Vísir - 07.04.1975, Page 11
Litla systir
stal senunni
— Keppendur um 180 í Víðavangs
hlaupi íslands
Erfitt? — nei, þetta var ekki
erfitt, sagði Sólveig Pálsdóttir,
13 ára, þegar hún kom i mark i
þriðja sæti i kvennaflokki i
Víðavangshlaupi islands — og
bókstaflega biés ekki úr nös.
Hún stal senunni frá stóru syst-
ur, hlaupadrottningunni Hagn-
hildi Pálsdóttur, því langmest
athyglin beindist, að þessari
litlu, ungu stúiku, sem nú er að
byrja sinn hlaupaferil. Hæfi-
leikarnir komu greinilega í ljós,
og það var aðeins keppnis-
reynsla hinnar kunnu hiaupa-
konu, önnu Haraldsdótur, FH,
sem tryggði henni annað sæti i
hörkukeppni við Sólveigu.
Ragnhildur kom talsvert á
undan öðrum f mark — og fór
siðan að fylgjast með litlu syst-
ur. Ég er alveg hissa, sagði hún,
þegar Sólveig kom i markið, —
hún er i svo litilli æfingu. Ég hef
æft með henni að undanförnu,
en bjóst engan veginn við þessu.
Það var mikið um að vera i
Vatnsmýrinni meðan á hlaup-
unum stóð — keppendur um 180
og var keppt i fjórum flokkum,
kvenna-og karlaflokki, drengja-
og piltaflokki.
Stúlkurnar byrjuðu og þær
voru margar — já, og þar voru
margar kunnar iþróttakonur,
Ragnhildur tók strax forustuna
— og þegar beygt var út i mýr-
ina var hún komin langt á
undan. Þvi forskoti hélt hún i
mark — en um annað sætið var
barizt. Sólveig var önnur 10-15
metra frá marki, en réð ekki við
lokasprett önnu og varð tveim-
ur sekúndubrotum á eftir i
mark. Crrslit — en vegalengdin
var um 1450 metrar.
1. Ragnh. Pálsdóttir,
UMSK, 5:49.1'
2. Anna Haraldsdóttir,
FH, 6:07.2'
3. Sólveig Pálsd., UMSK, 6:07.4/
Piltarnir hlupu sömu vega-1
lengd og þar kom á óvart miklir "
yfirburðir Arnljóts Árnasonar,
FH. Hann hljóp mjög vel og þar 1
er greinilega gott hlaupaefni á ,
ferð. Úrslit:
1. Arnljótur Arnason, FH, 5:15.0’
2. Kári Bryngeirsson, 1R, 5:22.4/
3. Ingvi Guðmundsson
FH, 5:23.7/
í drengjaflokki var vega-
lengdin um 2.3 km. og þar hafði '
hlauparinnkunni úr FH, Sigurð-
ur Sigmundsson, yfirburði. Úr-'
slit.
1. Sig. P. Sigmundsson,
FH, 8:35.0
2. Einar Guðmundsson,
FH, 8:53.7
3. GunnarSigurðsson, FH,9:02.9 (
í karlaflokki sigraði Robert
McKee, FH, og hafði yfirburði
— hljóp á 15:51.4 min, en vega-
lengdin var um 4.2 km. Annar
varð Leif österby, HSK, á
16:01.6 min, og Jón Sigurðsson
HSK, þriðji á 16:18.6 min.
1 kvennaflokki sigraði FH i
3ja manna sveitum, en HSK i 5
og 10 manna. 1 pilta- og drengja-
flokkum sigruðu sveitir FH alls
staðar —en HSK i karlaflokki i
3ja og fimm manna sveitum.
—hsim.
Póstsendum.
Móðirin áhugasama og hlaupadæturnar hennar. Frá vinstri
Ragnhildur Pálsdóttir, Sjöfn óskarsdóttir, og Sólveig.
Ljósmynd Bjarnleifur.
'Sótt að marki Fram — en þar voru fyrir „klettar” i vörninni. Marteinn Geirsson, sem stekkur hæst
og skallar frá á mynd Bjarnleifs, og Jón Pétursson, lengst til vinstri.
