Tíminn - 26.07.1966, Qupperneq 2

Tíminn - 26.07.1966, Qupperneq 2
TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 1966 Arkitektarnir Guðmundur Kr. Guðmundsson og Skarphéðinn Jóhannsson unnu fyrstu verSlaun í sam- keppni um útlit og gerð kirkju fyrir Laugarásprestakall. Talið frá hægri: Guðmundur Kr. Guðmunds- *on, arkitekt, séra Grímur Grímsson og Skarphéðinn Jóhannsson, arkitekt. (Tímamynd: Bj. Bj.) Samkeppni um gerð og útlit Laugarásskirkju er nú lokið Að undangengnum umræðu- fundum í sóknarnefnd Laugar- áss-prestakalls ákvað nefndin að efna til hugmyndasamkeppni um gerð og útlit kirkju og safnaðarheimilis í prestakall- inu. Hafði þá verið leitað til Reykjavikurborgar um lóð og fengizt vilyrði fyrir henni. — Einnig var leitað samstarfs við Arkitektafélag íslands um mál- ið. Á fundi sínum í september s.l. kaus safnaðarnefnd fulltrúa sinn í dómnefnd til að undir- búa og dæma um úrlausnir í væntanlegri keppni, þá Henry Hálfdánarson, ritara safnaðar- nefndar, Þór Sandholt, arkitekt sem kosinn var formaður dóm- nefndar, og Hjört Hjartarson, framkvæmdarstjóri.í október sl. kaus Arkitektafélag íslands í nefndina arkitektana G.eirharð Þorsteinsson og Guðmund Þór Pálsson. — Stjórn félagsins til- nefndi fulltrúa félagsins Ólaf Jensson, sem trúnaðarmann dómnefndarinnar. í nóvember hóf svo dóm- nefnd störf við undirbúning samkeppninnar og i febrúar var samkeppnin boðin út og skiladagur ákveðinn 13. júní s.l. Öllum meðlimum Arkitekta félags íslands var heimil þátt- taka í sarnræmi við samkeppnis reglur A.Í., en ekki boðið út meðal erlendra arkitekta. 24. aðilar sóttu samkeppnis- gögn og 17 tillögur bárust. Voru teikningar samtals á 129 blöðum. Störf dómnefndar voru all vandasöm, með því að hún þurfti að kynna sér nákvæm- lega allar tillögurnar, bera þær saman lið fyrir lið meta síðan og vega heildaráhrif og árang- ur og loks að velja verðlauna tillögurnar og rökstyðja álit sitt. í álitsgerð sinni kemst dóm nefnd m.a. svo að orði: „Lóðin er staðsett suðvestan til á Laugarásnum í Reykjavík, milli Laugarásvegar og Vestur- brúnar. í kringum lóðina eru að mestu einbýlishús, en hin háu hús efst á Laugarásnum gnæfa yfir allt svæðið. íþrótta- svæðið og mannvirkin í Laugar dal hefur áhrif á svæðið þar sem það sést einnig mjög vel að og er beinlínis í tengslum við lóðina. Kirkjubygging er í uppbygg- ingu sinni mjög ólík þessu öllu og er því erfitt að samræma hana umhverfinu, svo vel sé. Svæði þetta er í dag einhver vinsælasti útsýnisstaður í borg- inni og eru útlendir ferðamenn í stórum hópum daglegir gestir á þessum stað, sökum þess, hve vel sést þaðan yfir borgina. Sumir höfundar hafa reynt með torgmyndun að halda þessum möguleika opnum. Lóðin, sem hallar mjög, gefur mikl; möguleika á mismunandi lausnum enda hefur árangur- inn orðið sá, en því miður hafa alltof fáir notfært sér þennan lóðarhalla nógu vel í lausnum sínum. Aðkoma á lóð er hjá öllum frá Vesturbrún, eins og beðið var um í útboðslýsíngú. Hins vegar skortir mjög á hjá flest- um, að gerð sé nógu vel grein fyrir, hvernig eigi að koma lík vagni sem næst kirkjudyrum. Enda þótt engin tillagan sé algerlega gallalaus, vérður að telja árangur af keppninni mjög góðan. Það er greinilegt að allmikil vinna hefur verið lögð í margar af tillögunum, og yfirleitt eru þær snyrtilega fram settar.