Vísir - 05.04.1975, Page 20

Vísir - 05.04.1975, Page 20
VÍSffi Vísir. Laugardagur 5. aprll 1975 VILJA FA PÓLÝFÓN TIL SKOTLANDS Þeir tóku þvi vist meira sem gamni en alvöru, Pólýfón- menn, þegar skozki tenór- söngvarinn Neil Mackie sagði að flutningi Messlasar lokn- um: ,,Þið verðið að koma til Skotlands og flytja Messlas i Edinborg og Glasgow. Svona vandaður flutningur er fá- heyrður i Bretlandi, og jafn- góðir kórar finnast þar ekki að beztu kórunum I London und- anskildum.” Og enda þótt ekki séu margir dagar liðnir frá flutn- ingi Messiasar i Hdskólabiói, hafa Skotar þegar gert alvöru Ur öllu saman, haft samband við Ingólf Guðbrandsson, og vill konsertfyrirtækið Arte Musica i Edinborg fá kórinn utan i byrjun mai til að flytja Messias i Edinborg. Takist samningar, mun kór- inn flytja verkið ásamt brezkum einsöngvurum úr hinni kunnu útvarpshljóm- sveit BBC hins skozka, en Ingólfur Guðbrandsson mundi þá að sjálfsögðu stjórna. —JBP— r Ohappadagur í umferðinni Tiu árekstrar og slys urðu i Reykjavik á timanum frá hálfeitt i gær til sjö um kvöldið. Fyrir há- degi urðu tveir árekstrar. Þetta gerðist þrátt fyrir mjög gott veð- ur i höfuðborginni og óaðfinnan- leg akstursskilyrði. 1 þremur af þessum tilvikum urðu meiðsli á fólki, en 24 aðilar fengu bllana sina skemmda. —SHH Nú er það Glasgow aftur Flugfarþegar frá tslandi til Skotlands hafa að undanförnu þurft að ferðast um Prest- wick-flugvöll og þar áöur New- castle, vegna þess að verkföll stóðu yfir á Glasgow-flugvelli. Nú hefur rætzt úr þeim máium, og is- lenzkar flugvélar fljúga á ný um Glasgow. Jafnframt taka nýir aðilar við þjónustu Flugfélags tslands 1 Glasgow, og var samningur þar að lútandi undirritaður fyrir nokkru. —SHH Lögreglumenn óónœgðir: SÍFELLT ÞEIR SEM BRJÓTA SÖMU AF SÉR Tveir piltar, annar úr Hafnarfirði, hinn úr Garðahreppi, báðir rétt um tvitugt, verða i gæzlu lögreglunnar, a.m.k. fram á daginn i dag. Lengur en sólar- hring má ekki halda fanga, nema dómur eða gæzluvarðhaldsúr- skurður liggi fyrir. Þeir eru með ýmis ,,af- rek” á samvizkunni og hafa verið nokkuð erf- iðir réttvisinni að und- anförnu. Attu þeir aðild að veskjastuld- inum I Klúbbnum og voru þar I slagtogi við kvenmann einn, sem tók töskurnar og kom fyrir I sinni eigin tösku, sem var rúm- góð I bezta lagi. Einn daginn afrekuðu þeir það að stela rafgeymi úr bil, sem lagt var við Barónsstig rétt hjá Landspítalanum. öku- maðurinn var I heimsókn hjá veikum föður sinum, er þetta gerðist. Var auglýst eftir sjónarvottum, og kom einn þeirra með lýsingu og númer á bil piltanna, sem þegar náðust. Annar þessara pilta var ný- lega I slagtogi með hnlfstungu- manni á Laugaveginum, og hinn mun eitthvað viðriðinn ávisana- mál, en virðist þó ekki sekur I þvi efni. Innan lögreglunnar er almenn óánægja með það hversu oft menn vinna við glæpi sömu við- skiptavinanna, sem sifellt komast út til að brjóta landslög að nýju. —JBP— STRANDS í BILI SJÓPRÓFUM VEGNA HVASSAFELLS LOKIÐ — en niðurstaða rannsóknarinnar hefur ekki verið birt „Sjóprófum er lokið I bili vegna strands Hvassafells,” sagði Guömundur Jónsson borgardómari I viðtali við VIsi. „Sjópróf