Vísir - 01.04.1975, Síða 20

Vísir - 01.04.1975, Síða 20
VISIR Þriðjudagur 1. april 1975. Sjómenn boða verkfall Sjómannaféiögin á Snæfellsnesi og nokkrum öðrum stöðum hafa boðað verkfall frá 7. apríl að sögn Landssambands Islenzkra út- vegsmanna i morgun. Ltú gerir ágreining um verkfallsboðun sjó- manna á Hellissandi, þar sem Ltú telur, að þeir hafi ekki sagt upp samningum á tögmætan hátt. Jón Sigurðsson formaður sjó- mannasambandsins skrifaði ekki undir kjarasamningana I siðustu viku. Sjómenn gera aðallega kröfur um aukin friðindi, sem ekki hefur verið gengið frá. Samningafundur verður I dag um kjör á bátaflotanum og minni skuttogurum. — HH Barn höfuð- kúpubrotnar í Hlíðarfjalli Tveggja ára gamalt barn, sem var að renna sér á snjóþotu I Hliðarfjalli á laugardaginn, end- aðieina ferðina á bfl. Höfuðkúpu- brotnaði barnið og var það flutt á sjúkrahúsið á Akureyri og þaðan á Borgarspitalann. AB sögn aðstoðarlæknisins á handlækningadeild sjúkrahússins á Akureyri var höfuðkúpubrotið ekki alvarlegs eðlis. Hann upplýsti einnig, að slys i Hliðarfjalli hafi orðið færri en bú- ast hefði mátt við miðað við fjöld- ann, sem þar hefur notað snjóinn nú um páskana. „Það hafa komið hingað einn eða tveir með bein- brot. Þau vöru ekki alvarlegri en það, að hinir brotnu gátu farið heim að lokinni aðgerð. Aðrir hlutu aðeins minni meiðsl,” sagði læknirinn. —ÞJM „HÆKKUNIN NÆR TIL 99 AF HUNDR- AÐI FÓLKS í ASl" „Hækkunin nær sennilega til 99 af hundraði allra innan ASÍ, sagði Björn Jóns- son forseti sambands- ins i morgun. í ASi eru um 41-42 þúsund manns, sagði Björn.og auk þess fylgja ein- hverjir fleiri þessum samningum svo sem unglingar. Hann sagði, að félögin hefðu yfirleitt ekki enn fengið samningana I hendur, þar sem póstur hefði legið niðri um hátiðina. Bjöm taldi, að innan ASl væru ekki margir aðrir en þeir, sem hefðu yfirborganir, sem fengju ekki kauphækkun sam- kvæmt samningunum. Hvaða gagn er að samningum til 1. júni aðeins? „Það er yfirlýstur vilji beggja aðila að nota timann fram til 1. júnf til að ganga frá varanlegri samningum,” sagði Björn. ,,Það eru í raun og veru verð- lagsbæturnar, sem eru aðalat- riðið,” sagði hann.. Rikisvaldið ætlaði að setja lög um launajöfnunarbætur, sem óvist er, að sögn samningsaðila, að hefðu tryggt vinnufrið. Mönnum var því i mun að semja hið fyrsta um bráðabirgða- samning til að fá tækifæri ,,til að anda”. ABalatriði kjarasamning- anna, sem gerðir voru i siðustu viku, eru 4900 króna kauphækk- un á laun lægri en 69 þúsund. A núgildandi laun á bilinu 69000 til 73900 greiðist kauphækkun þannig að launin verða 73900 til þeirra, sem skila fullri dag- vinnu, og hlutfallslega til þeirra, sem vinna skemur. Gild- — segir Björn Jónsson — semja á um verðlags - bœturnar # • m • r <J fyrsr 1. jum andi hlutföll milli eftir-, nætur- og helgidagavinnu haldast, þannig að þar verður hækkun að sama skapi hlutfallslega og á öðru kaupi. Rikisstjórnin lýsir jafnframtyfir, auk þess sem áð- ur hefur verið greint frá i blað- inu um lækkun skatta, að inn- heimtu opinberra gjalda i ár verði dreift yfir lengri tima en ella hjá þeim launþegum, sem i ár hafa sömu eða lægri peninga- tekjur en í fyrra. Stefnt verði að þvi, að innheimta opinberra gjalda fari ekki fram úr 40% hjá launþegum og tekjutrygging lif- eyrisþega hækki i sama hlutfalli og lægstu kauptaxtar. — HH Með hinu nýja bóni þurfa menn ekki aö bóna blla sina nema á tveggja til þriggja ára fresti. Þegar er byrjað að nota efnið I Gljáa hf., og hér eru þeir Pálmi Jónsson og Sigtryggur Vilhjálmsson að bóna. Ljósm.: Bragi. Dauðaslysvið Urriðaórbrú Dauöaslys varð viö brúna yfir Urriðaá um klukkan niu á mið- vikudagskvöldið siðasta, þegar ameriskum bil var ekið á miklum hraða á brúarstólpa. Sex manns voru i bilnum og lézt einn þeirra af