Tíminn - 24.07.1966, Síða 12
u
TIMJLNN
SUNNUDAGUR 24. júlí 1966
MINNING
Guttormur Erlendsson
Á morgun, mánudaginn 25. júlí,
verður til moldar borinn Guttorm-
ur Erlendsson, hæstaréttarlögmað-
ur, en hann andaðist 17. júlí sl.
Guttormur var fæddur hinn 13.
apríl 1912 að Breiðabólsstöðum á
Álftanesi. Voru foreldrar hans Er-
lendur Bjömsson, hreppstjóri og
bóndi þar og kona hans María
Sveinsdóttir bónda og skipasmiðs
í Gufunesi Jónssonar. Eru þetta vel
kunnar ættir. Guttormur varð stú-
dent frá Menntaskólanum í Reykja
vík vorið 1932 með hárri 1. eink-
unn. Hann lauk lögfræðiprófi frá
Háskóla íslands 28. maí 1938 með
mjög hárri 1. einkunn 143% st.,
sem var með hæstu einkunum, sem
gefnar voru eftir þágildandi eink-
unastiga. Að loknu lagaprófi stund
aði Guttormur framhaldsnám í
lögfræði í Danmörku, Þýzkalandi
og Englandi á árunum 1938 og
1939. Hann gerðist skrifstofustjóri
hjá Félagi ísl. iðnrekenda 15. des.
1939 og var það til 31. des 1941.
Samhliða þeim störfum og eftir
það stundaði Guttormur málflutn-
ingsstörf hér í borginni og lauk
prófi sem héraðsdómslögmaður 25.
nóv. 1940. Hann varð aðalendur-
skoðandi reíkninga Reykjavíkur-
borgar hinn 1. jan. 1942 og gegndi
því starfi til dánardags. Prófraun
sem hæstaréttarlögmaður lauk
hann 14. ágúst 1944. — Eftir að
hann réðst til starfa hjá Reykj-
víkurborg voru málflutningsstörf
hans einkum varðandi málefni
borgarinnar og í hennar þágu, þótt
hann einnig ynni slík störf fyrir
aðra. En aðalævistarf Guttorms
beindist að íjármálum Reykjavík-
urborgar, og má óhætt fullyrða,
að að öllum öðrum ólöstuðum hafi
hann verið þar kunnugri öllum
þráðum, en nokkur annar mað-
ur. — Mun og sá kunnugleiki hans
hafa verið ráðamönnum borgarmál
efna til ómetanlegs gagns við störf
sín í þágu borgaranna.
Guttormur var í niðurjöt'nunar
nefn Reykjavik' ' á 1952 til 1962
og formaður . - 'arinnar frá
1956. Hann var msinn í framtals-
nefnd Reykjavíkur 20. desember
1962 og formaður hennar í sama
mánuði og var það síðan til and-
láts síns. Hann var skipaður í
sparnaðarnefnd borgarinnar í nóv-
ember 1951 og átti sæti í þeirri
nefnd eftir það. Kosinn var hann
í stjórn skýrsluvéla ríkis og Reykja
víkurborgar 30. apríl 1962 og átti
þar sæti síðan. Hann var í stjórn
Þjóðskrárinnar, unz hún var lögð
niður og í stjórn Iðnlánasjóðs
1942—‘44. Hann tók nokkurn þátt
í stjórnmálum á skólaárum sínum,
og var þá m.a. ritstjóri tveggja
BRIDGESTONE
BRIDGESTON E
EF EKKI, ÞÁ HAFIÐ BRIDGESTONEHJÓLBARÐANA
NÆSTU HJÓLBARÐAKAUP ER AÐ RÆÐA.
/
í HUGA ÞEGAR UM
ENDINGARBEZTU DEKK, SEM HÉR HAFA FENGIZT.
BRIDGESTONE BREGZT ENGUM
blaða, en eftir það mun hann ekki
hafa komið mikið við stjórnmála-
átök. — Um langt árabil var Gutt-
ormur endurskoðandi reikninga
Lögmannafélags íslands.
Guttormur kvæntist 1943 Guð-
laugu Þorfinnsdóttur, veitinga-
manns í Baldurshaga og eiga þau
einn son.
Guttormur Erlendsson var strax
á skólaárum sínum áberandi mað-
ur, hvar sem hann fór. Hann var
með hærri mönnum á velli, stór-
gerður nokkuð í andliti og sér-
kennilegur og gerðist snemma
þunnhærður. Állt fas hans og fram
koma gerði hann þegar kunnugan
hverjum manni. Hann hefði sómt
sér vel með víkingum, er haldið
var til orrustu og han rúm hefði
örugglega verið vel skipað. En á
friðartímum þeim, er hann ólst
upp á, þótti mönnum strax mik-
ið koma til gáfna hans og and-
legra hæfileika. f skóla var Gutt-
ormur strax mikill námsmaður,
jafnt í Menntaskóla sem Háskóla
og þótt hann stæði að jafnaði fram
arlega í átökum þeim, er jafnan
fylgja skólanemendum i þessum
menntastofnunum og þá ekki sízt,
er skoðanir manna voru sem mest
skiptar á kreppuárunum fyrir
seinna stríð, þá lauk hann próf-
um sínum glæsilega og á eðlileg-
um tíma. — Ég kynntist Guttormi
Erlendssyni strax á skólaárum okk
ar og um tveggja ára skeið höfðum
við dagleg samskipti við lögfræði-
störf, eftir að hann kom heim frá
framhaldsnámi. Guttormur var að
mínu viti frábær málflutningsmað-
ur. Ekki aðeins kunni hann fræði
sín flestum öðrum mönnum betur,
heldur og var glöggskyggni hans
á menn og málefni slík, að sjald-
an skeikaði. Hann kunni og ráð
í hverri raun, og hygg ég, að erfitt
hefði flestum orðið að vinna þau
mál, sem hann leiddi ekki farsæl-
lega til lykta. En alla tíð frá okk-
ar fyrstu kynnum og nú að leið-
arlokum, þykir mér mest um vert
vináttu hans, sem var svo fölskva-
laus, að milli okkar féll aldrei óvin
samlegt orð, ekki einu sinni í hálf-
kæringi, hvemig sem á stóð.
Ýmsir þeir sem lítt þekktu Gutt-
orm Erlendsson héldu hann hrjúf-
an mann og harðan, en þeir sem
kunnugri voru vissu, að hann var
hverjum manni raunbetri og hjálp-
samari og vildi hvers manns vand-
ræði leysa.
Við andlát Guttorms Erlendsson
ar hefur Reykjavíkurborg misst
einn sinn bezta starfsmann og
verður sæti hans vissulega vand-
fyllt.
Ástvinir Guttorms, vandamenn
og vinir hafa einnig misst mikið
við fráfall hans. En minningarn-
ar lifa, þótt maðurinn deyj, og
í hugum okkar, sem til þekktum
„situr eftör svipur stór“ er við
minnumst Guttorms Erlendssonar.
Egill Sigurgeirsson.
BILA OG
BÚVÉLA
SALAN
v/Miklatorg
SM23138