Vísir


Vísir - 05.04.1975, Qupperneq 2

Vísir - 05.04.1975, Qupperneq 2
2 Vísir. Laugardagur 5. aprll 1975 visiRsm: Hvaða veður líkar þér bezt? Sævar Óli Hjörvarsson, nemi: Ég kann langbezt viö sólina, enda er ég mikið úti þá. Viö rigningu kann ég alls ekki. María Friöriksdóttir, húsmóöir: Ætli það sé ekki sólskin og gott veður, þá meina ég logn. Ég reyni að vera sem mest úti við i sliku veðri, eftir þvi sem hægt er. Birgir Þórisson, nemi: Ég vildi helzt blanda saman sólskini og snjó. Snjórinn er alveg ágætur. Ég nota mér það yfirleitt að skella mér á skiði þegar snjór er. Friörik Blomsterberg, nemi: Ef ekki er rok og rigning, þá get ég sætt mig við næstum hvað sem er. Elin Pálmadóttir, blaðamaður: Þegar ég er hérna heima þá finnst mér gott aö hafa svolitið veður. bað má vera gola og rign- ing.ogég klæði migþá samkvæmt þvi, Þegar ég er erlendis, vil ég helzt hafa sól. Friörik Andersen, nemi: Ja, snjó held ég. Vegna þess að mér finnst mjög gaman að renna mér á sleða. Svo fékk ég nú skiði i jóla- gjöf, sem ég hef reyndar litið notað. Annars finnst mér lika gaman að henda snjóboltum i veggi og stelpur. Og Þorsteinn Ólafsson hringdi af sama tilefni: „Alveg er ég gáttaður á þvi, að þeir I DAS skuli draga úr ó- seldum miðum. Ég hef heyrt þaö á öllum i kringum mig, að þetta sé hin mesta hneisa. A þeim i happdrættinu að liöast að teikna út ótakmarkaðan fjölda af happdrættismiðum og eiga sjálft jafnstóran séns i vinning- ana og þeir sem kaupa miða i happdrættinu I góðri trú? Ég fór sjálfur á stúfana i gær (fimmtudag) og keypti miða fyrir þrjú þúsund krónur út á þennan vinning, en svo er dregið og stóri vinningurinn „fer fram hjá” ef svo má að orði komast. Þetta er algjört svinari. Auöv.itað mátti maður vita það, aö það væri ekki nóg aö kaupa bara miða flytja svo dag- inn eftir inn i nýtt hús, happ- drættishúsið, en að það skuli ekki hafa komið i hlut neins af viðskiptavinum happdrættisins, það er svinari. Já, mér er sama þó að það eigi að draga um það næsta haust eða á næsta ári. Þetta er svinari!” Auglýsa eftir fríðarsamtökum Nota tvívegis sama trompið G.G. hringdi: „Þegar maöur hlustar á hinar ægilegu fréttir frá strfðsátökun- um i Vietnam verður manni ósjálfrátt hugsað til þeirra, sem áður höföu svo hátt vegna átak- anna þar. Ég vil spyrja: Hvar eru þessi Islenzku Viet- namsamtök? Hvar Vietnam-hreyfingin og hvar eru þessar kerlingar I Menningar- og friðarsamtökum kvenna? Hvað hefur orðið af öllu þessu fólki allt I einu? Þaö væri fróö- legt aö vita. Annars kemur þögn þessa fólks manni ekki á óvart. Maður hefur svo sem alltaf vitað hver stendur á bak við samtök þessa fólks. Það er greinilegt, að það er ekki sama, hvort börnin búa norðan- eða sunnanmegin við linuna þegar þau verða fyrir i striðsátökum. Það er stórt umhugsunarefni fyrir almenning, „hvað stjórnar orðum og gerðum þess fólks, sem áður er nefnt og þegir núna svo þunnu hljóði. Má ég auglýsa eftir forsvars- mönnum þessara hópa hér i les- endadálkum VIsis? Það væri mjög æskilegt að þeir gæfu sig fram og létu fólk vita, hvort samtök þeirra væru enn á lifi, og ef svo væri, hver væri þá stefna