Tíminn - 24.07.1966, Side 14

Tíminn - 24.07.1966, Side 14
14 UMBARUMBAMBA SVELLANDI SVEITABALL Á TUTTUGUSTU ÖLD Myndin upphefst á því, að Hljómar eru á þeysireið á leið á sveitaball, og COUNTRY DANCE hljómar í öllu sínu veldi. Síðan koma svipmyndir, sem sýna unga fólkið drífa að á hin- um ólíklegustu farartækjum, allt frá flugvél ofan í traktor Öll eru þau á leið á sveitaballið. Piltarnir eru búnir að koma sér fyrir í samkomuhúsinu, hvort sem það er Hlégarður, Hvoll eða Aratunga. Eitt par er á gólf- inu og dansar á listilegan máta. Sumir kynnu kannski að halda að lagið, sem nú er leikið vísi til hugrenninga Hljómapiltanna BETTER DAYS (Það koma betri dagar) en sú hugmynd hlýt- ur að hverfa út í veður og vind fljótlega því á næsta augnabliki er gólfið iðandi af dansandi fólki. Ungt fólk á sveitaballi. Ær- andi gítarmúsík, flöktandi stúlkuaugu, hendur, sem snertast, munnar sem mastast. Þrýstinn meyjarbarmur hefst og hnígur í trylltri dansgleði. Skakkt bros dansherrans opinberar röð af skemmdum tönnum. MY LIFE. Tónarnir hníga frá hljómsveitinni eins og í þungum en samt iðandi öldum. Æskufólkið er sem lostið annarlegum öflum. Stjörf augu, gretta, hlátur, þvöl hendi, 20 cm fyrir ofan hné. Stúlkan verður andstutt og hjartað bærist í takt við lagið I DON'T CARE (Mér stendur á sama). Erlingur sleikir hljóðnemann í djúpri innlifun og Pétur geng- ur upp og niður við trommurnar. Allt annað er fásinna. Hann er í trans og skynjar EKKERT nema ,,beatið“. Húfan hjá Gunnari stingur skemmtilega í stúf við allt að því heimspeki- lega svipinn, en Rúnar brosir eins og hann hafi nýlega skorað úrslitamarkið fyrir Keflavík. Áfram heldui dansleikurinn. Unga fólkið hristist af lífi og sál í takt við lagið. Hún horfir ertnislega á piltinn, en hann hugsar um partíið á eftir og skyldi vera gott að sofa hjá henni. Hann skekur sig til eins og maður. sem er óvanur að vinna við loftbor. Aðskorin peysa að síðbuxum opinberar margt, en hann fyllir upp í það, sem á vantar. Hvelfdur magi, lendar, brjóstin, rak- ar varir Sítt hárið leikur um axlirnar. Trúlofunarhringurinn í vasanum. Hún lýtur að honum og hvíslar. IF YOU KNEW (Ef þú vissir það). Þetta fjöruga lag berst í hringiðu yfir salinn og lögregluþjónninn fær sér í nefið og veltir vöngum yfir því, hvort hann hafi krossað rétt á kosn- ingadaginn. Það dregur að leikslokum, faðmlögin verða heitari. Vangi við vanga. Lukt augu, sem gefa fyrirheit og LOVE ENOUGH leika Hljómar. Lagið berst út yfir mýrar og móa. Ástaróður á atómöld. Bifreið kemur í Ijós uppi á hæðinni. Síðan önnur. Ljós þeirra skera myrkrið eins og framandi fyrirbæri frá ann- arri stjörnu. Þessu er lokið jafn skyndilega og það byrjaði. en ef til vilí er eftirleikurinn svellandi partí. — — Þetta er æska íslands eins og hún er anno 1966. Þetta er sveitaball Benedikt Viggósson. EYJAMENN Framhald af bls. 1. mannaeyjum er það bannað. Við sættum okkur ekki við annað en að njóta sömu réttinda og aðrir landsmenn. — Hver voru tildrög fundarins? — Það var fulltrúaráð Sjálfstæð isflokksins sem krafðist fundarins. Mættir voru frá Sjálfstæðisflokkn- um Guðlaugur Gíslason, Björn Guð mundsson, Marteinn Tómasson og Jón Sigurðsson. Frá Framsóknar- flokknum Sigurgeir Kristjánsson og Jóhann Björnsson. Frá Alþýðu- bandalaginu Lýður Brynjólfsson