Vísir - 06.03.1975, Qupperneq 6
6
Visir. Fimmtudagur 6. marz 1975
VÍSIR
Otgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
i lausasölu 35 kr. eintakiö. Klaöaprent hf.
Betra en ,,bófahasar"
Ránið á leiðtoga kristilegra demókrata i Vest- \
ur-Berlin, Peter Lorenz, hefur borið hæst i heims- (
fréttum vikunnar. Ránið var framið af stjórn- /
leysingjum, þeim sem hvergi una sér i viður- )
kenndum stjórnmálaflokki, ekki einu sinni hjá \
kommúnistum. Með þvi fengu þeir nokkra félaga (
sina leysta úr fangelsi. Mannrán eru oft i fréttum. /
í Argentinu myrtu mannræningjar i siðustu viku )
gisl sinn, ræðismann Bandarikjanna i bæ einum. \
Þar i landi vaða uppi bófaflokkar yzt til vinstri og (
yzt til hægri. Viðar að berast fréttir af mannrán- /
um, og oft láta stjórnvöld undan kröfum þeirra. )
Mannránið i Vestur-Þýzkalandi minnir hins )
vegar á, að dregið hefur úr mætti öfgafyllstu (
hreyfingar ungs fólks viða um heim. Flokkur /
stjórnleysingja i Vestur-Þýzkalandi hefur oft )
verið kenndur við þau Ulrike Meinhof og Andreas \
Baader, en þau sitja i fangelsi. Þessi flokkur var (
um skeið mjög fyrirferðarmikill, og hann olli /
skelfingu ibúa Vestur-Þýzkalands, þar sem eng- )
inn vissi, hvar næsta sprengja mundi springa eða \
skoti yrði hleypt úr byssu. Hópar stjórnleysingja i (
Vestur-Þýzkalandi hafa að visu verið fleiri, og /
einn angi þessarar hreyfingar ber ábyrgð á \
mannráninu i Berlin. (
Miklu athyglisverðari en afdrif einstakra slikra (
bófaflokka en þó skyld eru afdrif ,,æskulýðsupp- /
reisnarinnar”, sem fyrir nokkrum árum var nær )
daglegt fréttaefni. Þá höfðu stjórnleysingjar og \
flokksbrot yzt til vinstri verulegt fylgi meðal ungs (
fólks, einkum stúdenta. Slik hreyfing fór sem eld- /
ur i sinu um bandariska háskóla, og hún var )
atkvæðamikil um alla Vestur-Evrópu og viðar. \
Þá voru frásagniraf þvi, að stúdentar hefðu (
lagt undir sig skólabyggingar og verðu þær jafn- /
vel með vopnum fyrir lögreglu eða her, stöðugt )
fréttaefni. Þetta er liðin tið. Af hinum ,,heitu \
sumrum”, eins og þau voru kölluð, er litið eftir (
nema askan. /
Hvað hefur gerzt? /
Það er ekki merkilegt, þótt margir af foringj- )
um upphlaupanna fyrir nokkrum árum hafi nú \
séð að sér og komizt að raun um, að aðrar aðferð- (
ir eru bæði manneskjulegri og árangursrikari, ef /
þeir vilja einhverju breyta i þjóðfélaginu. )
Hér eins og erlendis dregur yfirleitt úr róttækni )
manna, þegar þeir eldast, stofna heimili og verða (
það, sem kallað er ráðsettari. Sumir hinna rót- (
tæku stúdentaforingja erlendis græddu fé á bóka- )
útgáfu og fyrirlestrahaldi. Þeir urðu nokkrir \
kapitalistar fyrir það, að andstöðuna við kapital- (
ið mátti selja. En fyrst og fremst hlaut æskulýðs- /
uppreisn með þeim hætti, sem mest bar á i frétt- )
unum, að hjaðna, af þvi að hún var tizkufyrir- \
bæri. Hún barst frá landi til lands, með þvi að (i
framagjörnum ungmennum þótti það fint að gera /
eins og hinir höfðu gert, þótt ekki væri nema að )
hrækja framan i lögregluþjón. Hún var lifsflótti, (
þvi að hún stefndi ekki beint að settu marki, en /i
var þvert á móti fyrst og fremst ,,uppákoma” )
vegna „uppákomunnar” sj^lfrar, útrás fyrir lifs- )
leiða. Hversu tilgangslaust er ekki að vera (
stjórnleysingi, ef menn vilja einhverju breyta i (
þjóðfélagskerfinu? „Heitu sumrin” gætu komið )
aftur eins og flest önnur tizkufyrirbæri. En vitr- \
ari æskumenn munu ávallt finna betri leiðir en (
,‘bófahasar”, ef þeir vilja láta eitthvað varanlegt /
eftir sig liggja. )
— HH
llllllllllll
m mm
UMSJÓN' G. P.
Einn af djörfustu her-
mönnum Breta stóö fyrir
dómara á dögunum og fór
ekki fram hjá neinum aö
hann skalf á beinunum,
þótt málareksturinn væri
ekki út af öðru en ógreidd-
um reikningum.
Þegar dómarinn hafði
litið afrekaskrá Michael
Gilmore-Kerrs, majórs,
sleppti hann honum með
vægan dóm.
