Vísir - 10.04.1975, Blaðsíða 6
6
Vísir. Fimmtudagur 10. aprii 1975.
vísrn
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóifsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Bírgir Pétursson
Ritstjórnarfulitrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
AfgreiOsla: Ilverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: SfOumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánuOi innanlands.
t lausasölu 40 kr. eintakiO. BlaOaprent hf.
Vitahringur sjávarútvegs )
Sjávarútvegurinn lifir i vitahring, sem hindrar )
hann i að njóta hinna miklu afkasta sinna. Hér á )
landi er aflamagnið á hvern sjómann þrisvar (
sinnum hærra en hjá Vestur-Þjóðverjum, sem /
næstir koma, og tiu sinnum hærra en hjá fjölda )
þjóða. Islenzkur sjávarútvegur ætti þvi að vera )
mjög arðbær, meðan sjávarútvegur annarra (
þjóða lifir á styrkjum. En samt berst sjávarút- (
vegurinn i bökkum. )
Röng gengisskráning er meginástæðan fyrir \
þvi, að sjávarútvegurinn nýtur ekki afkastanna. (
Árlega eru milljarðar fluttir frá sjávarútvegi út i )
þjóðfélagið með rangri skráningu gengis krón- )
unnar. Þessi ranga skráning leiðir reglubundið til (
taprekstrar i greininni. Þegar tapreksturinn er (
orðinn óbærilegur, er gengið svo lagfært nægi- )
lega til þess, að meðalfyrirtæki i sjávarútvegi )
skrimti. Lagfæringin nægir hins vegar aldrei til (
þess, að sjávarútvegurinn fái að fullu það, sem /
honum ber. )
Til þess að bæta sjómönnum það upp, sem þeir (
fá ekki með eðlilegum hætti, það er að segja með (
réttu gengi á verði afurða þeirra, er skipta- )
prósentan höfð of há. Þetta eykur enn vanda út- )
gerðarinnar. Skiptaprósentan tekur ekki tillit til (
vaxandi gildis tækjabúnaðar i aflaverðmætinu og (
hækkandi hluta oliuverðs i rekstrarkostnaðinum. )
Ef gengisskráningin væri rétt, þyrftu sjómenn )
ekki þessa háu skiptaprósentu og hefðu samt mun (
betri kjör, sem endurspegluðu betur gildi /
sjómanna fyrir þjóðfélagið. )
Mörgum aðgerðum er beitt til að láta sjávarút- \
veginn fljóta, þrátt fyrir fjármagnsleysið, sem (
röng gengisskráning og of há skiptaprósenta bak- )
ar honum. )
Sjávarútvegurinn hefur forgang að lánum til (
skipakaupa. Hann fær rikisábyrgð á skuldum sin- (
um. Hann fær sjálfkrafa afurðalán. Vaxtakjör )
hans eru hagstæðari en almennt gerist. Láns- )
timinn er lengri en almennt gerist og eðlilegt má (
teljast. Og lánaupphæðirnar eru óeðlilega hátt (
hlutfall stofnkostnaðar, allt upp fyrir 90%. )
Þannig er sjávarútveginum haldið uppi með lán- )
um og lánakjörum. (
Ef gengið væri hins vegar rétt skráð, þyrfti )
sjávarútvegurinn ekki fyrirgreiðslur umfram )
aðra starfsemi i landinu. Hann gæti borgað skip (
sin örar niður og myndað eigið fjármagn til (
skipakaupa. )
Ef gengið væri rétt skráð, gæti sjávarútvegur- )
inn greitt þjóðfélaginu sérstakan auðlindaskatt (
fyrir afnot sin af verðmætum efnahagslög- /
sögunnar umhverfis landið eins og honum ber i )
raun og veru að gera. \
Að sjálfsögðu er erfitt að finna hið rétta gengi (
krónunnar. Það er ekki rétt að miða gengið við )
núllrekstur og litla fjármagnsmyndun i sjávar- )
útvegi. Reyna verður að meta afköst hans i (
samanburði við erlendan sjávarútveg og haga (
gengi krónunnar á þann hátt, að afkastamunur- )
inn komi fram i krónum þeim, sem fiskiðjan fær )
fyrir gjaldeyri afurða sinna, og siðan i tilsvarandi (
hækkun fiskverðs til útgerðar og sjómanna. (
Með aðgerðum af þessu tagi væri unnt að skipa )
sjávarútveginum þann sess, sem honum ber og )
gera honum kleift að hafna bónbjörgum af hálfu (
rikisvaldsins. Með slikum aðgerðum gæti (
sjávarútvegurinn komizt úr vitahring sinum. )
-JK. (V
Ludwig Schneider,
forseti þýzka skáksam-
bandsins, gat ekki setið
á sér lengur. Hann
hringdi til Moskvu.
„Eigum við ekki að fá
þetta Pachman-mál á
hreint i eitt skipti fyrir
öll,” stakk hann upp á.
— Dauðaþögn i siman-
um. Sambandið hafði
verið slitið.
Þessa dagana stendur yfir
alþjóðlegt þýzkt skákmót I Mann-
heim, venjulega sótt af ýmsum
hinna sterkustu skákmanna
heims. Þegar leið að mótsbyrjun
sendi sovézka skáksambandið
slmskeyti og óskaði eftir lista yfir
þátttakendur i mótinu, sem er Ut
af fyrir sig ekkert óvenjulegt.
Það vill hins vegar svo til, að i
Mannheim teflir Ludek
Pachman, fimmtugur stór-
meistari, sem flutti frá
Tékkóslóvakiu. Hann var einn
„frelsingjanna”, sem fylgdu
Dubcek að málum.