Vorbrugur í byrjun
- og Fram vann Víking 1-0 í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins
Þaö var ekki mikil reisn yfir
fyrsta leik Reykjavikurmótsins á
Melavellinum i gær. Liðin, sem
stóðu sig hvað bezt á mótinu i
fyrra, Reykjavlkurmeistarar
Víkings og Fram, áttust þar við i
hávaðaroki og kulda. Það setti
svip sinn á leikinn — Fram sigr-
aði með eina markinu, sem skor-
að var.
Vikingar léku undan vindinum i
fyrri hálfleik, en tókst illa að
brjóta niður sterka vörn Fram.
Þeir voru meira með boltann —
áttu miðjuna — en sókn Fram var
alltaf hættulegri, enda vörn Vik-
ings nokkuð opin.
Ekkert mark var skorað i fyrri
hálfleiknum. Á 12. min. opnaði
Kristinn Jörundsson „Marka-
Kiddi” reikning sinn — skoraði
fyrsta mark Reykjavikurmótsins
og það nægi til sigurs.
Nokkur tilraunabragur var á
liðunum — einkum þó hjá Viking.
Marteinn Geirsson og Jón Péturs-
son, landsliösmennirnir kunnu,
voru kiettar i vörn Fram, en hjá
Viking vöktu Gunnlaugur Krist-
finnsson og Eirikur Þorsteinsson
sem framverðir mesta athygli.
Dómari var Einar Hjartarson. 1
kvöld leika Valur og Þróttur i
mótinu.
—hsim.
Skíðamót SR
Annað svigmót Skiðafélags
Reykjavikur i bikarkeppninni var
háð I Skálafelli i gær. Keppt var i
þremur flokkum undir stjórn
Jónasar Ásgeirssonar, mótstjóra,
og Haraldar Pálssonar, brautar-
stjóra. Veður var gott — nokkur
þoka þó, en stillt og frostlaust.
Brautir voru tvær — hliö 47 i ann-
arri, en 41 I hinni.
Haukar fóru létt
með Breíðablik!
Úrslit urðu þessi:
Drengir 13-14 ára.
1. Kristinn Sigurðss., Á, 81.0
2. Páll Valsson, 1R, 90.8
3. Lárus Guðmundsson, Á, 91.9
Drengir 15-16 ára.
l.SteinþórSkúlason, 1R, 90.3
2.Gunnar Eysteinss., 1R, 91.6
3.Sig. Þ. Sigurðsson, Á 93.5
Stúlkur
l.Steinunn Sæmundsd., A, 82.5
2.Nina Helgadóttir, 1R, 91.7
3.Svava Viggósdóttir, KR, 92.1
Eftir mótið, sem stóð frá kl. tvö
til sex, voru verðlaun afhent.
Þriðja og siðasta mótið i bikar-
keppninni verður að öllu forfalla-
lausu um næstu helgi.
—hsim.
Haukar — fyrir hönd Hafnfirö-
inga, ÍBH, — fóru létt með
Breiðablik úr Kópavogi i Litlu
bikarkeppninni i gær. Sigruðu
með 4-1 i Hafnarfirði og Hafnfirð-
ingar standa vel að vigi i keppn-
inni — hafa að auki gert jafntefli
við tslandsmeistara Akraness.
(FH).
Blikarnir urðu fyrri til aö
skora, þegar þeir léku undan
vindinum i fyrri hálfleik, Þór
Hreiöarsson. En Loftur Eyjólfs-
son jafnaði fyrir hlé 1-1. 1 síðari
hálfieiknum höfðu Haukar yfir-
burði og skoruðu þá þrjú mörk —
Loftur sitt annað mark, en bræð-
umir Daniel og Steingrimur Hálf-
dánarsynir skoruöu sitt markið
hvor. Óvenjumikil keppni virð-
ist ætla aö verða i Litlu bikar-
keppninni i ár — öll liðin eiga enn
sigurmöguleika.
—hsim.
V
PUMA
dKJSL
® Shodr iwí
5-MANNA, FJÖGURRA DYRA. VÉL 53 HESTÖFL.
BENSlNEYÐSLA 7.7 LÍTRAR Á 100 KM.
FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GlRKASSI.
GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 20 SEK. í 100 KM. Á KLST.
VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR. 582.000,00
VERÐ TIL ORYRKJA KR. 418.000,00
TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð Á ÍSLAND/ H/E
AUBBREKKU 44-6 'SlMI 42600 KÓPAV0GI
Ingólfg óskarssonar
KlapparaUg «4 — 8Ual 117*3 — Raykjavtk