Majórinn hafði tilheyrt
„Felix”, eins og almennt er köll-
vm - f
V. Æm V
uð sú sveit brezka hersins, sem
vinnur að þvi að gera óvirkar
sprengjur á Norður-Irlandi, eða
öllu heldur hefur unnið, þvi að
verkefnum hennar fækkaði
mikið, þegar IRA gerði vopnahléð
á dögunum. — Mikið orð fer af
„Felix”.
Þegar Gilmore-Kerr, majór,
hætti i „Felix” og hernum, gekk
honum erfiðlega að fá vinnu.
Hann gerir sér helzt vonir um að
geta myndað ásamt þrem öörum
fyrrverandi félögum sinum úr
hernum fyrirtæki, sem mundi
verða rikisstjórnum og iðnfyrir-
tækjum til ráðuneytis gegn
aðgerðum hryðjuverkamanna.
Þessir menn eru John Gaff,
höfuðsmaður og fyrrverandi yfir-
maður „Felix”, og tveir
foringjar, sem báðir hlutu
George-krossinn fyrir djarf-
mannlega framgöngu við að
fjarlægja sprengjur á N-Irlandi.
Vel kann svo að fara, að
Scotland Yard noti sér reynslu
þessara manna. Leynilögreglan
hefur myndað sér sina eigin
sprengjusveit, sem vinnur að þvi
að fjarlægja og gera óvirkar
sprengjur, sem hryðju-
verkamenn hafa komið fyrir. I
þeirrisveit eru einvörðungu fyrr-
verandi hermenn, sem nutu sér-
stakrar þjálfunar hjá hernum i
þessu skyni. Mikil leynd rikir um
þessa sveit, sem á þó nána sam-
vinnu viö herinn.
Fyrir nokkrum árum hafði
þessi deild lögreglunnar naumast
öðrum verkefnum að sinna en
gera óvirkar sprengjur, sem
bankaræningjar skildu eftir sig,
þegar þeim hafði mistekizt að
láta þær springa. Þetta breyttist
þó fyrir fjórum árum, þegar hóp-
ur stjórnleysingja tók til við að
láta sprengjur springa á
heimilum erlendra sendifulltrúa
og stjórnarerindreka. Þá var
mynduð sérstök sprengjuvarnar-
sveit, skipuð aðeins fjórum
mönnum til að byrja með. Þegar
irski lýðveldisherinn færði kvi-
arnar út til Englands varð að
fjölga i sprengjusveitinni, sem
telur nú'orðið á annað hundrað
manns.
50 sinnum varð að kalla
sveitina út i fyrra, en i 35 tilvikum
urðu sprengingar. Heppnin hefur
verið með þeim, og aðeins einn
þeirra, yfirmaðurinn sjálfur,
hefur orðið fyrir óhappi. Það
sviðnuðu á honum augabrúnirnar
i einni sprengingunni.
Siðan sprengjualdan á
Englandi hófst með sprengjunni
utan við „Old Bailey”-dómshúsiö
i London (i marz 1973), hafa 43
látið lifið i sprengingum á vegum
IRA á Englandi eftir þvi sem lög-
reglan álitur, og 600 hafa særzt.
Nú. minnkar þörfin fyrir
mannskapinn, eftir að IRA gerði
vopnahléð, en lögreglusveitin
verður þó ekki alveg lögð niður,
þótt eitthvað verði ef til vill
fækkað i henni.
Engum dylst, að menn þessir
lifa i stöðugu nábýli við dauðann.
Það kom glöggt fram hjá einmitt
Gilmore-Kerr majór, þegar hann
var látinn bera vitni i réttar-
höldum yfir hryðjuverkamönnum
IRA i fyrra. Hann sagði frá at-
viki, þar sem hann slapp
naumlega lifandi.
„Ég gat heyrt dauft tifið i gang-
verki sprengjunnar,” sagði hann.
„Ég var einn, þvi að þetta er ekki
nema eins manns verk.” — Þegar
hann hafði tekið sundur 15 kg
sprengjuna, sá hann, að hún hafði
verið stillt til að springa örfáum
sekúndum eftir að hann hafði
tekið kveikjuútbúnaðinn úr
sambandi.
Siðan 1972 hafa tiu verið
dæmdir fyrir sprengjutilræði, en
30biða dómsniðurstöðu og réttar-
halds. Átta IRA-sprengjumenn
hafa verið dæmdir til lifstiðar-
fangelsis. Þar á meðal eru
systurnar Marion og Doloures
Price, sem vöktu á sér athygli
þegar þær fóru i hungurverkfall i
fyrra til þess að fá sig fluttar á
milli fangelsa (án árangurs).
Sprengjusveit lögreglunnar i
London ér orðin þaulvön að fást
við alls konar vitisvélar:
bréfasprengjur, siga-
rettusprengjur, timasprengjur i
bilum og póstkössum o.s.frv. —
Störfum sveitarinnar er litið
haldið á loft, til þess að sprengju-
tilræðismönnunum verði ekki
gert léttara um vik.
Hún hefur notið góðra ráða og
reynslu sprengjudeildar hersins á
Norður-trlandi og fékk sér nýlega
vélmenni, sem fyrir tilstilli fjar-
stýrisútbúnaðar getur tekið
vafasamar sprengjur og flutt þær
á óhultan stað.