Næst heyrðist svo frá Moskvu,
þegar skeyti barst um, að Tigran
Petrosjan, fyrrum heims-
meistari, og Paul Keres gætu ekki
tekið þátt I mótinu eins og hafði
verið ætlað.
A slðustu stundu bárust slðan
tilkynningar frá Rúmeniu og
Búlgariu um, að þátttakendur
þaðan væru hættir við.
Þýzka skáksambandið unir’
ekki lengur þvi, hvernig það er
sett hjá. Það hefur borið sig upp
undan þessu við Alþjóðaskák-
sambandið (FIDE).
Þegar aðrir austantjaldsflótta-
menn eiga I hlut þá virðist allt i
lagi. Rússar hafa teflt á mótum,
þar sem Kavalek (landi
Pachmans) hefur teflt á vegum
Bandarikjanna, eða Liberson,
sem flutti frá Sovétrikjunum til
tsraels.
En þeir virðast ætla að reyna að
einangra Pachman jafnt á sviði
iþróttanna, eins og þeir gerðu á
sviði stjórnmálanna.
Pachman, sem lenti i höndum
Gestapó i heimsstyrjöldinni
vegna kommúniskra skoðana
sinna, öðlaðist brautargengi eftir
strið i tékkneska kommúnista-
flokknum, gallharður Stalinisti.
Hann varð stórmeistari og komu
út eftir hann fjórtán skákbækur.
— En 1967 eftir júnibyltinguna
var Pachman bannað að skrifa.
Þegar Rússar hernámu
Tékkóslóvakiu 1968, gerðist
Pachman talsmaður Dubeck
stefnunnar. Hann var hnepptur I
fangelsi og kom þaðan
höfuðkúpubrotinn og hrygg-
skekktur. Hann var rekinn úr
kommúnistaflokknum og úr
skáksambandi Tékkóslóvakiu.
1972 skaut Egon Evertz forseti
Solingerskáksambandsins (stofn-
að 1868) yfir hann skjólshúsi.
En á meistaramóti sam-
bandsins 1974 var sæti Pachmans
autt. Sambandið hafði lagt að
honum að taka ekki þátt i mótinu,
ella hefðu skákstjörnurnar Lew
Polugajewski og Boris Spasski
farið heim.
Þetta vakti nokkra úlfúð og
Solingersambandinu bárust mörg
nafnlaust bref, sem sökuðu Egon
Evcrtz um að vera senditik
Breschnevs.
Þar sem Pachman hafði verið
sviptur rikisborgararétti i heima-
landi sinu, hafði hann ekkert
rikisfang, þegar teflt var um
Þýzkalandsmeistaratitilinn 1974.
Hann gat þvi ekki tekið þátt i þvi.
Fluttist hann þá til Berlin.
Þetta varð mikið pólitiskt hita-
mál i Þýzkalandi, og blandaðist
inni umræður um „ostpolitik”
Brandts. Meðal annarra sem
lagði orð I belg, var nóbelsskáldið
Heinrich Böll.
Utanferðum sovézkra skák-
snillinga stjórnar Wiktor
Baturinski, framkvæmdastjóri
sovézka skáksambandsins, og
gegnir þar svipuðu hlutverki og
landsliðseinvaldar annarra
Iþróttagreina. Nema Baturinski
þykir stjórna á svipaðan máta og
ofurstinn i bók Solzhenitsyns um
„Þrælabúðaeyjaklasann”, þar
sem hann lýstir Stalintimanum.
Baturinski refsaði stór-
meistaranum Keres með þvi að
setja hann I utanferðarbann, af
þvi að Keres hafði heimsótt
Pachman eitt sinn. Spasski, fyrr-
um heimsmeistara, var einnig
hegnt, vegna þess aðhannhafðii
þýzka sjónvarpinu kallað
Pachman vin sinn.
1974 sótti Pachman um rikis-
borgararétt I Þýzkalandi og hann
hefur teflt á þeirra vegum siðan,
t.d. i sex landa keppninni, þar
sem hann tapaði ekki skák. Hann
mun tefla á næsta svæðamóti, og
verður fróðlegt að sjá, hvernig
Rússar bera sig að þá, þvi að
þeir missa af kapphlaupinu um
áskor^ndaréttinn til heims-
meistaraeinvigisins, ef þeir taka
ekki þátt i svæðamótunum.
A svarta lista sovézka
skáksambandsins eru nokkur
lönd, eins og Suður-Afrika,
Rhodesia, Formósa og Israel, en
aðeins einn einstaklingur og það
er Pachman.
En nú hefur þýzka skáksam-
bandið hafið gagnsókn og það á
tvennum vigstöðvum. Fyrst
hefur það kært þetta framferði
RUssa tilFIDE. En i öðru lagi eru
stórmeistarar þeirra (og þeir
eiga nokkra) farnir að sniðganga
mót Rússa. Þannig hætti
Wolfgang Unzicker við þátttöku I
Tallin (þar sem Friðrik Ólafsson
skaraði fram úr) og tveir
sovézkir skákmenn hafa verið
strikaðir út af þátttökulista i
Dortmunderskákmótinu, sem á
að fara fram i þessum mánuði.
„Viðmunum fylgja þessu máli
fast eftir,” sagði Schneider for-
seti þýzka skáksambandsins i
viðtali við „Der Spiegel” fyrir
skömmu.
?*CHMAN
Pachman stórmeistari yfir skák I Mannheim: „Þaörofnaði sambandið við Moskvu.”