Vísir - 11.04.1975, Qupperneq 2
2
Vísir. Föstudagur 11. apríl 1975.
vimm
— Hafið þér gefið i FRÍ-söfnun-
ina?
Gunnar Valdimarsson, lögreglu-
þjönn: — Nei, það hef ég ekki
gert. En það er ekki útilokað, að
ég eigi eftir að gera það. Hins
vegar var ég á móti sigarettu-
pakkasöfnuninni. Fannst sú fjár-
öflunaraðferð ekki samræmast
alveg hugsjónum iþróttamanna.
Sigurður Danielsson, verzlunar-
maður: —Nei,ekki ennþá. En ég
er liklegri til að gera það núna
eftir að hætt er við pakkasöfnun-
ina.
Ingvi Einarsson, sjómaður: Nei,
það hef ég ekki gert. Ég er
hálfhissa á FRI að hætta við
pakkasöfnunina. Það var ekki svo
fráleit fjáröflunarleið og ég trúi
þvi ekki, að hún hefði haft skaðleg
áhrif. Fólk hefði hvorki reykt
meira né minna þrátt fyrir að
henni hefði verið haldið áfram.
Erlendur Hauksson, matsveinn:
— Nei, ég er ekki búinn að þvi, en
ætla að gera það alveg hiklaust.
Það er sjálfsagt að styrkja gott
málefni. Mér hefði bara fundizt
pakkasöfnunin mega halda áfram
lika. Það vantar peninga, og er
ekki nokkuð sama hvaðan þeir
koma?
Arnór Ilannesson, skrifstofumað-
ur: — Nei, ég hef ekki gert það, en
væri liklegur til þess ef leitað væri
til min. Áhugi minn er ekki nógu
mikill til að ég leiti uppi þá sem
eru að safna...
Helgi Daníelsson, rannsóknarlög-
reglumaður og iþróttafréttarit-
ari: — Ég ætia að gefa. Ég hafði
tekið þá ákvörðun að láta eitthvað
af hendi rakna, ef FRl sýndi þann
manndóm að hætta við pakka-
söfnunina áðuren sýnt yrði, hvort
hin söfnunin mundi gefa eins mik-
ið af sér og tóbakið.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
„Tekur því ekki að fara
til Spónar fyrir 2 vikur"
Sólarunnandi skrifar:
„Undanfarin ár hef ég og fjöl-
skylda min eytt sumarleyfi
okkar með ferðalögum um land
ið, aðallega i tjöldum með mis-
jöfnum árangri — þó oft ágæt-
um.
S.l. sumar breyttum við til og
eyddum öllu sumarfri'inu, 4 vik-
um, suður á sólarströnd Spánar.
Þetta fannst öllum mjög
skemmtileg ferð, en mest hrif-
inn var ég af þvi, hve heilsufar
okkar allra virðist hafa batnað
mikið á sviði kvefkvilla. Núna i
vetur hefur enginn úr fjölskyld-
unni fengið kvef eða skylda
kvilla, en undanfarna vetur
hafa allir fengið slika kvilla
nokkrum sinnura á vetri — ég
t.d. hef verið með meira og
minna stöðugt kvef megnið af
hverjum vetri, en núna ekkert.
Þetta þakka ég að sjálfsögðu
hinu mikla sólskini, sem við
fengum þarna suðurfrá og sér-
staklega sólböðunum siðustu
tvær vikurnar þarna, en þá varð
maður virkilega brúnn. Hefðum
við „aðeins” verið þarna 2 vik-
ur, þá efast ég um, að við hefð-
um náð þessari heilsubót.
Þess vegna er ég staðráðinn i
að reyna að komast aftur til
sólarstrandarinnar 4 vikur i
haust, ef nokkur kostur yrði á
þvi, en myndi láta vera að fara
fyrir 2 vikur aðeins. Slik
„skyndiferð” myndi ekki svara
kostnaði og ekki ná tilætluðum
árangri.
Þess vegna erum við mjög
undrandi og óhress yfir ákvörð-
un gjaldeyriseftirlits bankanna
að banna lengri en 2 vikna
Spánarferðir. Þetta virðist vera
afar heimskuleg ráðstöfun, þar
sem hér er aðeins um litið brot
af 1% heildargjaldeyriseyðslu
okkar að ræða.