og Garðar Sigurðsson. Frá Alþýðu flokknum Magnús Magnússon. Annar Alþýðubandalagsmaður- inn sat hjá, en hinn var samþykkur Það voru nokkrar atkvæðagreiðsl- ur og það kom aldrei fram neitt mótatkvæði, allar tillögur sam- þykktar með 8 atkvæðum af 9. Það voru ekki allir með sjón- varpi í sjálfu sér, heldur var ein- göngu lögð áherzla á að við sæt- um við sama borð og aðrir. I Stemningin í Vestmannaeyjum er á þann veg, að það eru minnsta ________TÍMINN__________________ kosti 95% manna með þessari ákvörðun. Ég er viss um, að ef hið opinbera reynir að gera fleiri ráðstafanir, þá fer allt í háaloft burtséð hvort menn eru með sjónvarpi eða ekki, aðeins vegna þeirra forsendar að við sitjum ekki við sama borð og aðrir. Svo er það einn þáttur þessa máls, að mikil reiði er í mönnum vegna þess, að Þjóðleikhúsið hefur ekki nema einu sinni sent leikflokk hingað og við teljum okkur hafa greitt það mikinn skemmtanskatt til Þjóðleikhússins og sinfóníu- hljómsveitarinnar, að við eigum fullan rétt á betri þjónustu frá hendi þessara aðila. — Hvað er talið að margir horfi á sjónvarp í Vestmannaeyj- um núna? — Ég gæti trúað, að það sé búið að reisa um 200 stengur og þá má gera ráð fyrir að um þúsund manns horfi á sjónvarpið. Annars skil ég ekkert í þessum aðgerðum því að þetta styrkir íslenzka sjón- varpið. Málið stendur alls ekki um hvort loka eigi Keflavíkursjónvarp inu eða ekki, þegar það íslenzka tekur til starfa, eins og einhverjir kynnu að álíta. — Er ekki búizt við, að ein- hver opinber aðili verði á staönum þegar þið tengið aftur? — Nei, nei, þetta er upp á svim andi háu klifi, og það vogar sér enginn þangað upp nema fullhug- ar. Menn vilja ógjarnan lenda í átökum þarna uppi, þetta er hengi flug. Það skal tekið fram að lokum, að í Félagi sjónvarpsáhugamanna hér eru menn af öllum stjórn- málaflokkum. Þá sneri Tíminn sér til Magnús ar H. Magnússonar, símstöðvar- stjóra í Vestmannaeyjum, en hann gengdi störfum bæjarstjóra á fundi bæjarstjórnarinnar í gær. Magnús sagði m.a.: —í þessu máli er réttur bæjar- ins ótvíræður gagnvart rafmagn inu, en réttur ríkisins gagnvart sjónvarpssendingum byggist á út- varpslögunum, sem alls ekki ná til sjónvarps, en ná trúlega til tals og tóna sjónvarpsins. En þetta er atriði, sem menn eru ekki sam- mála um. Gagnvart símanum eru það fjarskiptalögin, sem skipta máli, og ef um nýja tíðni væri að ræða, þá er það ótvírætt að það heyrir undir símann, en í þessu tilfelli er um að ræða mögn un á sömu tíðni — geislanum að- eins beint i aðra átt. Trúlega er hægt að fella þetta mál undir fjar skiptalögin, því að raunverulega er réttur símans það mikill, að hann gæti rofið dyrabjöllur í húsi' ef hann kærði sig um. Senni- lega er hægt að stöðva þessar aðgerðir með hliðsjón af útvarps- og fjarskiptalögunum, en þó er það mikið vafaatriði, þar sem ekki er um nýja tíðni að ræða, og þetta er ekki endurvarpsstöð. Það er t.d. leyft í fjölbýlishúsum í Reykjavík að vera með einn magn- ara, sem sendir síðan út til allra íbúða í húsinu. Ég er viss um, að ef þetta er ólöglegt athæfi hér, þá er mögnunin í fjölbýlishúsum Reykjavíkur líka ólögleg. Þetta er se« sagt leyft í Reykjavík, en svipaðar aðgerðir hér stöðvaðar — og um það stend- ur slagurinn í raun og veru. — Hvernig verður þessi teng- ing við kapalinn