Vísir - 05.03.1975, Síða 8
Visir. Miövikudagur 5. marz 1975
Visir. Miðvikudagur 5. marz 1975
Þeir kunna ýmislegt
fleira fyrir sér....
— segja dönsku dómararnir um tékkneska liðið
„Við gátum ekki séð að þessi leikur
væri neitt sérlega harður eða grófur,”
sögðu dönsku dömararnir Rodil — sem
dæmdi úrslitaleikinn I siðustu HM-
keppni — og Ohlsen eftir landsleikinn
I gærkvöldi. __
„Þetta var ósköp venjulegur lands-
leikur, eins og þeir eru leiknir I dag.
Tékkarnir léku mun fastar á mótinu I
Danmörku um helgina, og þeir eiga
ýmislegt I pokahorninu, sem þeir tóku
ekki fram I þessum leik. Ér það bæði
harka og einnig ieikfléttur.
Þeir fengu að skora allt of auöveld
mörk I þessum leik, enda varislenzka
vörnin ekki góð, og hún lék allt of lengi
sama kerfið. Þá var markvarzla
Tékkanna mun betri og það gerði stóra
muninn”.
Vicha, þjálfari tékkneska i liðsins,
sagði að hann hefði fengiö allar
upplýsingar um islenzka iiðið hjá
Jiígóslövunum i Danmörku og þær
| reynzt réttar.
„tslenzka liðið i,ék eins og við áttum
von á og þaö hefur gert I fyrri lands-
leikjum. Þaö var hvorki betra né verra
en áöur. — Þó hefur liklega siðasta
landslið, sem við lékum við, verið með
betri vörn en þetta.
En við erum ánægðir með þennan
sigur, — það er alltaf gott að vinna ts-
land á heimavelli, þvi hér er erfitt aö
leika”.
Ekki vildi hann spá um slðari
leikinn, sagðist hafa ýmislegt ósýnt og
ógert, en það kæmi I Ijós i kvöld.
Ólafur Jónsson, fyrirliði
landsliðsins, sagði, að þetta væri
hörkulið, sem Tékkarnir væru með.
„Það leikur öðruvisi en Júgóslavarnir
— miklu grófara og fastara, enda var
ægilegt að lenda I klónum á þeim á lín-
unni.
Það vantaði mikið upp á að við vær-
um eins góðir og á móti Júgóslövunum
á dögunum — vantaði neistann, sem
þá var, og við vorum óheppnir með
skotin i þessum leik. Markvarzlan hjá
þeim var frábær, en aftur á móti
fannst mér dómgæzlan ekki nærri j
nógu góö hjá þetta reyndum dómur-|
um.”
Birgir Björnsson var heldur ekkert j
hrifinn af dómurunum. „Þeir leyfðu ■
Tékkunum að leika allt of gróft, en
voru svo með sparðatining á okkur
þess á miili. Ég veit ekki hvaðan úr ;
heiminum þeir hafa lært þessar regl- i
ur.
Við verðum með óbreytt lið I kvöld,
og ég vonast til að þá gangi betur, enda
lærðum við mikið á þessarþ- „viður- j
eign”.
Þegar við ræddum við dómarana og
Tékkana, sögðu þeir okkur, að Danir
hefðu unnið Júgóslava I keppninni I j
Danmörku meö 17 mörkum gegn 16.
Aftur á móti höfðum við sagt frá þvl,
að Júgóslavarnir hefðu unnið 17:16, og
önnur blöð voru með allt aðrar tölur.
En það rétta er, danskur sigur 17:16 og
þetta danska lið er það næsta, sem viö
fáum í heimsókn — um miðjan aprll.
klp-
Skautaparið heimsfrœga í
forustu ó HM í Colorado
Heimsmeistarakeppnin I listhlaup-
um á skautum hófst I Colorado Springs
i Bandarikjunum I gærkvöldi. Skauta-
pariö fræga, Irina Itodnina og Alex-
ander Zaitsev Sovétrikjunum, tók
strax forustu I parakeppninni. I ein-
staklingskeppni karla náði Sergei
Volkov, Sovétrlkjunum, góðri forustu,
en annar er John Curry, 25 ára gamall
Lundúnabúi, sem hefur æft I Denver,
Colörado, siöasta árið. Hann varö ann-
ar á Evrópumeistaramótinu I Kaup-
mannahöfn á dögunum — en Vladimir
Kovalev, Sovétrlkjunum, sem sigraði
á EM, er I þriðja sæti.
