Tíminn - 10.07.1966, Síða 3
SUNNUDAGUR 10. júlí 1966
tíminn
Freddy Lennon, faðir bítils-
ins Johns Lennons er alltaf að
láta til sín taka. Nú hefur
hann tilkynnt, að hann hygg
ist hætta að syngja, en hann
hefur eins og kunnugt er gef-
ið út eina plötu, sem nefndist
That is my life og það kom
í Ijós að flestra áliti, að það
var ekki frá föður sínum, sem
John hafði fengið tónlistargaf-.
una og nú hefur Freddy, sem
innan skamms ætlar að ganga
að eiga barþjónustustúlku, snú
ið sér að þvi að skrifa bók,
sem á að hafa að geyma nokkr-
ar staðreyndir um son hans og
þann heim, sem hann lifir í.
Freddy hefur að sögn ekki séð
son sinn frá því hann var
fimm ára gamall.
f A
ék «>
"■:
Nú hefur verið komið fyrir
vaxmynd af Louis Armstrong
í vaxmyndasafni í Hollywood.
Var styttunni komið þar fyrir
meðan Armstrong spilaði sjálf-
ur á trompetinn sinn í safn-
inu.
Hér sjáum við Grace prins-
essu af Monaco ásamt dóttur
sinni Caroline prinsessu þar
sem þær eru á gönguferð rétt
utan við Monaco. Fóru þær
mæðgur í heilmikla gönguferð,
þegar færi gafst, en Grace hef-
ur undanfarið verið mjög önn-
um kafin við að sinna sínum
opinberu skyldum.
Kvikmyndaleikarinn Robert
Hossein, sem margir munu sjálf
sagt úr kvikmyndinni Ange-
lique, hefur nú gerzt kvikmynda
framleiðandi og hyggst nú gera
kvikmynd, sem nefnist Raspu-
tina. í kvikmyndina hefur hann
valið unga óþekkta stúlku til
bess að leika aðalhlutverkið.
Nefnist hún Sylvie d'Ahetze, 17
ára gömul, bláeygð og rauð-
hærð. Þ.vkir hún að ýmsu leyti
minna á hina fyrrverandi eig
inkonu Hosseins, Marina Vlady
en árið 1955 uppgötvaði Hoss-
ein hana og kom því til leið-
er að hún fékk aðalhlutverk í
kvikmynd þá. Þremur mánuð
am síðar voru þau Marina og
hann gift.
Bítlarnir fjórir orsökuðu
hálfgert hneyksli, þegar þeir
voru á Filippseyjum fyrir
skemmstu, með þvi að rnæta
ekki í matarboð hjá forseta
frúnni á Filippseyjum og
höfðu þeir ekki einu sinni sent
áfboð.
Um 200 manns voru mætt
á flugvellinum í Manilla, þeg-
ar bítlarnir voru að fara og var
hrópað að þeim: Bítlar farið
heim, farið til helvítis, við vilj-
um ekki hafa ykkur hér. Blaða-
maður nokkur vatt sér að Paul
McCartney og spurði hann
hvað hann vildi segja um þenn-
an atburð, en hann yppti bara
öxlum og svaraði því til, að
hann skildi þetta ekki. Við
gerðum ekkert af okkur, sagði
■hann og bætti því svo við, að
hann vildi ekki koma aftur til
Filippseyja. Bítlarnir fjórir af-
sökuðu sig með því, að þeir
hefðu ekki vitað að við þeim
var búizt til forsetabjónanna,
en þau biðu eftir þeim í rúm-
an klukkutíma.
:• /ív.VÍ
Leikkonan Ursula Andress
hefur nú nýlega lokið við að
leilka í kvikmynd ásamt James
Mason og fór taka hennar að-
allega fram í London. Fyrir
skömmu var kvikmyndin svo
frumsýnd í London og biltist
Ursula auðvitað á frumsýning
Sem kunnugt er hefur Suk-
arno forseti Indónesíu verið
sviptur titli sínum sem forseti
ævilangt, en þann titil öðlað-
ist hann árið 1964. Forsetinn
fyrrverandi virðist sætta sig
nokkurn veginn við þessa
ákvörðun þjóðþingsins og sagði
um þennan atburð: Það" var
unni og þótti ljósmyndurum
það auðvitað kærkomið tæki
færi til að Ijósmynda hana bak
og fyrir og svo fór að leik
konan varð að biðjast vægðar,
þegar henni þótti nóg komið.
Og hér er ein myndin, sem
var tekin við þetta tækifæri.
ekki ég sjálfur, sem óskaði
þess að vera forseti ævilangt,
konungur eða keisari. í 40 ár
af lífi mínu hef ég helgað mig
baráttunni til þess að þjóna
landi mínu. Ekki til þess að
verða konungur eða forseti. í
rauninni hef ég enga þörf fyr-
ir að vera forseti ævjlangt.
Korsíkubúar eru víst ekkert
of hrifnir af síðhærðum dægur-
lagasöngvurum að minnsta
kosti fékk franski vísnasöngvar
inn Antoine ekki sem bezta út
reið á Korsíku, þegar hann
kom þanvað til þess að
skemmta Korsíkubúum. Hafði
Antoine aðeins sungið tvo
söngva, þegar allt fór í upp-
lausn og nokkrir unglingar sem
virtust vera ákaft á móti söngv
aranum lentu í bardaga við
aðdáendur söngvarans, og særð
ust nokkrir í þeim átökum.