Vísir - 05.04.1975, Side 7

Vísir - 05.04.1975, Side 7
Vlsir. Laugardagur 5. aprll 1975 cTVIenningarmál Að Kjarvalsstöðum stendur nú yfir um- fangsmikil sýning á leir- munum Steinunnar Marteinsdóttur og verð- ur hún opin til 13. april nk. Steinunn nam leir- kerasmiði i Vestur- Berlin 1957-60 en hefur siðan rekið eigið leir- keraverkstæði og haldið námskeið i grein sinni fyrir almenning. Hún hefur ekki tekið þátt i sýningum siðan 1966, og man ég persónulega ekki eftir að hafa séð gripi hennar áður. Oft vill veröa þannig að þegar listafólk kemur aftur fram á sjón- arsviðið eftir langa hvild frá sýn- ingarhaldi, vill það gjarnan sletta rækilega úr klaufunum og sýna myndarlega. í mörgum tilfellum þýðir það að allt er látið fljóta með, þvi allt á það gefa einhverja mynd af þróun listamannsins þessi ár sem hann ekki sýndi. Stundum er slfkt réttlætanlegt þvi til eru þeir listamenn sem ekki geta leiðinlegir eða tvisaga verið. Hvað Steinunni snertir hefði sýn- ing hennar orðið stórum áhrifa- meiri hefði hún verið minni og vandlegar valin. En þetta er e.t.v. ein af þeim hættum sem fylgja þvi að þurfa að fylla stóran sal að Kjarvalsstöðum, sérstaklega ef leirkerasmiður eða grafikmaður á i hlut. Það væri mikill greiði við marga alvarlega listamenn ef sýningarsalnum væri einstaka sinnum skipt i tvennt. Eins og er minnir sýning Stein- unnar óþægilega á basar, ekki aðeins vegna þess að allt er sýnt, heldur einnig vegna þess að þar má finna fjöldann allan af sama hlutnum, t.d. eggjabikurum. Manni finnst einhvernveginn að þótt hver bikar sé að visu „origi- nal” frá hendi listakonunnar, þá sé svipmót margra þeirra svo nauðalikt að vafasamt sé að sýna þá alla. LEIR OG LITIR Steinunn Marteinsdóttir við nokkrar veggmynda sinna, sem gerðar eru Ileir. Ljósm. Bragi. Tækni og útsjón Það fer ekki á milli mála að Steinunn hefur yf'ir að ráða mik- illi tækni og útsjónarsemi i list sinni, þótt deila megi um þá þró- un sem orðið hefur á verkum hennar undanfarin 6-7 ár. Fyrir utan leirker eru hér leir-lág- myndir, raderingar, silkiþrykk og blýantsteikningar, en ekki i neinni timaröð, að þvi er virðist. Elstu verk Steinunnar á þessari sýningu eru glæsilega rennilegir ,,fúnksjón”-hlutir, skálar, kaffi- sett, vinsett, allt með finlegum ,,art nouveau” brag. Aferð þeirra er mött og á þeim má finna mikið af mjúkum tilbrigðum i lita- tónum. Það sem bjargar þessum gripum frá þvi að vera of-finir, dauðir skrauthlutir, er leikandi létt kimni i notkun ýmissa aukaforma á þeim, kimni sem MYNDLIST eftir Aðalstein Ingólfsson reyndar má finna i grófari bún- ingi i siðari verkunum. A undanförnum árum virðist Steinunn hafa haft minni áhuga á notagildi verka sinna og fer að hugsa meira um sjálfstæða list- sköpun innan ramma sins fags, sbr. það að nú kallar hún gripi sina „leirverk”. Með frjálsari list- sköpun verður vinnumáti hennar greinilega „expressjóniskari” og jafnframt grófaði á ýmsan hátt, og spurningin er nú hvort þetta skref hafi verið heillavænlegt að öllu leyti. Frelsi og form Það er að visu eðlilegt að hún skuli hafa reynt að losna undan viðjum „finna” leirverka og vinna á „eðlilegri”, óheflaðri hátt, en ég vil meina að Steinunn hafi ekki enn fundið sér stil sem komi fyllilega i staðinn fyrir eldri verk hennar. Grannir rennilegir vasar verða á seinni árum breiðar skálar, vambvið ker eða könnur þar sem allskyns leir- kleprar og önnur lifræn tilbrigði skreyta stykkin. í staðinn fyrir hina óskeikulu tilfinningu Stein unnar fyrir smekklega völdum möttum litatónum, þá glansar nú svo til allt sem glansað getur og oft i skærum