Vísir - 07.04.1975, Qupperneq 1
vism
65. árg. Mánudagur 7. aprfl 1975 — 78. tbl.
Brotizt inn í Hallgrímskirkju
stálu úr samskotabauk
Þjófar tóku hurð af hjörum i
Hallgrimskirkju i gær og kom-
ust þar með inn i hana. Þeir
tóku samskotabauk, sem hékk i
anddyrinu, heyrðu að hringiaði i
honum, fóru með hann upp á
næstu hæð og brutu liann upp.
Þeir tóku með sér það, sem
hringlaði, og einnig kittis-
sprautu fyrir þankitti, sem kost-
ar um 4000 krónur.
Þá var brotizt inn i verzlunina
örnólf við Snorrabraut, en ekki
lá ljóst fyrir i morgun, hverju
stolið hafði verið.
Loks var brotin rúða á rak-
arastofunni Hverfisgötu 41 og
stolið rakspira úr glugganum.
Þeir þjófar komust þó ekki
langt, heldur voru von bráðar
gripnir með góðu lyktina.
—SHH
B
Jarðýturnar
vinna ó
lífríkinu
— baksíða
*
Vandrœða-
mennirnir
í umferðinni
aka of hœgt
— baksíða
*
„Hundurinn"
að sunnan
bjargar engu
hjó Snœ-
fellingum
— bls. 2-3
*
ÞÆR SÆNSKU
KRÆFAR
- íþróttir í OPNU
-k
Baróttan um
útivistarmenn
— fyrsta lota,
sjó BAKSÍÐU
Verkstœðishús og sjoppa
eyðilögðust af eldi
— þrjár vinnuvélar eyðilögðust, verkfœri, vörulager og fleira
Milljónatjón varð i
eldsvoða i Mosfellssveit
i morgun, er atvinnu-
fyrirtæki með þremur
vinnuvélum brann til
kaldra kola.
Það var um klukkan niu, að eld-
ur kviknaði i smurgryfju i smur-
stöðinni Þverholti. Eldurinn
komst i oliur og magnaðist skjótt.
Inni i húsinu voru jarðýta, „pay-
loader” og minni beltavél, og
eyðilögðust þessi tæki öll. Þau
voru ekki brunatryggð. Einnig
brann mikið af verkfærum og
smuroliu, en eldurinn komst ekki
i bensingeyma, sem standa fyrir
utan húsin.
Sjoppa var sambyggð við
smurstöðvarhúsið, en eldvarna-
hurð I milli. Hurðin hélt furðu
lengi, að sögn sjónarvotta, en svo
fór að lokum, að eldurinn barst i
þakið og þaðan yfir i sjoppuna.
Þegar Vísir hafði siðast samband
upp eftir, voru húsin i þann veg-
inn að falla.
Sjoppu þessa höfðu eigendur
Þverholts nýlega endurbyggt
fyrir hundruð þúsunda, en eftir
var að taka þá endurbót út með
tilliti til brunabóta, þar sem
endurbótunum var lokið fyrir að-
eins fáum dögum. Þar brann
einnig allur vörulagerinn, sem til
Eigandi Þverholts er Hengill
s.f., sem er félag þriggja ungra
manna. Þeir keyptu Þverholt
fyrir um ári og hafa siðan unnið
að endurbótum á húsnæðinu, og
notuðu smurstöðvarhúsið sem
verkstæði fyrir vélar sinar, en
Hengill s.f. er verktakafyrirtæki
fyrir vinnuvélar og þungaflutn-
inga. Tæki þau, sem eyðilögðust i
eldinum, áttu að fara i verk ein-
mitt þessa dagana, eftir gagn-
gerða endurnýjun, sem staðið
hefur yfir frá áramótum.
Ekki er kunnugt um, með
hvaða hætti kviknaði i, né heldur
heildarverðmæti tjónsins, en ljóst
er,aðþað nemurtugum milljóna.
—SHH
Húsið i Ijósum logum. Eigendurn-
ir hafa lagt hart að sér við upp-
byggingu fyrirtækisins, en standa
nú uppi með rústirnar einar.
Þessi jarðýta var meðal þcirra vinnuvéla, sem eyðilögðust i eldinum I morgun. Hún átti að fara I verk einmitt þessa dagana, eftir gagngerða
endurbyggingu, sem staðið hefur frá áramótum. Ljósm. Visir Bj. Bj.
Engin niðurstaða enn
Nœturljósin loga hjó
samningamönnum:
Bátasjómenn virðast
gera sér einhverjar vonir
um, að eitthvað sé að ræt-
ast úr samningaviðræð-
um fulltrúa þeirra og út-
gerðarmanna. Þeir, sem
boðað höfðu verkfall frá
miðnætti í nótt, frestuðu
verkfalli um tvo sólar-
hringa, þar sem nokkur
hreyfing virtist vera
komin á samningavið-
ræðurnar.
útgerðarmenn og bátasjó-
menn sátu góða stund hjá sátta-
semjara á laugardag og voru
mættir aftur á fund i eftirmið-
daginn i gær. Þeim fundi lauk
ekki fyrr en klukkan sjö i morg-
un og hafði þá nýr fundur verið
boðaður klukkan fjögur I dag.
Enn eru engir bátasjómanna
komnir i verkfall. Þeir fyrstu
höföu boðað verkfall frá miö-
nætti i nótt, en mestur fjöldi þó
ekki fyrr en frá miövikudags-
nótt. Eru það um tveir þriðju
hlutar bátasjómanna, sem nú
hyggjast fara i verkfall þá nótt,
ef ekki hefur veriö samið fyrir
þann tima.
— ÞJM