Volkov, 25 ára gamall Moskvubúi,
hlaut I gær 78.45 stig — Curry 74.57 stig
og Kovalev 72.58 stig. I fjórða sæti er
Toller Cranston,- sem fimm sinnum
hefur orðið kanadiskur meistari, með
72.04 og i fimmta sæti Gordon McKelI-
an, bandariski meistarinn, með 70.57
stig. Volkov, sem nú hefur forustu,
varð annar á HM 1974.
Rodnina og Zaitsev hlutu 35.34 stig
eftir fyrstu keppnina I gær. Romy;
Kermer og Rolf österreich, Austur-I
Þýzkalandi, voru I öðru sæti meö 34.651
stig. Þriðju Irina Vorobjeva og Alex-Í
ander Vlasov, Sovét, með 34.02 stig —|
þá Manela Gross og Uwe Kagelman, [
Austur-Þýzkalandi, með 33.77 stig og 11
fimmta sæti Melissa Militano og [
Johnny Johns, USA, meö 33.55 stig.!
Keppnin heldur áfram I dag.
—hslm. I
“
Aðeins 2:0 sigur Barcelona
Spánska meistaraliöið, Barcelona,
með allar sínar stóru „stjörnur” lenti I
hinum mestu erfiðleikum með sænsku
meistarana, Atvidaberg, I fyrri leik
liðanna i Evrópubikarnum i Barcelona
I gærkvöldi. Sigraði þó meö 2-0, sem
ætti að nægja til að komast I undanúr-
' ............-..........
Ægir vann KR
Fyrsti leikurinn I Reykjavlkur-
mótinu I sundknattleik var háöur I
gærkvöldi. Þá sigraði Ægir KR I
höröum og fjörugum leik með 10-5. Lið
Armanns hefur dregið sig til baka I
mótinu af einhverjum ástæöum. Það
átti að vera búiö að leika bæði við KR
og Ægi, en mætti ekki. Síöari leikur
Ægis og KR veröur 13. marz — og flest
bendir til aö Ægir veröi meistari.
- hslm.
slitin, þvlsíðari leikurinn verður einn-
ig I Barcelona — 11. marz.
Rúmlega 40 þúsund áhorfendur
hvöttu „slna menn” mjög I Barcelona
— og þeir sóttu miklu meira i leiknum.
En sænska vörnin var þétt fyrir — þar
var leikið „maður á mann”.
Barcelona náði forustu á 22. mlnútu,
þegar Carlos Rexach, spánski lands-
liðsmaðurinn, fékk langsendingu fram
völlinn —■ lék á varnarleikmenn og
sendi hásendingu inn I vítateiginn. Þar
stökk braziliski landsliösmaðurinn
Mario Marinho hærra en aðrir og
skallaði I mark. Knötturinn lenti I
þverslánni að neðanverðu og I markiö.
Siðara markið skoraði Manuel Clares
á 80 min. eftir að Johan Cruyff haföi
tekið hornspyrnu. Barcelona fékk
vltaspyrnu, þegar stundarfjórðungur
var til leiksloka. Sænski markvörður-
inn varði þrumuflcyg Marinho.
t ensku deildakeppninni voru nokkr-
ir leikir háðir I gærkvöldi. Fulham og
Millvall geröu jafntefli 0-0 I 2. deild. 1
3ju deild vann Colchester Swindon 2-0, í
Grimsby og Hereford gerðu jafntefli 0- f
0, og Huddersfield vann Southend 4-1.'
A mánudag vann Port Vale Charlton 1- J
0. t 4. deild vann Swansea Cambridge i
2-1.1 1. deildinni skozku gerðu Airdrie |
og Aberdeen jafntefli 2-2. —hslm.
Stórbingó verður I Sigtúni annað kvöld
— fimmtudag — á vegum Knatt-
spyrnufélagsins Fylkis I Arbæjar-
hverfi. Þar verður spilað um marga!
góða vinninga.
Formaður og þjálfari Spörtu
örvæntu.... j—
[Viö verðum að fara á morgun og
tr-Bommi er ekki kominn enn!
~y
[© 'ýing I ealuf** Syndicat
IW -i
1973 Woild rlghis rr»eivtd y|
En hann kemur f
kvöld.....!
Ef hann nú
kemur ekki!
Bommi er
æfingarlaus.
Hugsa sér,
úrslitaleik-
Lurinn!!
Umsjón: Hallur Símonarson
Ólafur Einarsson sendir boltann I átt að tékkneska markinu i landsleiknum I gærkvöldi, og sekúndubroti siðar lá hann I netinu. Lengst til vinstri er ólafi Jónssyni haldið á linunni. Satrapa gerir siðustu tilraun til að verja skotið frá Ólafi. Fyrir
framan hann er Björgvin Björgvinsson, þá Jary og Krepindl sem hefur náð góðu taki á lærinu á Ólafi, en lengst til hægri er Sulc við öllu búinn. Ljósmynd Bj. Bj.
