Vísir - 05.03.1975, Side 7
Vlsir. Mi&vikudagur 5. marz 1975
7
cTVlenningamiál
Bragabót
Bragi Ásgeirsson gerir
mér þann heiöur aö eyða
heilli síðu (hátíðlega upp-
settri...) r blaði sínu 26/2
til að deila á lausleg um-
mæli mín um menningar-
pólitík Morgunblaðsins í
grein um sýningu Jakobs
Hafstein hér í blaðinu
20/2. Mér þykir fyrir því
að þurfa að karpa við
hann, því við erum að
mestu sammála um
Kjarvalsstaðamálið og
aðdraganda þess. Samt
vil ég taka þá áhættu að
skýra afstöðu mina lítil-
lega.
Bragi skýtur að mér „maður
littu þér nær” og nefnir skrif
Visis um þetta umdeilda mál og
listamenn almennt. Er ég fús að
viðurkenna að það hittir i mark,
þvi að langt er frá þvi aö ég sé á-
nægður með frammistööu Visis
á mörgum sviðum. En hvað
snertir Kjarvalsstaðamálið sér-
staklega þá hefur mér talist til
að bréfadálkur Visis hafi birt
nokkurn veginn jafnmörg bréf
frá með-og-mótmælendum Haf-
steins, þótt satt sé að blaðið hafi
gert meira úr and-FÍM bréfum.
En þar held ég að „æsifrétta-
stefna” Visis ráði mestu,
fremur en skipuleg herferð, en
ekki er þar með sagt að slik
stefna sé réttlætanleg. Sem
sagt, ég er langt frá þvi að vera
ánægður með stefnu Visis i
þessu máli og hef eftir megni
reynt að jafna á vogarskálinni,
öragi Asgeirsson
eins og Bragi hefur einarðlega
reynt að gera i Morgunblaðinu.
Hvorugir ritstýrum við blöðun-
um og ættum þvi að geta viður-
kennt það sem verr fer. En
Bragi hefur ákveðið að snúa
blinda auganu algjörlega að
sinu eigin blaði, og er það ekki
likt svo réttlátum gagnrýnanda
sem hann er.
Blöðin og
Kjarvalsstaðir
Ef skrif allra blaða um þetta
Kjarvalsstaðamál eru athuguð,
þá kemur fram að i raun hefur
ekkert þeirra stutt málstað FtM
fyllilega. Þjóðviljinn hefur enga
tilraun gert til að reifa máliö
rökvist og hefur að mestu haldið
sig við meinhæðni um borgar-
ráð og Jakob. Einhver stuðning-
ur er það, en heldur neikvæður
þó. Alþýðublaðið og Timinn
hafa engan áhuga haft á að reifa
þetta mál alvarlega, og skrif
þeirra hafa aðallega beinst gegn
listamönnum.
Morgunblaðið nefndi ég sér-
staklega i grein minni, ekki sér-
lega vegna afstöðu þess til Kjar-
valsstaðamálsins, sem hefur
verið óvenju mild, heldur vegna
afstöðu þess til menningarmála
almennt á þessum mánuðum
sem ég hef verið hérlendis. Það
er afstaða sem stutt hefur fjölda
fólks i hleypidómum sinum um
list almennt og einnig um verk
Jakobs Hafstein. Og meiri á-
byrgð hvilir á Mbl. en öðrum
blöðum, þar sem það er út-
breiddasta blað landsins og
annar ritstjóri þess hefur staðið
framarlega i menningarmálum
landsins, bæði sem rithöfundur
og nefndamaður. Hinn ein-
dregni stuðningur Mbl. við mál-
stað listamanna, sem Bragi
segir blaðið hafa sýnt, hefur i
eftir Aðalstein
Ingólfsson
raun verið fólginn i einni grein
þar sem hneykslast var á þvi að
Kjarval skyldi látinn vikja fyrir
Hafstein, og i annarri grein þar
sem borin er fram fróm ósk um
að samið veröi i málinu, — auk
þess sem einn listamaður hefur
verið tekinn tali. Jákvætt að
visu, en langt frá þvi að vera
eindreginn stuðningur við mál-
stað listamanna. Þessi milda og
jákvæða afstaða hefur senni-
lega mótast af þvi að ritstjóri
blaðsins hefur lengi borið hag
meistara Kjarvals fyrir brjósti,
skrifað um hann greinar og bók
og tók einarða afstöðu með
nafngift Kjarvalsstaða.
Mér hrýs hugur er ég hugsa
um hvað hefði skeð, hefði sú
maskina sem sigað var á „Fisk
undir steini” verið gangsett
gegn listamönnum.
