Vísir - 25.04.1975, Page 7
Vlsir. Föstudagur 25. aprll 1975.
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
HVERNIG VÆRI AÐ
BAKA KEXIÐ SJÁLF?
Hvernig væri að
prófa að baka kex? Það
er vist ekki algengt að
fólk nú til dags geri
það. Enda bjóða
verzlanir upp á bæði
innlent og erlent kex af
öllum tegundum og
gerðum, og það er
þægilegra að seilast í
hilluna og taka einn
pakka en að hræra
sjálfur. En svona i til-
efni þess að sumar er
nýgengið i garð, vill
kannski einhver
spreyta sig!
Þessar ágætu uppskriftir
fundum við i bók Helgu
Sigurðardóttur, Matur og
drykkur.
Rúsinukex
250 g haframjöl
250 g hveiti
375 g sykur eða púðursykur
100 g rúsinur, saxaðar
1 tsk. natron
1/2 tsk. salt
250 g smjörlíki (brætt)
2 egg
Haframjöli,hveiti, sykri, salti
og natroni er blandað saman.
Vætt i með bræddu smjörlikinu
og eggjunum. Rúsinurnar látn-
ar i og deigið hnoðað. Skipt i 4
hluta, flatt út og tekið undan
kringlóttu móti eða skorið i fer-
kantaðar kökur eins og kex.
Bakað við frekar mikinn hita.
Kex þetta er borið fram sem
smákökur eða smurt með
smjöri.
Skólakex
1 bolli haframjöl
1 bolli hveitiklið
1 bolli heilhveiti
1 bolli hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. hjartarsalt
1/2 bolli púðursykur
150 g smjörliki
1 dl mjólk
Mjöltegundunum og kliðinu er
blandað saman, þar i blandað
lyftidufti, hjartarsalti og púður-
sykri. Smjörlikið mulið i og vætt
i með mjólkinni og deigið
hnoðað. Flatt út i meðallagi
þykkt. Pikkað og tekið undan
kringlóttu móti. Raðað á
smurða plötu og bakað við
góðan hita.
Rúgkex
500 g rúgmjöl
1/2 tsk. salt
.250 g smjörliki
2 1/2 dl mjólk
Saltinu er blandað i rúgmjöl-
ið, og þar saman við er smjör-
likiö mulið. Vætt i með mjólk-
inni. Hnoðað, unz deigiö er
jafnt. Flatt út i þunnar kökur,
pikkað og skorið i tigla, sem
bakaðir eru ljósbrúnir.
Heilhveitikex
1/4 kg heilhveiti
1/4 kg hveiti
1/4 kg smjörliki
1 tsk. salt
1 msk. sykur
2 tsk. kúmen
2 dl vatn
Heilhveiti, hveiti, sykri og
salti er blandað saman. Smjör-
likið mulið i og kúmen látið
saman við. Vætt I með vatninu
og deigið hnoðað. Flatt út, pikk-
aö og tekið undan kringlóttu eða
ferköntuðu móti. Bakað ljós-
brúnt við góðan hita.
Hveitikex I
250 g hveiti
65 g kartöflumjöl
90 g smjörliki
30 g sykur (2 msk.)
1 egg
3 msk. vatn
Kartöflumjölinu og hveitinu
er sáldraö á borð. Smjörlikið
mulið saman við, sykrinum bætt
I, vætt með egginu og vatninu.
Hnoðað. Flatt út. Skorið i tlgla
eða tekið undan glasi. Pikkað.
Bakað ljósbrúnt. Deigið má
einnig fletja út á plötunni.
Hveitikex II
125 g hveiti
125 g kartöflumjöl
1/2 tsk. lyftiduft
100 g smjörliki
40 g sykur
1/2 egg
1/2-3/4 dl rjómi
Búiö til á sama hátt og hveiti-
kex nr. I (Lyftiduftið er sáldrað
með hveiti og kartöflumjölD
Hafrakex I (50 stk)
250 g haframjöl
60 g smjörliki
1 1/2 msk. sykur
1 hnifsoddur salt
1 tsk. lyftiduft
4-5 msk. mjólk
Smjörllkiðermuliðsaman við
hafragrjónin. Salti, sykri og
lyftidufti blandað þar i. Hnoðað
saman með mjólkinni og hveiti,
ef þarf. Breitt út heldur þykkara
en smákökur. Tekið undan
glasi, pikkað og látið á smurða
plötu og bakað ljósbrúnt.
Hafrakex II (80 stk.))
1/2 kg haframjöl
1 msk. hjartarsalt
4 msk. sykur
200 g smjörllki
3 1/2-4 dl mjólk
Hveiti til þess að hnoða upp i
í haframjölið er blandað
hjartarsalti og sykri. Þar i mul-
ið smjörlikið. Vætt i með mjólk-
inni og deigið hnoðað saman.
Bezt er að sem minnstu hveiti sé
hnoöað upp i það. Flatt út, pikk-
aö. Tekið undan kringlóttu, litlu
móti. Bakað við góðan hita.
Hafrakex III
250 g haframjöl
75 g hveiti
1 tsk. hjartarsalt (full)
1 tsk. lyftiduft
50 g sykur
125 g smjörliki
1 1/4 dl mjólk
Haframjöli, hveiti, hjartar-
salti, lyftidufti og sykri er
blandað saman, þar i er smjör-
likið mulið. Vætt i með mjólk-
inni og deigið hnoðað. Mótað i
kökur og flatt út. Pikkað og tek-
iðundan kringlóttu móti. Bakað
við góðan hita.
tlllllllllllll