Tíminn - 24.07.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.07.1966, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 24. júlf 1966 TÍMINN 3 f SPEGLITÍMANS 'Verið er nú að taka nýja James Bond mynd, sem heitír þessu skemmtilega nafni „Maður lifir bara tvisvar.“ Á meðfylgjandi mynd sést Sean Connery (James Bond) ásamt japönsku stúlkunni, sem var valin í aðalhlutverkið. Hú;n heitir Akiko Wakabayashi og er kunn kvikmyndaleikkona. Hún er 26 ára að aldri. í myndínni „Maður lifir bara tvisvar" lei'kur hún Suki, hinn glæsilega einkaritara í aðalbækistöðvum japönsku leyniþjónustunnar. ★ ★ Gamanleikarinn Jerry Lewis bauð fyrir skömmu nokkrum vinum og vandamönnum í skemmtisiglingu á lystisnekkju sinni. Rétt undan ströndum Kaliforníu komst talsverður leki að snekkjunni og ekki um annað að gera en snarast um borð í björgunarbát. Það skipti engum togum, snekkjan var sokkin eftir skamma stund, en Jerry og gestir hans kom- ust í land, og varð ekki meint af volkinu. Bindindismót í Vaglaskógi verzlunarmannahelgina GPK-Akureyri, laugardag. Nokkur æskulýðsfélög á Ak- ureyri, Eyjafirði og Suður- Þingeyjarsýslu hafa ákveðið að efna til bindindismóts í Vaglaskógi um n.k. verzlunar- mannahelgi. Hefst mótið að kvöldi laugardagsins 30. júlí með útiskemmtun. Dansað verð 'ur í Brúarlandi og á miðnætti verður flugeldasýning og brenna. Daginn eftir, sunnudag, verða tvær útisamkomur og einnig dansað um kvöldið. Með al skemmtiatriða, sem koma fram á mótinu, er söngur Magn úsar Jónssonar og Svölu Níel- sen, Jóhanns Daníelssonar og Sigríðar Schiöth, Lúðrasveit Siglufjarðar leikur, kvartett frá Húsavík syngur, Ómar Ragnars- son og Alli Rúts flytja skemmti- þætti, Gunnar Stefánsson frá Dalvík les upp og hljómsveit- in Póló frá Akureyri með söngv urunum Betu og Bjarka leika og syngja fyrir dansi. Þá fer fram keppni í knattspyrnu og handbolta. Á sunnudag verður guðsþjónusta og predikar sr. Friðrik A. Friðriksson sókn- arprestur á Hálsi. Mótsgestum verður séð fyrir tjaldstæðum, og lögreglu- og sjúkravakt verður í Vaglaskógi meðan mótið fer fram. Einnig verður veitingasala í skóginum. Mót þetta er öllum opið, með því skilyrði, að hafa ekki áfengi um hönd, og verður því strang- lega fylgt eftir. Þetta er þriðja árið í röð, sem efnt er til bindindismóts í Vaglaskógi um þetta leyti árs, og hafa hin fyrri gefizt vel. Á s.l. ári sótti nær 4000 manns Vaglaskóg um Verzlunarmanna helgina. Framkvæmdastjóri Bindind- ismótsins að þessu sinni er Stefán Kristjánsson, Nesi, Fnjóskadal. Nú fer að líða að því, að tízkuhúsin í París sýni hausttízkuna. Tízkuteiknarinn Louís Feraud mun opna tizkuhús sitt 25. þ.m. og verður þar vafalaust roargt forvitnilegt að sjá. Hins vegar gera menn ekki ráð fyrir neinum gjörbyltingum í þessum efnum nú í haust. Talið er, að stutta tízkan fái enn að halda velli og tízkulitirnir verði aðallega hvítt og svart. Þessar stúlkur á mynd inni eru sýningarstúlkur hjá Feraud og gefa þær dálitla nasasjón af hausttizkunni. ★ Tveir hollenzkir bílstjórar lentu i slæmri klípu í Dan- mörku fyrir skömmu. Þeir voru á leið frá Svíþjóð heim til Hol- lands akandi á kælibíl og ætl- uðu með bilinn á ferju frá Röd- by á Falstri yfir til Þýzkalands. Skammt frá höfninni rákust þeir á tíu ferðalanga, sem höfðu mikinn áhuga á því að komast á puttanum til Þýzka- lands. Af góðmennsku sinni buðu bílstjórarnir þeim far í kæliklefa bílsins og var það boð þegið með þökkum. Hollend- ingarnir komust klakklaust inn í ferjuna með laumufarþegana SÍna, og þóttust hafa himin höndum tekið, en vitaskuld varð að hleypa mönnunum út úr kæliklefanum meðan á ferðinni stóð. Einn skipverjanna komst þá að raun um, hvernig allt var í pottinn búið, og endirinn varð sá, að ferjan sneri við og var lögreglan kölluð á vettvang þegar komið var til Rödby. Út af þessu spunnust talsverð málaferli, þurftu bílstjórarn- ir að greiða himinháar skaða- bætur, svo og allan málskostn- að, en laumufarþegarnir sluppu með smávægilega fjársekt. ¥ Þetta er Pia Degermark, sænsk stúlka, 17 ára að aldri Henni hefur verið falið aðal- hlutverkið i sænskri kvifcmynd. er fjallar um lif sirkusstjörn unnar Elviru Madigan. Það var ákaflega skemmtileg tilviljun, sem olli þyí að Pia lagði út í kvikmyndabrautina Fyrir nokkrum mánuðum var hún á dansleik, þar sem staddur vai sænski krónprinsinn Carl Gúst af. Þau dönsuðu mikið saman um kvöldið, og skömmu seinna komu myndir af þeim í flestum sænskum tímaritum. Kvik- myndaframleiðandinn Bo Wid erberg rak augun í eina af þessum myndum, fannst þess: laglega stúlka alveg sjálfkjör in í hlutverk Elviru Madigan, og eftir nokkuð þóf gat ■ hann talið hana á að taka það að sér. Sagt er að Pia sé greind stúlka og hafi til að bera mikla leikhæfileika

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.