Vísir - 01.04.1975, Qupperneq 13
Vfsir. Þriðjudagur 1. aprii X975.
13
Davíð sigrar Golíat
— Flugleiðir SAS
Flugleiðamenn sýndu SAS
heldur en ekki i tvo heimana við
bridgeborðin i Osló á dögunum —
okkar menn unnu frægan sigur
yfir IATA-meisturum SAS með
17:3. Alls fóru 24 spilarar i ferðina
ásamt formanni starfsmanna-
félagsins, Eðvarði Geirssyni og
Guðmundi Snorrasyni, sem var
fararstjóri. Heim komu flugleiða-
menn með bikar, sem fyrirtæki
þeirra gaf reyndar til
keppninnar. Myndin er af flokkn-
um við einn farkost Flugleíða.
Glas fyrir hófdrykkjumenn?
Svo kallaðir hófdrykkjumenn eru e.t.v. hrifnir af glasi eins og
þvi sem viðskiptaráðherra V-Þýzkalands skálar með á
myndinni. Menn sem fá sér „bara eitt glas á dag,” hljóta að ií
töluvert út Ur glmaldi sem þessu.
Jón skraddari leysir
frá skjóðunni
Jón skraddari Jónsson leysir frá
skjóðunni i viðtali við splunkunýtt
timarit, semgefiðerútá ísafirði,
Hljóðabungu. Er gamli maðurinn
ómyrkur i máli um hvaðeina og
litt feiminn við frásögnina. Tima-
rit þetta er 64 siður, verður gefið
út tvisvar á ári, segja út-
gefendurnir. Ábyrgðarmaður er
Guðjón Friðriksson. Blaðið er selt
um alla Vestfirði, en i Reykjavik
hjá Sigfúsi Eymundsson, Máli og
Menningu og bóksölu stúdenta.
Efni blaðsins er talsvert fjöl-
breytt.
ókeypis timbur
frá Rússlandi
bað er ekki amalegt að fá
timbrið frá Sovétinu fljótandi upp
að landinu, tollfrjálst og fragt-
gjaldalaust, eins og bændur við
strendur landsins hafa fengið að
undanförnu. Við suðurströndina
hefur rekinn verið óvenju mikill
eftir norðaustanvindana i janúar
og desember. Erfitt hefur þó enn
reynzt að vitja um rekann, þvi
erfitt er að komast á farartækjum
yfir sandana niður i fjörur. Það
rekur semsé ýmislegt fleira frá
Rússanum en njósnadótið þeirra.
SÍMASKRÁ —
og húsgagnahönnun
Simaskráin, hin vinsæla met-
sölubók hvers árs, er komin út,
þyngri og voldugri en nokkru
sinni, að visu svipað margar
siður, en er nú 29.6 sentimetrar i
stað 27 áður. Með þessu móti
verður mörg simaskúffan úr leik,
þær hafa verið hannaðar árum
saman með það fyrir augum að
simaskráin væri 25 sentimetrar á
lengd. I þessa miklu bók hafa
farið 100 tonn af pappir, og
eintakafjöldinn er 90 þúsund.
Meðalbók á íslandi mun gefin út i
minna en 1500 eintökum.Skráih
verður afhent frá og með degin-
um i dag og visast nánar i;
auglýsingar þar að lútandi.
Hagamelslóð
bitbein
Auð byggingalóð i vesturbænum
gegnt sundlaug Vesturbæjar hef-
ur orðið bitbein að undanförnu.
Félag ungs fólks, Byggung, fékk
úthlutað lóð fyrir blokkar-
byggingu á lóðinni Hagamelur 51-
55. Það sem vakir fyrir borginni
mun vera uppynging vesturhluta
borgarinnar, en ibuar vestur-
bæjarins eru i meirihluta fólk
komið yfir miðjan aldur.
Stjórnarráðsstarfsmenn höfðu
talið sér lóð þessa visa. Telja þeir
að verið sé að hygla góðum sjálf-
stæðismönnum i þessari úthlut-
un. Þess má geta i þvi sambandi
að meira en helmingur
Reykvikinga eru kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins.
Sameiginlegt
takmark
Sú var tíðin að þjóðin átti tilveru sína beinlínis
undir samgöngum við umheiminn. Svo er að
vissu leyti enn í dag.
En jafnvel þótt þjóðin gæti lifað hér sjálfri sér
nóg, þá hefur hún aldrei ætlað sér það hlut-
skipti að búa við einangrun, um það vitnar sagan.
"Takmark þjóðarinnar hefur ætíð verið að sækja
allt það besta sem umheimurinn hefur boðið
upp á, og einnig að miðla öðrum því besta sem
hún hefur getað boðið.
Þess vegna markaði tilkoma flugsins þáttaskil i
samgöngumálum íslendinga, þar opnaðist ný
samgönguleið, sem þjóðin fagnaði, og þegar
reglubundið áætlunarflug til útlanda hófst, varð
bylting í samgöngumálunum.
Félög sem byggðu upp flugsamgöngur þjóóarinnar
Það varð hlutverk félaganna beggja að hafa á
hendi forystu í þróun flugmálanna. Hvernig til
hefur tekist skal látið ósagt, en eitt er víst að
aldrei hefur skort á stuðning landsmanna sjálfra.
Nú hafa félögin verið sameinuð.
Það er gert til þess að styrkja þennan þátt
samgöngumála. Með sameiningunni aukast
möguleikar á þjónustu við landsmenn og
hagræðing í rekstri verður meiri. Þannig þjónar
sameiningin því takmarki sem þjóðin hefur sett
sér að hafa á hverjum tíma öruggar og greiðar
samgöngur til þess að geta átt samskipti við
umheiminn.
Það er sameiginlegt takmark félaganna og
allrar þjóðarinnar.
flucfélac LOFTLEIDIR
LSLAJVDS