VINATTUtilXUR VARD AÐ SIAGSMALUM
Hann var langt frá þvl að vera
falskur tékkinn, sem tékknesku
landsliðsmennirnir lögðu inn hjá
islenzka landsliðinu i Laugar-
dalshöllinni I gærkvöldi. Það var
til næg innistæða fyrir honum,
enda var hann greiddur út með
beinhörðum handknattleik. ts-
lendingarnir áttu ekkert inni
annað en marbletti og blóðrifinn
búk, þegar leiknum lauk, og þó
sluppu þeir vel, þvi tapið var ekki
nema tvö litil mörk. Upphæðin
hefði hæglega getað verið stærri
þvi seint i sfðari hálfleik voru þeir
sex mörkum undir.
Þessi leikur er einhver harðasti
og grófast landsleikur sem hér
hefur fariðfram i langan tima, og
áttu hinir heimsfrægu dönsku
dómarar, sem dæmdu hann, ekki
minnstan þátt i þvi. Þeir leyfðu
Tékkunum að komast upp með
mjög grófan varnarleik, og i
sókninni fengu þeir að gera ýmis-
legt, sem til þessa hefur verið
dæmt á af öðrum dómurum, sem
hér hafa komið.
En tapið var ekki allt dómurun-
um að kenna — siður en svo —
það má skrifa á reikning islenzka
iliðsins, sem var langt frá þvi að
vera sannfærandi og mun lakara
en það var i leikjunum við
Júgóslaviu I siðustu viku.
Að sjálfsögðu brá fyrir ágætum
köflum — bæði i vörn og sókn —
en þeir voru þvi miður fáir. Hinir
voru öllu fleiri og afdrifarikari,
sem lélegir voru, og áttu þar allir
jafna sök — einvaldurinn jafnt
sem leikmennirnir.
Mestu mistökin voru þau að
breyta ekki um varnarleik i siðari
hálfleiknum, þegar Tékkarnir
voru búnir að læra á kerfið. Ef
þaö hefði verið gert — þó ekki
hefði verið nema smástund — er
ekki gott að segja hvernig farið
hefði. í það minnsta hefði það
nægt til að rugla þá i riminu. Það-
hefði ekkert kostað að gera smá-
tilraun með annað skipulag á
vöminni, úr þvi sem komið var,
en það var aldrei gert.
Sóknarleikurinn var einnig
gallaður— allt of einhæfur og
bragðlaus. Að visu var ekki nema
ein opin leið að markinu — i gegn-
um miðjuna — þvi úr hornunum
var okkar mönnum fyrirmunað
að skora. Hinn frábæri mark-
vörður Tékkanna — Packa —
lokaði markinu, þegar einhver
kom inn úr hornunum, enda
maðurinn eldfljótur og skanka-
stór þar að auki. Hann er nær
tveir metrar á hæð og með arma
eins og vindmylla. Hans eini veiki
blettur var niður við gólf, en
þangað vildu okkar menn helzt
ekki skjóta, enda varði hann um
15 skot frá þeim i leiknum — sum
úr dauðafærum á linu — og auk
þess tók hann tvö vitaköst seint I
siðari hálfleik.
Tékkneska liðið lék mjög
skemmtilegan handknattleik — ef
maður horfir fram hjá hörkunni
og ruddaskapnum. Það er mikill
hraði i sókninni hjá þeim, og þar
stefna allir að ákveðnu marki. Til
þess fengu þeir lika tækifæri, þvi
alltaf lék islenzka liðið sama
varnarleikinn, sem Tékkarnir
þekktu orðið út i gegn.
Þeir kunnu lika að berja frá sér
I vörninni bæði löglega og ólög-
lega — og fengu að haga sér að
vild hjá dönsku dómurunum. Það
var aðeins tvisvar sem þeim þótti
nóg komið og sendu mann frá
þeim út af til kælingar — og veitti
ekki af. í bæði skiptin var það
sami maðurinn — Satrapa — sem
fyrstfór útaf I 2mínútur og siðan i
5. En fleiri hefðu mátt fara, og
það jafnvel oftar en einu sinni.
Eftir margskonar mistök á
báða bóga komst islenzka liðið
þokkalega i gang um miðjan hálf-
leikinn og hafði um tima tvö mörk
I plús — 5:3 — Tékkarnir jöfnuðu,
en Viðar kom islenzka liðinu yfir
6:5 og var það I þriðja og siðasta
sinn i öllum leiknum.