skreytilitum. Er vart hægt annað en álykta að með frjálsari vinnubrögðum hafi eitt- hvað af smekk Steinunnar farið forgörðum i flaustri. A þetta einnig við formbyggingu hennar ef á heildina er litið, —og á ég þar ekki aðeins við bleik leirblóm sem blómstra út úr vömbum kerj- anna. Eldri verk hennar (1-c. 15) sýna að visu ekki róttæka með- ferö á formi, en bera samt vott um vilja listakonunnar til að tak- ast á við form sem heild. í siðari verkum hennar virðist Steinunn að mestu leyti hafa gefið þennan áhuga á mótun heildar- forms upp á bátinn. Gripir hennar eru hefðbundnir, allskyns vel- þekkt ,,ilát”-form eða bakkar og það sem hún nú gerir er einfald- lega að bæta allskonar hnoðuð- um, teygðum og beygðum krúsi- dúllúm utan á þá eða ofan á. Það eru semsagt þessir auka-,,effekt- ar” sem nú skipta höfuðmáli, „effektar” sem virðast gerðir með skreytingu fremur en form- rannsókn i huga, og litavalið styður þessa ályktun að nokkru. 1 eldri verkum hennar fara saman form oglitun þess, i siðari verkunum er formið oftast hefð- bundið (og þá skreytt með öngum eða andlitum) og skreytingin fylgir á eft’-, eins og ising á tertu. Þetta á þó sem betur fer ekki við allt, sem Steinunn Marteins- dóttir hefur gert undanfarin ár. Mörg „Jökla”-verk hennar eru vandlega úthugsuð tilbrigði um islenzka náttúru og sýna oft næm- an smekk, sérlega ef hún heldur sig við matta áferð. Einnig eru mörg hangandi form hennar (blómavasar?) nýstárleg og gleðja augað og myndir hennar, bæði lágmyndir eða silkiprent, eru oft vel uppbyggð verk (undir nokkrum áhrifum frá eiginmanni listakonunnar....) með tilfinn- ingu fyrir formum og hrynjandi þeirra. gefa út bók Veita I fyrradag birtist aug- lýsing sem nokkrum tíð- indum sætir: þar var til- kynnt nýtilkomið styrkja- kerfi til þýðingar og út- gáfu norrænna bók- mennta á öðrum norður- löndum. Ætlunin er að þetta styrkjakerfi komist á f ót þegar í ár, og má þá, ef vel lætur, vænta fyrstu bóka sem gefnar eru út með þessum hætti þegar í haust. Slíkar styrkveit- ingar hafa verið i ráða- gerð og umræðu allmörg undanfarin ár, en með auglýsingunni er fyrst orðið Ijóst hvernig ætlun- in er að haga þeim. Þegar rætt' hefur verið um mál þetta hér á landi hefur at- hyglin einkum beinst að mögu- leikum sem fyrir vikið mundu skapast til að koma islenskum bókmenntum á framfæri er- lendis með þvi að kosta þýðingu og ef til vill að einhverju leyti útgáfu þeirra af samnorrænu menningarfé. Af auglýsíngunni er á hinn bóginn ljóst að hér er miklu frekar um útgáfu- en þýð- ingarstyrki að ræða. Þótt miðað sé við að styrkur nemi sem næst þýðingarkostnaði hverju sinni er það skilyrði styrkveitingar að styrk, bók sé þegar ráðin til útgáfu I þýðingarlandinu, og hafi enda áður verið gefin út heima fyrir. Höfundar óútgengilegra hand- rita heima hjá sér eiga sem sé einskis útgáfustyrks að vænta. Og fyrirkomulag þetta leysir i sjálfu sér ekki vanda óþekktra höfunda á fámennum málsvæð- um — að koma verkum sinum á framfæri við útgefendur á hin- um stóru norrænu málsvæðum. Hér er um útgáfustyrk að ræða, gagnkvæma niður greiðslu á útgáfukostnaði nor- rænna bóka i þýðingu á önnur norðurlandamál. Og gildi þess- ara styrkveitinga til frambúðar veltur þá væntanlega á þvi hvort þær verða fyrst og fremst til að styrkja og greiða niður kostnað þeirrar útgáfu sem fyrir er af þessu tagi og ætla mætti að þrifist án hennar, eða hvort tekst I raun það sem til mun vera ætlast, að styrkirnir verði til að efla og auka útgáf- una, fjölga útgefnum titlum og auka upplög útgefinna bóka. úr þvi verður reynslan auðvitað að skera. En