Menningarmál
og Morgunblaðið
Skrif Mbl. um þá mynd er gott
dæmi um það sem ég nefndi
hina „furðulegu menningar-
pólitik” blaðsins. Sú mynd, þótt
gallalaus værihún ekki, varpaði
fram þeirri grundvallarspurn-
ingu hvort menningarstarfsemi
gæti þrifist i litlu þorpi (og
landi) þar sem fólk vinnur, eða
neyðist til að vinna, myrkranna
á milli. t stað þess að taka þá
spurningu alvarlega og reifa
það mál á rökvisan hátt, ræða
það á breiðum grundvelli og frá
öllum hliðum, þá er sett i gang
vél sem starfar mánuðum sam-
an við að mistúlka, skamma og
svivirða þá tvo listamenn sem
myndina gerðu, en þeir höfðu
áður gerst sekir um samneyti
við Þjóðviljann. Allar gáttir
voru opnaðar fyrir þá sem vildu
ráðast á tvimenningana. Ég veit
persónulega um einn aðila sem
sendi bréf til blaðsins, þar sem
reynt var að leggja þeim tveim
lið, en það var ekki birt. Ef það
er „frjálslyndi” að hleypa öll-
um inn i blað, þá er „ritstjórn-
in” vafasöm, en hér reyndist
„frjálslyndið” nokkuð einhliða.
Höfuðáherslan i herferðinni
gegn þeim,,Fisks-mönnum” var
lögð á það að gera þá tortryggi-
lega sem túlkendur menningar-
mála, þeir væru t.d. ungir
„menntamenn” og „listamenn”
og vissu ekkert um „lif fólks-
ins”. Þeir voru semsagt
„átómatiskt” grunsamlegir,
vegna þess að þeir höföu nálægt
listum og menningarmálum
komið. Sú tortryggni i garð
menntamanna og „menningar-
vita” fékk byr undir báða vængi
á 1. des. samkomu stúdenta.
Þeir búa i „loftköstulum” og
„svivirða fólkið” var viökvæðið,
og á þessari þulu var klifaö
lengi vel. Hvað sem annars má
segja um þá samkomu, þá kom
þar fram ýmislegt sem merki-
legt var og þess virði að þaö
væri reifað af alvöru, t.d. ræða
Þorsteins frá Hamri um endur-
skoðun ættjarðarljóða og þjóð-
sagna, sem eru ein höfuöundir-
staða islenskrar menningar.
Þeir sem ekkert
fengu....
Vafstrið um viðbótarritlaunin
var svo næst á dagskrá, en þar
er skjöldur Mbl. einna beyglað-
astur. t stað þess að taka það
Aðalsteinn Ingólfsson
viðkvæma mál alvarlegum tök-
um, efna til hringborðsum-
ræðna eða fá menn sem ekki
voru knúðir af eiginhagsmunum
til að fjalla um málið, þá halda
tveir-þrir menn uppi stöðugum
„ad hominem” árásum á út-
hlutunarnefnd, og allir áttu
menn þessir sameiginlegt að
hafa ekki fengið viðbótina.
Þessi menningarpólitik Mbl.
kemur svo siðast fram i sam-
bandi við úthlutun bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Þegar það var ekki tslendingur
sem verðlaunin fékk, heldur
finnski „kommúnistinn” Sal-
ama, spyr blaðið nokkra menn
gremjulega „hvers vegna ekki
tslendingur” og i framhaldi af
þvi, hvort ekki ætti að skipta um
fulltrúa tslands i bókmennta-
nefndinni. Siðan smjattar blaðið
á sögum um „skattsvik” og
„ritstuld” Salama.
Það er ekki nema von að mik-
ill hluti landsmanna liti á lista-
menn sem vandræðagemlinga
sem stjórna verður með harðri
hendi, og á þá sem um menning-
armál fjalla sem stórlega gall-
aða menn, þegar stærsta blað
landsins tekur þessa afstöðu til
menningarmála og menntunar.
Það að fólk er farið að hafa orð-
ið „menningu” i flimtingum og
gera gys að orðinu „viti”, eins
og Bragi minnist á i lok greinar
sinnar, hlýtur að skrifast að ein-
hverju leyti á reikning blaðs
hans.
Er þessu máli svo lokið frá
minni hendi, en ég vona að fé-
lagsfræðingar taki þetta mál til
nánari athugunar.
STORBINGÓ
í SIGTÚNI fimmtudaginn 6. marz klukkan 20.30
©
Vlrdal vinninga: Hrotlin- prjonawl ai'i
vt‘rí)mæti47.000,(K> kr. I»r jar SpánarlmV
ir og vöruúttrkt lijá Ingvari Á: Gvlla aö
vn-ömæti 25.IMNMIO kr.. auk Ijiikia ann-
arra stórglæsilegra vinninga. EM.IW
VIWINGL’H LNDIH ItMMNMNI KH.
VINNINGAR HÁLF MILJÓN KRÓNA.
Spilaðar verða
18 umferðir.
Ilúsið
opnað klukkan 7.
Kn.itKpx rnudnld I \ Ikis.