Vísir - 20.03.1975, Page 4
4
Visir. Fimmtudagur 20. marz 1975.
Spariö
þúsundir !
Sumardekk
Jeppadekk
TILBOÐ.
til l.mai ?
•/ aff tveim
7 dekkjum
•/ af fjórum
7 dekkjum
io
TÉKKNESKA BIFREIDAUMBODID
Á ÍSLANDI H/E
AUÐBREKKU 44-46 SÍMI 42606
YAMAHA UIG
TIL SÖLU
Litur: Svart
Verð kr.: 280 þús
Uppl. í síma 10241
BILAVARA-
HLUTIR
NOTAÐIR
VARAHLUTIR
í FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ
Ódýrt:
vélar
öxlar
lientugir i aftanikerrur
bretti
hurðir
húdd
rúður o.fl.
gírkassar
drif
húsingar
fjaðrir
BÍLAPARTASALAN
Höt'öatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—5
laugardaga.
'VISIR VISAR A VIÐSKIPTIN
Moses Pray (Ryan O’Neal) og Addie Loggins (Tatum O’Neal) sýna mikla þolinmæöi þar sem þau biöa
þarna viö bil sinn i myndinni „Paper Moon”, sem veröur páskamynd Háskólabiós.
Kvikmyndahúsin:
Þetta sýna
þau um
póskana
Um þessa páska
verða kvikmyndahúsin
opin á skirdag en siðan
lokuð bæði á föstudag-
inn langa og sjálfan
páskadag. Um síðustu
páska fengu kvik-
myndahúsin þvi fram-
gengt að mega hafa
sýningar á skirdag en
ekki er ákveðið hvort
sýnt verður á laugar-
daginn fyrir páska.
Kvikmyndahúsin bjóða flest
upp á nýlegar og athyglisverðar
myndir um páskana. Þrjú kvik-
myndahúsanna munu sýna
kvikmyndir, sem eru talandi
dæmi um hina nýju hamfara-
bylgju, sem gengur yfir i kvik-
myndaheiminum.
Hin nýjasta af þessum þrem
myndum er „Airport 75”, sem
tekin verður til sýningar i Laug-
arásbiói. Nýja bió mun Sýna
„P.oseidon Adventure” og
Gamla bió hefur nú hafið
sýningar á myndinni
„Skyjacked”.
„Airport 75” er önnur glænýja
myndin, sem Laugarásbió tekur
til sýningar á þessu ári, er
myndin fengin hingað á svipuð-
um skilmálum og „The Sting”,
sem var jólamynd kvikmynda-
hússins.
1 „Airport 75” segir frá á-
rekstri milli litillar einkaflug-
vélar og stórrar Júmbóþotu og
afleiöingum árekstursins á far-
þega þotunnar. Lif þeirra hang-
ir á bláþræði, þar eð flugmenn-
irnir hafa sogazt út við árekst-
urinn og aðeins ein óreynd flug-
freyja við stjórnvölinn.
1 „Skyjacked” segir frá þvi,
er stór Boeing 707 þota hefur sig
á loft með sprengju innanborðs.
Skilaboðum um það er komið til
flugstjórans og honum hótað,
aö þotan verði sprengd upp, ef
hann geri ekki eins og fyrir hann
er lagt. Charlton Heston fer með
aðalhlutverkið i báðum þessum
myndum.
Nýja bió tekur „Poseidon Ad-
venture” til sýningar nú um
Úr mynd John Hustons, „The Mackintosh Man”, sem veröur páska-
mynd Austurbæjarbiós. Þetta eru fangarnir Rearden (Paul New-
man) og Buster (John Bindon) sem spjalla þarna saman.
páskana, en i þeirri mynd segir
frá þvi, er farþegaskipinu
Poseidon hvolfir og er farþegar
þess reyna að komast frá borði.
Háskólabió tekur til sýningar
„Paper Moon” nýlega mynd
eftir leikstjórann Peter Bogdan-
ovich, sem við höfum fengið að
kynnast i myndunum „What’s
Up, Doc? ” og „The Last Picture
Show”. Myndin er með feðgin-
unum Ryan O’Neal (Love
Story) og Tatum O’Neal i aðal-
hlutverkum og fjallar hún um lif
þeirra á timum kreppunnar
miklu I Bandarikjunum. Mynd
þessi hefur viðast fengið mjög
góða dóma.
Austurbæjarbió tekur til sýn-
ingar eina nýjustu mynd kemp-
unnar John Huston. Þetta er
myndin „Mackintosh Man”
með Paul Newman i aðalhlut-
verki. Myndin fjallar um skart-
gripaþjóf sem leikinn er af Paul
Newman. Hann er gripinn við
eitt innbrotið og settur i fangelsi
en I slagtogi við brezkan föður-
landssvikara og njósnara undir-
býr hann flótta sinn úr fangels-
inu. Mynd þessi er byggð á bók
eftir Desmond Bagley, sem
komiðhefur út á islenzku undir
nafninu „Gildran”.
Hafnarbió mun einnig bjóða
upp á kvikmynd byggða á
frægri sögu eftir frægan höfund.
Það er myndin „Caravan to
Vaccares”,sem byggð er á sög-
unni „Sigaunalestin” eftir Ali-
stair McLean. Charlotte Ramp-
ling fer þar með aðalhlutverk.
Siðast en ekki sizt er að geta
myndarinnar, er Stjörnubió
tekur til sýningar um páskana.
Þaöer Óskarsverðlaunamyndin
frá 1957, „Brúin yfir Kwaifljót-
i.ö”. Myndina gerði leikstjórinn
David Lean en með aðalhlut-
verk fara William Holden, Alec
Guinnes og Jack Hawkins.
Þetta er nýtt eintak af mynd-
inni, sem nú er boðið upp á og er
hún sýnd með islenzkum skýr-
ingartexta i fyrsta sinn.
Tónabió hafði ekki ákveðið
hvaða mynd yrði tekin þar til
sýninga um páskana, en ein af
þeim myndum sem bióið tekur
til sýninga bráðlega er „1 þjón-
ustu hennar hátignar”, eina
Bondmyndin, sem George
Lazenby lék i.
Aðrar merkar myndir, sem
væntanlegar eru i kvikmynda-
húsunum, eru „American Graf-
fiti” i Laugarásbiói, „The Dis-
creet Charm Of The Bourge-
ouisie”, nýleg mynd eftir Luis
Bunuel, sem kemur i kjölfar
„Poseidon” myndarinnar i
Nýja bió og „Night Porter”,
sem komin er á lista hjá Hafn-
arbiói. Mynd sú er gerð af leik-
stjóranum Liliana Cavani og
með Dirk Bogarde i aðalhlut-
verki. Fjallar hún um kynlif
uppgjafa nasista foring ja .
Myndin hefur vakið mikla at-
hygli og mikið umtal undanfar-
iö.
Þá fer nú einnig að hilla undir
sýningar myndarinnar „The
Exorcist” i Austurbæjarbiói.
—JB