það er vitanlega ofur-eðli- legt að fjárveiting þessi renni i fyrsta lagi til útgáfustyrkja. Engum er akkur I að láta þýða bækur sem enginn vill þegar til kemur gefa út, né kosta útgáfu á bókum sem enginn vill lesa. Til að meta áhuga lesenda, mark- aðshorfur og söluvonir hverrar tiltekinnar bókar er ekki annað apparat nærtækt en hið viðtekna útgáfukerfi i löndunum. Þar fyrir má ætla að nefnd sú sem styrkveitingum ræður geti, ef henni sýnist, haft einhvers kon- ar frumkvæði um þýðingu og útgáfu mikilsháttar verka sem hún telur að útgefendur hafi vanmetið eða vanrækt, en nefndinni finnst sjálfri nauðsyn bera til að séu þýdd, og yrði þá að likindum einkum um eldri bókmenntir að ræða. En allar þessar ráðagerðir helgast að visu af þeirri trú að fyrir hendi sé á norðurlöndum gagnkvæm- ur áhugi, umtalsverður ónýttur markaður fyrir bókmenntir frændþjóðanna. Fé það sem i fyrstunni er lagt til þessara styrkveitinga nemur 750.000 dönskum krónum sem skiptast i átta hluti eftir mál- svæðum. t tslands hlut koma 9% af upphæðinni, eða tæplega tvær milljónir króna með núgildandi gengi, til að kosta útgáfu nor- rænna bókmennta i islenskri bvðingu. Dálitið er nú torvelt að gera sér að óreyndu grein fyrir hvernig fé þetta geti nýst. Hér á landi er þó nokkuð gefið út af norrænum bókum frá ári til árs, sumpart óvönduðu dóti sem einskis styrks er maklegt, en sumpart lika góðum bókmennt- um, ekki sist barnabókum á seinni árum. Væntanlega yrði hægurinn hjá að dreifa tveimur milljónum króna til þeirrar út- gáfustarfsemi sem þegar er til, henni til styrktar og ef til vill lika nokkurrar aukningar. En þá er að visu að þvi að gæta að þýðingarlaun eru ekki nema litið brot af öllum útgáfu- kostnaði bókar, og spursmál hvort styrkveiting sem ekki nemur meira fé geti ráðið úr- slitum um útgáfu bókar eða af- komu hennar útgefinnar. Hitt væri lika hugsanlegt, að veita færri en að þvi skapi stærri styrki, fyrst og fremst eða ein- vörðungu til verka sem ekki þykja neinar likur til að út væru gefin án styrks. 1 slikum til fellum má ætla að þýðingar- kostnaður geti orðið til muna meiri en um algengari bækur. Og i öllu falli hlýtur sú kvöð að fylgja styrkveitingunni að vel verði jafnan til þýðingar vand- að, og betur en einatt tiðkast á islenskum bókamarkaði. Hvað þá um framavonir is- lenskra bóka og rithöfunda er- lendis vegna hins nýja styrkja- kerfis? Það er eins og áður spursmál um það hvort styrk- veiting sem nemur sem næst þýðingarlaunum riði bagga- muninn, hvort hennar vegna fá- ist bók útgefin sem ella væri hafnað af kostnaðarástæðum. Það er alls ekki vist. Og eftir sem áður er vandi útkjálka- mannsins óleystur, forlögin eru treg að taka verk hans til útgáfu af þvi að höfundurinn er öldung- is óþekktur fyrir, en þekktur r DAGBOK EFTIR ÓLAF JÓNSSON verður hann ekki á meðal les- enda nema bækur hans séu þýddar og gefnar út. Og þar við bætist svo vandi sjálfrar þýð- ingarinnar, hversu fáir þýðend- urnir eru sem raunverulega eru færir um að skila verki i full- gildri þýðingu — hvort heldur er úr islensku á önnur norræn mál, eða finnsku á islensku, eða þá lappnesku og grænlensku á dönsku og sænsku. Þýðing og út- gáfa er reyndar ekki nóg nema verkið sem um er að tefla kom- ist heilt og óspillt fram i sinni nýju mynd. En framgangur islenskra bókmennta á vegum hins nor- ræna samstarfs ræðst i fyrstu lotu af áhuga og eftirspurn út- gefenda á Norðurlöndum eftir islenskum bókum til þýðingar og útgáfu þegar styrkir verða veittir i fyrsta sinn i vor, og svo aftur i haust.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.