“ í lokaniðurstöðu sinni kemst dómnefnd m.a. svo að orði: Með tilliti til þeirra megin atriða, sem dómnefnd tók fram í útboðsskilmálum um að hún mundi leggja aðaláherzlu á við mat á úrlausnum: A. Staðsetningu, aðkomu að kirkjunni og samstillingu við land umhverfi (skipul. lóðar). B. Innra skipulagi með tilliti til hagkvæmrar notkunar (funk tion). C. Heildarútlit. D. Stærð, hefur dómnefnd komizt að eft irfarandi niðurstöðu: 1. verðl. kr. 75.000,00 hljóti tillaga nr. 2. Höfundar eru arkitektarnir Skarphéðinn Jó- hannsson og Guðm. Kr. Guð- mundsson. Ráðgjafi Dr. Þórir Kr. Þórðarson, prófessor. Meginkost þessarar tillögu telur dómnefnd vera heillegt Framhald á bls. 14. 1700skátar komn- ir til Landsmótsins HZ—Reykjavík, mánudag. Hið geysifjölmenna landsmót skáta að Hreðavatni var sett í dag klukkan fjögur. Fyrst fluttu móts stjórarnir Ingólfur Ármannsson og Borghildur Fenger ávörp fyr- Heildaraflinn 169.741 lest HZ—Reykjavík, mánudag. Síldveiðin síðastliðna viku var heldur treg, enda ekki sem bezt veiðiveður. Sú síld, sem fékkst, veiddist öll við Jan Mayen. Alls hárust á land 9.191 lestir og af þeim afla voru saltaðar 9.606 tunn ur. Heildarmagnið, sem komið var á land á miðnætti laugardags, var 169.741 lestir þar af 11.895 upps. tunnur. Á sama tíma í fyrra var aflinn 131.883 lestir, þar af 4.512 uppmældar tunnur. Mest síld hefur borizt á land á Seyðisfirði, alls 40 þúsund lestir, en Raufarhöfn og Neskaupstaður koma næstir með um 27 þúsund lestir, Reykjavík 17 þús. lestir, Eskifjörður 14 þús lestir og Vopnafjörður 10 þús. lestir. SKEMMTUNÍN TÓKST VEL PE—Hvolsvelli, mánudag. Á laugardagskvöldið efndj Æsku lýðsnefnd Rangárvallasýslu til unglingadansleiks að Hvoli. Var hér um að ræða vínlausa skemmt un og komu fram á henni skemmti kraftar, hinar kunnu Ellares-syst ur, sem skemmt hafa hér á landi að undanförnu, og Ríótríóið, en Dúmbó og Steini frá Akranesi léku fyrir dansi. Skemmtunin fór í alla staði vel fram og virtust ung lingarnir skemmta sér hið bezta, þótt Bakkus konungur væri hvergi nærri. Var skemmtunin öllum, sem að henni stóðu til hins mesta sóma. VITNIVANTAR HZ-Reykjavík, mánudag. Á laugardagsnóttina var ekið á hornstaur við Sandhól við Breið- holtsveg og girðingin skemmd. Öku maðurinn hvarf á brott óséður og er vitni að atburðinum beðið um að láta rannsóknarlögregluna vita. Einnig biður lögreglan menn, sem vitni urðu að utaníkeyrslu á nýjan Fiat 850 á stæði við Land- spítalann milli kl. 3—4 á laugar- dag að láta sig vita. ir innlenda og erlenda gesti og buðu þá velkomna. Síðan var rak in saga fánanna fjögurra, sení ver ið hafa á íslandi, og þeir sýndir um leið, fyrst Þorskafáninn, svo Fálkafáninn, Hvítbláinn og Ioks núverandi þjóðfáni. Að þessari kynningu Iokinni flutti skátahöfð ingi íslands, Jónas B. Jónsson, á- varp. í lok setningarinnar voru sett