völdum áverka, sem hann hlaut er hann kastaðist út úr biln- um. Akeyrslan var svo hörð, að f jór- ir farþeganna köstuðust út úr bflnum. Sá erlézt af þeim sökum, sat I framsæti bilsins. Er hann talinn hafa látizt samstundis. Hann hét Tómas Grétar Hallgrlmsson, var 22 ára að aldri, til heimilis að Vesturgötu 125, Akranesi. Talið er fullvist, að ökumaður bifreiðarinnar hafi verið undir áhrifum áfengis. — ÞJM Bónið dugir í tvö til þrjú ór! og á að þola nœstum allt — Nýtt efni tekið í notkun Nú á ekki að þurfa að bóna bilinn nema á 2ja til 3ja ára fresti. Það er nýtt efni, sem nú hefur verið tekið i notkun hér á landi, sem veldur þessari breytingu. Fyrirtæki, sem kallast Gljái hf, hefur efnið i notkun, og þegar er farið að bóna bíla með cfninu. Efnið kemur frá Japan,.og hefur reynzt mjög vel, þar sem það hefur verið notað. Er það til dæmis mjög mikið notað i Eng- landi. Þangað fóru menn frá Gljáa i haust til þess að læra meðhöndlun þess. Það tekur um tvo til fjóra tima að bóna bilinn á þennan hátt, en alls þarf þrjár til fjórar yfirferðir. Verðið fer eftir stærð bílsins. Sagt er, að bónið eigi að þola hvað sem er, en helzt eru menn þó hræddir við steinkast. Ekki má fara með bílinn á þvottastöð i mánuð, eftir að hann hefur verið bónaður með þessu nýja efni. „Bilarnir verða mjög failegir á eftir, og litirnir skýrast að mun,” sagði Sigtryggur Helga- son, sá er hetur umboð lyrir efnið, okkur, þegar við höfðum samband við hann. Hann sagðist vera með bilinn sinn i bónun núna, og þegar hefur efnið verið reynt á mörgum. Enda er hverjum sem er heimilt að prófa, en Gljái er til húsa i Ármúla. -EA. m Dauðaslys: SNERTI 6000 VOLTA SPENNI „Spennistöðin átti auð- vitað ekki að vera opin fremur en aðrar spenni- stöðvar. Ég þori heldur ekki að fullyrða/ hvort hún hafi verið það þegar piltarnir komu að henni. Það er nú eitt af því, sem verið er að rannsaka þessa stundina," sagði rafveitustjóri Rafveitu Selfoss, í viðtali við Visi i morgun. Umrædd spennistöð var á sin- um tima sett upp til að þjóna fyrst og fremst fjarskiptastöð Landssimans. Hún stendur skemmt vestan við Hraunsá. Um fjögurleytið i gær fóru tveir piltar þar inn og snerti annar þeirra 6000 volta spenni. Lézt pilturinn samstundis. Hann var frá Stokkseyri og var tæpra átján ára. Nafn hans verður ekki birt að sinni. Um leið og pilturinn snerti spenninn i rafstöðinni sló út öllu rafmagni af Stokkseyri og Eyrarbakka. — ÞJM „Aðeins hólfur sigur unninn" — segir forvígismenn söfnunarinnar „Mér finnst ekki nema hálfur sigur unn- inn, þótt FRÍ hafi nú ákveðið að hætta við þátttöku i auglýsingum fyrir sigarettutegund, ” sagði Ragnar Tómas- son, einn forvigismann „tóbakslausu” söfnun- arinnar. „Til þess að við getum fagnað full- um sigri, þurfum við að geta rétt iþrótta- hreyfingunni myndar- lega hjálparhönd. Aðalvinnan hefur verið sú að koma undirskriftalistunum i umferð. Það hefur nú hafzt, og er ætlunin að halda söfnuninni .tóbakslausu' áfram þessa viku. Það er ekki hægt að meta með neinni ná- kvæmni, hver árangur söfn- unarinnar hefur orðið til þessa, en okkur sýnist ekki fjarri lagi að álita, eftirþvisem við höfum heyrt af söfnuninni, að það sé um hálf milljón, sem safnazt hefur. Þvi fer þvi fjarri, að vandinn hafi verið leystur. Það sem okk- ur vantar núna er meiri mann- skapur til þess að ganga i söfn- unina með oddi og egg. Hingað til hefur það háð okkur, hve fá- liöaðir við erum. Það ætti lika að ýta undir, að FRl ætlar að endurgjalda að- stoðina á skemmtilegan hátt með þvi að bjóða þeim, sem styrkja söfnunina, frimiða á landsleikinn við Skota I sumar. Við vonum, að menn láti það sjást I verki, að þeir kunni að meta þá afstöðu, sem FRI hefur tekið til þessa máls,” sagði Ragnar að lokum. — SHH

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.