þeirra og viðhorf um at- burði i Vietnam siðustu daga.” Jón Sigurðsson hringdi: „Ég var að lesa það I blöðun- um I morgun, að DAS-húsið hefði komið upp á óseldan miða. Er það réttlátt? Maður spilar I happdrættinu I þeirri trú aö vinningarnir, sem auglýstir eru, séu ekkert plat. En þegar það skeður, eins og núna, að aðalvinningurinn kemur upp á óseldan miða, finnst manni eins og það sé ver- ið að segja „Allt I plati!” Það væri annaö mál, ef húsið heföi komiö upp á óendurnýjaðan miða. DAS fékk sjálft húsið og nú á að spila um það aftur. Sniöugt finnst þeim I stjórninni sjálf- sagt. Okkur viöskiptavinunum finnst hins vegar að það sé verið að snuða okkur. Nú á náttúrlega að selja mikinn fjöida happ- drættismiða út á húsin tvö, sem spilað verður um á næsta happ- drættisári”. D.A.S.-húsið gekk ekki út DREGIÐ var ( drættis aldraðra þetta #ð 112.flokki 3.apri! Tveir óánœgðir viðskiptavinir DAS hringdu: LESENDUR HAFA ORÐIÐ LITLAR UPPLÝSINGAR FYRIR TVÖ ÞÚSUNDIN Edda Kristjánsdóttir, hringdi: „Ég vil fá að koma á framfæri aövörun til þeirra, sem eru I leit að leiguhúsnæöi. Hér I borg er starfrækt svokölluð húsaleigu- miöstöö viö Hverfisgötu 40 b. Sá sem fyrir henni stendur aug- lýsir daglega „leigutakar, kynnið ykkur hina ódýru og frá- bæru þjónustu”. Min reynsla af þessari „ódýru og frábæru þjónustu” er I stuttu máli: Hann segir fólki, að það sé mikiö úrval af ibúðum, sem hann sé með úti um allan bæ og stöðugt séu að berast sér fleiri og fleiri. En til að fá vitneskju um þessar ibúðir verður fólk að greiða 2000 krónur, sem er greiðsla fyrir upplýsingar i einn mánuð. Þar með fékk ég upplýsingar um tvær ibúðir. Þegar til kom reyndist vera búiö að leigja aðra þeirra og hin hentaði mér ekki. Min ógæfa, hugsaði ég með mér og hringdi nokkrum sinn- um I viðbót til húsaleigumið- stöövarinnar. Ég spurði hvort þeir þar hefðu ekki handa mér upplýsingar um fleiri ibúðir. Þá voru svörin orðin þessi: „Nei, mér berst bara ekkert.” Og þetta er svariö, sem ég hef fengið i heilan mánuö — gegn 2000 króna greiðslu. Ég er I stórum vafa um að svona starfsemi sé lögleg og vil eindregið vara fólk við þvi aö láta plata sig til að borga fyrir þessa „frábæru og ódýru þjónustu”. Auglýsið heldur sjálf eftir ibúðum. Það er alla vega meira, sem út úr þvl fæst.” Símaskróin Selfyssingur skrifar: „Mikið væri gaman að það fengist úr þvi skoriö, hvort Póstur og simi hafi raunveru- lega vald til að banna útgáfu á hlifðarkápu utan um sima- skrána. Ég skora á þá aöila, sem hafa staðiö að útgáfu hinna ágætu plasthliföarkápa, að endurtaka leikinn og láta reyna á það vald, sem sima- menn þykjast hafa. Það er augljóst, hvað veldur þvi, að simamenn eru and- snúnir þvi, aö ýmis llknarfélög fari þá fjáröflunarleiö að selja auglýsingar á hliföarkápur af þessu tagi: Siminn er nefni- lega sjálfur búinn að koma auga á þá ágætu fjáröflunar- leið og segir: Nú getum við. Það er áberandi, hvað þeir hafa fjölgað „áriöandi” les- máli á kápunni frá þvi sem áð- ur var. Þá er nefnilega hægt að bera þvi viö, aö ekki megi breiöa yfir þær upplýsing- ar....”

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.