Vísir - 30.04.1975, Síða 3
Vlsir. Miðvikudagur 30. aprll 1975.
3
I
_ Munir af sýningu
^ hér sendir til Hafnar
„íslenzk nytjalist" framlengd
Hefur sýningin vakið mikla
athygli og aðsókn verið góð.
Ýmislegt fleira stendur til hjá
Listiðn. 1 mai og júni eru fyrir-
hugaðar tvær sýningar. Á
annarri verður sýnt keramik og
hinni ljósmyndir og bókagerð.
Verða þessar sýningar i Nor-
ræna húsinu.
FRÆÐINGUR FER UM LANDIÐ
Á VEGUM ALMANNAVARNA
Prófessor M. deQuervain for-
stöðurmaður svissnesku snjó-
flóðastofnunarinnar kom til
landsins i gær á vegum Almanna-
varna rlkisins.
Ásamt Guðjóni Petersen mun
hann ferðasttil Neskaupstaðar,
Seyðisfjarðar og Siglufjarðar til
að kynna sér snjóflóðahættu á
þessum stöðum og gefa siðar
meir skýrslu um hugsanlegar
ráðstafanir og varnir gegn snjó-
flóðum þar.
Prófessor M. deQuervain mun
dveljast hér á landi fram til
niunda mai.
-JB.
Sigrún Guöjónsdóttir listiðnhönnuður er þarna að lagfæra
skreytingu, sem hún hefur gert á gluggakistu.
.Ljósm.: Bragi.
„SVOLURNAR" STYRKJA
FJÖLFÖTLUÐ BÖRN
Auk Péturs sýna Sigrún
Guðjónsdóttir listiðnhönnuður,
Asa ólafsdóttir, vefari, Jens
Guðjónsson gullsmiður og
Baldvin Björnsson teiknari. öll
eru þau félagar I félaginu List-
iðn,sem stendur að sýningunni.
Lúthersson og sunnudag
Baldvin Björnsson.
Sýningin er opin daglega kl. 2-
10. -EA.
SVISSNESKUR SNJÓFLÓÐASÉR-
Ýmsa skemmtilega muni gef-
ur að lita á sýningunni „tslenzk
nytjalist 1,” sem nú hefur verið
framlengt til 4. maí. Meðal
annars húsgögn Péturs B.
Lútherssonar, sem send verða á
sýningu i Kaupmannahöfn,
Scandinavian Furniture Fair.”
miðVikudag, Sigrún Guðjóns-
dóttir, fimmtudag, Asa Ólafs-
dóttir, föstudag, Jens Guðjóns-
son, laugardag, Pétur B.
Pétur B. Lúthersson húsgagnaarkitekt er hér við nokkur verka
sinna, en hann mun verða einn af þeimsemsýnir á sýningu I
Kaupmannahöfn á næstunni.
Á sýningunni sem nú stendur
yfir I Hafnarstræti 3, munu
höfundar verkanna útskýra
verk sfn og svara fyrirspurnum
eftirtalin kvöld, kl. 6-10:
Bessi Bjarnason rif jar upp hlutverk sitt úr söngleiknum KABARETTI Afmælissyrpunni og er jafnframt
kynnir.
AFMÆLISSYRPA
Skemmtidagskrá sú, sem
tekin var saman i tilefni 25 ára
afmælis Þjóðleikhússins og
sýnd starfsfólki og boðsgestum
á afmælisdegi leikhússins 20.
april, hlaut svo góðar viðtökur,
að ákveðið hefur verið að hafa
nokkrar sýningar fyrir almenn-
ing. Sú fyrsta var s.l. sunnu-
dagskvöld fyrir fullu húsi og
næsta sýning verður á sunnu-
daginn kemur (4. maí) Um 80
listamenn koma fram i
Afmælissyrpu, en þar eru fluttir
þættir úr verkum, sem sýnd
hafa verið í Þjóðleikhúsinu á
liðnum árum. Má þar nefna
verk eins og Islandsklukkuna,
Gullna hliðið, Pétur Gaut, Gisl,
Ó, þetta er indælt strið, Kaba-
rett, Fiðlarann á þakinu, My
Fair Lady, Leðurblökuna,
Coppeliu, Þrymskviðu svo eitt-
hvað sé nefnt.
Gisli Alfreðsson hefur tekið
afmælissyrpu saman og stjórn-
að flutningi, Carl Billich er
hljómsveitarstjóri en Birgir
Engilberts gerir leikmyndir.
Félagið Syölurnar, skipaö fyrr-
verandi og núverandi flugfreyj-
um, efnir 1. mai til tizkusýningar,
kaffisölu og happdrættis I
Vikingasalnum að Hótel Loftleið-
um. Verður ágóöanum varið til
styrktar fjölfötluðum börnum.
Félagið var stofnað fyrir ári
siðan, með það að markmiði m.a.
að vinna að velferðarmálum
þeirra, sem litils mega sin i þjóð-
félaginu. Á þessum tima hefur
félaginu orðið vel ágengt i
fjáröflunarstarfsemi sinni. Við
siðustu fjáröflun söfnuðust 350
þúsund til Fæðingardeildar
Landspitalans.
Á tizkusýningunni á morgun
verða sýnd föt frá fjórum tizku-
verzlunum i Reykjavik kl. 15 og
16.30.
— EA
BREZKIR SONGVAR
HJÁ HJLÓMEYKI
Söngflokkurinn Hljómeyki
heldur tónleika á morgun klukkan
20.30 i Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut i Reykjavik. Á cfnis-
skrá eru gamlir og nýir brezkir
söngvar, og hafa margir þeirra
ekki heyrzt hérlendis fyrr en nú,
þar á meðal lagaflokkurinn Five
flowersongs eftir Benjamin Britt-
en.
Gestir Illjómeykis á þessum
tónleikum verða Jósep Magniis-
son, flautuleikari, Páll Gröndal,
sellóleikari og Jónas Ingimund-
arson pianóleikari, en hann leikur
jafnframt undir viö nokkra
söngvanna.
— SHH
HÉLDU ÁRSÞING OG
AFMÆLISHÁTÍÐ
Bankamenn héldu nýlega upp á
40 ára afmæli Sambands is-
lenzkra bankamanna með gesta-
móttöku að Kjarvalsstöðum.
Fagnaöinn sóttu 2000 gestir. Þar
fluttu ýmsir aðilar ávörp og gáfu
gjafir.
Um sama leyti var 29. þing
sambandsins haldið i Reykjavik,
og sóttu það 87 þingfulltrúar frá
11 aðildarfélögum. Kjörin var ný
stjórn, og er Sólon R. Sigurðsson
formaður. Framkvæmdastjóri
Sambands islenzkra banka-
manna er Hilmar Viggósson.
A þinginu voru samþykktar
ályktanir um kjaramál og kjara-
samningamál og um jafnréttis-
mál karla og kvenna.
I beinu framhaldi af þinghaldi
og afmæli var haldinn i Reykja-
vik fundur i stjórn Norræna
bankamannasambandsins, og
var það meðal annars samþykkt
að Norræna bankamannasam-
bandið stæði fyrir könnun á stöðu
konunnar á vinnumarkaði
Norðurlanda. — SHH