framkvæmd? — Rafveitan leyfir aðgang að strengnum og það er tengt við hann á öðrum stað en inni í húsi Landssímans. Þetta er strengur. sem ekkert er notaður af síman- um, og hefur aldrei verið notaður — var á sínum tíma lagður sem varastrengur. Þá hefur mastur frá símanum aldrei verið notað til sjónvarpssendinga. Þeir eru með sitt eigið mastur. Uppsetning mast ursins er ákaflega frumstæð, og raunverulega á algjöru tilrauna jStigi, það myndi ekki þola mikla veðurhæð. Það er semsagt verið að gera tilraunir með, hvort hægt sé að ná sjónvarpsstöðinni á Kefla- víkurflugvelli. í ein tvö ár hefur verið reynt að fá heimild hjá út- varpi og síma, en það hefur aldrei fengizt. Félag sjónvarpsáhuga- manna er því eingöngu að kanna hvort hægt sé að ná sjónvarps- sendingum. — Hafið þið nokkra hugmynd um hvað hið opinbera gerir nú í málinu? — Mér finnst vera um tvær leið- ir að ræða, og tala ég þá ekki sem símstjóri — annað hvort er að beita hörku og lögregluvaldi til að stöðva þessa framkvæmd, og þá myndi Félag sjónvarpsáhuga manan sennilega fara í mál. En okkur myndi finnast það ákaflega tilgangslítið þar sem íslenzka sjón varpið hefst eftir tvo — þrjá mán- uði. Hérna háttar þannig til, að við getum alls ekki séð ameríska sjónvarpið eftir að það íslenzka kemur, vegna þess að það er á svo nálægri tíðni, og verður sent með svo mikilli orku héðan, að það verður algerlega útilokað að ná Keflavík, nema að vísu á þeim tíma, sem íslenzka sjónvarpið send ir ekki. Hin leiðin er sú að láta málið kyrrt liggja, því að það eru mörg vafaatriði í málinu. — Þið viljið hraða uppsetningu ‘á sendi fyrir íslenzka sjónvarpið? | — Já, það er eindregin ósk okk- ! ar. Það hefur verið ákveðið að sá tilraunasendir, sem er í Reykja vík, komi hingað eftir að nýr send ir kemur til Reykjavíkur. Við vilj um ekki að það verði neinn drátt- ur á, að hann verði settur upp hér, þegar íslenzka sjónvarpið tekur til starfa. HM í KNATTSPYRNU Framhald af bls. 1. hálfleiks og Augusto skoraði 5. mark Portúgals og urðu því lokatölur 5:3 fyrir Portúgal. f Sunderland unnu Rússar Ungverja með 2:1 eftir að hafa haft 1:0 yfir í liálfleik. Og i Shefficld vann Vestur-Þýzka- land öruggan sigur gegn Uru- guay 4:0. Það verða sem sé England, Portúgal, Vestur-Þýzkaland og Sovétríkin, sem berjast um heimsmeistaratitilinn. England og Portúgal Ieika saman í und anúrslitum og Sovétríkin og Vestur-Þýzkaland. Hér í Tíman um spáðum við því í gær, að þessi lönd kæmust áfram, og sú spá reyndist rétt. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. 1 l | Guðm. Þorsteinsson, ‘ gullsmiður. Bankastræti 12. 1 SUNNUDAGUR 24. júlf 1966 BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggi í akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og viðgerðlr. Sími 17-9-84. Gúmmíbarðinn hi, Brautarholti 8, Klæðningar Tökum að okkur Klæðning ar og viðgerðir á tréverki á bólstruðum húsgögnum. Gerum einnig tilboð i við- hald og endurnýjun á sæt- | um i kvikmyndahúsum, fé- lagsheimilum áætlunarbif- reiðum og öðrum bifreið- um i Revkjavík og nær- sveitum HúsgagnavinnusTofa Bíarna ocj Samúels, Efstasundi 21, Reykjavík sími 33-6-13. BARNALEIKTÆÖ ★ ÍÞRÓTTATÆKI Vélaverkstæði Bernharðs Hannessonar, Suðurlandsbraut 12, Sími 35810.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.