er raunverulega rann- sókn, og niðurstaðan er send venjulcgum aðilum, svo sem eigendum, try ggingafélagi, saksóknara, sjóslysanefnd og Siglingamálastofnuninni. Þessir aðilar taka slðan ákvörðun, hver á sinu sviði, um það hvað gera skuli frekar. Sjóprófin sem slik beinast aöal- lega að þvi, hver orsökin hafi verið, en ég get ekki látið hafa neitt eftir mér þar að lútandi.” Alls konar orðrómur hefur verið á kreiki um orsakir strands Hvassafells, mismun- andi illkvittinn að vanda. Hætt er við, að hann eigi heldur eftir að magnast en dofna, meðan niðurstöður rannsóknar á or- sökum að strandinu hafa ekki verið opinberaðar. —SHH EITT - NULL FYRIR LJÓS- MYNDARANN Það var blómlegt um að iit- ast á Hótel Esju I gærkvöldi, þegar þangað komu um 60 handknattleiksmeyjar frá Skandinaviu til þess að taka þátt I Norðurlandamótinu i handknattleik, sem hefst i Laugardalshöllinni klukkan þrjú I dag, — eftir drjúga seinkun vegna þokunnar. Ekki verður annað séð en að þær uni sér vel, að minnsta kosti voru þær ekkert daprar I bragði, er ljosmyndari Visis, BJ.Bj., sýndi þeim sinar beztu hliðar. Hvellurinn í Ferðafélaginu endanlegur: ÚTIVIST VERÐUR KEPPINAUTUR ÚTI í NÁTTÚRUNNI — fyrsta ferð nýja félagsins ó morgun Það gamla félag, Ferðafélag islands, hefur að þvi er virðist klofnað illilega. Ctivist heitir nýja félagið, sem Einar Þ. Guðjohnsen og hans fólk hefur stofnaö, — og á morgun heldur félagið i sina fyrstu ferð, þaö verður gengið á Keili undir stjórn þess þekkta ferðagarps, Gisla Sigurðssonar úr Hafnar- lirði. Það voru þaulvanir ferða- garpar og meiriháttar aflgjafar úr Ferðafélagi Islands, sem mættu til aðalfundar Útivistar á pálmasunnudag, sextiu manns i allt. Var fundurinn þó ekki aug- lýstur og var lokaður. Stofnendur mynda 25 manna kjarna, sem hefur það hlutverk að standa vörð um stefnu og stjórn félagsins. Þriggja manna framkvæmdastjórn sér svo um daglegan rekstur. A stefnuskrá félagsins er það efst á blaði að stuðla að útivist fólks i hollu og óspilltu um- hverfi. Stendur til að gefa út rit, sem hvetji fólk til ferðalaga og útivistar, stuðla að gönguferð- um um Island og jafnvel önnur lönd. Þá ætlar félagið að vera óhrætt við útlendinga og hafa samband við áhugamenn um sömu efni innanlands og utan. Þá er áætlað að koma upp gisti- skálum til að auðvelda mönnum ferðaiög um landið. Félagið verður opið öllu áhugafólki. I stjórn Útivistar eru þeir Einar Þ. Guðjohnsen, Jón I. Bjarnason og Þór Jóhannesson, sem er formaður. Jón er ritari stjórnarinnar en Einar framkvæmdastjóri. 1 fyrstu ferðinni, sem hefst kl. 13 á Umferðarmiðstöðinni, verður haldið til Höskuldar- valla, sem eru sérkennilegur óbrynnishólm i, umflotinn hraunhafi Reykjanesskagans. Þá verður komið við hjá Hvern- um eina og fleiri skemmtilegum stöðum. Börn i fylgd meö full- orðnum fá ókeypis far. — Af Ferðafélagi islands cr það að frétta að Tóinas Einarsson kennari hefur tekið við daglegri stjórn félagsins. Er ferðaáætl- unin fyrir komandi sumar kom- in út, og árbókin, sem að þessu sinni fjallar um Mýrdalinn, kennir um næstu mánaðamót. — JBP—

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.