Ég vildi gjarnan (og margir
aðrir eflaust) fá að vita, hvaða
aðilar eða flokkur bera ábyrgð á
slikri heimsku og tilhneigingu i
höftum — þvi slika aðila og
flokka mun ég i' framtiðinni var-
ast að styðja og siður kjósa.”
„Ef þeir halda ófram
að hakka í sig nesin'
„DAS á þakkir skildar fyrir
að gefa kaupendum sínum
kost á að vinna þetta stór-
glœsilega hós sem
aukavinning á nœsta happ-
drœttisári..."
Björn Pálsson, Viðilundi 4,
Garðahreppi skrifar:
„Sem lesandi Visis get ég ekki
orða bundizt um þessi skrif i les-
endabréfum blaðsins um happ-
drætti DAS. Hverslags börn eru
þetta, sem eru að skrifa um
jiessi mál? Það vita allir (að
minnsta kosti þeir sem eitthvað
vilja vita og spila i stóru happ-
drættunum), að það er dregið úr
öllum útgefnum miðum og hefur
alla tið verið. öll happdrættin
hafa ákveðinn fjölda af miðum,
sem er ákveðinn af ráðuneytinu
og alþingi.
En happdrætti DAS er eina
happdrættið, sem hefur sett
vinning aftur inn.
Á stjórn happdrættis DAS
þakkir skildar að gefa kaupend-
um sinum kost á að vinna þetta
stórglæsilega hús sem auka-
vinning á næsta happdrættisári.
En stjórninni bar ekki nein
skylda til að gera þetta.
Erþað stórmannlega gert og i
samræmi við þær glæsilegu
byggingar á Hrafnistu, sem
happdrættið hefur átt stærstan
þátt i að fjármagna og stór-
framkvæmdirnar, sem fram-
undan eru i Hafnarfirði.
Þvi skora ég á sem flesta að
styðja happdrætti DAS, þvi að
um leið bæta þeir hag hinna
öldruðu, en það er svo sannar-
lega gott málefni! ”
Lesandi sendi Vísi meðfylgjandi mynd og bréf:
„Þetta er tækið, sem þá vantar tilfinnanlega hjá
Haf namálastof nuninni, ef þeir ætla að halda áf ram
að hakka í sig nesin okkar. Þetta er 47 tonna neðan-
sjávarýta, sem að sjálfsögðu þarf f roskmann til að
stjórna. Hefðu þeir haft svona tæki á Álftanesinu,
hefðu þeir sennilega verið búnir með f jörurnar,
áður eri náttúruverndarunnendur hefðu getað snúið
sér við. — Það er japanskt fyrirtæki, sem fram-
leiðir þennan grip og auglýsir hann í nýjasta hefti
Newsweek."
„Gengið er sigið,
öllu er eytt..."
Hjalti Friögeirsson sendi eftirfarandi fréttapistil í bundnu
formi:
Tæknin er mikil, sé tölvunni beitt,
Timinn og áburður niðurgreiddur.
Gengið er sigið, öllu er eytt,
Einar i Moskvu afvegaleiddur.
KOMA
STORKSINS
JARTEIKN?
H.A. hringdi:
„Ég var að velta þvi fyrir
mér, hvort heimsókn storksins
til íslands — þið vitið, storksins
sem var að spóka sig einhvers
staðar fyrir austan — hefur ekki
haft einhverja táknræna þýð-
ingu.
Persónulega er ég þeirrar
skoðunar, að koma storksins
hingað sé jarteikn um það, hve
varasamar kröfur um frjálsar
fóstureyðingar eru. Það er
alkunna, að i flestum löndum
heims, nema Islandi, er það
storkurinn, sem sér um mann-
fjölgunina, og þvi hafi æðri
máttarvöld séð ástæðu til að
senda þennan fulltrúa frjósem-
innar hingað til okkar.
Niðurstaðan er sem sagt sú,
að storkurinn hafi verið sendur
hingaö til að storka þeim, sem
vilja heimila fóstureyðingar eft-
ir duttlungum.”