Tíminn - 24.07.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 24.07.1966, Blaðsíða 16
DB 166. Ibl. — Sunnudagur 24. júlí 1966 — 50. árg. HÉRAÐSMÓT AÐ KETILÁSI Framsóknarmenn á Siglufirði um leikur hljómsveit Hauks Ólafsfirði og í Fljótum halda Þorsteinssonar fyrir dansi. héraðsmót sitt að Ketílási, laug ardaginn 30. júlí n. k. og hefst það kl. 21. Ræður flytja, ól- afur Jóhannesson, varaformað- ur Framsóknarflokksins og Tómas Karlsson blaðamaður. Magnús Jónsson óperusöngvari' syngur við undirleik Ólafs’ Vignis Albertssonar, Jón Gunn| laugsson skemmtir, og að lok Ólafur Tómas HVASSVIÐRI UM LAND ALLT HZ-Reykjavík, Stjas-Vorsabæ, laugardag. Hvöss norðanátt var um allt landið í nótt og búast mátti við að veðrið haldist óbreytt í dag og á morgun. Sunnan- lands og vestan var hiti 7—10 stig, þurrt að mestu og 6—8 vindstig. A norður- og austur- landi var hvasst á annnesjum og rigning. Hiti var 4—5 stig, aðeins 1 stigs hiti á Hveravöll- um og snjóaði í fjöll. Eins og skýrt var frá í blað- inu á föstudag, voru bændur sunnanlands orðnir uggandi um heyskapinn vegna langvarandi ótíðar. ' í fyrrakvöld létti til, og bændur fóru að slá, en í dag er orðið svo hvasst, að ekki er nokkur leið að ná saman því heyi, sem þurrt er orðið. Virðist því lítið hafa rætzt úr fyrir heyskapnum enn. 400 LAXAR KOMNIR Á LAND ÚR NORÐURÁ HringferöSJJJjimN^^ Noregur - Svíþjóð - Finnland - Danmörk KT—Reykjavík, laugardag. Laxveiði er nú sæmileg í helztu laxveiðiánum en mun samt ekki vera með bezta móti. Veiðin hefur verið fremur dræm í | ánum norðanlands en skárri á sunnanverðu landinu. Þessar upplýsingar komu fram, er Tíminn hafði samband við nokkra helztu laxveiðistaðina nú fyrir helgina. Enn eru nokkur sæti laus í hinni glæsilegu hringferð S. U. F. uin Norðuriönd, sem hefst hinn 5. ágúst og lýkur 21. sama mánaðar. Fargjald er aðeins kr. 16.900.00 og ér innifalið flugferðir, bílfcrðir, ferðir á ferjum, gisting, morgunmatur, kvöldmatur, söluskattur og fararstjórn. Skráning þátttakenda og upplýsingar annast Örlygur Hálfdanarson í síma 3 56 58. í Norðurá hefur veiði gengið ágætlega að undanförnu og eru komnir þar á land síðan í vor um 400 laxar. Mesta veiðin var dag- ana 10. — 12. júlí, en þá komu á land 68 laxar á 8 stengur. Er Tíminn hafði samband við veiði- húsið í Norðurá á föstudag, var mikill vöxtur í ánni og fremur dræm veiði. Veiði hefur verið með lélegra móti í laxveiðiánum í Húnavatns- sýslu að undanförnu, en að sögn Guðmundar Jónassonar í Ási í Vatnsdal mun veiðin vera eitthvað að glæðast. Vatnsdalsá hefur ver- ið gruggug að undanförnu og erf- itt að standa að veiðunum. Veiði hefur verið mjög treg í Laxá í Þingeyjarsýslu í sumar, en hefur glæðzt verulega síðustu vik- una. í Laxamýrarlandi hafa nú fengizt 9—11 laxar á dag, en veiði mun vera tregari ofar í ánni. MEISTARAMÓTIÐ HEFST Á M0RGUN 40. meistaramót íslands í frjáls íþróttum hefst á Laugardalsvellín- um annað kvöld, mánudagskvöld, klukkan 20. Þátttaka er mjög mik il víðs vegar að af landinu. Gestir á mótinu eru tveir tyrkneskir frjálsíþróttamenn • Rörin í vatnsleiðsluna til Vestmannaeyja (TímamyndirSI). Vatnsveituframkvæmdir Vestmannaeyinga hafnar FB-Reykjavík, laugardag. Vika er nú li'ðin síðan hafizt var handa um framkvæmdir við vatnsleiðsluna, sem leggja á frá Syðstu Mörk undir Eyjafjöllum og út til Vestmannaeyja. Tvær gröfur vinna stöðugt dag og nótt að því að grafa skurði fyr- ir vatnsrörin, og eru nú búnar ið grafa um 2 km. Landið, scm verið er að grafa í er mjög blautt og fyllist allt af vatni jafnharðan að grafið er, enda búið að stórrigna alla vikuna, síðan framkvæmdirnar hófust. Leiðslan verður lögð frá Syðstu Mörk undir Eyjafjöllum yfir brúna á Markarfljóti og til sjávar, og er þetta um 22 km löng leið. Rörin sem vatnið verð ur leitt í, eru úr asbesti, og eru þau fengin frá Póllandi. Búið er að flytja nokkurn hluta rör- anna í veituna, en þeim var skipað á land í Þorlákshöfn. Draga verður þrjú og þrjú rör í einu með dráttarvél meðfram skurðunum, þar sem bílarnir, *em koma með þau frá Þorláks Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.