Tékkarnir áttu næsta leik — 4
mörk I röð — og komust þar með i
9:6. Tvivegis eftir það átti is-
lenzka liðið möguleika á að jafna,
en það mistókst, eins og svo
margt annað.
í hálfleik höfðu Tékkarnir 2
mörk yfir — 11:9 — og komust I
12:9 strax i siðari hálfleik. Þá
komu tvö Islenzk mörk — Páll
Björgvinsson og Björgvin Björg-
vinsson — og staðan var 12:11. En
Adam var ekki lengi i Paradis —1
Tékkarnir áttu næstu 4 mörk —
T6:ll — og þegar skammt var
eftir af leiknum voru þeir komnir
6 mörkum yfir — 19:13. A þeim
tima haföi Björgvin átt skot i
stöng — tvö hraðaupphlaup höfðu
mistekizt og sá langi i markinu
hafði varið tvö vitaköst — frá
Herði Sigmarssyni og Einari
Magnússyni.
Tékkamir gerðu einnig mistök
á þessum tima — misstu boltann
og hittu ekki markið. En þrátt
fyrir það voru menn farnir að sjá
fyrir sér allt að 10 marka sigri
þeirra, þegar loks kom smá glæta
i spilið hjá Islenzka liðinu. Leikið
var upp á linuna og vlti fengin i
slagnum þar. óíafur Einarsson
var settur i að taka vitin, og hann
skoraði úr þrem þeirra á skömm-
um tima. Nafni hans Jónsson
bætti einu marki við i millitiðinni,
en lokaorðið átti Egilsstaðalög-
reglan — Björgvin Björgvinsson
— sem lét sig hafa það að sigla inn
úr horninu og skora með þvi að
fetta sig langt inn i teiginn.
Það var 18. rhark tslands i
leiknum — Tékkarnir voru þá
komnir með 20 — og töldu menn
Islenzka liðsins hafa sloppið vel
með þennan mun eftir að hafa
verið sex mörkum undir skömmu
fyrir leikslok Er mikið til i þvi, en
þó hefði þessi munur eins getað
verið á hinn veginn.
Enginn bar af öðrum i islenzka
liðinu I þessum leik, og allir hafa
þeir leikið betur. Þeir einu, sem
aðeins skáru sig úr voru Ólafur
Jónsson, Viðar Simonarson og
Björgvin Björgvinsson. Þeir,
ásamt Einari Magnússyni, Páli
Björgvinssyni, Herði Sigmars-
. syni og Bjarna Jónssyni, eiga
skilið að fá annað tækifæri i leikn-
um i kvöld, en aftur á móti mátti
skipta á mönnum fyrir Ólaf
Einarsson, Pétur Jóhannesson og
Stefán Halldórsson. Hefðu t.d.
menn eins og Pálmi Pálmason,
Fram, Gunnar Einarsson FH,
Stefán Gunnarsson Val, eða ein-
hverjir aðrir mátt fá að spreyta
sig i kvöld.... En úr þvi verður
ekki „einvaldurinn” hefur talað
— liðið verður óbreytt!!
Margir frábærir menn eru i
tékkneska liðinu. Fyrir utan
markvörðinn Packa, eru það Sulc,
Satrapa, Heber og Jary, en þeir
siðastnefndu skoruðu öll mörk
Tékkanna i siðari hálfleiknum.
Annars skoruðu þessir mörkin I
leiknum. Fyrir Tékka: Haber
(nr. 7) 7 mörk, 4 viti, Jary (nr. 4)
6, Sucl (nr. 2) 2, Liska (nr. 15) 2,
Papiernik (nr. 14) 1, Krepindl
(nr. 8) 1 og Kavan (nr. 5) 1 mark
Fyrir Island: Ólafur Einarsson 4
(3 viti) Ólafur Jónsson 3, Viðar
Simonarson 3, Páll Björgvinsson
2, Björgvin Björgvinsson 2, Einar
Magnússon 1, Bjarni Jónsson 1,
Stefán Halldórsson 1 og Hörður
Sigmarsson 1 (úr viti) -klp
Það var mikið handapat I gangi, þegar leikmennirnir voru að reyna
að ræða málin I landsleiknum I gærkvöldi. Hér hefur soðið upp úr og
menn liamast við að útskýra og afsaka þaðsem gerðist en var það
stundum all stórbrotið I sniðum. Viðar er þarna að reyna aö róa
Tékkana en engu likara er en að Páll og Satrapa ætli að fara að fá
sér snúning. Ljósm. Bj. Bj.