á forn-
minjasöfnum og iistasölum. —
Það varð eins og hver annar
dauður bókstafur. —
Yfir söfn landsins eru settir 69
umsjónarmenn i stað 600, eins og
þingnefndin taldi vera lágmarks-
þörf fyrir. Þeir hafa sér til að-
stoðar 1600 starfsmenn safnverði,
i stað þeirra 4200, sem þingnefnd-
in taldi ekki hjá komizt að hafa.
Allir eru hjartanlega sammála
þvi, að safnverðirnir eru smánar-
lega launaðir, enda hefur það leitt
til þess, að 75% mæta ekki til
starfsins sex mánuði ársins, en
liggja heima „veikir”.
Allt þetta hefur leitt til þess, að
meistaraverkin liggja umhirðu-
M ALLE YSINGIN N — eftir
sjálfan Rafael, ómetanleg og
ómögulegt fyrir þjófana að
koma henni i verð á opnum
markaði.
litil i illa gættum söfnunum.
Undrar þvi ekki marga, þótt tala
stolinna listaverka hafi nær tvö-
faldazt frá 1972, en þá hurfu 5,843
listmunir, meðan 10,952 urðu
þjófum að bráð i fyrra.
IIIIIIIIIIII
UMSJONi G. P.
Hjálpar við
námið og
nœstum
hvað sem er
Það getur hjálpað þér til þess að minnka reyk-
ingar og vindrykkju. Það getur hjálpað þér til
þess að komast yfir eiturlyfjanotkun. Það getur
hjálpað þér i námi. Það getur bætt heilsu þina, og
það getur hjálpað afbrotamönnum til þess að
komast á réttan kjöl i lifinu.
Hvað? Hvaða töframeðul eru
þetta eiginlega. Nei, þetta er
ekkert sem við tökum inn i
skeið. Þetta er nokkuð sem við
verðum að hafa fyrir að læra
sjálf, en ekki þó á ýkja löngum
tima, og kallast innhverf ihugun
eða Transcendental Meditation,
ihugunartækni Maharishi Ma-
hesh Yoga.
Maharishi er okkur Islending-
um ekki alveg ókunnur, hann
hefur heimsótt okkur, og svo
varð hann heimsfrægur eftir
það, að Bitlarnir fóru i læri til
hans. Siðar streymdu músikant-
arnir til hans hver á fætur öðr-
um.
En þessi andlega tækni sem
hann hefur kennt hefur nú
breiðzt út um allan heim, og nú
hefur verið stofnað hér félag
sem heitir Islenzka ihugunarfé-
lagið. Félagið starfar i tengsl-
um við International Meditation
Society (IMS), sem hefur höfuð-
stöðvar i Seelisberg i Sviss.
Markmið félagsins eru að
kynna hér á landi og kenna inn-
hverfa ihugun með opinberum
fyrirlestrum og námskeiðum.
Jafnframt þvi sem félagið
stuðlar að almennum visinda-
legum rannsóknum á áhrifum i-
hugunarinnar á einstaklinginn
og umhverfi hans, hefur það á
sinum snærum fræðilega fyrir-
lestra um visindi skapandi
greindar eða Science of Crea-
tive Intelligence eins og segir i
tilkynningu frá, félaginu. Fyrir-
lestar þessir hafa þegar verið
leknir upp á námsskrá ýmissa
æðri skóla i Evrópu og Ameriku.
Félagið starfar að almanna-
heill án ágóða og er öllu fé, sem
það hefur til umráða varið jafn-
óðum i ofangreindum tilgangi.
Aðeins einn getur kennt þetta
hér á landi, en það er Þjóðverji
sem hyggst gera þetta að at-
vinnu sinni hér. Hann talar is-
— andleg tœkni Maharishi, þess er
kenndi Bítlunum og heimsótti
okkur eitt sinn, kennd hér
Mönnum þótti Maharishi Mahesh Yoga hálf kyndugur þegar hann
heimsótti tsland 1963 til þess að boða kenningar sinar. Nú er andleg
tækni hans kennd hcr á landi. Ljósm. Bragi.
Il\lf\l
Umsjón:
Edda
Andrésdóttir
lenzku og stundaði nám hér við
Háskólann fyrir nokkru.
Hann sagði, að mikill áhugi
hefði verið fyrir þessu erlendis.
Hann nefndi sem dæmi að I
Bandarikjunum væru um 500
þúsund i félagi, 50 þúsund i
Þýzkalandi og um 50—60 þúsund
i Bretlandi.
Hingað til hafa aðeins fáir lát-
ið skrá sig hér i félagið, en lik-
lega má búast við fjölgun. Þessi
andlega tækni er óháð öllum
trúarbrögðum.
Hún hjálpar fólki til þess að
losna við streitu og gerir mann-
inn rólegri og heilbrigðari.
Þessi tækni hefur verið kennd i
háskólum i Bandarikjunum og
hefur t.d. verið valgrein i
menntaskóla i Sviþjóð.
Þegar Maharishi kom hingað
til lands 1963 hittu blaðamenn
Visis hann að máli, þar sem
hann bjó á Hótel Sögu. Þar sat
hann á kálfsskinni á rúminu,
umvafinn hvitum kufli og kring-
um hann lágu blóm. Hann hélt
hér einn fyrirlestur i Stjörnu-
biói.