flöskuskeyti í tjörn. sem er líkan af heiminum og verða þau í henni unz mótinu lýkur, Þá verða þau sett í Atlantshafið. Á föstudaginn fóru fyrstu skát arnir að tínast á mótsstaðinn. Á laugardaginn komu fleiri skátar en för flestra hinna var frestað vegna roks og rigningar á móts- svæðinu. Varð að fella nokkur tjöld vegna roksins. Flestir skát arnir komu í gær, m.a. 500 skát ar úr Reykjavík, en nú eru 1700 skátar komnir á mótssvæðið. Rammi þessa móts er hafið. Mótssvæðinu er skipt niður í höf t.d. eru kvenskátarnir í Kyrrahaf inu, skátadrengirnir í Indlands- hafinu og fjölskyldubúðimar, þar sem þegar er búið að panta svæði fyrir 100 tjöld, verða í Þanghaf- inu. Varðeldar verða flest kvöldin, þar af þrír stórir fyrir alla skát ana. Ánnars er alltaf eitthvað haft fyrir stafni, íþróttir og skáta leikir verða vinsæl skemmtun og fjallgöngur á næstu fjöll og göngu ferðir eru það helzta, sem skát- arnir munu gera, enda mjög f,al- legt í Norðurárdalnum. Framhald á bls. 14. EGILL ÞORLAKS- SON, KENNARI, LÁTINN Egill Þorláksson, kennari, Grænumýri 5, Akureyri, lézt í sjúkrahúsi Akureyrar aðfaranótt mánudagsins 25. júlí rúmlega átt- ræður að aldri, eftir alllanga og þunga sjúkdómslegu. Hans verður nánar getið síðar hér í blaðinu. Stálu dráttarvél afsýningu f HZ-Reykjavík, mánudag. Á laugardagsnóttina var stolið rússneskri dráttarvél úr portinu hjá Birni og Halldóri. Var auglýst eftir henni í útvarpinu í dag og bárust þá margar tilkynningar um, að hún væri við Laxá í Kjós. Rannsóknarlögreglan fór á staðinn og tók dráttarvélina með sér í bæinn eftir að hafa komið henni upp úr mýrinni þar sem hún var föst. í ljós hefur komið að þjófurinn hafði viðdvöl á Geithálsi klukkan þrjú á laugardagsnóttina til þess að fá sér hressingu. Einnig spurð- ist til hans á leiðinni til borgar- innar, þegar hann var á gangi skammt frá Eyri í Kjós rétt fyrir hádegið í gær, sunnudag. Eftir öllum ummerkjum að dæma hefur þessi þjófur verið öku trylltur, því að sjá mátti að hann hafði djöflazt á dráttarvélinni í ánni uppfrá, hafði ekið um nær- liggjandi árbakka og mýrar unz hann festi hana. Alls hefur þvíl þjófurinn ekið ríflega 50 kílómetra um nóttina. Enginn hefur þekkt þjófinn, en einhver bílstjóri hefur vafalaust tekið hann upp í á leiðinni til borgarinnar. Það eru vinsamleg til mæli rannsóknarlögreglunnar, að þeir sem upplýsingar geti gefið um manninn eða piltinn, sem drátt arvélina tók, láti sig vita hið fyrsta. Þess skal getið að dráttarvélin stóð sig með prýði í þessari ferð og varð ekki meint af. HÉRAÐSMÓT AÐ KETILÁSI Framsóknarmenn á Siglufirði um leikur hljómsveít Hauks Ólafsfirði og í Fljótum halda Þorsteinssonar fyrir dansi- héraðsmót sitt að Ketílási, laugfpgg ardaginn 30. júlí n. k. og hefst§jjj það ki. 21. Ræður flytja, öl- afur Jóhannesson, varaformað- ur Framsöknarflokksins ogi Tómas Karlsson blaðamaður. f Magnús Jónsson, óperusöngvari M í ' syngur við undirleik ólafs ? Vignis Albertssonar, Jón Gunnj laugsson skemmtir, og að lok Ólafur 1,1 I 1 i , l . | u “AVvVvVVX’'""

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.